Morgunblaðið - 06.08.1983, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 06.08.1983, Qupperneq 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 1983 „Stci&greitt e5a SkH-fb&r’'' Ast er ... 0 C c|vo ... að þakka hon- um fyrir góða frammistöðu. TM Rm US Pat OH -all rights resarved «1983 Los 8r'fl*l«s Tim«s Syndicate Furðulegt. Ég sem hafði ákveðið svona með sjálfum mér að gcfa þér minkapels og svo viltu ekki lána mér svo sem einn rauðan! HÖGNI HREKKVÍSI Um friðarhreyfingar nútím- ans og afskipti kommúnista Eyþór Erlendsson skrifar: Ekki er óalgengt að íslenskir kommúnistar þykist vera úttroðn- ir af ættjarðarást. Þann skrípa- leik þekkja allir sem fylgst hafa með brölti þeirra og bægslagangi á liðnum árum og áratugum. Þeg- ar þessi andi kemur yfir þá, láta kommúnistar að jafnaði sem ör- yggi lands og þjóðar sé þeirra hjartans mál. Er tilgangurinn al- mennt sá að telja þjóðinni trú um að okkar besta og raunar eina ör- yggi sé í því fólgið að lýsa yfir hlutleysi og hafa landið varnar- laust. Þátt fyrir staðreyndir um hið gagnstæða halda þeir þessum boðskap að þjóðinni með sinni al- þekktu frekju, eins og venja er ofsatrúarmanna. En því miður fyrir kommúnista hefur meirihluti þjóðarinnar fyrir löngu gert sér ljóst að þessar kenningar þeirra eru óheilindum blandnar og það í ríkum mæli. Það veit nefnilega enginn til þess að kommúnistar, hvar sem þeir eru staðsettir á hnettinum, séu and- vígir her. Herinn þjónar ofbeldis- aðgerðum þeirra og útþenslu- stefnu. Hann er þeim ómissandi til að halda þeim þjóðum í skefj- um sem sviptar hafa verið frelsi, sem og til árása á aðrar varnar- litlar þjóðir sem valdhafar komm- únista hafa augastað á. Þess vegna hlýtur sá grunur að læðast í hugann að hamagangur íslenskra kommúnista í garð varnarliðsins komi einungis til af því að þeir telja ekki hinn „rétta" her vera í landinu. Draumurinn um óska- landið Sovét-ísland er þá alls ekki úr sögunni. Kommúnistar ættu að hætta þeim barnalegu blekkingartil- raunum að halda því fram, að hlutleysi hafi í för með sér aukið öryggi fyrir varnalausar smáþjóð- ir. Slíku trúir enginn heilvita maður. Raunar liggur það ljóst fyrir að komi til heimsstyrjaldar á ný er öryggi óhugsandi hvar sem er á hnettinum. Og hvað hernað- arlegt mikilvægi Islands varðar ef slík yrði framvinda heimsmála, ísland væri hlut- og varnarlaust og hernaðarátök ættu sér stað á norðurhveli jarðar, myndi þegar í upphafi styrjaldar verða kapp- hiaup um landið, það hernumið og erlend yfirráð tryggð. Að halda öðru fram er hreinn barnaskapur eða vísvitandi blekking. Óttinn við kjarnorkustyrjöld hefur nú gagntekið fólk og það ekki af ástæðulausu. Möguleikinn á slíkri styrjöld grúfir eins og skuggi yfir lífi jarðar. Af þeirri ástæðu hafa friðarhreyfingar orð- ið til. Meirihluti þeirra sem að friðarhreyfingum standa er án efa velviljað fólk sem hefur óbilandi trú á að aðgerðir sínar verði öllu mannkyni til góða. En því miður er málum ekki svo háttað. Það eina sem friðarhreyfingarmenn geta mögulega áorkað, er að veikja varnir lýðræðisþjóðanna. Að þær hafi minnstu möguleika á að halda aftur af vígbúnaðarbrölti kommúnistaríkjanna er útilokað. Hefur það best komið í ljós þegar friðarsinnar í þeim ríkjum eru ofsóttir og meðhöndlaðir sem glæpamenn. Á hinn bóginn líta valdhafar kommúnistaríkja frið- arhreyfingar í Vesturlöndum hýru auga, því þeim er ætlað, hverri í sínu landi, að veikja varnir og hernaðarmátt. Og einmitt þess vegna - og því má ekki gleyma - smeygja harðsvíraðir kommúnist- ar, úlfar í sauðagærum, sér inn í raðir friðarsinna og taka þar sam- stundis forystuna. Við sem friðinn þráum verðum ávallt að hafa það hugfast að kommúnistar eru manngerð sem aldrei er hægt að treysta því allt tal þeirra um friðarvilja er mark- leysa ein og í miklu ósamræmi við ofbeldisaðgerðir þeirra víða um heim. Þess vegna er samstaða og hernaðarlegur styrkur lýðræðis- ríkja mikil nauðsyn. Öll einhliða slökunarstefna í þeim efnum er stórhættuleg og á engu viti byggð. Tvær fyrirspurnir til tollstjóra Heinrik Jóhannesson, Norður- götu 20, Sandgerði skrifar: „Velvakandi. Ég vil koma á framfæri tveimur fyrirspurnum til tollstjóra. Ann- ars vegar er spurningin sú hvort óleyfilegt sé að koma með reyktar kjötvörur inn í landið. Ef svo er, af hverju eru ekki tilkynningar um það á öllum flugvöllum á Norður- löndum? Hins vegar langar mig að vita hvað er gert við þau matvæli sem tollverðir taka af farþegum. Er þeim hent og hver hefur þá eftirlit með því eða hirða tollverð- ir þau sjálfir? Ástæða þessara fyrirspurna er sú að laugardaginn 9. júlí sl. kom ég ásamt fleiri farþegum með vél Flugleiða frá Færeyjum til ís- lands. Var millilent á Egilsstöðum til tollskoðunar, sem er nokkuð einkennilegt þar sem farþegar voru allir á leið til Reykjavíkur. Á Egilsstöðum varð fyrir okkur tollvörður sem ekkert var að tví- nóna við hlutina og sýndi okkur farþegum ókurteisi í hvívetna. Einn farþeganna var með stóra spægipylsu sem hann hafði keypt í vélinni. „Þetta tek ég af þér,“ sagði tollvörðurinn og hrifsaði spægipylsuna af honum. Varð ég að vonum hissa, því ég hef alltaf haldið að reyktan kjötmat mætti koma með inn í landið. Ekki orð af kurteisi né útskýringar á því af hverju svona var gert. Seinna spurði ég viðkomandi farþega hvort hann myndi fá spægipyls- una aftur og sagðist hann halda það. Mundi ég þá eftir því að í poka úti í vél var eitt kíló af skinku sem ég hafði keypt. Var mitt fyrsta verk að athuga í pok- ann hvort skinkan væri enn á sín- um stað. Nei takk, hún var horfin. Ætlaði ég að ná tali af tilteknum tollverði en það fékk ég ekki. Það var semsagt ekki verið að hafa fyrir því að spyrja hver eig- andi skinkunnar væri, heldur var hún tekin án nokkurra útskýringa og vitundar eigandans. Framkoma tollvarðarins var fyrir neðan allar hellur, sýndi hann okkur farþeg- um megnustu fyrirlitningu. Mættu hann og hans líkar temja sér betri framkomu. Við svona nokkuð hef ég aldrei orðið var hjá tollvörðum í Reykjavík, framkoma þeirra hefur alla tíð verið til fyrir- myndar. Auðvitað er eitt og annað sem þeir verða að taka af farþeg- um en fyllstu kurteisi er alltaf gætt. Vona ég að tollstjóri svari fljótt og skýrt báðum spurningunum." Karate og ekki karate Kryddkverið: Kærkomnar upplýsingar Kryddunnandi skrifar: „Velvakandi! Hin síðari ár hefur innflutn- ingur krydds aukist mjög, en því miður hafa verið mjög takmarkaðar upplýsingar á glösunum um notkun og fleira. En á leið minni um matvöru- búð eigi alls fyrir löngu, rakst ég á bækling sem ber nafnið „Kryddkverið". Þar mátti finna mjög haldgóðar upplýsingar um margvísleg krydd, auk þess sem tekin voru fram bæði er- lendu og islensku nöfnin. Þetta litla kver er áreiðan- lega mjög kærkomið þeim sem gaman hafa af kryddi og vilja fá að vita um möguleika á notk- un þeirra. Með þökk fyrir birtinguna." Bruce Lee -aðdáandi skrifar: Kæri Velvakandi Einn er sá miskilningur sem al- gengur er hjá kvikmyndahúsum í höfuðborginni og víðar sem mig langar að leiðrétta. í auglýsingum kvikmyndahúsa má oft lesa „Hinn heimsfrægi karate-meistari" eða „Spennandi karate-mynd með hin- um eina og sanna Bruce Lee“. Mál- ið er það að Bruce Lee notaði ekki karate, honum fannst sá stíll vera of stífur og seinvirkur. Því tók hann saman það sem hann hafði lært í gegnum árin hjá þeim tfu meisturum sem hann lærði hjá og þróaði sinn eigin stíl sem nefnist Jeet Kune Do. Vil ég þvi benda kvikmyndahús- um á að athuga um hvað er verið að tala þegar settir eru titlar á kvikmyndir Bruce Lee.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.