Morgunblaðið - 12.10.1983, Qupperneq 12
60
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. OKTÓBER 1983
Heildverzlun
Valgarðs Stefánssonar
á Akureyri
Af lagernum. Óðinn Árnason og Baldur Karlsson.
n
Úr lagernum
Vöniverð í stórum
dráttum híð
sama og í Reykjavík
— eftir Halldór
Blöndal
í sumar var heildverslun Val-
garðs Stefánssonar á Akureyri
hálfrar aldar gömul. Hún var
stofnuð 15. júní 1933 og var fyrst
til húsa á Strandgötu 29, í Snorra-
húsinu svo nefnda. Til að byrja
með vann Valgarður einn við
verslunina.
Fyrstu árin voru erfið, kreppan
var í algieymingi, kaupmáttur rýr
og atvinna stopul en heildsalar úr
Reykjavík höfðu haslað sér völl
hér nyrðra með þvi að setja upp
útibú á Akureyri, á hinn bóginn
var Valgarður vel undir átökin bú-
inn, hann hafði lokið prófi úr
Versiunarskóla íslands og farið
utan til framhaldsnáms þar sem
hann kynnti sér verslun og við-
skiptahætti, þá hafði hann unnið
hjá Eimskipafélagi íslands og hjá
Johnson & Kaaber í Reykjavík.
Kunnugleikar hans á strandlengj-
unni og þó sérstaklega Norður-
landi opnuðu honum möguieika
sem aðrir sáu ekki. Með seiglu og
dugnaði tókst honum að sigla fyrir
kreppuskerin og byggja fyrirtækið
upp svo það hefur jafnan notið al-
menns trausts. í lok stríðsins fór
hagur þess að vænkast verulega,
og varð það brátt ein stærsta
heildverslun utan Reykjavíkur og
hefur verið síðan. Því má skjóta
inn til gamans að árið 1946 fór
vörubíll fyrirtækisins fyrstu
verslunarferðina til Reykjavíkur,
hann var af Austin-gerð með
skjólborðum og seglum en bíl-
stjóri var Adolf Gíslason.
Uppistaðan í heildversluninni
hefur frá öndverðu verið helstu
nauðsynjavörur heimilanna og að-
föng til skóla og sjúkrahúsa, hót-
ela og veitingastaða. Að sögn
Gísla J. Júiíussonar framkvæmda-
stjóra hafa vandamálin verið hin
sömu frá öndverðu: Fjariægðin við
viðskiptavinina sem eru margir og
smáir og hafa í sögu fyrirtækisins
verið frá Patreksfirði til Hafnar í
Hornafirði og Vestmannaeyja.
Þetta kostar mikla nákvæmni í
birgðahaldi ekki síst nú þegar
vextir eru orðnir svo háir en vöru-
númerin eru um 2800 sá ég í tölvu-
bókhaldinu. Þótt samgöngur hafi
breyst er viðskiptasvæðið í stórum
dráttum hið sama: frá Vestfjörð-
um til Norður- og Austurlands að
ógleymdri Reykjavík að sjálf-
sögðu.
Enginn vafi er á því að heild-
verslunin á velgengni sína ekki
síst því að þakka að þar hefur
jafnan ríkt góður andi og verið
valinn maður í hverju rúmi. Sumir
hafa unnið þar svo áratugum
skiptir eins og Þór Árnason, elsti
starfsmaðurinn og stjórnarfor-
maður.
— Ég hef unnið hér í rúmlega
38 ár, sagði hann við mig, ég byrj-
aði að vinna hérna 15 ára gamall
mánudaginn 15. maí 1945. Val-
garður var mikill dugnaðarmaður,
velviljaður og réttsýnn. Ég reyndi
alltaf að vinna vel að fyrirtækinu,
þess vegna þykir mér vænt um það
og er ekki sama hvað um það verð-
ur né í hvers höndum það lendir.
Valgarður Stefánsson
Eins og áður segir var heild-
verslunin til húsa í Snorrahúsinu
við Strandgötu en fluttist brátt í
Hafnarstræti 87 sunnan við kjöt-
búðina sem þá var. Síðar í Hafn-
arstræti 101 með vörugeymslur í
Ryelhúsinu. Frá 1964 var það í
gamla sláturhúsinu að Hafnar-
stræti 19, gegnt Höefnershúsinu
uns þau þáttaskil urðu árið 1977
að heildverslunin fluttist í nýtt og
glæsiiegt verslunarhús að Hjalt-
eyrargötu 12, — og mátti ekki
seinna vera, sagði Gísli Jón Júlí-
usson við mig.
Eins og reikningar fyrirtækis-
ins bera með sér er staða þess
sterk en að sjálfsögðu stöðugur
barningur að hafa nægilegt
rekstrarfé í verðbólgu sem komst
töluvert yfir 100% á sl. vori. 3.
janúar 1967 var sú breyting gerð á
rekstri þess að því var breytt í
hlutafélag sem elstu starfsmenn-
irnir eignuðust hlut í, ásamt Val-
garði og fjölskyldu hans. Verka-
skiptingu er nú svo háttað að Þór
Árnason er stjórnarformaður en
Gísli Jón Júlíusson framkvæmda-
stjóri og hafa þeir annast daglega
stjórn síðan Valgarður Stefánsson
og Guðmundur Þorsteinsson féllu
frá, nú vinna 13 manns við fyrir-
tækið.
Þegar ég spurði þá félaga um
gildi sjálfstæðrar og sterkrar
heildverslunar hér á Akureyri,
sögðu þeir: Þetta er spurning um
vöruverð, án hennar væri vöru-
verð hærra hér en í Reykjavík en
við viljum að það sé hið sama og
hefur það tekist í stórum dráttum,
enda kaupum við ekki af öðrum
heiidsölum. Þannig eru t.d. inn-
fluttar matvörur í sama verði hér
og í Reykjavík og æ fleiri iðnfyr-
irtæki syðra sjá sér hag í að bjóða
vörur sínar hingað komnar á sama