Morgunblaðið - 02.10.1983, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. OKTÓBER 1983
21
Aðstoðarlæknir á lyflæknisdeild sýnir hluta þcirra tækja sem um borð Neyðarbfllinn er nokkurs konar „slysadeild á hjólum“. Þar eru fullkomin tæki, meðal annars hjartarafsjá,
eru. rafpúðar til að gefa lost auk allra lyfja, svo dæmi séu tekin.
Nokkur tilvik sem
skipt hafa sköpum
Blaðamaöur bað lækna lyf-
læknisdeildar að rifja upp
örfá tilvik þegar álitið er að
læknismeðferð á staðnum
komi að verulegum notum,
jafnvel svo að skipti sköp-
um.
Átján mánaða gamalt barn
fékk skyndilega verulega and-
nauð og var komið með mikinn
bláma þegar læknirinn á neyð-
arbílnum kom á staðinn. Reynd-
ist barnið vera með barkaloks-
bólgu, sem getur valdið öndun-
arstöðvun fyrirvaralítið og þarf
að barkaþræða í mörgum tilvik-
um. Barninu létti við súrefnis-
gjöf og þurfti ekki að koma til
barkaþræðingar í þessu tilviki.
Komið var að meðvitundar-
lausum sykurssýkissjúklingi í
heimahúsi. Fékk hann blóðsykur
og vaknaði hress og var skilinn
eftir heima. Hann hafði áður
fengið svipaða meðferð.
Stúlka lenti í slæmu umferð-
arslysi. Missti meðvitund og
festist i bifreið og tók um hálf-
tíma að losa hana. Var með lág-
an blóðþrýsting. Hún var sett í
hálskraga á staðnum, fékk vökva
í æð og við það hækkaði blóð-
þrýstingur. Var síðan flutt í
slysadeild í allsæmilegu ásig-
komulagi, miðað við aðstæður.
Fullorðin kona fékk verulega
slæma hjartabilun, andþyngsli
og var byrjuð að blána þegar
komið var að. Létti hanni veru-
lega á staðnum við lyfjagjafir og
súrefni og var síðan flutt á spít-
ala.
Aldraður maður fékk hjarta-
og öndunarstopp eftir að kjötbiti
hafði fest í hálsi. Bitinn var fjar-
lægður á staðnum með barka-
speglun og sjúklingur barka-
þræddur og endurlífgaður og
hjartað tók vel við sér. Var
sjúklingurinn fluttur í gjör-
gæzludeild Borgarspítalans.
Drengur fékk aðskotahlut í
háls og veruleg andþyngsli. Var
barkaspeglaður á staðnum og
aðskotahluturinn sogaður burtu.
Jafnframt var sett líflína til
lyfjagjafar ef á þyrfti að halda.
Var drengurinn fluttur í góðu
ásigkomulagi á slysadeild og út-
skrifaðist samdægurs.
Liðlega tvítug kona fékk veru-
leg andþyngsli í nokkrar klukku-
stundir. Stuttu eftir að starfslið
neyðarbílsins kom á staðinn
hætti hún að geta andað. Reyn-
ist með barkaloksbólgu og mik-
inn bjúg í barkakýli, þannig að
efri loftvegir höfðu lokast. Var
hún barkaþrædd í neyðarbíl og
gefið súrefni. Jafnframt var sett
upp líflína til lyfjagafa ef á
þyrfti að halda. Flutt í gjör-
gæzludeild Borgarspítalans og
útskrifaðist í góðu ásigkomulagi.
Liðlega sextugur maður fékk
hjartaverki og lífshættulegar
hjartsláttartruflanir. Fylgst var
með hjartsláttaróreglu í rafsjá
og sett upp líflína til lyfjagjafa.
Henni voru gefin lyf og fækkaði
lífshættulegum aukaslögum.
Reyndist maðurinn vera með
kransæðastíflu. Var hann flutt-
ur í þokkalegu ásigkomulagi á
sjúkrahús.
Fullorðinn maður fékk slæm-
an krampa og var orðinn helblár
þegar komið var á vettvang. Sett
var upp líflína og gefin lyf í æð,
sem stöðvuðu krampann. Hann
var fluttur í góðu ásigkomulagi á
sjúkrahús.
Komið var að liðlega áttræð-
um manni í hjarta- og öndun-
arstoppi. Líflína var sett upp og
maðurinn barkaþræddur. Hann
fékk raflostmeðferð og lyfjagjaf-
ir til að stöðva hjartsláttar-
óreglu. Maðurinn endurlífgaður
og fluttur á Borgarspítalann.
Útkall vegna hjartastopps.
Komið var að sjúklingi liggjandi
á gangstétt í Bankastræti. Var
hann talinn vera með einkenni
sykurskorts. Blóðsykur var
mældur í neyðarbíl og reyndist
grunur á rökum reistur. Var
honum gefinn sykur í æð og
hresstist maðurinn strax. Flutt-
ur heim fullhress.
Kona um tvítugt fékk illvíga
og viðvarandi krampa, sem vald-
ið geta súrefnisskorti og heila-
skemmdum. Líflína var sett upp
og henni voru gefin lyf í æð, sem
stöðvuðu krampana að mestu.
Var konan flutt á slysadeild og
síðan á lyfjadeild Landspítalans.