Morgunblaðið - 12.10.1983, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. OKTÓBER 1983
59
verða fyrirtæki landshlutanna
að njóta hagnaðar orkuöflunar-
innar. Að því áttu og eiga að
vinna atgervismennirnir um
allt land. Norðurlandið þarf
ekki að verða úr leik, þrátt fyrir
nýskeða harmsögu Laxárvirkj-
unar. Kröfluvirkjun er f eins
konar banni einvaldsherranna.
Lærdómsríkt að bera saman
vinnubrögð hjá Landsvirkjun
annars vegar og þann hlut, sem
Kröfluvirkjun er skammtaður.
Öðrum augum hefur verið litið
á lekalónið við Sigöldu en gufu-
öflun fyrir Kröfluvirkjun.
4. „Byggðalínurnar" svonefndu
eru óforsvaranleg axarsköft, en
voru vísvitandi sölsun á valdi
undir ákveðinn hóp. Orkubú
Vestfjarða þurftí línu til Vest-
fjarða og það er líka eina linan
sem átti að koma. Byggðalín-
urnar og Krafla — að jöfnu
byrði á almannafé! En Krafla
mun koma til þess að verða
þáttur í draumalandi framtíð-
ar.
5. Virkjanir hér, og virkjanir þar.
Norðausturhornið til dæmis.
Einn staur í Jökulsá í Axarfirði
fellur og Norðausturlandið í
skömmtun. Þar á auðvitað að
virkja við hæfi. Að ekki sé talað
um mesta orkusvæðið, Austur-
land. Byggir á línum! Orkureikn-
ingarnir! Þola má háa orkureikn-
inga ef með því er myndaður höf-
uðstóll í orkuveri í fjórðungnum
sem er eign fólksins er þar býr!
6. Þetta verður að tryggja/í nýrri
stjórnarskrá! Umráð og eign
heimamanna á öllum verðmæt-
um samfélagslegum þar með og
ekki sízt vatnsorkan!
Nóg er komið af þeim háværu
röddum af Faxaflóasvæðinu að
þar sé undirstaða þjóðlífs og í
strjálbýlinu sé undirmálsfólk,
óbeint á þeirri framfærslu! Ég
vona að enginn óttist að sýna
það í gegn um rétt og skyldu
fjórðungaskipunar, — með rétti
og skyldum að tala megi við
hvern sem er án minnimáttar-
kenndar og án yfirlætis, með
öryggiskennd sannra íslend-
inga, sem trúa á sjálfa sig, guð
og landið.
28. sept. 1983.
Jónas Pétursson.
Jónas Pétursson rar alþingismaður
SjálfsUeðistlokksins í Austurlands-
kjördæmi 1959—1971.
— eftir dr. Jón Óttar
Ragnarsson
Þessi grein er önnur í röð-
inni í greinaflokki um áhrif
lífshátta á neysluvenjur og
heilsufar. Er þetta sú fyrri
af tveim sem fjalla um
streitu.
í vélvæddri veröld hefur
óboðinn gestur hreiðrað um
sig. í vaxandi mæli rænir
hann okkur lífslöngun, ham-
ingju og heilsu. Við köllum
hann því kurteislega nafni
streita.
Streita er hvorki ný af nál-
inni né eitthvað eitt eða
tvennt. Engu að síður hefur
þekking okkar á fyrirbærinu
vaxið eftir því sem það tekur
á sig áþreifanlegri mynd.
Æ fleiri teikn eru á lofti um
að sú varanlega streita sem
fylgir flóknu, tæknivæddu og sí-
breytilegu samfélagi nútímans
sé sú illskeyttasta sem mann-
kynið hefur átt í höggi við.
Því einmitt á tímum rót-
tækra þjóðfélagsbreytinga
drottnar streitan í öllu sínu
veldi, þegar gamlir siðir úrelt-
ast og óttaslegið fólk reynir
að fóta sig í framandi heimi.
Hvaö er streita?
Streitu er e.t.v. best lýst sem
samnefnara fyrir það andlega
álag sem kaffærir í senn eðlis-
lægt streituþol og hæfni okkar
til að veita þessu álagi út í um-
hverfið.
Streituþoliö ræðst af mörg-
um þáttum, þ.á m. vissri ást
og öryggi í uppeldi, en vex að
öðru leyti eftir því sem um-
hverfið í uppvextinum er fjöl-
breyttara og meira krefjandi.
Hæfnin til að veita álaginu út
í umhverfið fer m.a. eftir
FÆDA
OG
HEILBRIGÐI
„mórölskum stuðningi ætt-
ingja og vina, hve auðvelt við
eigum með að tjá eigin til-
finningar o.s.frv.
Alagið getur svo verið afar
margbreytilegt, t.d. ótti við
breytingar (ekki síst félags-
legar), erill og þeytingur, yfir-
vinna, hávaði, óregla, einsemd
og kúgun.
Mest er álagið á breyt-
ingaskeiðum þegar heilum
þjóðum er kastað inn í um-
hverfi sem er svo framandi að
forn gildi og viðmiðanir eiga
ekki lengur við.
En jafnframt upplifir hver
einstaklingur sín breyt-
ingaskeið. Mest er streitan
eftir persónuleg áföll, t.d.
ástvinamissi, skilnaði og í
hernaði fjarri heimaslóðum.
Afleiðingar streitu
Streitan — fari hún yfir
visst mark — getur lagt líf
fólks í rúst á undraskömmum
tíma: dregið úr lífslöngun,
leitt til óreglu, vinnuslysa,
jafnvel geðveiki og sjálfs-
morða.
Streita virðist vera orðin
helsta orsök fjarvista á vinnu- -
stöðum. Eru fyrirtæki um all-
an heim að byrja að átta sig á
þeim gífurlega kostnaði sem
af þessu hlýst.
Það segir líka sína sögu að í
Bandaríkjunum eru það þrjú
lyf sem seljast meira en öll
önnur: (1) lyf við magasári,
(2) lyf við háþrýstingi og (3)
róandi lyf.
Streita er alvarlegur
áhættuþáttur fyrir fjölmarga
sjúkdóma, þ.á m. hjarta- og
æðasjúkdóma, háþrýsting,
magasár og starfræna melt-
ingarsjúkdóma svo dæmi séu
nefnd.
Hitt kemur e.t.v. meira á
óvart að streita getur veikt
verulega ónæmiskerfi líkam-
ans og þannig átt umtalsverð-
an þátt í að ryðja krabbameini
og smitsjúkdómum braut.
Nýjustu rannsóknir eru
sem sé smám saman að sanna
það sem lengi hefur verið al-
mannarómur: að streita á háu
stigi getur leitt til heilsu-
brests og ótímabærs dauð-
daga.
Lokaorð
I þessari grein hefur stutt-
lega verið fjallað um eðli
streitu og helstu afleiðingar. í
þeirri næstu verður fjallað
um streitu á íslandi og tengsl
streitu og mataræðis.
mannsins eru alltaf ófullnægj-
andi, svo að móðirin vinnur venju-
lega úti. Milljónir barna byrja líf-
ið á ungbarnaheimilum og barna-
görðum, yfirfullum, og því í and-
rúmslofti stöðugrar taugaspennu.
Skortur á starfsfólki leyfir ekki
goða gæslu, en hindrar þó aldrei
hugtakslega innrætingu. Flest
þessara barna eyða síðan æskuár-
unum í heimavistarskólum við lé-
leg skilyrði, síðan í iðnskólum og
verksmiðjum. Drykkjuskapur og
svall byrjar snemma. Húsbænd-
urnir fara þarna með unglingana
eins og þræla. Þeir eru arðrændir
og missi þeir atvinnuna, fá þeir
ekki að dvelja lengur í borginni
þar sem þeir unnu.
Staða konunnar
Hvergi í heiminum vinnur svo
mikill fjöldi kvenna erfiðisvinnu
sem í Sovétríkjunum, segir Sols-
énitsyn, og er þá átt við líkamlegt
erfiði við örðug skilyrði og án
hjálpar véla. Auk sinnar föstu
vinnu verða svo sovéskar konur að
eyða allt að 30 stundum á viku í
biðröðum við innkaup til heimilis-
ins.
Harka lífsins, stöðugur vöru-
skortur, þröngt húsnæði og tíma-
hrak ræna konurnar öllu frelsi, til
þess að ala upp sín börn. Fóstur-
eyðingar eru mjög algengar hjá
fólki af slavneskum uppruna, en
tíðar fóstureyðingar valda ófrjó-
semi og fósturlátum síðar. Við
nálgumst það skeið, að vaxandi
ófrjósemi kvenna á besta aldri
stefnir í hættu slavneska kyn-
þættinum í Rússlandi.
Yfirstéttin
Rússneska þjóðin er bæld niður
Paul og Maurice Thorez
flokksins og ríkisins (Party-Etat),
sem að meðtöldum öryggis- og
áróðurssveitum telja um 3 millj-
ónir . manna. Þetta er yfirstétt,
sem nýtur alls konar forréttinda:
sérverslana með bestu vörum á
lægsta verði, besta fáanlega hús-
næðisins, læknisþjónustu bestu
sérfræðinga og ókeypis dvalar á
heilsuhælum. Gegn þessum hlunn-
indum er krafist þrælslegrar und-
irgefni þeirra, sem njóta, og fyrir
minnstu yfirsjón er maður rekinn
úr stéttinni.
Yfir þessari valdastétt drottnar
svo sjálf valdaklíka flokksins,
Nómenklatúra (þeir útvöldu), og
telur hún um 100 þúsund manns.
Hlunnindum þeirrar klíku eru
rsn m n t n I. K„l. nntt A
keisaratimanum, að hirðinni með-
talinni, upplifði aldrei aðra eins
velmegun. Og börnin í þessari úr-
valsstétt eru alin upp I hennar
anda og við hennar lífskjör, svo að
þau geti orðið arftakar að forrétt-
indum hinnar nýju „hirðar" í Sov-
étríkjunum.
Hér er lokið frásögn af nokkrum
eftirtektarverðum atriðum í grein
A. Solsénitsyn, en þar er af miklu
að taka, sem æskilegt er að sem
flestir lesi.
Enn um Nómcnklatúra
Einn er Sá staður í Rússlandi,
sem æðstu valdhafar þjóðarinnar,
bæði á tímum keisaraveldisins og
* Uty it*V<é*| i*u*t* ,V UllO. OCi ti*
hvíldar og hressingar, en það er
suðurströnd skagans Krím við
Svartahafið norðanvert. Þar er
m.a. sú sögufræga borg Yalta, og
skammt þar frá hafnarborgin
Sevastopol. __
Loftslag er þarna með eindæm-
um gott og baðstrendur naegar.
Keisararnir reistu sér þarna hall-
ir, sem valdhafarnir í Nómen-
klatúra eru nú fluttir inn í, auk
þess sem þeir hafa líka reist sér
þarna nýjar. Þeir síðartöldu hafa
þó gengið lengra, því að þeir hafa
reist þarna fimm-stjörnu hótel-
hverfið Artek, sem hefur að
geyma uppeldisstofnun og æfinga-
búðir fyrir börn valdaklíkunnar, á
aldrinum 10—15 ára.
Erlendu heiðursfólki er oft boð-
ið í þessa jarðnesku Paradís á
Krím. Þannig dvaldi aðalritari
franska kommúnistaflokksins,
Maurice Thorez, þarna oft sem
gestur Krúséfs. í fjögur skipti, á
árunum 1950 — 55, fékk sonur
Maurice, Paul Thorez, að dvelja í
Artek, og er það hann, sem segir
hér frá (L'Express 29/10 1982).
Paul Thorez skrifar þarna grein-
ina „Les enfants modéles de la
Nomenklatura" (Fyrirmyndar-
börnin í Nómenklatúra) í tilefni af
útkomu bókar sinnar með sama
heiti. Hér á eftir eru tekin upp
fáein atriði úr greininni, til þess
að gefa hugmynd um uppeldið í
Artek.
Fyrirmyndarbörnin
Öll aðbúð, matur og drykkur
voru þarna með ágætum. Mikil
regla á öllum hlutum og agi
strangur. Þarna voru svæði til
iþiUuaitmaiia, iclAUdmiUöluu,
svæði ætluð fyrir kvikmyndasýn-
ingar og aðrar samkomur, og ein-
stök garðhýsi til afnota fyrir
hvers konar hópa áhugamanna.
Þarna gátu dvalið samtímis yfir
ingum og kvikmyndum var okkur
veitt fræðsla um alls konar afrek
sósíalismans, einkum í landbún-
aði, en hann var rekinn í anda
þeirra Michurins og Lysenkos.
Hinir undursamlegu jurtakyn-
blendingar, skapaðir af sovéskum
búvísindamönnum, mundu leysa
öll fæðuvandamál þjóðarinnar í
framtíðinni og forða öllum þjóð-
um heims frá hungursneyð. Ekki
fengum við þó að koma út í sveit-
irnar.
Þó ungur væri, áttaði Paul
Thorez sig á því, að þarna væri
ekki allt sem sýndist, og síðar var
hann fyrir miklum vonbrigðum
varðandi marxismann í meðförum
ráðstjórnarinnar. Kemur þetta
fram í ofannefndri grein, er hann
skrifar 42 ára gamall, og þó sér-
staklega í því viðtali, sem grein-
inni fylgir (l’Express s.st.). Spurð-
ur um áhrif viðburðanna árið
1956, svarar Paul á þessa leið:
„Hin leynilega skýrsla Krúséfs um
glæpi Stalíns, októbermánuðurinn
í Póllandi, síðan uppreisnin í
Búdapest; þetta gjöreyðilagði það,
sem ég hafði trúað á og reyndist
mér nú vera ofsjónir, undirferli og
hræsni.“ Aðspurður hvaða dag
þessar tálvonir hans hefðu brugð-
ist fyrir fullt og allt, svarar Paul
Thorez: „Þann 21. ágúst 1968, þeg-
ar sovésku skriðdrekarnir réðust
inn í Tékkóslóvakíu. Ég hafði trú-
að á Vorið í Prag og á sósíalisma,
mannlegan á svip. Hrun þessa
hvors tveggja staðfesti fráhvarf
miu.iu tiugAjuu KUUl|UUItLSUt*Ulb.