Morgunblaðið - 06.08.1983, Page 40
BÍLLINN
BlLASALA SlMI 79944 SMIÐJUVEGI4 KOPAVCX''
.^Vskriftar-
síminn er83033
Arnarflugsmenn
flugu med einka-
bifreið Khadafys
FLUGMENN Arnarflugs, sem sinna ieiguflugi fyrir líbýska flugfélagið Liby-
an Arab Airlines, lentu í því á dögunum, að flytja einkabifreið Khadafys,
leiðtoga Líbýumanna, af gerðinni BMW, sem vegur hvorki meira né minna
en liðlega 5 tonn, milli Tripóli og Jeddah í Saudi-Arabíu, en fundur leiðtoga
Afríkulanda fór þar fram.
fslenzkar hljómplötur:
Helmingssamdrátt-
ur f sölu síðan 1977
LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 1983
Mastraskógur
Sovézk skúta, ein hin stærsta sem komið hefur til hafnar í Reykjavík,
lagðist að í Sundahöfn í gærmorgun. Skútan er yfir 6.000 tonn og
skipverjar eru á þriðja hundraðið.
MorRunblaðið/Kristján.
Skoðanir eru skiptar um
ráðstöfun gengismunar
— segir Ólafur G. Einarsson, formaður
þingflokks sjálfstæðismanna
Þegar leiðtoginn ákvað að sækja
fund Afríkuleiðtoga var ákveðið
að flytja menn og farangur með
þremur vélum af gerðinni Boeing
707, en hins vegar hvíldi mikil
leynd yfir því hvað flutt yrði með
hverri vél með tilliti til þess ef
einhverjir andstæðingar Khadaf-
ys hugsuðu sér til hreyfings.
Ekki var ákveðið fyrr en á síð-
ustu stundu í hvaða röð vélarnar
SALA íslenskra hljómplatna hef-
ur síðan 1977, er salan hérlendis
náði hámarki, dregist saman um
helming og stendur íslenskur
hljómplötuiðnaður nú frammi
fyrir sínum alvarlegustu vanda-
málum um margra ára skeið.
Þetta kemur meðal annars fram í
Innlendum vettvangi í Mbl. í dag.
í greininni kemur einnig
fram, að íslenskt efni hafi á
síðastliðnum 13 árum numið
þriðjungi af heildarsölu
hljómplatna. Hefur þá engu
máli skipt hvort gefnir hafa
verið út 15 titlar eða 150. Því
fleiri titlar, þeim mun færri
seld eintök komu þá í hlut
hvers og eins. í innlenda vett-
vanginum segir einnig að sam-
dráttareinkennin séu hvergi
greinilegri en hjá Fálkanum,
sem um margra ára skeið hafi
verið eitt leiðandi íslenskra
fyrirtækja í plötuinnflutningi
og útgáfu, en Fálkinn gefi enga
íslenska hljómplötu út á þessu
ári. Steinar hf. hafa ákveðið að
hæfu sig til flugs af ótta við að
reynt yrði að skjóta á þær. Það
kom síðan í hlut Arnarflugs-
manna að fara fyrstir. Á leiðinni
til Jeddah skiptu vélarnar síðan
stöðugt um flughæðir.
Dvöl manna varð styttri í Jedd-
ah, en fyrirhugað var, þar sem
leiðtoginn ákvað í reiðikasti að
halda heimleiðis, vegna þes að
hann var ekki kosinn forseti fund-
arins.
gefa út færri plötur en áður
vegna þessa samdráttar í
hljómplötusölu og eingöngu
fyrir aðila sem fyrirtækið telur
að eigi erindi inn á erlendan
markað.
Sjá: „Snaran herðist...“ á
bls. 23 í blaðinu í dag.
„ÉG VEIT ekki betur en skiptar
skoðanir hafi verió um þetta mál og
séu enn,“ sagði Ólafur G. Einarsson,
formaður þingflokks sjálfstæð-
ismanna, í samtali við Morgunblaðið
í gær, í tilefni af þeim ummælum
Halldórs Asgrímssonar, sjávarút-
vegsráðherra, í blaðinu í gær, að
enginn ágreiningur væri innan ríkis-
stjórnarinnar um ráðstöfun geng-
ismunar.
„Mér er kunnugt að Sverrir
Hermannsson lagði til á fundi rík-
isstjórnarinnar í gær að álíka
fjármagn og tekið er af birgðum
saltfiskframleiðenda rynni í verð-
jöfnunarsjóð og kæmi þannig
þeim að notum. Þessa tillögu
studdi Matthías Á. Mathiesen og
Óvenju lítil
blóðtaka úr
hryssum í ár
í NÆSTU viku verður á vegum
heildverslunarinnar G. Ólafsson
hf. og Hagsmunasambands
hrossabænda, hafist handa við
að taka blóð úr fylfullum merum
til útflutnings.
í ár verður óvenjulega lítið
blóð tekið, eða úr 350—400
hryssum, en í fyrra var tekið
blóð úr um 800 hryssum. Einar
Birnir forstjóri G. Ólafsson hf.
sagði í samtali við Mbl. að
bæði kæmi þar til minni eftir-
spurn eftir hormónalyfinu
sem efni úr blóðinu eru notuð í
og einnig væri meira framboð
af hryssublóði á markaðnum.
Einar sagði að nær ein-
göngu væri tekið blóð úr
hryssum hjá bændum í Rang-
árvallasýslu að þessu sinni.
Teknir eru 5 skammtar með
viku millibili úr hverri hryssu
og stendur þessi blóðtaka því
fram í september. Teknar voru
blóðprufur úr hryssunum í
þessari viku en þær eru teknar
til að ganga úr skugga um að
hryssurnar séu fylfullar og
gengnar í að minnsta kosti 50
daga.
ef til vill fleiri. Þá vil ég taka fram
aö nefndin sem skipuð hefur verið
til að gera tillögur um ráðstöfun
gengismunar hefur ekki umboð til
að ganga frá málinu þótt fullt
samkomulag náist innan hennar
eins og segir í Morgunblaðinu í
dag. Málið á að minnsta kosti eftir
að koma fyrir þingflokk sjálfstæð-
ismanna," sagði Ólafur G. Ein-
arsson að lokum.
Sjá forystugrein blaðsins í dag.
Flatey á Skjálfanda:
Heyjað eftir
margra ára hlé
llúsavík, 5. ágúst.
MÝVETNSKIR bændur, Ármann í
Reynihlíð og Sigurður á Stöng, fóru í
nótt við fimmta mann með ms.
Drangi til Flateyjar til heyskapar en
í eyjunni hefur ekki verið heyjað í
fjölda ára. Þeir voru með tvær drátt-
arvélar og tilheyrandi heyverkun-
artæki ásamt bindivél og áætla að
koma ekki í land fyrr en þeir eru
búnir að heyja 500 bindi.
Flatey er öll mjög grasigróin og
voru mörg vel ræktuð tún þar þegar
eyjan var yfirgefin og án ábúðar
1967. Áformað er að Drangur nái
síðan í menn, hey og tæki að loknum
heyskap.
Heyskapur gengur illa á Suður- og Vesturlandi:
Glaðnar til með nýju tungli?
HEYSKAPUR gefur gengið með eindæmum illa á Suður- og Vesturlandi
það sem af er sumri. Á þessu svæði hafa nú um margra vikna skeið
aðeins komið örfáir þurrkdagar og hafa þeir nýst illa þar sem aðeins hafa
komið einn til tveir dagar saman og hefur fyrri dagurinn þá oft farið í að
láta vatnið síga úr túnum og heyi vegna mikilla rigninga.
Víða er gras sæmilega sprottið
en grænfóður vex illa vegna
kulda. Ekki er mikið hey flatt
þar sem menn hafa farið varlega
í að slá en nú er gras víða orðið
fullsprottið og verður þá að slá
það svo það tréni ekki. Hjalti
Gestsson ráðunautur hjá Búnað-
arsambandi Suðurlands áætlaði
að fjórðungur heyskaparins á
Suðurlandi, vestan Mýrdals-
sands, væri búinn en í venjulegu
árferði ættu þrír fjórðu hey-
skaparins að vera búnir. Hann
sagði að ástandið væri betra
austan Mýrdalssands.
Hjalti sagði að einstaka mað-
ur væri alveg búinn mað hey-
skapinn en það væru þeir sem
væru búnir öflugum tækjum, svo
sem góðri súgþurrkun með hit-
uðu lofti, og nýttu hverja stund.
En margir hefðu þó ekki náð
þurri tuggu í hlöðu. En í heildina
tekið væru flestir skammt á veg
komnir.
Lagast veðrið á Suður- og
Vesturlandi við nýtt tungl á
mánudag, 8. ágúst? Sumir bænd-
ur á Suðurlandi vona það enda
eru þeir orðnir langeygir eftir
heyskaparveðri. Þetta kom fram
í viðtölum sem Mbl. átti við
bændur á Suðurlandi fyrir
skömmu. Sæmundur Birgir
Ágústsson á Bjólu í Djúpár-
hreppi sagði um þetta: „Gamalt
fólk segir að þegar nýtt tungl
kviknar seinnihluta dags breyt-
ist veðrið til batnaðar. Tunglin
hafa staðið illa í sumar en eiga
að standa betur í ágúst. Á mánu-
daginn kemur nýtt tungl sem
kviknar á milli klukkan 7 og 8
um kvöldið og ég er að vona að
hann glaðni til með því tungli."
Sjá einnig viðtöl á mið-
opnu blaðsins í dag.
HANN Emil Ágúatason í Grtff rið
Flúðir í Hrunamannahreppi treystir á
að nýja tunglið á mánudaginn beri
með sér betri tíð með blóm í haga og
var hann í óða önn að slá uppá þessa
von á eldgamla Fergusoninum sínum
er Guðjón Birgisson, Ijósmyndari
Mbl., smellti þessari mynd af honum
síðastliðinn miðvikudag.
Fréttaritari