Morgunblaðið - 12.10.1983, Page 9

Morgunblaðið - 12.10.1983, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. OKTÓBER 1983 57 Tillitsleysi eda hugsunarleysi? Nokkur orð um umferðarmenningu eftir Jóhannes Tómasson Umferðarmenning. Er hún til? Kann að vera, en ekki í henni Reykjavík. Það er lítil reisn yfir umferðinni í höfuðstað íslands, og kannski víðar. Hún er gjörsam- lega laus við nokkuð sem kallað er menning. Hversu oft sjáum við ekki bíl þjóta yfir gangbraut þegar aðrir hafa verið stöðvaðir til að hleypa yfir fólki? Hversu oft er ekki ruðst fyrir okkur á aðalbraut, „svínað"? Hversu oft sjáum við ekki að bíl- um er lagt þvers og kruss á gangstéttum og götum? Hversu oft sjáum við ekki samferðamenn okkar aka yfir gatnamót á „bleiku" eða bara rauðu? Við getum spurt frekar. Fært þetta aðeins nær okkur sjalfum, en það er kannski ögn óþægilegt: Hvenær „svínaði" ég síðast? Hvenær lagði ég síðast ólöglega — uppi á gangstétt eða bíllinn hálfur út í götuna? Hvenær ók ég síðast yfir á hálf-rauðu? Tillit — hugsun Æði mörg okkar geta fundið hjá sér einhverja sök ef við lítum heiðarlega í eigin barm. Nei, það er ekki umferðarmenningunni fyrir að fara. Við erum iðulega brýnd til að sýna tillitsemi í um- ferðinni og þykir það góð latína. Ekki skal ég lasta það. Eg held þó að skortur sé öllu meiri á öðru: Hugsun. Umferðin hér einkennist af algjöru hugsunarleysi. Athug- unarleysi. Eitt ákvæði umferðarlaganna segir að vegfarendur skuli ekki tefja eða trufla umferð að óþörfu. (Enginn segir neitt við bilunum og óhöppum.) Ekkert ákvæði er eins vanvirt og þetta. Menn eru að skoða í búðarglugga, hleypa fólki út úr og inn í bíla, éta undir stýri, passa börn með annarri hendinni, tala í talstöðvar og stilla hljóm- flutningstækin. Og svo þegar óhöppin verða þá er viðkvæðið: „Ja, ég bara sá hann ekki“. Nei, hugsunarleysið í umferð- inni ríður ekki við einteyming. Hin silalega og hæga umferð, sí- felldar og óþarfar tafir og truflan- ir leiða til þess að menn gerast óþolinmóðir og grípa til sinna ráða. Menn segja hámarkshrað- ann glæfralega háan og nú hefur hann verið lækkaður á nokkrum götum í Reykjavík. Gott og vel. En hann mætti að skaðlausu vera hærri á tveggja akreina safn- brautum, eins og þær heita á fag- málinu. Hjarðarhagi, Álfheimar, Safamýri, Nesvegur. Þetta eru allt nokkuð breiðar og góðar götur. En þar er ekið hratt. Og þar er of sjaldan mældur ökuhraði. Því ekki að mæla sjaldnar á Breiðholts* braut, Kleppsvegi og Hringbraut og beina kröftunum að hinum fyrrnefndu götum eða þeim lík- um? Upphækkanir á þessum götum sumum hafa þó dregið úr hraðan- um, en þær eru ekki skemmtileg lausn fyrir ökumenn. Við beygjum okkur þó undir þá tilhögun ef hún dregur úr slysum. Meira öryggi Menn verða að gera það upp við sig hvort þeir eru kurteisir og til- litsamir í umferðinni. En við verð- um að krefjast þess skilyrðislaust að menn hafi hugann við það sem þeir eru að gera þegar þeir stjórna ökutæki. Við krefjumst þess af flugmönnum. Rífum hár okkar og klæði þegar flugslysin verða. En hvað með umferðarslysin? Við er- um nærri hætt að taka eftir þeim. Meðfylgjandi myndir tók ég tvær morgunstundir í umferðinni nýlega. Flestar sýna hvernig mönnum getur dottið í hug að leggja ólöglega. Á ökuferð um miðborgina má taka myndir sem þessar á örfáum mínútum. Um leið varð ég vitni að fjölmörgum ámælisverðum atvikum sem ekki voru fest á filmu. Aö lokum Eflaust hefði ég getað átt í hlut í öllum þessum dæmum. Auðvitað hef ég líka leyft mér að túlka boð og bönn eftir mínu höfði og stund- um frjálslega. „Ég-þurfti-aðeins- að-skreppa“-afsökunin. En ég vona að við getum öll hugsað mál- ið og bætt okkur í umferðinni. Slíkt myndi bæta geð okkar, auka á kurteisina, fækka óhöppum, lina þjáningar og lækka kostnað í heil- brigðiskerfinu. Jóhannes Tómasson er blaðamað- ur hjá Læknablaðinu. Hugsunarleysi. Sendibfll byrgir útsýn til austurs eftir Tryggvagötu. Bfll á gangstétt og sendibfll lokar annarri akreininni. Hafnarstræti. Bflar með afturendann út í götuna og hinum megin staðnæmst og umferðin trufluð. Gangandi fólk á víða I erfiðleikum með að komast leiðar sinnar vegna bíla sem þannig er lagt. Hugsunar- og tillitsleysi. Lagt ólöglega beggja vegna Amtmannsstígs. Gangandi komast vart leiðar sinnar, verða að fara út á götu og bflar geta ekki mæst. Truflar og tefur umferð. Félag bókagerðarmanna: Hvetur til órofa samstöðu „Gítarskóli“ Eyþórs í nýrri útgáfu SKTBERG hefur endurútgefið Gít- arskólann eftir Eyþór Þorláksson. í bókinni eru öll undirstöðuatriði gftar- leiks, svo og ásláttaræfingar við ýmis létt lög. Einnig er í bókinni svonefnd stofntónatafla, en með góðum skiln- ingi á henni geta nemendur svo lagt í að æfa upp erfiðari verkefni. Með hjálp þessarar kennslubókar á nem- andinn að geta leikið einföld grip með opnum strengjum, sem nota má til undirleiks við söng eða annan hljóðfæraleik, og þá einnig þvergrip í dúr og moll með sjöundargripum, dimgripum og stækkuðum fimm- undargripum. Höfundur Gltarskólans, Eyþór Þorláksson, er einn af þekktustu gítaristum landsins. Hann stundaði nám í kontrabassaleik við Tónlist- arskólann I Reykjavík og fram- haldsnám við Royal Manchester College of Music. Lagði stund á hljómfræði og kontrapunkt hjá Dr. Urbancic, Eyþór lagði síðan leið sina til Spánar og stundaði þar gft- arnám í nokkur ár hjá þekktum kennurum. Eyþór Þorláksson er nú starfandi gítarkennari við Tónmenntaskóla Reykjavíkur og Tónlistarskóla Hafnarfjarðar. (Frétutiikynning.) Á FÉLAGSFIJNDI í Félagi bókagerð- armanna, sem haldinn var 8. septem- ber 1983 voru gerðar eftirfarandi sam- þykktir: Félagsfundur í Félagi bókagerð- armanna, haldinn 8. september 1983 ályktar eftirfarandi: Á undanförnum árum hafa stjórn- völd í æ ríkara mæli skert lífskjörin við stjórnun þjóðarbúsins. í stað þess að takast á við vandamálin út frá hagsmunum fjöldans hefur verkafólki verið gert að greiða reikn- inga óstjórnar. Verkalýðshreyfingin hefur því miður látið kyrrt liggja í stað þess að stöðva síendurteknar árásir frá stjórnvöldum á lífskjör verkafólks. Nú er svo komið að stjórnvöld telja sér allt leyfilegt í samskiptum sínum við verkafólk og samtök þess. Það eina sem þau eiga eftir að banna er sjálf tilvist verkalýðsfélaga, búið er að afnema i raun alla möguleika þeirra til starfsemi — aðal tilgangur þeirra hefur verið bannaður — þau mega ekki semja um kaup og kjör. Núverandi ríkisstjórn hefur fótum troðið eina af grundvallarforsendum lýðræðisins, félagafrelsið. Ef ekki á enn ver að fara er nauð- synlegt að verkafólk snúi bökum saman og hrindi þessum árásum stjórnvalda. Með samstilltu átaki verkafólks og allra samtaka þess er unnt að snúa við blaðinu. Félagsfundur FBM hvetur til órofa samstöðu. Afnemum bráðabirgðalög ríkis- stjórnarinnar með aðgerðum, ef orð ekki duga. Verkalýðshreyfingin setji sér það mark að koma aftur á lýð- ræði í landinu fyrir 1. nóvember 1983. Félagsfundur í Félagi bókagerð- armanna, haldinn 8. september 1983 felur stjórn félagsins að leita form- lega eftir samstarfi við stjórnir ASÍ og BSRB. Samstarfið skal miða að því að hnekkja bráðabirgðalögum ríkis- stjórnarinnar, endurheimta samn- ingsréttinn og ná aftur því sem af verkafólki hefur verið tekið. Sam- starfi um að snúa vörn í sókn. Félagsfundur FBM haldinn 8. áeptember ’83 lýsir yfir fullum stúðningi við stofnun samtaka til að standa vörð um hagsmuni þeirra sem eru að koma þaki yfir höfuðið. Fundurinn samþykkir að styrkja þessi samtök með 10 þúsund króna framlagi. Félagsfundur FBM haldinn 8. september ’83 samþykkir að styrkja Friðarhátíð ’83 með fimm þúsund króna framlagi. (KrétUtilkynninf;-)

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.