Morgunblaðið - 06.08.1983, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 06.08.1983, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 1983 23 AFINNLENDUM VETTVANGI SIGURDUR SVERRISSON Snaran herdist að hálsi íslenskrar hljómplötuútgáfu Þeir, sem eru málum hvað kunnugastir segja, aö skammt sé nú í að stolt íslenskra hljóðupptökuvera, Hljóðriti í Hafnarfirði, leggi upp laup- ana. Váleg tíðindi ef sönn reynast. Frá því Hljóðriti tók til starfa fyrir 7—8 árum hefur hljóðverið verið óumdeilanleg „Mekka“ íslenskra hljóðvera. Hljóðriti var upphaflega vel tækjum búinn á mælikvarða þess tíma. Framfarirnar í tækjabúnaði hafa á hinn bóginn orðið geysilegar og Hljóðriti hefur einfaldlega ekki fylgt þeirri þróun eftir. Upptökutímar þóttu lengi vel dýrir í Hljóðrita og svo fór að lokum að minni hljóðver skutu upp kollinum. Hljóðver, sem buðu upp á takmark- aðri tækjabúnað en miklu lægra verð. Timinn hefur unnið með þeim. Nú er svo komið að fjöldi smærri upptökuvera dregur til sín verkefni, sem alla jafna hefðu annars verið unnin í Hljóðrita. Hér er á ferðinni einfalt dæmi um frjálsa samkeppni. Því aðeins er Hljóðriti dreginn inn í þessa grein, að með tilkomu hans urðu þáttaskil í íslenskri hljómplötuútgáfu. Með tilkomu Hljóðrita voru þeir dagar taldir að þurfti að sækja út fyrir landsteinana til þess að komast í boðlegt hljóðver. Þar með var stór kostnaðarliður skorinn verulega niður. Umtalsverð aukning í plötuútgáfu fylgdi í kjölfarið. Þegar svo plötupressunarfyrirtækið Alfa var stofnsett, töldu menn síðustu hindruninni í vegi hljómplötuútgefenda rutt úr vegi. En hvað hefur gerst? ef plata selst í 3—4.000 eintök- um.“ Stórhækkaður kostnaður „Það eru breyttir tímar núna,“ sagði Pétur Kristjánsson, for- stjóri Steina hf. í fjarveru Stein- ars Berg ísleifssonar. „Allur inn- lendur kostnaður hefur farið gersamlega úr böndunum á und- anförnum árum. Nú er svo kom- ið að við teljum útgefna LP-plötu frá okkur þurfa að selj- ast í 2.500 einstökum til þess að standa undir kostnaði. Það eru ekki mörg ár síðan sambærileg tala var 1.000 eintök." Að sögn Pétur var sú ákvörð- un tekin innan Steina hf. er ljóst var hvert stefndi, að gefa út færri plötur og vanda þá heldur meira til við gerð hverrar. Hefur fyrirtækið tekið upp þá stefnu að hafa á sínum snærum tiltölulega Alvarleg vandamál íslenskur hljómplötuiðnaður stendur nú frammi fyrir alvar- legustu vandamálum sínum um margra ára skeið. Hljómplötu- sala hefur á undanförnum árum dregist svo saman, að hún er nú rétt um helmingur þess sem hún var árið 1977, er salan náði há- marki hérlendis. Þetta sama ár, 1977, var 20% vörugjald lagt á hljómplötur. Gjaldið hefur síðan verið hækk- að í 40%. Frá þeim tíma er gjaldið var lagt á, hefur stöðug- ur samdráttur átt sér stað í sölu á innlendum plötum jafnt sem erlendum. Samkvæmt könnun, sem Steinar Berg ísleifsson, for- stjóri Steina, hefur gert og spannar allt aftur til ársins 1969, er hlutfall á milli seldra islenskra platna og erlendra ávallt hið sama, með eilitlum sveiflum þó. íslenskt efni hefur sl. 13 ár numið þriðjungi heild- arsölu hljómplatna. Hefur þá engu máli skipt hvort gefnar hafa verið út 15 titlar eða 150. Því fleiri titlar, þeim mun færri seld eintök koma eðlilega í hlut hvers. Samdráttareinkenna tók að gæta í plötuútgáfu á síðasta ári þótt sjaldan ef nokkru sinni hafi jafnmargar íslenskar plötur litið dagsins Ijós og einmitt það ár. Þessi fjörkippur I útgáfu virðist hafa verið lognið á undan storm- inum. Samdráttareinkennin dyljast engum lengur. Tugum saman hafa tónlistarmenn og efnilegar hljómsveitir orðið að snúa frá útgáfufyrirtækjum eft- ir að hafa fengið synjun um út- gáfu. Þessum mönnum fer þó fækkandi með hverri viku enda ástandið orðið flestum ljóst: út- gáfa islenskra hljómplatna hef- ur sjaldnast malað gull, en stendur nú ekki undir sér nema í fáum tilvikum. Þrátt fyrir þessa vitneskju freista margir þess að gefa hljómplötur sínar út sjálfir. Ár- angurinn er í nær öllum tilvik- um sá, að betur hefði verið heima setið en af stað farið. Meginatriði gleymist nefnilega í flestum tilvikum: auglýsingar. Kostnaðurinn við gerð hljóm- plötu er orðinn slíkur, að ein- staklingar eða hljómsveitir gera ekki betur en að kljúfa hann, hvað þá þeir eigi afgang til þess að auglýsa. Auglýsingar eru þó ómissandi þáttur í velgengni Stjórntækjaklefi í Hljóðveri. plötu lítt þekkts aðila. Það sanna dæmin öllu öðru betur. Engin plata í ár Samdráttareinkennin eru hvergi greinilegri en hjá Fálkan- um, sem um margra ára skeið hefur verið eitt leiðandi ís- lenskra fyrirtækja í plötuinn- flutningi og útgáfu. Fálkinn hef- ur enga íslenska hljómplötu út í ár. „Útgáfa íslenskra platna skil- aði einhverjum hagnaði í fyrra, en íslensk hljómplötuútgáfa er ekki skynsamleg fjárfesting í dag. Þótt endar nái kannski saman að lokum ber að hyggja að því, að þegar gefin er út plata er verið að festa fjármagn sem ekki skilar sér fyrr en 3—4 mán- uðum síðar og þá í krónutölu. Ekki sambærilegu raungildi," sagði Halldór Ingi Andrésson hjá Fálkanum. Að sögn hans var síðasta plata á vegum Fálkans, sem skilaði umtalsverðum hagnaði Himinn og jörð. Hún kom út fyrir jólin 1981 og seldist í rúmum 9.000 eintökum. „Slík sala heyrir að mestu fortíðinni til,“ sagði hann ennfremur. „Nú þykir mjög gott Litið til himins í leit að bjargvætti? Stuðmenn eru ein örfárra hljónurveita, sem ekki þurfa að kvarta undan lélegri plötusölu. fáa listamenn og hljómsveitir, en í öllum tilvikum aðila, sem það telur eiga erindi inn á er- lendan markað. „Útgáfa íslenskra platna hjá Steinum hf. hefur verið rekin með tapi hvert einasta ár frá því ég hóf að vinna hér,“ sagðu Pét- ur. „Vissulega höfum við verið með plötur, sem selst hafa mjög vel, en aðrar hafa bara dregið meðaltalið niður.“ Steinar hf. hafa það sem af er árinu gefið út 4 LP-plötur og stefnt er að því að gefa út a.m.k. 5 til viðbótar fyrir áramót. Þetta er svipuð tala og í fyrra, en veru- legur samdráttur í samanburði við árið 1981. Bæði Steinar hf. og Fálkinn hafa sent frá sér safnplötur og er tilgangurinn með þeim að koma í auknum mæli til móts við kaupandann, svo og sá að reyna að lyfta dræmri plötusölu eilítið upp. Safnplöturnar hafa undan- tekningalítið fallið í góðan jarð- veg og selst einna jafnbest þeirra platna, sem gefnar hafa verið út hér á landi í ár og í fyrra. Skýringar? En hverjar eru skýringarnar á þessum mikla samdrætti? Sitt sýnist hverjum, en hér að neðan getur að líta nokkra þá þætti, sem taldir eru vega þyngst á metunum. Þeir eru ekki settir fram í röð eftir vægi heldur af handahófi. 1) Hljómplötuverð. Margir eru þeir, sem segja plötuverð allt of hátt. Erlendar hljóm- plötur kosta nú ýmist 499 eða 549 krónur. Innlendar plötur eru ódýrari. Innkaupsverð plötu er svipað, en áiagningin alltaf sú sama. Lætur nærri að sterlingspundið sexfaldist á leið sinni um „kerfið" áður en platan kemst í hendur kaup- andans. Fyrstur er 75% tollur, þá 40% vörugjald, 25% heild- söluálagning, 40% smásölu- álagning og loks 23,5% sölu- skattur. Verð hljómplötu hefur um langt árabil verið miðað við verð á flösku af íslensku brennivíni og dæmigerðri jóla- bók. Fyrir síðustu jól hafði platan vinninginn í samkeppn- inni við bókina, en vínið var ódýrast. Bilið hefur nú breikk- að á milli erlendra platna og brennivínsins, en bókin virðist vera á leið með að verða ósam- keppnisfær við þetta tvennt. Innlendar plötur halda í við brennivínið. Sú skýring að plötur hafi hækkað langt um- fram annað er því ekki alls- kostar marktæk. 2) Tónsnældur (kassettur). Flestum ber saman um að „home taping", eða segul- bandsupptökur í heimahúsum eigi mesta sök á hvernig komið er. Segulbandstækjaeign hefur aukist mjög hin síðari ár og það færist æ meira í vöxt, að fólk taki upp nýja plötu kunn- ingjans eða noti þætti útvarps- ins til þess að fullnægja tón- listarþörf sinni. Ýmsar hug- myndir hafa komið upp til þess að reyna að stemma stigu við þessari þróun, m.a. sú að hækka tolla af óáteknum tón- snældum og lækka gjöld af hljómplötum. Á þessari hug- mynd eru margir annmarkar og hæpið að hún komist nokkru sinni til framkvæmda. 3. Hljómplötukaup erlendis. Það er viðurkennd staðreynd, að þeir sem á annað borð kaupa mikið af hljómplötum, gera innkaup sín mjög gjarna erlendis, þar sem verðið er iðu- lega á þann veg að menn fá þrjár plötur fyrir verð einnar hér heima. Stundum er sam- anburðurinn okkur enn frekar í óhag. Margir þeirra hörðustu fara gagngert utan til plötu- kaupa. Ferð á Apex-miða til Lundúna eða Parísar borgar sig upp á fáum tugum platna. Iðulega hefur verið bent á þessa staðreynd, en yfirvöld hafa enn ekki séð ástæðu til þess að lækka gjöld á innflutt- um hljómplötum þótt ríkis- sjóður verði af stórum upp- hæðum vegna minnkandi sölu hér heima. 4. Myndbönd. Nokkrir eru þeir, sem segja einn þátt af Skonrokki á tveggja vikna fresti fullnægja tónlistarþörf sinni. Með því að taka þáttinn upp á myndband má verða sér úti um myndskreytta tónlist, sem spila má fyrirhafnarlaust hvenær sem henta þykir. 5. Viðbrögd smásala. Við- mælendur Mbl. báru því við, að einn þáttur í minnkandi plötu- sölu væri sá, að smásalar úti á landi tækju færri eintök af hverri plötu í sendingu en áð- ur. Algengt væri nú að 1—3 eintök væru send í verslanir í smærri bæjum í stað 10 áður. Jafnvel þótt þessi fáu eintök seljist upp á skömmum tíma er oft ekki hirt um að panta á ný. Slíkt segir fljótt til sín því nýj- ar plötur eru fljótar að úreld- ast í hinni hörðu samkeppni sem ríkir. 7) Mettaður markaður. „Ég er eindregið þeirrar skoðunar að þeim plötumarkaði, sem hér hefur verið í uppbyggingu und- anfarin ár, hafi ekki verið gerður meiri bjarnargreiði en sá að dæla inn á hann öllu því drasli, sem á hann hefur komið og þá sérstaklega í ár.“ Þannig fórust Steinari Berg ísleifs- syni, forstjóra Steina hf., orð í samtali við undirritaðan í fyrrahaust. Orð hans eru vissulega óvægin, en í þeim felst viss sannleikur. Þótt útgefnar ís- lenskar plötur hafi sennilega aldrei verið fleiri en í fyrra, voru gæðin ekki í fullu sam- ræmi við magnið. Hér verður ekki lagður dómur á hvert ofangreindra atriða á stærstan þátt í þeim ógöngum, sem íslenskur hljómplötuiðnað- ur er nú kominn í. Vonandi er hins vegar að takist að skapa umræðu um þetta ástand og vekja á því athygli áður en ís lensk dægurtónlist á hljómplöt- um heyrir sögunni til. Sérstaða íslenskrar dægurtónlistar er meiri en svo, að hún megi líða undir lok — án þess að nokkur spyrni við fótum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.