Morgunblaðið - 06.08.1983, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 1983
37
Göngin sem byggð voru á sínum tíma í gegnum Oddskarð.
Aðeins einn Norðfjarðarvegur til
Austfirðingur skrifar:
Velvakandi góður.
Ég er með fyrirspurn til vega-
málastjóra. Hvernig er það, er
vegamálastjóri ekki kunnugur
staðháttum á Austfjörðum? Oft
heyrist í útvarpi „Norðfjarðarveg-
ur um Fagradal" er lokaður vegna
aurbleytu, viðgerða eða þess hátt-
ar. Af hverju ekki Fáskrúðs-
fjarðar- eða Stöðvarfjarðarvegur?
Jafnvel mætti segja Hornafjarð-
arvegur um Fagradal eða allt eins
Húsavíkurvegur um Fagradal, þvi
margir Austfirðingar þurfa að
fara um dalinn ef þeir ætla til
Húsavíkur eða annað norður í
land.
Nei, þetta er allt jafn fráleitt.
Frá Egilsstöðum er farið um
Fagradal og út ströndina sunnan
Reyðarfjarðar, áfram suður firð-
ina til Hornafjarðar og jafnvel til
Reykjavíkur án viðkomu á Norð-
firði. Hvernig er þá hægt að kalla
veginn um Fagradal „Norðfjarð-
arveg"? Á leiðinni frá Egilsstöð-
um til Norðfjarðar er farið um tvo
þéttbýlisstaði, Reyðarfjörð og
Eskifjörð. Frá Eskifirði liggur síð-
an hinn eini og rétti Norðfjarðar-
vegur. Hann lá áður yfir Oddskarð
til Norðfjarðar, en liggur nú í
gegnum jarðgöng í Oddsdal. Þessi
vegur liggur aðeins til Norðfjarð-
ar og ekkert annað. Er þetta því sá
eini vegur sem með réttu má kalla
„Norðfj arðarveg"
Jóni Múla þakkað
Soffía Kristjbörnsdóttir hringdi.
Ég er ein þeirra sem hafa mikið
gaman af jasstónlist og langar
mig að þakka þeim útvarps-
mönnum, sérstaklega Jóni Múla,
fyrir þá ágætu jassþætti sem verið
hafa í gegnum árin. Einnig vil ég
þakka Jóni Múla fyrir gott lagaval
hans þegar hann er þulur.
Eitruð skordýr í
innfluttum plöntum
Ólöf Jónsdóttir hringdi:
— Ég hef heyrt að baneitruð
köngulóartegund hafi borist
hingað til lands með erlendum
plöntum, til dæmis jukku, og hafi
jafnvel komist inn á heimili.
Innfluttar plöntur eru hafðar í
sóttkví eftir að þær koma til
landsins, að ég held, en mig langar
til að vita hvað gert er til að vinna
gegn þeim ófögnuði sem borist
getur með þeim, skordýrum og
slíku, svo ég tali ekki um þessa
könguló, ef það er rétt að hún hafi
borist hingað.
Bið ég plöntuinnflytjendur vin-
samlegast að svara þessu.
Leiðrétting
f Velvakanda í gær urðu þau
mistök að nafn misritaðist í bréf-
inu „Thorkelin, Grundtvig og
Bjólfur". Stendur þar að þýðandi
Bjólfskviðu sé Halldór B. Björns-
son. Það er ekki rétt, sú sem þýddi
Bjólfskviðu var Halldóra B.
Björnsson.
IRhadafy seilist
Itil Karíbahafsins
Kh«i.(,.
Khadafy ekki
leiðtogi
Arnbjörn Oskarsson hringdi:
— Á forsíðu Morgunblaðsins
þann 3. ágúst síðastliðinn er frétt
ásamt mynd af Khadafy. í frétt-
inni er Khadafy titlaður Líbýu-
leiðtogi. Það hefði ég haldið að
væri nú ekki rétt, því Khadafy er
sjálfskipaður herforingi og stjórn-
andi með valdi. Hann er ekki leið-
togi. Þetta fyndist mér að þyrfti
að leiðrétta í Morgunblaðinu.
Endursýnið
söngkeppnina
á betri tíma
ÓJ. hringdi:
— Mikið væru þeir sjónvarps-
menn elskulegir, ef hægt væri að
endursýna söngvakeppnina í
Cardiff, sem tvisvar var sýnt frá í
júlímánuði.
Sýnt var frá keppninni alltof
seint á kvöldin. Væri ekki hægt að
endursýna keppnina á svipuðum
tíma og Skonrokk var, það er rétt
á eftir fréttum. Þannig er að mað-
ur er ekki alltaf upplagður til að
vaka lengi frameftir og bíða eftir
sjónvarpsefni við sitt hæfi.
Vonast ég til að hægt verði að
sinna þessari beiðni.
Vísa vikunnar
Hin gelda kýr var gámastór
greina skýr má Ririn:
Miður hýr nú mokar flór
megadírektörinn.
Hákur.
GÆTUM TUNGUNNAR
Sagt var: Hann er að selja eitthvað ónýtt rusl.
Rétt væri:... selja eitthvert ónýtt rusl.
Sprengisandur — Kjölur
Ferðafólk
Erum með feröir meö leiösögn
um Sprengisand og Kjöl.
Fariö frá Reykjavík noröur Sprengisand og til Akur-
eyrar mánudaga og fimmtudaga kl. 8.00. Frá Akur-
eyri um Kjöl til Reykjavíkur miðvikudaqa oq lauqar-
daga kl. 8.30.
Fariö er á einum degi hvora leið.
Verö aöra leiöina kr. 1.600,00. Báöar leiöir kr.
2.900,00. Innifaliö í veröi er leiösögn og matur þrisvar
á dag.
Þaulkunnugur fararstjóri. Ferö sem seint gleymist.
Norðurleið
Leikjanámskeiö
fyrir börn 7—12 ára, síöasta leikjanámskeiö skólans
veröur haldiö dagana 8. —19. ágúst. Kennari, Leifur
Haröarson, íþróttakennari.
Innritun og upplýsingar í Þróttarheimilinu s. 82817.
Knattspyrnuskóli Þróttar.
V /
Knattspyrnuskóli
Vals
Síöasta námskeiö í Knattspyrnuskóla Vals hefst
mánudaginn 8. ágúst og stendur til 19. ágúst.
Þátttaka tilkynnist í síma 11134 eöa á
félagssvæöi Vals. Valur
Bílgreinasambandiö
Aðalfundur
1983
Heimavist Ml Isafiröi 20. ágúst.
Dagskrá:
Föstudagur 19. ágúst:
Komiö til ísafjaröar.
Mæting kl. 18:00 í Reykjavík og á
Akureyri.
Kl. 20:15 Sameiginlegur kvöldveröur.
Laugardagur 20. ágúst:
Kl. 08:00 Morgunverður
Kl. 09:00—10:45 Sérgreinafundir.
Kl. 10:45—11:45 Niðurstööur sérgreinafunda.
Kl. 12:00—14:00 Hádegisveröur.
Hádegisveröarerindi: Bílgreinin —
Þýöing og uppbygging þjónustu-
iönaöar.
Kl. 14:00—15:30 Hlutverk verkstæða í þifreiöaskoö-
un — Reynsla Norömanna í því
efni.
Kl. 15:30 Aöalfundur Bílgreinasamþandsins.
Venjuleg aöalfundarstörf.
Dagskrá skv. 12. gr. laga BGS
Kl. 19:30 Móttaka — Kvöldverður og
dansleikur.
Sunnudagur 21. ágúst:
Kl. 10.00 Ferö um Djúþ. Farið meö Fagra-
nesinu í Reykjanes og þar snædd-
ur hádegisverður. í bakaleiö veröur
komiö viö í Vigur.
Kl. 16:45 Mæting á flugvelli.
Dagskrá fyrir maka
Laugardagur 20. ágúst:
Kl. 10:00—12:00 Fariö út í Bolungaravík í sund/
gufubaö.
Kl. 13:30 Skoöunarferð um ísafjörö.
1) Akstur um bæinn.
2) Byggöasafn skoöaö.
3) Friöuöu húsin.
4) Vefstofa Guörúnar Vigfúsdótt-
Ur' Stjórn BGG.