Morgunblaðið - 02.10.1983, Blaðsíða 48
MLUMðOgi
snEvðid
SUNNUDAGUR 2. OKTÓBER 1983
Arnarflug leigir sfmalínu frá London vegna tölvubókunarkerfis:
Kostnaðurinn Vz af
verðinu hér á landi
„ATHUGANIR okkar leiddu í
Ijós, að mun ódýrara var að fá
símalínu hingað til lands frá Lond-
on en að fá línuna frá íslandi,“
sagði Stefán Halldórsson, deildar-
stjóri hjá Arnarflugi, í samtali við
Morgunblaðið.
„Aðdragandi málsins var sá, að
Arnarflug gerði samning við hol-
lenzka flugfélagið KLM um að
tengjast tölvubókunarkerfi þess
og þurfti því að leigja línu til þess.
Þegar við könnuðum málið hjá
Pósti & síma kom í ljós, að línan
kostaði ákveðna upphæð, en ofan á
það verð kom síðan 200% álag frá
Mikla norræna símafélaginu,
þannig að línan þrefaldaðist í
verði," sagði Stefán ennfremur.
Mikla norræna síma-
félagið leggur
200% álag á línur
út úr landinu
Stefán sagði að við frekari at-
huganir hefði komið í ljós hjá um-
boðsmanni Arnarflugs í Bretlandi,
að möguleiki var á lausri línu frá
Evrópu til íslands, sem kostaði
mun minna en línan hér að
heiman. „Það kom reyndar í ljós,
að kostnaðurinn við leigu á þess-
ari línu var aðeins um þriðjungur
af því, sem við hefðum þurft að
greiða hér á landi.
Við tengjumst með þessu al-
þjóðlegu fjarskiptakerfi flugfé-
laga, sem sér um uppsetningu þess
og veitir alla tæknilega ráðgjöf.
Við tókum því ákvörðun um að
láta þá aðila sjá um málið fyrir
okkur og tókum línuna að utan,“
sagði Stefán.
„Það kom okkur óneitanlega
töluvert á óvart hversu miklu dýr-
ara það var að fá símalínu héðan
frá Islandi en að utan, og óneitan-
lega kom orðið átthagafjötrar upp
í hugann í þessu sambandi, auk
þess sem sú staðreynd liggur fyrir,
að ódýrara er fyrir útlendinga að
hringja hingað til lands en okkur
að hringja til útlanda," sagði Stef-
án Halldórsson að síðustu.
Óperusöngvarar mála
Starfsmenn fslenzku óperunnar tóku sig til í gær og hófu aö mála húsnæði sitt,
Gamla Bíó, utan. Málning hf. geröi sér lítið fyrir og gaf málninguna svo með
þessu framtaki beggja aðila verður kostnaður væntanlega varla mikill.
Morgunbladíd/RAX.
Hækkun súpu-
kjöts frá útsölu-
verði um 43%
þar um að ræða allt að 15% hækkun.
Ef hins vegar er litið á hækkunina
með hliðsjón af dilkakjötsútsölunni í
september kemur í ljós hækkun allt
að 43%. Verð á dilkakjöti var lækkað
um 17—23% 1. september sl., sem
hafði m.a. þau áhrif, að framfærslu-
vísitala hækkaði um einu prósentu-
stigi minna en hún hefði ella gert.
Þær birgðir af dilkakjöti, sem settar
voru á markað í septemberbyrjun
svara til 3—4 mánaða sölu, sam-
kvæmt upplýsingum Mbl. og áhrif
þessa lækkaða verðs á framfærslu-
kostnað heimilanna eru því jafnvel
enn meiri en mælist í vísitölunni.
Verð á súpukjöti, sem er í gildi á
tímabilinu 1. september til 10. októ-
ber nk., er 85,30 krónur hvert kíló.
Eftir hækkun nú mun hvert kíló
væntanlega kosta um 122 krónur.
Hækkunin er því um 43%.
Hvert kfló af lærissneiðum kostar
nú 125,45 krónur, en mun væntan-
lega hækka í liðlega 171 krónu.
Hækkunin er því liðlega 36%.
Lítil breyt-
ing á Skaftá
SKAFTÁRHLAUPIÐ, sem hófst
fyrir helgina, hafði lítið vaxið um
hádegisbilið í gær. Sýnist einsýnt,
að hlaupið verði ekki stórt. Fylgst
er með rennsli árinnar og hafa
menn andvara á sér ef hlaupið
skyldi færast í aukana.
Veruleg rýrnun á gjaldeyris-
forða Seðlabanka milli ára
Gjaldeyrisforði Seðlabanka ís-
lands hefur rýrnað verulega að
raungildi undanfarna mánuði. Sem
dæmi um þetta var gjaldeyrisforðinn
í júlflok um 3.797 milljónir króna, en
til samanburðar 2.336 milljónir
króna á sama tíma í fyrra. Verð-
mætaaukningin milli ára er því
62,54%, en umreikningsgengi doll-
ars á umræddu tímabili hefur hins
vegar hækkað um 128,75%, en það
var 12,14 krónur í júlflok 1982, en
27,77 krónur í júlflok sl.
Gulleign Seðlabanka jókst um
127,27% á milli ára. Var um 50
milljónir króna í júlílok, en til
samanburðar um 22 milljónir ári
Skuldir viöskiptabanka í frjáls-
um gjaldeyri hafa aukizt um 642%
fyrr. Frjáls gjaldeyrir í Seðla-
banka jókst um 70,14% milli ára,
eða 3.726 milljónir króna á móti
2.190 milljónum króna.
Skuldir Seðlabanka í frjálsum
gjaldeyri jukust um 36,21% milli
ára, eða voru 1.655 milljónir króna
á móti liðlega 1.215 milljónum
króna. Nettógjaldeyrisstaða
Seðlabankans var 2.142 milljónir
króna í júlílok sl., en til saman-
burðar um 1.122 milljónir króna á
sama tíma fyrir ári. Aukningin
milli ára er því um 90,91%, sem er
nokkru minna en nemur hækkun
gengisins á tímabilinu eins og áð-
ur sagði.
Ef litið er á viðskiptabankana
voru erlendar eignir þeirra í júlí-
lok sl. um 631 milljón króna.
Höfðu þær aukizt um 114,63% frá
fyrra ári, þegar þær voru 294
milljónir króna. Erlendar skuldir
viðskiptabankanna höfðu hins
vegar aukizt um 642,42% milli
ára. Voru um 735 milljónir króna í
júlílok sl. borið saman við 99
milljónir króna fyrir ári. Nettó-
staða viðskiptabankanna var því
neikvæð um 104 milljónir króna í
júlílok, en var jákvæð um 195
milljónir króna á sama tíma fyrir
ári.
Gjaldeyrisstaða bankanna nettó
var því um 2.038 milljónir króna í
júlí sl., en var til samanburðar um
1.317 milljónir króna í júlílok á
síðasta ári. Breytingin milli ára er
því aðeins 54,75%. Staðan hefur
því augljóslega rýrnað verulega
milli ára, ef tekið er mið af hækk-
un umreiknings, sem hækkaði um
128,75% eins og áður sagði.
Flugvél á þaki Hótel Esju
Á þessari mynd, sem Ragnar Axelsson Ijósmyndari Morgunblaðsins tók, er verið að hífa flugvél upp á þak Hótels
Esju, en þar trónaði flugvélin í gær. Tilefni þessa er ráðstefna um öryggismál einkaflugs, sem haldin er af
flugmálastjóra og Vélflugfélagi íslands í samvinnu við Flugleiðir og var ráðstefnan haldin í gær á Hótel Esju.
NVTT verð á dilkakjöti mun taka gildi
á næstu dögum eins og skýrt var frá í
Mbl. í gærdag, en það mun hækka
mun meira en verð á öðrum landbún-
aðarvörum í útsölu m.a. vegna slátur-
kostnaðar og fleiri þátta.
I Mbl. í gærdag voru tekin dæmi
af því hver hækkunin yrði miðað við
það verð sem gilti 1. júní sl., og er