Morgunblaðið - 06.08.1983, Síða 28

Morgunblaðið - 06.08.1983, Síða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR.6. ÁGÚST 1983 Spjallað um útvarp og sjónvarp „Hefði mátt leika und- ir lágt stillt níundu sinfóníu Beethovens“ — eftir Ólaf Ormsson Um verslunarmannahelgina var mikið fjallað um ferðalög og umferð- ina á þjóðvegum landsins f útvarpi og sjónvarpi í almennum fréttum og fréttaaukum. í útvarpsþaetti Ragn- heiðar Davíðsdóttur og Tryggva Jak- obssonar „Á ferð og flugi“, laugar- daginn 30. júlí, spjölluðu stjórnend- ur við fólk í ferðahug á Umferðar- miðstöðinni og einnig við ökumenn við bensínstöðvar og út á þjóðvegum landsins. Yfirleitt var ferðafólk um þessa raestu ferðahelgi ársins í góðu skapi þrátt fyrir sólarleysið hér sunnanlands. Þáttur Ragnheiðar og Tryggva var einnig á dagskrá mánu- daginn 1. ágúst, frídag verslunar- manna, og voru þau þá með leiðbein- ingar fyrir ökumenn á heimleið og létta tónlist. Þættir þeirra Ragnheið- ar og Tryggva í sumar hafa verið líflegir og skemmtilegir. Fréttamenn útvarps, Guðrún Guðlaugsdóttir, Steinn Sigurðar- dóttir, Bjarni Sigtryggsson og Erna Indriðadóttir, sáu einnig um fréttapistla af umferð og fólki á útivistarsvæðum og sjónvarpið gerði þessari ferðahelgi góð skil í fréttatímum, þegar Hermann Sveinbjörnsson, nýr fréttamaður hjá stofnuninni, fór flugleiðis og heimsótti t.d. Húsafell og fleiri mótsstaði og Ólafur Sigurðsson, fréttamaður, spjallaði við ferða- fólk í Vestmannaeyjum. Veðurfarið hér sunnanlands það sem af er sumri hefur verið þreyt- andi svo ekki sé meira sagt, stöð- ugar rigningarskúrir og sólarleysi. Trausti Jónsson, veðurfræðingur, er samt furðu bjartsýnn á bata- horfur og nokkuð viss um að sólin sé ekki horfin. Þó gerðist það að um daginn þegar fréttamenn sjón- varps heimsóttu veðurstofuna að Trausti sat þar við borð og teikn- aði upp nýjar og nýjar lægðir með bros á vör. Það er ekki bölsýni á þeim bæ frekar en fyrri daginn. Trausti Jónsson Annar maður sem alltaf er jafn skemmtilegur hvað sem líður veð- urfari er hinn ágæti fréttamaður útvarpsins á Spáni, Kristinn R. Ólafsson. Hann er að vísu staddur í sól og sumaryl og fjarri rigning- unni hér á íslandi. Þegar hann greinir frá spænskum stjórnmál- um er engu líkara en að hann sé að lýsa spennandi nautaati. Bandaríski gamanmyndaflokk- urinn „í blíðu og stríðu", sem er á dagskrá í sjónvarpi á laugardags- kvöldum eftir fréttir og veður- fregnir, er að mínu áliti með betri gamanmyndaflokkum sem hér hafa verið sýndir í sjónvarpi, og mun betri en t.d. „Löður", sem Stefán Jón Hafstein sýndur var síðastliðinn vetur en einn og sami höfundur er að báð- um þáttunum, Susan Harris. Síðastliðið laugardagskvöld, 30. júlí, var það Andy, sautján ára sonur hjónanna sem rauf heimilis- friðinn þegar hann kynnti kærust- una sem reyndist vera þrjátíu og fimm ára og helmingi eldri og amman á heimilinu, þessi kostu- lega manneskja sem er með húm- orinn í gangi allar stundir, lét margar sérkennilegar athuga- semdir falla um konuna og sam- band hennar við drenginn. Verður fróðlegt að fylgjast með þróun þessa ástarsambands í næsta þætti og má búast við tíðindum. Sænskur myndaflokkur í sex „Myþen agan“ Svar til Halldórs Kristjánssonar o.fl. — eftir dr. Gunnlaug Þórðarson Frjáls gagnrýni er aðal vestrænn- ar menningar. Gagnrýni verður þó að vera byggð á þekkingu og víðsýni, án þess hlýtur hún að skoðast sem marklaust nöldur. Því miður er það svo hjá okkur að talsvert af slíkum skrifum er því marki brennt, eins og er t.d. um ritsmíðar Halldórs Krist- jánssonar frá Kirkjubóli og svipaðra ofstækismanna. Þess vegna taka t.d. stjórnmálamenn og almenningsálit greinilega minna mark á gagnrýn- isskrifum hjá okkur og er það illa farið. Síðasta dæmi um slík skrif eru greinar Halldórs Kristjánssonar frá Kirkjubóli og Angantýs H. Hjálm- arssonar hér f blaði 13. og 14. þ.m. út af grein um misnotkun á áfengi og þjóðarátaki, sem birtist hér í blaði 29. júní sl. Áður en vikið verður beint að blaðaskrifum Halldórs og Angan- týs þykir mér óhjákvæmilegt að geta annarra atriða. í september 1956 lenti ég við hliðina á Jónasi Jónssyni frá Hriflu og dóttursyni hans Sigurði Steinþórssyni (síðar jarðfr.) í flugvél frá Kaupmannahöfn til Reykjavíkur. Þá tók flugið lengri tíma en nú og var það í einasta skipti, sem við áttum lengra tal saman og bar margt á góma. Eitt af því, sem Jónas frá Hriflu nefndi, var það hve mikil blessun það hefði verið mér og systkinum mínum að hafa verið alin upp af jafn-gáfuðum manni og föður mínum og eins hitt hvaða áhrif það hefði haft að hafa alist upp í daglegri snertingu við geðveikt fólk, þar sem jafnvel áfengissjúkl- ingar hefðu verið til meðferðar hjá föður mínum og þung örlög voru daglegt brauð. Auðfundið var af þessu tali, hve mjög Jónas frá Hriflu mat gáfur í fari manna — mér þótti það skilj- anlegt, en auðvitað eru góðar gáf- ur ekki einhlítar, því aðrir mann- kostir geta verið jafnþungir á metunurn og gáfumenn geta haft sína bresti, eins og aðrir. Hitt þótti honum athyglisvert, er ég sagði honum, að faðir minn hefði talið heimskuna vera höfuð- syndina. í þessum hugleiðingum gleymd- ist að taka með í reikninginn hvað það getur verið áhrifaríkt að vera alinn upp af erlendri móður, sem gert hefði landið að sínu. Það er skoðun min, að t.d. danskar konur hafi lagt þyngri lóð á metaskálar menningar okkar en menn e.t.v. átta sig á. Móðir mín var af fleiri en einu þjóðerni og hinn ríki kult- ur Dana var henni í blóð borinn. Hún fór sínu fram og var ekki hugdeig, enda þótt fólk, sem hvorki þekkti hana né vissi um uppruna hennar, teldi hana jafn- vel smáskrítna. Það hafði e.t.v. séð hana ganga um tún og tína æti- sveppi, sem hún kenndi okkur að matreiða á ýmsa lund, eða fara á kræklingafjöru. Einhver besti greiði, sem henni var gerður, var þegar henni var færður humar eða krabbi til matar. Ekkert af þessu þótti mannamatur í þá daga. Eða þá að láta sér detta í hug að rækta salöt, radísur og kál, — hreint skepnufóður. Til skamms tíma höfum við verið þjóða fordóma- fyllstir gagnvart hvers konár mat. Það er t.d. mjög stutt síðan við fórum að borða hænsni. Mér er kunnugt um fjölda fólks, sem heldur hefði soltið, en að leggja sér til munns hænsnakjöt, hvað þá hrossakjöt. Segja má að afstaða bindind- ismanna til víns stafi af miklu leyti af sams konar fordómum í uppeldinu, sem sé hræðslu við að reyna eitthvað nýtt. „Myþen agan“ — „Ekki um or‘ Skrif þau, sem svo mjög hafa farið fyrir brjóstið á fyrrgreind- um mönnum og jafnvel fleirum af sama sauðahúsi, voru að miklu leyti byggð á því, sem okkur feðg- um hafði farið á milli um áfeng- ismál; afstaða hans var mótuð af reynslu og víðsýni. Honum léku á tungu m.a. bæði latína og gríska og var tamt að fara með spakmæli á þeim tungum. Honum voru einkar hugstæð spakmæli Stóu- manna í Aþenu til forna. Eitt þeirra var á grísku: „Myþen agan“, sem þýðir „ekki um of“. íslenska þjóðin væri tvímælalaust betur á vegi stödd í dag, ef hún hefði haft þau spakmæli að leiðarstjörnu. í foreldrahúsum móður minnar var vín nær daglega haft um hönd. Hún taldi að því seinna sem mað- ur færi að umgangast vín því meiri hætta væri á að maður kynni ekki að fara með það. Henni þótti sjálfsagt að við börnin fengjum að dreypa á áfengi við hátíðleg tækifæri. Ég sá aldrei áfengisáhrif á foreldrum mínum. Fátt lýsir betur afstöðu föður míns til áfengis en það, er ég að loknu stúdentsprófi bað hann gefa mér 100,00 kr., sem voru miklir peningar í þá daga. Hann spurði mig þá, hvað ég ætlaði að gera við svo mikla fjárhæð. Mér varð um- svifalaust að orði: „Ætli helming- urinn fari ekki í spandans á konur og hinn í vín.“ Hann átti ekki von á svona hreinskilnu svari, en hló við og sagði: „Getum við þá ekki mæst á miðri leið, ég gef þér eina flösku af brennivíni og 50,00 krón- ur. Mér þótti þetta allgóð lausn. í þessu fólst nokkurt traust og því fylgdu aðeins orðin tilvitnuðu: „Myþen agan“. Hverjum dytti í hug að læknir með þá reynslu að baki sem faðir minn hafði færi að gefa syni sínum eitthvert eitur, sem ekki vera bjóðandi neinum. Því skal bætt við að sl. 35 ár hef ég við og við dreypt á áfengi, en ekki fundið til annarra áhrifa en tíma- bundinnar uppljómunar. Vín í heilagri ritn- ingu og Hávamálum I heilagri ritningu er vikið að víni á a.m.k. 400 stöðum. Þannig segir t.d. frá því, að það fyrsta, sem Nói gerði, eftir að syndaflóðið var afstaðið og hann fór úr Örk- inni, var að gróðursetja vínviðar- teinung og hefja vínyrkju. Stað- reynd er og að þegar maðurinn hætti að lifa hirðingjalífi og hóf staðbundna ræktun, t.d. vínyrkju, sem verið hefur fylgja mannsins Gunnlaugur Þórðarson „Mér liggur í léttu rúmi þó einhverjir „alvitringar“ vilji kalla mig „einn skað- legasta mengunarvald þessa lands“ fyrir þær skoðanir, sem mér vitrari menn hafa innrætt mér varðandi áfengismál. Slík- um skrifum mun ég ekki svara, enda þótt reynt verði að fylla síður Morg- unblaðsins með þeim.“ frá örófi alda, þá hófst menning vor, „kultur", sem komið er úr lat- ínu og þýðir ræktun. Þannig að sú staðhæfing margra sögufróðra manna, að vín hafi verið afivaki menningar, verður ekki hrakin. Hinu má ekki heldur gleyma, að þar sem vínyrkja er stunduð eru lönd í blóma, en örfoka víðast þar, sem hún á sér ekki stað, þrátt fyrir hnattstöðu. — Auðvitað hefði verið rétt að vitna til afstöðu Stóumanna til víns, sem þeir mátu að verðleikum sbr. og Epicurus. Þá má ekki gleyma orðum Páls postula: „Vert þú ekki lengur að drekka vatn, heldur skalt þú neyta lítils eins af víni vegna magans og veikinda þinna.“ (Timóteusarbr. 1. kap. 5, 23. vers). í Hávamálum segir á einum stað: „með hálfum hleif og höllu keri fékk ég mér félaga“. Þetta skilja bind- indismenn ekki, en það útleggst, að með hálfu brauði og vínkeri, sem var búið að hella (sennilega helmingi) af eignaðist maður fé- laga. Hér er sem hjá Stóumönnum varað við óhófi. Enda er annars staðar í Hávamálum varað bæði við ofneyslu matar og víns. Skáldin dásömuðu vín fyrr og síðar Skáldjöfurinn og mannvinurinn Victor Hugo segir á einum stað: „Guð skapaði vatn, en maðurinn bjó til vín.“ Skáldin okkar hafa fyrr og síðar skynjað innblástur þann, sem hóflega drukkið vín getur veitt. Jónas Hallgrímsson segir m.a. á einum stað: „látum því, vin- ir, vínið andann hressa." Einar Ben. víkur á stundum að áfengi og jafn- an á jákvæðan hátt, þannig segir hann á einum stað: „Skálin er vé- frótt, vínið á svar frá veröld, sem falin er bak við orðin.“ Þannig mætti halda áfram að vitna til höfuðskálda okkar, en þetta ætti að duga. Angantýr Hjalmarsson er maður, sem án efa vill vel, en setur sig á svo háan hest að stimpla alla þá, sem láta sér slík orð um munn fara, svo sem höfund Hávamála, ljóðskáldin okkar og alla sem ekki trúa á bann eða bindindi sem: „mikla mengunar- valda í íslensku mannlífi". Slík skoðun lýsir aðeins sjálfbirgings- hætti; skorti á víðsýni til að skilja vandamál. Sennilega hafa allt of mörg börn og unglingar sætt því ömurlega hlutskipti að vera upp- frædd af þröngsýnum ofstækis- mönnum og á það án efa sinn þátt í því, hve lítt ungmenni okkar kunna að umgangast vín. Áfengi verður ekki þurrkað út úr heiminum og fyrr eða síðar munu þeir nemendur, sem um- ræddur kennari fær að uppfræða, komast í snertingu við það og verða berskjaldaðri fyrir því en ella, m.a. vegna hleypidómafullrar uppfræðslu. „Áfengi besta lyfið“ Seint verða taldir upp allir þeir læknar, sem telia vín eitt besta lyf sem um getur. Islandsvinurinn dr. med. yfirlæknir og prófessor i Kaupmannahöfn Joh. Einar Meul- engracht (tvívegis sæmdur heið- ursmerkjum Fálkaorðunnar) taldi áfengi veraujesta lyf, sem til væri við hvers konar taugaveiklun. í Helgafelli 1957 er merk grein eftir geðlækninn dr. Karl Strand: „Alkóhól", sem mjög er í anda greinar undirritaðs hér í blaði, 29. júlí sl.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.