Morgunblaðið - 06.08.1983, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 06.08.1983, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 1983 21 í stutt- it“ i hálftómrar hlödunnar f Dalbæ. Morgunblaðid/Gudjón num Núpstúni í Hrunamannahreppi á ar leið framhjá, þrátt fyrir að þá væri Morgunbladið/Guðjón Sæmundur Birgir Ágústsson bóndi á BjÓlu. Morjfunbladid/Gudjón. Ingveldur Sæmundsdóttir, heimasæta á Bjólu, múgar fyrir heyhleðsluvagninn. Sæmundur Birgir Ágústsson, Bjólu, Djúpárhreppi: „Þeir vilja nýtast ansi illa, þurrkdagarnir" „GAMALT fólk segir að þegar nýtt tungl springur út seinnihluta dags breytist veðrið til batnaðar. Tunglin hafa staðið illa f sumar en eiga að standa betur í ágúst. Á mánudaginn kemur nýtt tungl sem springur út á milli klukkan 7 og 8 um kvöldið og ég er að vona að hann glaðni til með því tungli,“ sagði Sæmundur Birgir Ág- ústsson, bóndi á Bjólu í Djúpárhreppi í Rangárvallasýslu, í samtali við blaða- menn Morgunblaðsins er hann var tekinn tali þar sem hann var úti á túni að hirða í vothey fyrr í vikunni. Sæm- undur Birgir er með 60 kúa bú auk nokkurra hrossa og kinda. Hann sagði aðspurður um hvern- ig heyskapurinn gengi: „Hann hefur gengið ansi stirt það sem af er. Þeir vilja nýtast ansi illa þurkdagarnir, þeir fáu sem þó hafa komið, þegar aðeins koma einn og tveir dagar saman og vill fyrri dagurinn þá fara í það að ná vatninu úr heyinu eftir rigningarnar." — Hvað ert þú langt kominn? „Það er mesta furða hvað ég hef náð. Ætli ég sé ekki búinn að ná þriðja partinum af þurrheyinu, en ég er með 80—100 ha tún.“ — Hvernig er sprettan? „Hún er góð, það er mikið gras en grænfóðrið vex hægt. Grasið er enn ekki farið að spretta úr sér en er fullsprottið. Ég er búinn að slá meirihlutann af því sem ég slæ en á mikið flatt. Það er þó ekki farið að hrekjast enn sem komið er enda sló ég mikið af þessu í síðustu viku.“ — Þú slærð uppá vonina um þurk með nýju tungli? „Nei, ekki segi ég það nú. En ég er að vona að hann fari að glaðna upp- úr helginni. Annars lítur hann ekki út fyrir það í dag, manni skilst að það sé hópur af lægðum á leiðinni. Ég varð að slá, garsið var komið að því að spretta úr sér og mér finnst betra að láta það hrekjast eitthvað en að það spretti úr sér og trénist." — Én þú ert bjartsýnn á þetta þrátt fyrir allt? „Já, það er óþarfi að örvænta enn- þá, ágúst er allur eftir. Ég trúi því að það komi þurrkur og þá verða mikil hey. Heyskapur er ekki seint- ekinn ef aðeins fæst svolítill friður við hann.“ — Getur þú borið þetta sumar saman við einhver sem þú mannst eftir? „Það hefur komið eitt og eitt erf- itt ár. Við verðum að sætta okkur við það að við fáum ekki verulega góð heyskaparár nema á einu ári af hverjum 20 hér á Suðurlandi. Ég man vel eftir sumrinu 1955, þá voru miklu meiri rigningar en hafa verið núna, það var mjög erfitt ár.“ Fjármálaráðherra f Siglufirði: Stefna ber að lang- tímafjárlögum Meginatriði að nýta Albert Guðmundsson, fjármála- ráðherra, sagði á almennum stjórn- málafundi í Siglufirði í fyrrakvöld að brýna nauðsyn bæri til að taka upp ný vinnubrögð við gerð fjárlaga. Fjárlög undanfarinna ára hafi reynzt marklítil, enda byggð á röngum verðlagsforsendum. Stefna bæri og að langtímafjárlögum, t.d. til fjög- urra ára, sem spönnuðu stefnumið viðkomandi ríkisstjórnar og stjórn- arflokka, en þann veg væri auðveld- ara fyrir almenning fylgjast með hvernig ríkisstjórn stæði við stefnu- mið sín. Þessi lengri tíma fjárlög eigi síðan að endurskoða frá ári til árs, samhliöa gerð hinna hefðbundnu fjárlaga fyrir komandi ár. Fjárlög þarf að gera á ný að virku stjórntæki, sagði ráðherr- ann. Ríkisendurskoðun á að heyra undir Alþingi og fjárveitinga- nefnd þess að fylgjast í ríkara mæli með framkvæmd fjárlaga. Efla þarf rekstrarlegt eftirlit með ríkisfyrirtækjum og auka útboð á opinberum framkvæmdum. Draga þarf úr ríkisumsvifum og ríkis- útgjöldum með það að höfuð- markmiði að tryggja þegnunum sem mest fyrir sem minnst skattfé. Það er ekkert meginatriði að minnka þjónustu, heldur að nýta fjármuni betur. Fjármálaráðherra kvaðst hafa tekið í arf fjárlög 1983, en útgjöld þeirra væru byggð á 42% verð- þróun milli ára í tvöfalt meiri skatta fólksins betur Albert Guðmundsson verðbólgu. Þau fælu því f sér um- talsverðan halla á ríkisbúskapn- um. Aðstæður í samfélaginu kynnu og að leiða af sér að slíkur halli teygði sig fram á næsta ár; en lykilatriði væri, varðandi eðli- legan gang atvinnulífsins, at- vinnuöryggi og vöxt þjóðartekna, sem stefna bæri að, að pólitísk stjórnsýsla byggi þann veg að at- vinnuvegunum, m.a. skattalega, að hún fæli í sér hvata til aukinna umsvifa en ekki samdráttar. Frá Siglufirði. Ljósm. Sn.Sn. Tilboð komið í Siglósfld: „Atvinnurekstur betur kom- inn í höndum heimamanna“ — sagði fjármálaráðherra á fjölmennum fundi á Siglufirði Það er lykilatriði varðandi sölu ríkisfyrirtækja að þann veg verði bú- ið að atvinnurekstri í skattalögum, að almenningur, einstaklingar eða fyrirtæki, hafi hvata til kaupanna, — að það sé hagkvæmt fyrir báða aðila að gera siík viðskipti, sagði Albert Guðmundsson, fjármálaráðherra, á fjölmennum stjórnmálafundi í Siglu- firði í fyrrakvöld. Fundinn sóttu eitt hundrað og sextíu manns, eða 8% Siglfirðinga, sem svarar til 7.000 manna fundarsóknar í Reykjavík. Fjármálaráðherra tók fram að það yrði ekkert ríkisfyrirtæki selt, hvorki í Siglufirði né annars stað- ar, nema um það næðist samstaða í ríkisstjórn og milli stjórnar- flokkanna. Minn vilji stendur hinsvegar til þess að eignarhluti ríkisins í atvinnufyrirtækjum í Siglufirði færizt yfir í hendur heimaaðila. Ráðherra taldi tví- mælalaust rétt að koma Siglósíld (fyrirtæki sem framleiðir lagmeti og er alfarið ríkiseign) úr ríkis- rekstri, og væri raunar þegar komið kauptilboð í það. Þá væri og æskilegt að minnka áhrif ríkisins í rekstri Þormóðs ramma hf., sem er stærsta atvinnufyrirtækið á staðnum (rekstur togara og frysti- húss; ríkið meirihlutaðaðili). Ráðherra fullvissaði fundar- menn um, að það væri ekki hug- mynd sín að draga úr atvinnu- starfsemi í Siglufirði, þvert á móti að efla hana, en að sínu mati væri atvinnurekstur á staðnum betur kominn í höndum heimaaðila en embættismanna í Reykjavík, sem væru þó bæði hæfir starfsmenn og sómamenn. Hann minnti og á þingsályktun frá 1973 um fiskiðnskóla í Siglu- firði, sem ríkisstjórnir og fjárveit- ingavald hefði ekki fylgt eftir. Slíkur skóli væri vel staðsettur þar sem flestar fiskvinnslugreinar væru fyrir hendi, sem og húsnæði til skólahaldsins. Ég mun gera til- lögu um byrjunarframlag til slíks skóla við fjárlagagerð 1984, sem ætti að duga til að kanna forsend- ur hans til fulls, sagði fjármála- ráðherra.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.