Morgunblaðið - 09.09.1983, Blaðsíða 1
Föstudagur 9. september - Bls. 33-56
GRÆNIR
HATTAR Á GRÁLEIT
■| h h h Þakfletir vaxnir gróðri voru um árabil nær alveg fallnir í gleymsku sem
I I sérstæður þáttur í húsagerð, en nú er að vakna aftur áhugi á þessu ágæta þakefni.
■ I Það eru svokallaðir bio-arkitektar, sem meðal annarra hafa vakið athygli á ágæti
I torfþakanna. En þessir arkitektar leggja mikið upp úr því að nota náttúruleg efni
í híbýli fólks en forðast gerviefni, því þeir segja þau spilla heilsu fólks. Torfþök hafa marga kosti,
meðal annars er torfið varmaeinangrandi á veturna og á sumrin er það vörn gegn hitum. Það er
hljóðeinangrandi fyrir utan hve skrjáfið í laufinu er þekkilegt hljóð. Fleiri kosti mætti nefna en
nánari útlistun er á innsíðum blaðsins.
Liatmélarinn Hundertwaaaer uppi i torfþaki
á fjóai aínu í Nýja-Sjálandi. Heimiliageitin Nanna hámar í aig grængreaió.
DANSAÐ
m INDLANDITIL
JAPANS
Hún heiíir Matthildur Halldórsdóttir og er á
leiflinni til Tókýó til að læra Nihon Bujo, sem
er hefðbundinn japanskur kvennadans. Þafl er
ekki langt síflan hún kom beim frá Indlandi,
þar sem hún dvaldi í eitt ár við nám í Bahrata
Natyam, sem er aldagamall indverskur dans.
Matthildur ætlar að nýta sér þessa kunnáttu, til
afl fara nýjar leiflir í leiklistinni, en hún hefur
stundað nám í þeirri grein í Kaupmannahöfn.
Ljósm.: ívar Brynjólfsson.
AD
LOKHD
LISTA■
mirn
„Velkomin í Stúdentaleik-
húsiö“ gæti þessi mynd heit-
ið. Stúdentaleikhúsið hefur í
sumar boðið upp á margt
nýstárlegt í listatrimmi sínu
og lífgað upp á menningar-
brag borgarinnar. Þar hafa
verið settar upp 13 dagskrár
og yfir 100 manns, leiklistar-
og tónlistarfólk unnið að
þeim. Fyrir skömmu var aug-
lýst í blöðum „Lokatrimm“
Stúdentaleikhússins og
brugðum við okkur upp í Fé-
lagsstofnun til að forvitnast
um hvort leikhúsið væri að
leggja upp laupana. „Nei,
það þarf sko enginn að hafa
áhyggjur af því,“ var svarað
einum rómi, þegar við rædd-
um við nokkra aðstandendur
Stúdentaleikhússins um
starfið í sumar og það sem
framundan er.
L0
Punktar frá París 38 Útvarp næstu viku 46 Fólk í fréttum 49
Hvað er að gerast? 42/43 Heimilishorn 47 Dans, bíó, leikhús 50/53
Sjónvarp næstu viku 44/45 Myndasögur 48 Velvakandi 54/55