Morgunblaðið - 02.10.1983, Page 3

Morgunblaðið - 02.10.1983, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. OKTÓBER 1983 3 Stjórn LÍÚ: Rekstrarskilyrði útgerðar- innar með öllu óviðunandi MEÐ áframhaldandi taprekstri er einstaklingum gert ókleift að stunda þennan atvinnurekstur, en þeir hafa verið burðarásinn í þess- ari starfsemi undanfarna áratugi. Þetta segir meðal annars í sam- þykkt stjórnar LÍÚ um taprekstur útgerðarinnar, sem samþykkt var á fundi hennar síðastliðinn fimmtu- dag. Fer samþykktin hér á eftir: Stjórn LÍÚ telur að rekstrar- skilyrði útgerðarinnar séu með öllu óviðunandi, eins og staðfest er af Þjóðhagsstofnun. Kaupir Sambandið Tímann? Stjórn LÍC varar stjórnvöld við afleiðingum þess að útgerðin sé rekin með tapi sem fjármagnað er með skuldasöfnun. f sl. mánuði afhenti Reykjavíkurdeild RKÍ slökkviliði Reykjavíkur nýja sjúkrabifreið. Sjúkrabifreiðin stendur þarna fyrir framan skrifstofu Reykja- víkurdeildarinnar að Öldugötu 4. Formaður Reykjavíkurdeildarinnar, Ar- inbjörn Kolbeinsson, yfirlæknir, afhendir varaslökkviliðsstjóra, Hrólfi Jónssyni, lykil bifreiðarinnar. Á myndinni eru frá vinstri talið: Richard Pétursson, stjórnarmaður Reykjavíkurdeildarinnar, Ármann Pétursson, formaður Brunavarnarfélags Reykjavíkur, Hrólfur Jónsson, Arinbjörn Kol- beinsson, Unnur Scheving Thorsteinsson, formaður kvennadeildar RKÍ í Reykjavík, og Ólafur E. Ólafsson, skrifstofustjóri Reykjavíkurdeildarinnar. Slökkviliði Reykjavíkur afhent ný sjúkrabifreið BLAÐIÐ fslendingur á Akureyri fullyrðir sl. fimmtudag að prent- smiðjan Edda, sem er í eigu Sam- bands íslenskra samvinnufélaga, muni kaupa dagblaðið Tímann. Seg- ist blaðið hafa fyrir þessari frétt „áreiðanlegar heimildir“. „Ástæðan fyrir kaupunum mun aðallega vera sú, að skuldabyrði Tímans er orðin geysimikil og treysta þeir, sem nú standa að rekstrinum, sér ekki til að halda áfram," segir í fslendingi. Segir ennfremur að endanleg ákvörðun um „yfirtöku Sambandsins á málgagni Framsóknarflokksins" verði tekin á næstunni, skv. heim- ildum blaðsins. „Samfara „eig- endaskiptunum" eru fyrirhugaðar gagngerar breytingar á rekstri Tímans og „þeir reknir, sem þarf að reka“ eins og einn heimildar- manna íslendings orðaði þetta," segir blaðið. Morgunblaðið bar þessa frétt undir Þorberg Eysteinsson, fram- kvæmdastjóra prentsmiðjunnar Eddu í gærkvöld. „Ja, ég veit ekki meir," sagði Þorbergur. „Ég hef aldrei heyrt þetta nefnt og kem alveg af fjöllum hvað þetta varð- ar.“ Fiskverð hefur nú tvívegis ver- ið ákveðið með lögum, þar sem ekki er tekið tillit til aukins til- kostnaðar og minnkandi afla. í hönd fer erfiðasta rekstrartíma- bil ársins og hljóta hin erfiðu rekstrarskilyrði að draga úr möguleikum til þess að halda skipum til veiða. Með áframhaldandi taprekstri er einstaklingum gert ókleift að stunda þennan atvinnurekstur, en þeir hafa verið burðarásinn í þessari atvinnustarfsemi undan- farna áratugi. SLOKKVISTÖÐIN í Reykjavík hef- ur nú fengið afhentan nýjan sjúkra- bfl frá Reykjavíkurdeild Rauða krossins. Bfllinn er hugsaður til notkunar að vetri til og við erfiðar aðstæður. Er hann neð drifi á öllum hjól- um og annar útbúnaður er sér- staklega í bílnum til að sinna sjúkraflutningum í slæmu veðri. Toppur bílsins er upphækkaður svo öll vinnuaðstaða er góð. Auk sérstaks búnaðar til vetrarstarfa er bíllinn búinn þeim almennu tækjum sem slökkviliðið hefur yf- ir að ráða í sjúkrabílum. Bíllinn er af Chevrolet Suburban-gerð. Hann var innréttaður af Ragnari Valssyni, bílasmið. Slökkviliðið átti fyrir svipaðan bíl sem kominn er nokkuð til ára sinna. hvernig þú ferðast Nútímatækni og þekking okkar í þína þágu Sérfræðingar í sérfargjöldum IBM tORDA Tæknivæddasta ferðaskrifstofa landsins með sérhæft starfsfólk þér til aðstoðar LONDON Heimsborgin - miðstöð viðskipta og listalífs Evrópu Farþegar ÚTSÝNAR feröast á lægstu fargjöld- um, búa á völdum hótelum á beztu stööum í borginni fyrir stórlækkaö verö, t.d. CUMBER- LAND á horni HYDE PARK og OXFORDSTR/ET- IS — í HJARTA TÍZKUHEIMSINS — ÚTSÝN hef- ur ein ísl. feröaskrifstofa sérsamning viö CUMBERLAND. í KAUPBÆTI: Tekið á móti þér um leiö og þú kemur úr flugvélinni á Lundúnaflugvelli. Flutningur frá og til flugvallar, innritun á hótel, dagleg aðstoö þaulkunnugs fararstjóra meðan á dvölínni stendur. Allt svo auövelt og öruggt með Eyrúnu fararstjóra. Lundúnaferðin sem borgar sig. Reynsla farþeganna: „Viö hjónin höfum í 6 jSkipti ferðast á vegum Útsýnar, og getum ekki hugsaö okkur betri þjónustu,£Sjla staöi, bæöi iis.“ fft heima og erlendis. Eyrún fararsti. æ # SKEMMTILEGT — ODYRT — ORUGGT KYNNIÐ YKKUR UTSYNARKJOR: VETRARDVÖL Á COSTA DEL SOL Feróaskrifstofan ODYRAR HELGAR- iA'ivm Kaupmannahöfn Brottför laugardaga. Verð frá kr. 8.915 Edinborg Brottför föstudaga. Verö frá kr. 8.208 Glasgow Brottför föstudaga. Verð frá kr. 8.202 Luxemburg Brottför föstudaga. Verö frá kr. 10.273 London Brottför fimmtudaga. Verö frá kr. 8.275 Amsterdam Brottför föstudaga. Verö frá kr. 9.950 — París Brottför föstuoaga. Verð-ffa KL. 12.754 Helsinki Brottför föstudaga. Verö frá kr. 10.918 Reykjavík: Austurstræti 17, Akureyri: Hafnarstræti 98, sími 26611. sími 22911.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.