Morgunblaðið - 02.10.1983, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. OKT0BER 1983
27
Um hlutverk ástöðumanns
á fjárflutningabíl, sagði Emil
ástöðumaður að það væri að
standa aftan á pallinum allan
þann tíma, sem lömb væru á
honum og koma í veg fyrir
það, að þau legðust niður. Ef
þau liggja undir á pallinum,
þá stíga hin lömbin ofan á
þau og viðbúið að þau merj-
ist. Kemur það fram á kjöt-
inu, þegar búið er að slátra og
veldur verðfellingu. Kjötið
fer í annan flokk og það er
fæstum bændum að skapi. Ef
lömb troðast undir, þá getur
það leitt til þess að þau
hreinlega drepist og engum
bónda er það að skapi.
Emil sagði, að viss tala
lamba væri í hverju hólfi og
þannig gæti hann fylgzt með
því hvort eitthvert lambanna
væri undir. En bezt væri að
ganga sem minnst um pall-
inn, ef þess væri kostur, því
þá legðust lömbin síður niður
vegna hræðslu við ástöðu-
manninn. Einnig gæti það
verið mismunandi frá bæ til
bæjar, hversu mikið af lömb-
um legðist niður. Ekki endi-
lega af því að þau væru
hræddari eða styggari. Held-
ur hitt, að þau væru vel étin
eða þá eftir smalamennsku
og rekstur.
Um það hvort ekki væri
kalt að vera uppi á palli í
norðan garra eða rigningu, þá
sagði Emil það, að hann
reyndi að klæða sig sæmilega
og vera í regngalla, þannig að
það blési ekki svo mikið í
gegn. Þetta væri skemmtileg
vinna, ferðazt víða og sér lík-
aði þetta mjög vel. Það væri
aðstaða í Hrútsholti. Kemur
síðan bóndinn Helgi Guð-
jónsson, hvatlegur maður,
með lítið barn sér við hlið og
heilsar upp á okkur.
„Við erum hérna með mann
frá Morgunblaðinu með
okkur,“ segir Garðar bíl-
stjóri.
„Frá Mogganum", sagði
Helgi. „Jæja, eruð þið komnir
til þess að sættast? Þið hafið
verið vondir við Erlend upp á
síðkastið í Mogganum vegna
einhverra íþróttastyrkja, sem
SÍS hefur veitt. Annars veit
ég ekkert um þetta. Sé ekki
Moggann. Hefi bara heyrt
þetta."
Síðan er tekið til við að
reka lömbin úr krónum fram
á fóðurganginn, þar sem þau
eru síðan rekin beint út á
pallinn á bílnum. Heldur
brösuglega gengur þetta allt
saman og segir Helgi bóndi,
að þetta séu þrjózkustu lömb
sem til séu. Séu alltaf með
rassinn á undan. En þetta
gengur hægt og rólega fyrir
sig og brátt eru þessi 60 lömb
öll komin á bílinn.
Emil ástöðumaður lítur
eftir, hvort ekki séu allir
hausar upp úr í hverri stíu
fyrir sig. Eitthvað vilja þau
leggja sig niður. Sennilega
óhress með það að svona mik-
ið skuli vera þrengt að þeim.
Aldeilis frávik frá því að hafa
gengið um hagana í sumar og
geta farið allra sinna ferða
frjáls og síðan á einum degi
rekin í hús dregin, frá mæðr-
um sínum og að lokum
hneppt í kös uppi á bíl, þar
þessar. Þurfti Emil nokkrum
sinnum að draga lamb fyrst
upp á pall, upp sliskjuna, áð-
ur en hin lömbin, sem eftir
voru, tóku að renna upp á eft-
ir þeim. Eflaust ekki svo
fjarri ályktað hjá malbiks-
barninu, sem sjaldan hafði
komið í dreifbýlið, þegar það
spurði að því, hvort lömbin
ætluðu aldrei að læra að
ganga upp á bílinn. Þetta sér
gert á hverju hausti og ein-
hvern tímann hljóti þau að
læra þetta. Hver veit nema að
lömbin á Þverá verði búin að
læra það næsta haust, þegar
þau verða sótt þá.
En nóg um það. öll 40
lömbin fóru upp á bílinn og
síðan var ekið sem leið lá í
Borgarnes aftur. Vegurinn
var óvenjulega góður. Ekki
nema 2 hvörf, þar sem stoppa
þurfti hérumbil alveg áður en
ekið var yfir þau, svo ekki
kæmi slinkur á bílinn og Em-
il ástöðumaður hefði meira
að gera en eðlilegt væri mið-
að við aðstæður.
Brátt var komið að slátur-
húsinu, sem er úti í Brákarey.
Þar tók Þórður Guðmunds-
son, réttarstjóri, á móti þeim
og lét þau í ákveðinn dilk, þar
sem þau skyldu geymast til
næsta dags. Þess dags er
þeim yrði fargað.
Þórður réttarstjóri sagði,
að stundum kæmu menn frá
viðkomandi bæjum til þess að
framvísa lömbunum. Fælist
það í því, að stundum væru
fleiri en eitt mark frá hverj-
um bæ og þar af leiðandi
fleiri eigendur oftast. Kæmi
Að síðustu eru þau komin í réttina við sláturhúsið og Þórður réttarstjóri telur þau inn til að f«ra í bækur sínar.
ásókn að komast í þetta starf
og kæmust færri að en vildu.
Þetta væri ekki færibanda-
vinna eins og inni í slátur-
húsinu og jafnframt unnið
úti við.
Þið eruð vondir við Erlend
Eftir að hafa malað við þá
Garðar bílstjóra og Emil
ástöðumann á leiðinni frá
Borgarnesi og ’æstur í Eyja-
hrepp, þá var komið að því að
farið væri heim á fyrri bæ-
inn. Vað það Hrútsholt. Þar
eru nýleg fjárhús og Garðar
gat ekið beint að fjárhúsdyr-
unum og bakkað að þeim til
að setja lömbin á. Fyrirtaks
sem þau geta sig hvergi
hreyft. Er nema að vonum.
Ætla þau aldrei að
læra að ganga upp?
Eftir að hafa kvatt Helga
bónda í Hrútsholti, þá var
haldið að Þverá. Þar voru
lömbin í rétt úti við hjá
Helga bónda Guðmundssyni.
Eftir að Garðar bílstjóri
hafði bakkað að réttarveggn-
um við dyr á honum, þá kom
hann með sliskju til þess að
mynda brú fyrir lömbin til að
ganga upp. En sliskju hefur
hann meðferðis á bílnum til
að nota við aðstæður sem
því einhver frá bænum til
þess að framvísa lömbunum
eftir eigendum og þannig
gæti hver eigandi fengið sitt
lamb og jafnframt fallþunga
þess á vigtarnótuna frá slát-
urhúsinu.
Þannig var ein ferð með
sláturhússbíl frá Kaupfélagi
Borgfirðinga til að sækja
sláturlömb. Eflaust er hver
ferðin annarri lík, þegar frá
líður.. Nema þegar eitthvað
kemur upp á. Sögðu þeir
Garðar og Emil, að það kæmi
sjaldan fyrir og því væri
þetta vinna, sem væri nokkuð
svipuð frá degi til dags.
— Pþ-
margar nýjar gerðir
Einnig furusófasett frá kr. 9.980.-
Furusófaborð margar gerðir.
Leðursófasett margar gerðir frá kr. 24.960.-
Eldhúsborð í úrvali.
Góðir greiðsluskilmálar.
Húsgagnaverslun Reykjavíkurvegi 68,
Hafnarfirði. Sími 54343.
HAFANewLine
Sænskar baðinnréttingar (sérflokki,
sem má raða upp að vild.
Fást I aski, teak, lituðum aski og hvltlakkaðar.
Vald Poulsen
Suðurlandsbraut 10 — sími 86499