Morgunblaðið - 02.10.1983, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 02.10.1983, Blaðsíða 1
Flug 49/52/53/54 Svipmynd 50 Hundar/Sámur fóstri 56/57 Sprengisandur 60/61 Pottarím/Slátur 62 Jón Sigurgeirsson 64/65 Á drottins degi 66 Sunnudagur 2. október Myndasögur 70 Skák 70 Bridge 70 Á förnum vegi 71 Dans/bíó/leikhús 72/75 Velvakandi 76/77 Marc Rich 78/79 Ljósmynd Gísli Pr. Johnsen. FLJÚGANDI VfiONGUR Flugsveitin 330 (N) var stofn- uð á íslandi áriö 1941. Margar af vélunum úr þessari flugsveit voru síðar skotnar niður og mannfall var mikið. En svo voru líka nokkrar vélar úr flugsveit- inni, sem tókst að nauðlenda og flugliðunum var þá bjargað. Vel þekkt er hin ævintýralega björgun flugmannsins og Ósló- búans Wsevolods (Sevi) Buluk- ins og loftskeytamannsins Leifs D. Rustad eftir nauðlendingu þeirra í hinni jökulköldu Þjórsá við rætur eldfjallsins Heklu í apr- flmánuði 1941. Frásögnin af þessum atburði er að finna í bók- inni „Hetjusaga norsku North- rop-vélanna á íslandi“ eftir Cato Guhnfeldt. Íslensk-norsk-bandaríska Northrop-leiðangrinum, sem gerður var út árið 1979 tókst í samvinnu við félagsskapinn Norsk Flyhistorisk Forening að grafa upp þessa Northrop-vél og koma flakinu til byggða. Nú hef- ur verið gert við vélina, hún feng- ið sitt upprunalega útlit og henni verið komið fyrir í bækistöðvum norska hersins í Gardermoen í Noregi. Þetta er reyndar einasta Northrop-vélin, sem eftir er í heiminum. Þegar flakið af þess- ari vél var sett á land í Noregi, rifjaðist upp fyrir mér önnur björgun, fimmtíu árum áður, þar sem menn komust líka nauðug- lega af — í það skipti var það undan Vatnajökli. Sjá einnig bls. 52, 53 og 54. Ljósmynd óskars Gíslasonar. Bæjarbúar bíða frétta af afdrifum Ahrenbergs fyrir utan Morgunbiaðshúsiö gamla í Austurstræti.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.