Morgunblaðið - 06.08.1983, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 06.08.1983, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 1983 29 þáttum um dýralíf í frumskógum Indlands byrjaði í sjónvarpi sunnudaginn 31. júlí. í þessum fyrsta þætti voru myndir af ýms- um dýrategundum sem fækkar stöðugt. Mannskepnan hefur eytt dýralífi Indlands á ógnvekjandi hátt og sífellt gengur á skógana. Skotóðir byssumenn drepa fugla í þúsundatali og voru staðnir að verki í þessum fyrsta þætti myndaflokksins. Annar þáttur er á dagskrá sunnudaginn 7. ágúst og fjallar hann um það merka dýr nashyminginn. Fyrsti þáttur var afar fróðlegur. Samtal Aslaugar Ragnars og Hjalta Pálssonar, framkvæmda- stjóra Innflutningsdeildar Sam- bandsins, á sunnudaginn í útvarpi um áhugamál Hjalta var lifandi og skemmtilegt. Hjalti er eins og margir vita mikill áhugamaður um hesta og hefur starfað fram- arlega í samtökum hestamanna. Hann hefur eignast nokkra gæð- inga og sagði þannig frá heimi hestamennskunnar að ég er nokk- uð viss um að hestamönnum fer stórfjölgandi. Á frídegi verslunarmanna mánudaginn 1. ágúst stjórnaði Pálll Heiðar Jónsson umræðu- þætti í útvarpi um málefni versl- unarfólks. Þátttakendur voru Jó- hanna E. Sveinsdóttir, einkaritari, Magnús L. Sveinsson, formaður VR, og Sigurður E. Haraldsson, formaður Kaupmannasamtak- anna. Páll Heiðar fór einnig með hljóðnemann í nokkrar verslanir við Laugaveg og innti afgreiðslu- fólk eftir skoðunum þess á hags- munabaráttunni og starfi VR. Skelegg kona sagðist vera á móti stöðugum kröfum sem uppi væru í þjóðfélaginu um hærra kaup og aukin lífsþægindi, einmitt þegar þjóðin lifir um efni fram. Skoðan- ir voru skiptar meðal verslunar- fólksins sem Páll ræddi við og fram komu gagnrýnisraddir sem ekki töldu kjör verslunarfólks nógu góð. í heild var þetta fróðleg- ur þáttur um málefni verslunar- fólks og öllum til sóma er fram komu nema hvað Páll Heiðar var óvenju rámur og hóstaði að jafn- aði á nokkurra mínútna fresti, en það verður fyrirgefið góðum út- varpsmanni. „Ræningjahjónin" heitir bresk sjónvarpsmynd sem sýnd var á hátíðardegi verslunarmanna í sjónvarpi. Hún byrjaði þannig að Morris og Wendy, sem eru korn- ungar manneskjur, eru gefin sam- an í kirkju að viðstöddum nánustu ættingjum og vinum. Ungu hjónin vilja eignast alla hluti sem fyrst, brauðrisc, ísskáp, vídeótæki, bif- reið og yfirleitt allt sem hugurinn girnist. Engin ástæða er til að geta frekar um efnivið. Ég skil ekki af hverju var verið að hafa fyrir því að framleiða þennan ein- staklega leiðinlega sjónvarpsþátt. Efni þáttarins er ómerkilegt og leikur persóna í aðalhlutverkum lélegur. Ég trúi því ekki að Bretar beri ábyrgð á þessari framleiðslu, þeir eru þekktir fyrir gerð góðra sjónvarpsþátta. Trompið á hendi dagskrár- stjórnar útvarpsins á frídegi verslunarmanna var þáttur Stef- áns Jóns Hafstein „Leynigestur í útvarpssal", sem var sendur út seint mánudagskvöldið 1. ágúst. Útvarpshlustendur glímdu við það verkefni að hafa upp á leynigesti þáttarins og veitt voru eitt þúsund króna peningaverðlaun þeim er bar kennsl á gestinn. Fyrstu til- raunir báru engan árangur. Fjöldi fólks hringdi og spurði t.d. er mað- urinn skáld? Er hann skemmti- kraftur? Er þetta Albert? Er þetta sjónvarpsmaður? Leikari? Iþróttamaður? Valdís Þorsteins- dóttir í Hrísey náði loks sambandi við þáttinn og var fljót að átta sig á að leynigesturinn var enginn annar en Rolf Johansen, stórkaup- maður. Stefán Jón, Rolf og Valdís héldu síðan áfram leiknum þegar leynigesturinn var fundinn. Valdís hugsaði sér þjóðkunnan fslending og Stefán Jón og stórkaupmaður- inn glímdu við að leysa þrautina. Þeir féllu báðir á prófinu, fundu ekki manninn sem Valdís hugsaði sér. Sem sagt sjálfan biskupinn. Hér er byrjaður þáttúr sem er vonandi að framhald verði á. Hlustendur hafa gaman af spurn- ingaleikjum og eins og jafnan áð- ur í útvarpi þá hefur Stefán Jón Hafstein örugga stjórn á verkefn- inu. Lítil breyting til batnaðar er á dagskrá sjónvarpsins og sennilega ekki að vænta fyrr en vetrardag- skráin byrjar. Samkvæmt nýlegri könnun ríkisútvarpsins vill fólk almennt fá að sjá í sjónvarpi ís- lensk leikrit og íslenska skemmti- þætti. Við undirbúning vetrardag- skrár er vonandi að tekið verði til- lit til óska um aukið íslenskt efni á dagskránni. Víst er fjárhagur sjónvarpsins erfiður nú sem fyrr. Eg legg til að erlent efni verði skorið niður og það íslenska aukið eins og kostur er. Þá er komið að viðtali vikunnar í útvarpinu. Mjög áhrifaríku og spennandi viðtali fréttamanns í fréttauka í kvöldfréttum þriðju- daginn 2. ágúst við leiðtoga stjórnarandstöðunnar, formann Alþýðubandalagsins. Til þess að auka enn frekar á áhrifamátt þessa viðtals hefði mátt leika und- ir lágt stillt níundu sinfóníu Beet- hovens. Formanninum var tíðrætt um „alþingi götunnar" og nauðsyn þess að það kæmi nú til sögunnar og leysti málefni þjóðarinnar á erfiðum tímum. „Alþingi götunn- ar“ var ávallt í felum í tíð þeirra ríkisstjórna sem Alþýðubandalag- ið átti aðild að. Skýringin er sú að „alþingi göt- unnar“ er sá óaldaflokkur sem einkum fyrr á árum efndi til upp- lausnar í þjóðfélaginu og beitti verkfallsvopninu af hörku, efndi til útflutningsbanns og kröfu- ganga. „Alþingi götunnar" er auk þess sá harði kjarni í Alþýðu- bandalaginu sem stjórnast af þeim kunnu orðum: „Hvað varðar okkur um þjóðarhag?" Úr nýju húsnæði Hreiðursins. Hreiðrið stækkar Húsgagnaverslunin Hreiðrið í Kópavogi hefur aukið gólfrýmið um 200 m2 í versluninni að Smiðjuvegi 10. Stærð þess gólfrýmis sem versl- unin hefur er þá orðin um 600 m2. Verslunin hefur aðallega á boð- stólum rúm, en auk þess er þar til sölu annar ýmiss konar húsbúnað- ur. Eigandi verslunarinnar Hreið- ursins er Finnur Magnússon. Árið 1974 kom út hjá útgáfufyr- irtæki í París, Editions du Jour, verk eftir einn af viðurkenndustu læknum Frakka dr. med., próf. E.A. Maury, bók með heitinu: „Vin er besta lyfið“. Bók þessi er byggð á margra ára rannsóknum þessa kunna læknis, sem einnig er viður- kenndur fyrir acupunktur-aðferð og sem hómópati. Hann bendir þar á kosti víns til lækninga á ýmsum sjúkdómum. Bókin hefur verið þýdd á ensku og varð met- sölubók fyrir nokkrum árum. í bók sinni fjallar hinn franski læknir um það ofstæki og skiln- ingsleysi, sem bindindismenn séu haldnir gagnvart neyslu áfengis sem stafi af röngum skilningi á mataræði og heilsuháttum. Hann vitnar m.a. til sumra mestu and- ans manna máli sínu til stuðnings, svo sem Pascal og velgerðar- mannsins mikla og vísindamanns- ins Louis Pasteur, sem taldi vín vera besta drykk, sem mannkynið ætti völ á. „Áfengi þjónn manns“ Árið 1965 kom út í Bandaríkjun- um bókin „Liquor the servant of man“ (Áfengi þjónn manns). Bók- artitill þessi vakti strax forvitni mína og ekki minnkaði hún við það að fá að vita, að höfundur hennar, Morris E. Chafetz, væri einn þekktasti geðlæknir Banda- ríkjanna og einn helsti ráðgjafi heilbrigðisstjórnarinnar í Wash- ington. Hann hefur flutt erindi um áfengismál um þver og endi- löng Bandaríkin og í nærri 30 ríkj- um í Asíu, Afríku og Evrópu. Bókin var í fullu samræmi við það, sem vænta mátti. Rækilega ígrunduð og skilmerkileg. í henni heldur höfundurinn m.a. því fram, að áfengi hafi verið aflvaki vest- rænnar menningar. Einnig fjallar hann um það hve tamt mönnum sé að kenna áfengi um, þegar illa tekst til fyrir mönnum og aðrar hvatir eru undirrót. Bók þessi er löngu uppseld. Árið 1967 sendi þessi sami geðlæknir frá sér bók- ina: „The treatment of alcoholism" (Meðferð ofdrykkju). Árið 1976 sendi hann frá sér bókina: „Why drinking can be good for you“ (Hvers vegna þér getur verið hollt að drekka). Hann hefur látið frá sér fara fleiri ritverk um þetta efni, sem undirritaður hefur ekki náð til. Annar álíka þekktur geð- læknir í Bandaríkjunum, dr. George Vaillant, hefur einnig látið þessi vandamál til sín taka og ný- lega er komin út bók eftir hann: „The natural history of alcoholism. Kápa bókarinnar: „Vín er besta meðalið“. — Causes, pattern, and paths to recovery" (Náttúruleg saga ofneyslu áfengis. — Orsakir, ein- kenni og leiðir til bata). Dr. Vail- lant dregur mjög í efa gagnsemi hvers konar sálgreiningar á áfengisgeðsjúkum og að reynt sé að kafa í fyrra skeið þeirra og uppeldi, vandinn sé miklu flóknari og einstaklingsbundnari. Þetta er ekki sett hér fram til þess að fræða Halldór Kristjáns- son eða hans líka, sem er vonlaust, enda þótt þeir kynnu að þykjast vilja fræðast, heldur almenningi til fróðleiks og upplýsinga. Þórdarmeöferðin Ýmsir af þeim, sem lesið hafa grein mína frá 29. f.m. hafa beðið mig að skýra frá í hverju Þórð- armeðferðin svokallaða sé fólgin. Þórðarmeðferðin er kennd við fyrsta geðlækninn, próf. Þórð Sveinsson, yfirlækni á Kleppi 1907—1940. Aðferð þessari var einkum beitt á árunum 1934—1939. Hún var fólgin í því, að sjúklingurinn var látinn fasta í nokkra daga og þá rúmliggjandi. Meðan á þessum „kúr“ stóð fékk sjúklingurinn ekki annað en soðið vatn. Var þetta gert til þess að hreinsa líkamann og ekki síst lifr- ina. Þá var þessi meðferð talin styrkja viljafestu hins sjúka. Hér var um algjörlega hættulausa að- gerð að ræða og t.d. hreinn hégómi miðað við holskurð, en hins vegar mjög áhrifarík. Illt var, að ekki skyldi fara fram ítarleg rannsókn á áhrifum „kúrsins" á líkamann. Þess skal getið til fróðleiks að í heimi lækna á fasta eða sultarkúr vaxandi fylgi að fagna sem með- ferð til lækninga. Nú þætti svona virk lækn- ingameðferð, sem verðskuldað hefði heimsathygli, sennilega of harðleikin í því velferðarþjóðfé- lagi, sem er að gera aumingja úr flestum okkar. Heföi Halldór orðið alkohólisti? Mér er Halldór Kristjánsson frá Kirkjubóli lítt kunnur, en þó hef ég vissar heimildir um manninn. Þykir mér umsögn látins fyrrv. flokksbróður hans og vinar, Bernharðs Stefánssonar fyrrum þingforseta, forvitnileg. Leyfi mér að vitna til „Endurminninga" hans, annars bindis, sem gefið var út af Kvöldútgáfunni 1964. Á bls. 51 segir Bernharð Stef- ánsson frá því, er hann var í 40 ára afmæli Eysteins Jónssonar fyrrv. ráðherra, þar sem vín var á borðum og þótti ekki merkilegt, eins og Bernharð orðar það. I framhaldi af því, segir Bernharð frá 8. flokksþingi Framsóknar- flokksins: „Halldór Kristjánsson bóndi var þar með stífa bindindis- og banntillögu. Þótti fæstum hún að- gengileg, en þó voru, sem ekki vildu fella hana beinlínis,... heldur koma henni fyrir kattarnef. Einn bindind- ismaður varð þó til þess að hengja bjölluna á köttinn. Bar hann fram breytingartillögu, sem gerði ... t i I - I ö g u (Halldórs) að engu.“ Er Halldór flutti tillögu sína hóf hann ræðu sína á þessa leið: „Ég hef aldrei bragðað vín á ævi minni, nema um daginn hjá honum Ey- steini, þá saup ég óvart á viskyglasi, hélt það væri öl, en spýtti því út úr mér.“ Breytingartillagan, sem gerði tillögu Halldórs að engu, var síðan samþykkt. — Menn geta velt því fyrir sér hvort hann hefði orð- ið alkohólisti, ef hann hefði rennt viskyinu niður. Mikill skapstill- ingarmaður, sem lesið hafði skrif mín, sagði um daginn við mig að hvimleiðasta manngerð, sem hann hefði haft kynni af, væri ofstækis- fullir stjórnmálamenn, sem að auki væru bindindispostular. Bernharð Stefánsson vildi stefna Halldóri fyrir meiðyrði Á bls. 80—83 heldur Bernharð Stefánsson áfram að segja af kynnum sínum við Halldór Krist- jánsson og er tilefnið það, að Hall- dór reynir að svívirða hann og Jón Pálmason alþingisforseta. Farast honum m.a. svo orð: Deildi hann (Halldór í Tímanum) á þingið (Al- þingi) fyrir að hafa kosið „brenni- vínsforsetann'* forseta Sameinaðs þings og deildarforseta þá þing- menn, sem minnst væru riðnir við bindindi. Síðan fór hann að reikna út hvað við hefðum upp úr „forseta- brennivíninu" fjárhagslega ... og að þetta væri ekki smáræðis „múta“ til hvors okkar.... Hins vegar vildi ég ekki una því að vera kenndur við mútur." Síðar segir Bernharð Stefáns- son: „Ég ráðfærði mig við lögfræð- ing, og sagði hann mér, að ég mundi áreiðanlega geta fengið ummæli llalldórs dæmd dauð og ómerk og bann í fjársektir fyrir þau. Ég til- kynnti svo á næsta flokksfundi, að ég mundi stefna Halldóri. Eysteinn Jónsson bað mig þá í öllum bænum að gera það ekki að svo stöddu.“ Síðar segir frá því, að Eysteinn eða einhver flokksbróðir þeirra hafi fengið Halldór til þess að skrifa eins konar yfirbótargrein. I framhaldi af því segir í bókinni: „Mér var Ijóst, að það var óheppilegt fyrir flokkinn, að einn af þingmönn- um hans færi í meiðyrðamál við að- stoðarritstjóra Tímans. Og með því að Halldór hafði þá sýnt nokkra við- leitni til yfirbótar, lét ég mál þetta niður falla, þó mér þætti yfirbótar- greinin aðeins yfirklór." Þessi tilvitnuðu skrif sýna ótvírætt að Halldór Kristjánsson sveifst ekki í ofstæki sínu að sví- virða vini sína og flokksbræður. Guð lét fögur vínber vaxa vildi gleðja dapran heim Ofangreind vísuorð eru Hannes- ar Hafstein skálds og ráðherra. Þau eru í fullu samræmi við það inntak Biblíunnar, „að drottinn lét vínvið vaxa til að gleðja dapran heim“. Enda kemur fram í heil- agri ritningu að Jesús Kristur neytti víns. Þar er að jafnaði vitnað til víns og vínviðar á já- kvæðan hátt. Það gengur því guðlasti næst, þegar menn stíga í stól í guðshúsi til þess að formæla guðaveigum úr víngarði drottins. Allt öðru máli gegnir að prédika hófsemi í hvívetna. Það nálgast líka yfirdrepskap og hræsni, þegar guðsmenn í skilningsleysi sínu á inntaki heilagrar ritningar berj- ast fyrir að drykkur sá, sem veitt- ur er t.d. við altarisgöngur, skuli ekki vera vín. Sunnudagsmessa í miðföstu 1982 Svo sérstaklega vill til, að í miðföstu 1982 var Halldóri Krist- jánssyni veittur sá heiður og trúnaður að stíga í stólinn í Hall- grímskirkju í Reykjavík. Þar brást hann boðskap heilagrar ritningar með því að fara að halda bann- eða bindindisræðu, slíka að sumir gátu ekki orða bundist. Meðal þeirra var samstarfsmaður Halldórs Kristjánssonar hjá Al- þingi íslendinga, Eiríkur Eiríks- son frá Dagverðargerði. Ræða Halldórs hafði þau áhrif á Eirík að hann orti sálm af því tilefni og þykir mér rétt að láta hann koma hér á prenti: Dapur í Hallgrímshúsi heyrt hafði þulda messu miðlað var myglubrauði missti ég lyst af þessu. Tafsaði endurtenntur templari miður prúður, á síbylju súrum vaðli saurgaðist drottins brúður. Bindindis boðskap þekkur Bakkus á hólminn skorar. Bar hann á hræsibrekkur brennivínssyndir vorar. Annar erindið rekur, áminnti drottins hirðir. Víngarðsmenn mjög skal meta maklega guð þá virðir. Misvíxlar málsins pörtum magndofa lýður þyrstur. Berjast í breyskum hjörtum Bakkus og Jesús Kristur Mér liggur í léttu rúmi þó ein- hverjir „alvitringar" vilji kalla mig „einn skaðlegasta mengunar- vald þessa lands“ fyrir þær skoð- anir, sem mér vitrari menn hafa innrætt mér varðandi áfengismál. Slíkum skrifum mun ég ekki svara, enda þótt reynt verði að fylla síður Morgunblaðsins með þeim. Skoðun mín er eftir sem áð- ur að ofstæki í áfengismálum geri ekki annað en að skaða þjóðina og tel vafasamt að bindindishreyf- ingin hafi unnið þjóðinni nokkurt gagn. /)r. Gunnlaugur Þórdarson er hæstaréttarlögmadur í Reykjarík.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.