Morgunblaðið - 09.09.1983, Side 4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1983
36
DANSAÐ FRAINDLANDI
TIL JAPANS
Hún er á leið til Tókýó að læra að dansa Nihon
Bujo, sem er hefóbundinn japanskur kvennadans
og það er ekki langt síðanhún kom heimjrá
Indlandi þar sem hún dvaldi í eitt ár við nám í
Bahrata Natyam, sem er aldagamall indverskur
dans. En í rauninni er Matthildur Halldórsdóttir,
eins og hún heitir, ekki aðeins að læraað dansa,
heldur ætlar hún að nota þessa kunnáttu sína til
að fara nýjar leiðir í leiklistinni. En eins og við
vitum þá starfa víða í Evrópu hinir ýmsu leikhóp-
ar, sem eru að reyna með misjöfnum árangri að
skapa eitthvað nýtt í leikhúsinu. Matthildur var
einmitt í einum slíkum hóp úti í Kaupmannahöfn
áður en hún hélt til Indlands.
WE g haföi veriö á
kvöldnámskeiöi
aö læra leiklist
hjá svissnesk-
um kennara,
Werner Kuhn
aö nafni. Svisslendingurinn valdi
síöan nokkra nemendur, sem hann
þjálfaöi sérstaklega. I kennslunni
var megináhersla lögö á aö ná
valdi á líkamanum, þ.e. yfirvinna
ákveönar hindranir eöa spennu til
aö geta tjáö sig betur. Ef skrokk-
urinn er fullur mótþróa, getur maö-
urinn ekki tjáö sig eins vel í leiklist-
inni,“ segir Matthildur.
Hún segir okkur svolítið nánar
af kennara sínum. i kennslu sinni
leggur hann meðal annars asískt
leikhús til grundvallar. Hefur hann
starfaö meö pólska leikstjóranum
Crotowski, sem þekktur er fyrir
brautryöjendastarf á þessu sviöi.
„Eftir aö hafa kynnst þessari hliö
á leikhúsinu fékk ég áhuga á aö
fara til Indlands," heldur Matt-
hildur áfram.
„Ég dvaldist í borginni Kerala,
sem er syöst í Indlandi og stundaöi
nám í skóla, sem heitir Kerala Kal-
amandalam. Þarna byrja nemend-
urnir aó læra dans 12 ára gamlir
og tekur námiö 8—10 ár, þannig
aö þaö sem ég var aö gera var
aðeins aö fá nasasjón af þvi hvaö
indverskur dans er, en þaö var
aldrei ætlunin aö veröa indverskur
dansari,” segir hún og hlær.
„Viö æföum á hverjum degi, sjö
tíma á dag og byrjaði kennslan kl.
7 á morgnana. Fyrst geröum viö
upphitunaræfingar, síðan var hálf-
tíma hlé til aö matast og síöan var
haldiö áfram.
Fyrst lærðum viö ákveðiö
dansmunstur og, þegar við vorum
búin aó ná valdi á því, var þaö sett
saman í ákveöinn dans. Þegar viö
vorum búin aó læra dansinn, kom
kennsla í leikrænni tjáningu, sem
felst í aö fá tilfinningu fyrir þeirri
persónu, sem verið er aö túlka. Þá
kemur í Ijós hæfileiki nemandans
til aö tjá þessa ákveönu persónu.
En allar sögurnar, sem veriö er aö
segja í þessum dansi eru trúarlegs
eölis, þær byggjast á Hindúatrú,
þar sem guöirnir fara meö stærsta
hlutverkið."
Viö spyrjum hana, hvaö henni
hafi þótt mest heillandi viö ind-
verska dansinn?
„Þaö var þessi ríka áhersla, sem
lögó er á aó tjá sig meö öllum lík-
amanum, og þessi samhæfing allra
líkamshluta, sem geröi dansinn
bæöi krefjandi og skemmtilegan,
meira aö segja tærnar eru þarna
Itka aö verki. Fingurnir gegna til
dæmis mikilvægu hlutverki en þeir
túlka, það sem viö annars mund-
um segja meö oröum."
Matthildur er á faraldsfæti í ann-
aö sinn og nú í austurátt, til aö fá
smjörþefinn af hefðbundinni jap-
anskri danslist.
„Ég verö í skóla í Tókýó og mun
sækja einkatíma hjá konu, sem
heitir Hana Yagi. Ég mun læra
dansinn Nihon Bujo, sem er
kvennadans. Þaö má segja aö
þessir dansar séu svipaö upp-
byggöir og indversku dansarnir en
þó er ekki eins mikil áhersla lögö á
táknmál, heldur er sagan sögö í
söngvum."
Ég hef í hyggju aö dveljast
þarna í eitt ár,“ segir Matthildur,
þegar viö spyrjum hana, hvaö
dvölin veröi löng, en hvaö tekur
svo viö?
„Það er ekki gott að segja, en
ég hef áhuga á aö komast í alþjóö-
legan leikhóp, þar sem tungumáliö
er ekki hindrun."
Er engin skjálfti í henni aö fara á
svo framandi slóöir, sem Japan er
eöa er hún oröin sjóuö eftir Ind-
landsdvölina?
„Þaó er auövitaö alltaf erfitt aö
koma sér fyrir á nýjum stað og má
segja aö maöur lifi í feröatösku en
þaö er hluti af ánægjunni viö þetta
allt saman aö kynnast nýrri menn-
ingu og ööruvísi lífstíl."
Dansáhugafólk
.vÁvlvivÁvÁvivlvlvlvlvivivivivlvivivÁvivivivÁvIvivivivivIvÁvivivlvlvlvlvIvIvlv.ivlvÁvIwvIvIvIwlvIC
»•/ x»/.\»/-\»/-\»/.\*/.\*/.\’/.\*/.\»/.\’/.\'/.\'/.\’/.\'/.\-/.\,/.\*/.\,/.\*/.\*/.\*/.\,/.\*/.\*/.\T/.\*/A*/.\y/.\T/.\*/A*/A\/A '/V*/^*/^*/^*/^*/^*/^*/^*/^^^
Dansskóli Barböru Weber hefur oftast unniö heimsmeistarakeppnina í Discodönsum
(hópa). Aðaldansari hópsins kemur til okkar 12. sept. Okkur vantar nokkra góöa dansara
16 ára og eldri, stráka og stelpur, þar sem setja á upp eitt af meistaraverkum Barböru til
sýningar í nóvember.
Inntökupróf,
fyrir þá sem vilja
komast í dansflokk-
inn, verður í
Drafnarfelli
4, sunnudaginn
11. sept. kl. 14.30.
Upplýsingar
í síma 74444 kl.
13—16 daglega.
»v/»v/.v/»v/»\/»v/.v/»v/.\ /r» /.\ /Iv/ a .v/»v/»v/»v/»v/*V/»v/*v/*N/*\y*V*v/»v/»\/»\/»\/»v/*\/*\/»v»v/»v/»v/»v/\v/»v/»vy»v/»v/.v/»v/.v/.v/.v/.v/.'
*/V*/\*/\*/\*/\*/\*/V*/V*/V*A*/\*/\ ■*/\*/\*/\*/\*/\*/\*/\*/\./\»/\*/\»/\*/\*/\*/\*/\*/\*/\*/\*/\*/\*/N*/\*/\*/\*/N*/\*/\*/\*/\*/\V/\TATAVAT,
DnnssNðu
Kennslustaðir
Reykjavík
Brautarholti 4,
Drafnarfell 4,
■
Innritun og upplýsingar
Símar: 38126 — 74444
Síöasti
innritunardagur
Amerísk Tennessee-elk í gegn (ekki spónlagt), hannaö úr
lausum ekta parketstöfum, nótuöum saman í 12 tommu
flísar, sem varöar eru meö sjálflímandi svamp-undirlagi og
verpast ekki.
• Auövelt fyrir menn aö leggja (mikill kostn.sparnaöur).
• Ekkert sull meö lím og lakk (líka kostn.sparnaöur).
• Tilbúiö tíl notkunar strax.
• Hljóölátt aö ganga á.
• Hljóöeinangrandi
• Hitaeinangrandi.
• Mjúkt aö standa á.
• Ekkert viöhald.
• Endlngargott.
• Fallegt, upprunalegt, ekta (ekki eftirlíking).
Hartco ameríska
parketið er fram-
leitt og hannað
með tíllítí til kostn-
aðar, þæginda,
fegurðar og end-
ingar.
— Kv«rklittar
— Slúttlistar
— Þraplistar
Hagstætt verö
beint frá
innflytjanda
Þóröur Júlíusson,
skrifst. Lsugavsgi 26 2. h
Rsykjsvfk, simi 22245.