Morgunblaðið - 02.10.1983, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. OKTÓBER 1983
43
Varmo-
snjóbræðslurör
Varmo-snjóbræöslurörin fást hjá
okkur. Nú fara aö veröa síöustu forvöö
aö búa sig undir hálku vetrarins meö
affallsvatniö og Varmo-snjóbræöslu-
rörin aö vopni!
B909ÍngAvdruvarx(ao
TrjggvA Hannetiooar
SIOUMÚLA SíMAR 83290-63360
Elisabeth
prinsessa af Toto
skaðabætur? Hvað hef ég gert,
sem ég þarf að gjalda fyrir með
bótum. Amín hvítnaði af reiði.
— Heyrðu nú! — sagði hann. —
Þetta er enginn réttarsalur. Á
meðan hann lét móðan mása,
horfðist ég í augu við Lule, og sá
að hann var skelfingu lostinn. Ég
sá, að allir hinir voru skelfingu
lostnir líka. Ég gerði mér grein
fyrir því, að ég varð að halda mér
saman. Svo spurði ég einskis
frekar og fékk leyfi til að hverfa
á brott.
En ástandið var óþolandi. Ég
var undir eftirliti 24 tíma á sól-
arhring. Morgun nokkurn komu
Walusimbi frænka mín og Em-
anuel bróðir minn eldsnemma til
mín og voru mjög alvarleg í
bragði. Sjónvarp og dagblöð
höfðu birt ljósmyndir af nakinni
konu, sem fullyrt var að væri ég.
Frændfólk mitt var orðið alvar-
lega óttaslegið um minn hag, og
vildi að ég reyndi að komast úr
landi. Að sjálfsögðu sá ég glöggt,
hvað vakti fyrir Amín. Nú ætlaði
hann að hefna sín. Nú hélt hann
að hann gæti notað þessa nekt-
armynd, sem hafði þirzt í Das
Bild 11. janúar 1977, til að koma
fram hefndum á mér.
Ég vissi að nauðsyn krafði þess
að ég hyrfi á brott hið bráðasta.
Ég varð að taka ákvörðun í
snatri um það, hvort ég ætti að
ná fundi Amíns áður en ég
reyndi að flýja eða flýja strax.
Walusimbi ráðlagði mér að taka
síðari kostinn. Við ákváðum að
móðir mín skyldi gefa þá skýr-
ingu á fjarveru minni, að ég ætl-
aði að dveljast eina helgi í Toto.
Svo lögðum við af stað á gömlum
Morris sem frænka mín átti. Við
fórum ýmsar krókaleiðir, en bið-
um svo myrkurs, og héldum þá
til Jinja í austurhluta landsins.
Ég lá i aftursætinu alla leiðina
þangað. Næsta dag komst ég yfir
landamærin til Kenya, dulbúin
sem venjuleg sveitastelpa.
Þegar við komum til Naíróbí
fórum við beint á skrifstofu
Patricks bróður míns, en hann
hafði fengið skilaboð um að vera
þar á ákveðnum tíma. Kenyatta
forseti hafði jafnan metið störf
mín mikils og litið á mig sem
dóttur sína. Hann bauð mér nú
hæli í landinu, og Margarete
dóttir hans ráðlagði mér að
hringja til Amíns, og láta hann
vita af mér, svo að hann hætti að
angra fjölskyldu mína. Ég varð
við því. Þegar Amín var kominn í
símann sagði ég við hann: — Yð-
ar hátign. Ég er í Naíróbí, en
þangað kom ég með Iest frá Toto.
Ég óskaði honum alls hins bezta
og sagðist ekki hafa horn í síðu
hans né stjórnar hans. — En get-
urðu ekki komið aftur? — sagði
hann þá. — Þú getur orðið ráð-
herra aftur og fengið húsið þitt.
Ég sagðist frekar vilja vera hjá
bróður mínum í Naíróbí, en yrði
honum þakklát ef hann sýndi
fjölskyldu minni vinsemd. For-
setinn fullvissaði mig um, að
hann myndi ekki skerða hár á
höfði ættingja minna. Við vorum
mjög vinsamleg hvort við annað í
þessu samtali. Og frá því var síð-
an skýrt í útvarpi og sjónvarpi að
ég hefði hringt til Amíns frá
Naíróbí og hann hefði boðið mér
mitt fyrra starf.
ATLAS
vetrardekk
Gæöadekk á góöu verði
P
P
P
P
A78x 13
B 78 x 13
155 R 13
165 R 13
G 78 x 14
E78x 14
195/75 R 14
205/75 R 14
205/75 R 15
225/75 R 15
H 78 x 15
700 x 15
700 x 16
750 x 16
a kr. 2.629 m/sölusk.
a kr. 2.673 m/sölusk.
a kr. 2.379 m/sölusk.
a kr. 2.484 m/sölusk.
a kr. 3.112 m/sölusk.
a kr.3.291 m/sölusk.
a kr.3.549 m/sölusk.
a kr.3.711 m/sölusk.
a kr.3.980 m/sölusk.
a kr.4.374 m/sölusk.
a kr.4.936 m/sölusk.
a kr.4.935 m/sölusk.
a kr. 5.590 m/sölusk.
a kr.7.390 m/sölusk.
BIFREIDADEILD SAMBANDSINS
VARAHLUTAVERSLUN HOFÐABAKKA 9-SIMI 85539
@□0 GÆÐAEFTIRLIT MEÐ GÆÐA VÖRUM
SHefjgtnifrltifcife
Gákm daginn!