Morgunblaðið - 06.08.1983, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 1983
Dæmdir í samtals
4022 ára fangelsi
Kunningi Khadafys stóð
að byltingu í Efri-Volta
Ouagadougou, Kfri VolU, 5. ájfúst. AP.
AÐ SÖGN vestrænna diplómata í borginni steypti Thomas Sankara, 35
ára gamall herforingi, stjórn Jean-Baptiste Quedraogo af stóli í nótt. Alls
munu 13 manns hafa látið lífið í byltingunni og 15 særst. Aðrar heimildir
herma, að fimm manns hafi látið lífið í átökum, sem urðu við byltinguna,
Belfast, 5. ágúst. AP.
EITIR réttarhöld án kviðdóms, þar
sem aðalvitnið var fyrrum skytta,
dæmdi dómari í Belfast 22 meðlimi
IRA, írska þjóðfrelsishersins, í
Myrtu
foreldra
sína
Stuttgart, 5. áirúst. AP.
VESTUR-ÞYSKA lögreglan hef-
ur handtekið tvo bandaríska
unglinga fyrir morð á foreldrum
sínum í Pattonville-herstöðinni í
Remseck fyrir norðan Stuttgart.
Unglingarnir, Terence J.
Fultz 17 ára og Shan Ray Fultz
14 ára, voru handteknir á
bandarísku hergistihúsi nærri
Chiemsee í Bajaralandi. Þeir
höfðu að því er virðist rifist við
foreldra sína, Terry L. Fultz
liðþjálfa og eiginkonu hans,
vegna peninga.
Líkin fundust á mánudag
margstungin og vafin inn i
teppi í kjallara íbúðarhúss
þeirra, en rotnunarlykt vakti
tortryggni annarra íbúa húss-
ins.
Nafn móður piltanna var
ekki gefið upp af blaðafulltrúa
hersins, þar sem enn hafði ekki
náðst í fjölskyldu hennar.
MJALDINUM, sem lokaðist af inni
í litlum firði í Danmörku, tókst loks
að losa sig eftir að hafa þraukað af
óvenjulega heitt sumar. Óþægindi
hans voru þó ekki á enda því hann
var vart kominn úr prísundinni er
hann flækti sig í fiskinetum á
grunnsævi.
Honum var þó komið til bjargar
af starfsmönnum björgunarfélags,
sem losuðu hann úr netunum
skammt suður af Frederikshavn.
Var hvalnum síðan stýrt á haf út
og sögðust björgunarmennirnir
hafa séð til sporðakasta hvalsins,
þar sem hann synti út á Kattegat.
Hins vegar virtist honum ekki
allskostar vera rótt eftir því sem
björgunarmenn sögðu.
fangelsi í dag. Á meðal þeirra
dæmdu voru margir af þeim sem
taldir eru vera framarlega í flokki
innan IRA. Fangelsisdómarnir voru
frá þremur árum til lífstíðar.
Að sögn lögreglu marka þessi
réttarhöld tímamót í baráttunni
við IRA. Með dómunum í dag hafi
heil fylking hreyfingarinnar í
Belfast hreinlega verið þurrkuð
út. Réttarhöldin stóðu yfir í 121
dag og eru þau lengstu og kostn-
aðarsömustu í írskri réttarsögu.
Dómarinn Basil Kelly var í
skotheldu vesti undir einkennis-
klæðum sínum allan tímann með-
an á réttarhöldunum stóð. Upp-
haflega voru sakborningarnir 35
talsins, en 13 þeirra var sleppt. Fá
þeir skilorðsbundna dóma. Fimm
konur voru í hópi sakborninganna
og var fjórum þeirra sleppt. í
þeim hópi var 71 árs gömul kona.
Hún er elsti meðlimur IRA-sam-
takanna, sem dreginn hefur verið
fyrir rétt. Samanlagður tími
fangelsisdómanna, sem sakborn-
ingarnir voru dæmdir f, var 4022
ár.
Það var maður að nafni Christ-
opher Black, sem kom upp um
þessa fylkingu innan IRA. Sagði
háttsettur lögreglumaður, að ekki
léki nokkur vafi á, að IRÁ myndi
gera ailt sem í valdi samtakanna
stæði til þess að hafa upp á hon-
um og koma fyrir kattarnef. Hon-
um og fjölskyldu hans hefur verið
komið úr landi.
Fregnir af mjaldrinum bárust
fyrst um miðjan maímánuð, þar
sem hans varð vart í Limafirði.
Hafði mjaldur þá ekki sést í sjó
við Danmörku frá því 1903. Þrátt
fyrir allar hrakspár tókst hvaln-
um að lifa sumarið af. Reynt var
að ná honum upp með netum til
þess að flytja hann yfir land og út
í Norðursjó, en tókst ekki.
Talið er að um 200.000 ferða-
menn hafi séð til mjaldursins, þar
sem hann lék á als oddi í firðinum,
þar sem hann var innilokaður.
Hafði tekist að fá hann til að
venja komur sínar að landi kvölds
og morgna til þess að þiggja síld í
svanginn.
og 15 særst.
Að sögn bandaríska sendiherr-
ans í Ouagadougou, Julius Walker,
hófust ósköpin með kröftugri
skothríð um kl. 21.30 í gærkvöld
að íslenskum tíma. Sagði sendi-
herrann skothríðina hafa tekið
enda um 15 mínútum eftir að hún
hófst. Útgöngubann var fyrirskip-
að í morgun, en því fljótlega af-
létt. Virtist ástandið í borginni í
dag að öllu leyti eðlilegt, utan
hvað engin umferð var um flug-
völlinn.
Walker sagði ennfremur, að
Sankara hefði tilkynnt í útvarpi,
að hann hefði tekið við völdum í
landinu. Hvatti hann alla lands-
menn í útvarpssendingunni til
þess að fylkja sér um byltingarráð
landsins.
Að sögn vestrænna diplómata
er Sankara náinn vinur Moammar
Khadafy Líbýuleiðtoga. Hins veg-
ar benti ekkert til þess, að Líbýu-
menn hefðu staðið að baki bylting-
unni. Sankara var áður forsætis-
ráðherra Efri-Volta og er jafn-
framt náinn vinur leiðtoga Ghana,
Jerry Rawlings, sem braust til
valda í fyrra.
Að sögn þeirra, sem til þekkja,
KaLaníu, Sikiley, 5. ágúst. AP.
AÐ SÖGN yfirvalda hefur loks orðið
hlé á gosinu í Etnu, sem staðið hefur
í 130 daga samfleytt. Er þetta annað
lengsta eldgos á þessari öld, hófst
þann 28. mars.
Um tíma varð að grípa til þess
að stýra hraunflaumnum af upp-
runalegri braut, þar sem hann
ógnaði byggð og mannslífum. Var
sprengiefnum beitt við aðgerðina,
sem ekki þótti takast nægilega vel.
Kom þó að einhverju gagni.
eru byltingar í Efri-Volta yfirleitt
lausar við blóðsúthellingar og
valdhöfum sýnd virðing þótt þeim
sé steypt af stóli. Var Quedraogo
sagður heill á húfi, en í stofufang-
elsi. Þetta er þriðja byltingin í
Efri-Volta á þremur árum. Siðasti
leiðtogi landsins, sem kjörinn var
í almennri kosningu, var Sangoule
Lamizana. Honum var steypt af
stóli af hernum 1978.
Að sögn Letterio Villari, for-
stöðumanns alþjóðlegu eldfjalla-
stofnunarinnar, komu rúmlega
132 milljónir lesta hrauns úr
eldfjallinu í þessu gosi. Lagði
hraunið undir sig 7 ferkílómetra
svæði áður en gosið stöðvaðist. Á
meðan á gosinu stóð eyðilagði
hraunstraumurinn m.a. stólalyftu,
tvö veitingahús og fjölda af-
skekktra húsa og glæsilegra
sumarhúsa.
Mjaldrinum aftur
bjargað úr ógöngum
FrederikNhavn, Danmörku, 5. ágúst. AP.
Öðru lengsta gosi
aldarinnar lokið
Þotan varð eldsneytislaus í
miðju flugi í 41.000 fetum
SKÝRT hefur verið frá því að ný
Boeing 767 breiðþota Air Canada,
sem nauðlenti með 69 farþega á
gömlum afiögðum flugvelli við
Gimli í íslendingabyggðum í
Kanada, hafi orðið eldsneytislaus í
miðju áætlunarflugi frá Montreal
til Edmonton. Mistök urðu við
áfyllingu flugvélarinnar.
Við áfyllingu var notast við
mælistiku því rafeindatæki í
fiugstjórnarklefanum, sem gefa
eldsneytismagn til kynna, voru
óvirk. Ljóst er að áfyllingar-
mennirnir mældu eldsneytið í
pundum í stað kílóa, en mæli-
tæki nýju breiðþotunnar byggja
á metrakerfinu. Fengu þeir
fyrirmæli um að setja vissan
kílóafjölda eldsneytis á tanka
þotunnar, en settu í staðinn
sama pundafjölda. Þar sem 2,2
pund eru í hverju kílói var því
helmingi minna eldsneytismagn
á þotunni er hún lagði af stað en
flugmennirnir töldu vera. Vegna
tækjabilunar gátu þeir ekki
fylgst með eldsneytismagninu í
fiuginu, og viðvörunarbúnaður,
sem gefur frá sér ljós og hljóð
þegar birgðir eru aðeins til
hálfrar stundar flugs, var einnig
óvirkur.
Flugmennirnir áttu sér því
einskis ills von þegar hreyflarnir
hljóðnuðu með örstuttu millibili,
þar sem þeir flugu í 41 þúsund
feta hæð yfir sléttum Manitoba.
Nú voru góð ráð dýr, því allt
rafmagn fór af um stundarsakir
og stjórntæki urðu óvirk sek-
úndubrot. Fljótlega fékkst þó
rafmagn af 24 volta neyðar-
geymi til að knýja talstöðina og
nauðsynlegustu rafmagnstæki.
Og neðan úr búk þotunnar féll
túrbína sem pressaði loft til að
hægt yrði að nota hæðar og
hallastýri hennar.
Boeing-breiðþotan var því
ekkert annað en risastór svif-
fluga í rúmlega 41 þúsund feta
hæð. Og það kom sér vel að Rob-
ert Pearson flugstjóri hafði
dundað sér við svifflug í frí-
stundum. Einnig kom sér vel að
aðstoðarflugmaðurinn, Maurice
Quintal, mundi eftir gamla ónot-
aða herflugvellinum í Gimli þar
sem hann hlaut einmitt flug-
þjálfun sína. Létu þeir þotuna
svífa þangað, en flugvöllurinn
var í 100 km fjarlægð.
Á flugvellinum var fjöldi fólks
því hann er notaður af aksturs-
íþróttamönnum. Varð uppi fótur
og fit meðan þotan lækkaði sig í
hringjum yfir vellinum og er
menn áttuðu sig hvað var á seyði
hlupu þeir sem fætur toguðu í
allar áttir. Þotan kom síðan æð-
andi inn yfir brautarendann á
um 350 km hraða, þar sem flug-
mennirnir gátu ekki notað
vængbörð til að hægja ferðina,
og nam hún staðar skammt frá
hinum endanum, í aðeins 300
metra fjarlægð frá hjólhýsa-
þyrpingu, þar sem mannmargt
var.
Það þykir með ólíkindum að
ekki skyldi fara verr í þessu
óhappi en raun varð á. Þotan var
á fiugi yfir sléttlendi um bjartan
Breiðþota Air Canada hvílir á trjónunni á flugvellinum í Gimli í íslend-
ingabyggðum í Kanada eftir nauðlendingu þar.
dag og ský var ekki á himni.
Heppilegir lendingastaðir voru
nægir, en gamli flugvöllurinn sá
besti. Hann var ekki lengur á
flugkortum og tilviljun að annar
flugmaðurinn mundi eftir hon-
um þar sem hann lærði þar að
fljúga. í nauðlendingunni hlutu
aðeins örfáir farþeganna 69
skrámur og þotan laskaðist
óverulega, nefhjólið brotnaði og
gaf sig þegar flugmennirnir
bremsuðu sem mest þeir máttu.
Flugmálayfirvöld hafa í fram-
haldi af óhappi þessu vissar
áhyggjur af tilkomu metrakerf-
isins í nýju þotunum. Hins vegar
sannaðist þarna yfir hvaða hæfi-
leikum flugmenn búa á örlaga-
stundu, þeim tókst að nauðlenda
aflvana þotu heilu og höldnu. En
þeir áttu engra kosta völ ef
eitthvað hefði farið úrskeiðis í
aðfluginu, eða hindranir verið,
þar sem þeir gátu ekki hætt við
og flogið annan umferðarhring
til lendingar.