Morgunblaðið - 12.10.1983, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 12.10.1983, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. OKTÓBER 1983 63 Ásgeir Ásbjörnsson, Skákfélagi Hafnarfjarðar, tv., og Hilmar Karlsson, íslandsmeistari, Taflfélag Seltjarnarness. Á öðru borði tefla t.v. Ágúst Karls- son, S.H., og Gunnar Gunnarsson, T.S. (Ljóm. Mbl. RAX.) Trésmiðafélag Akureyrar: Húsgagnakaupum SAÁ mótmælt bær 10 v. 6. Húsavík 10 v. 7. Vest- mannaeyjar 9v. 8. Seltjarnar- nes, B-sveit, 8 v. Garðbæingar og Seltirningar hafa teflt einni umferð minna en hinar sveitirnar. 3. deild: 1. Austurland 17 v. 2. TR, ungl- ingasveit, 14'A v. 3. Skaftfellingar 14'/2 v. 4. Taflfélag Hreyfils 12 v. 5. Seltjarnarnes, C-sveit, IOV2 v. 6. Ak- ureyri, B-sveit, 8'/2 v. 7. Austur- Barðstrendingar 7 v. 8. Taflfélag heyrnardaufra 1 v. Hér hafa unglingar TR, Seltirn- ingar, Hreyfilsmenn og heyrnardauf- ir teflt einni viðureign minna en hin- ar sveitirnar og það gæti sett stórt strik í reikninginn í baráttunni um sæti í annarri deild að ári. Að lokum ein skemmtileg skák, dálítið dæmigerð fyrir deildakeppn- ina. Svartur teflir byrjunina af mik- illi rökvísi, en raissir þolinmæðina, tekur peð, og leyfir hvítum að ná mótspili, sem hann nýtir sér þó ekki til fulls. Hvítt: Áskell Örn Kárason (SA) Svart: Jóhann Hjartarson (TR NV) Nimzo-indversk vörn I. d4 — Rf6, 2. c4 — e6, 3. Rc3 — Bb4, 4. g3 Þetta afbrigði var vinsælt fyrir 3—4 árum, en sést sjaldan um þessar mundir, einmitt vegna framhaldsins sem Jóhann velur. 4. — c5, 5. Rf3 — cxd4, 6. Rxd4 — 0-0, 7. Bg2 — d5, 8. cxd5 — Rxd5, 9. Bd2 — Bxc3, 10. bxc3 — e5 Svartur hefur látið biskup af hendi fyrir riddara, en fær í stað- inn ákjósanlegt skotmark þar sem staka peðið á c3 er. II. Rb3 — Rc6, 12.0-0 12. c4 — Rb6,13. Hcl gefur hvít- um meiri möguleika. 12. - Rb6!, 13. Dc2 - Rc4, 14. Hfdl — De7, 15. Bd5!? — Be6, 16. Bel — Hac8, 17. e4 — b6, 18. De2 — R6a5 Svartur hefur nú fengið mjög þægilega stöðu, því honum hefur tekist að skorða (blokkera) hvíta peðið á c3 fullkomlega. 19. Hacl — Rb7, 20. Bxe6 — Dxe6, 21. Hd5 — Dc6, 22. Hcdl — Da4!? Svartur hyggur á peðaveiðar, en varlegra var 22. — Hfd8 og hann hefur örugglega stöðuyfirburði, þó auðvitað sé mikið eftir áður en vinningurinn verður dreginn á land. 23. f4! Eina leiðin til þess að fá mót- spil, en auðvitað veikir þetta hvítu stöðuna. 23. — exf4, 24. gxf4 - Hfe8, 25, Bf2 — Rca5, 26. Bd4 — Rxb3, 27. axb3 — Dxb3 Svartur hefur unnið sitt peð og nú fær hvítur að sprikla. 28. Dg4 — g6 29. Hd7? Meiri möguleika gaf 29. Hh5! með hótuninni 30. Hxh7! — Kxh7, 31. Dh4+ o.s.frv. Eftir 29. — Hcd8, 30. Hfl! er staðan mjög tvísýn. 29. — Rc5, 30. He7 — h5! Þetta yfirsást Áskeli. Nú vinnur svartur annað peð. 31. Hxe8+ — Hxe8, 32. DÍ3 — Rxe4, 33. f5 — Rg5, 34. Dd3 — Rh3+, 35. Kfl — Rf4, 36. Df3 — Db5+ og hvítur gafst upp því svartur leikur næst 37. — Dxf5 og er þá þremur peðum yfir. Á FUNDI Trésmiðafélags Akureyr- ar, sem haldinn var þann 21. sept. sl. voru gerðar ályktanir m.a. þess efnis að fundurinn mótmælti þeirri ákvörðun SÁÁ að kaupa erlend hús- gögn og innréttingar í hina nýju sjúkrastöð, án þess að gefa innlend- um aðilum kost á að gera tilboð í verkið. Minnti fundurinn á að sjúkrastöðin væri reist fyrir söfnun- arfé frá almenningi og væri því þessi ákvörðun högg fyrir neðan beltisstað allra þeirra byggingar- og tréiðnað- armanna sem lögðu fram fé í söfn- unina. Þá var gerð ályktun þar sem fundurinn mótmælti kjaraskerð- ingu þeirri og afnámi samnings- réttarins sem felst í bráðabirgða- lögunum. Einnig hvatti fundurinn til samstillts átaks heimamanna um að efla Eyjafjarðarbyggð og fagnaði nýútkominni skýrslu Samstarfsnefndar um iðnþróun í Eyjafirði. Baróa.strönd, 10. október. SLÁTRUN er hafin í Sláturhúsi Patreksfjarðar, og er búið að slátra 160 nautgripum og byrjað að slátra sauðfé, en alls er áætlað að slátra 7 þúsund fjár. Allt fé er skorið niður á einum bæ vegna riðuveiki hér, og grunur leikur á að riðuveikitilfelli hafi Vakti fundurinn sérstaka at- hygli á nokkrum atriðum varðandi aukna atvinnu í Eyjafirði, m.a. var bent á að efla þyrfti Iðnþróun- arfélag Eyjafjarðar, ráða til þess iðnfulltrúa og koma á fót mark- aðs- og tæknideildum sem hefðu samstarf við Útflutningsmiðstöð iðnaðarins og Iðntæknistofnun ís- lands. Þá var hvatt til þesS að hraðað yrði uppbyggingu Verk- menntaskólans á Akureyri. Þá var bent á, að á Akureyri bæri að halda áfram húsnæðisbyggingum á félagslegum grunni og eins að nauðsynlega vantaði þar húsnæði fyrir framhaldsskólanema, þ.e.a.s. heimavistir og hótel með ráð- stefnuaðstöðu. Að lokum varaði fundurinn við hugmyndum um frestun Blönduvirkjunar og hvatti norðlenska þingmenn til að fylgja því fast eftir að staðið yrði við fyrri áætlanir. fundist á tveimur nýjum bæjum á Barðaströnd. Ekki hefur það þó fengist staðfest enn sem komið er, en málið er í rannsókn. Riðuveiki hefur herjað hér á bæi undanfarin ár, og í fyrra þurfti til dæmis að skera niður allt fé á þremur bæj- um. , — SJÞ Barðaströnd: Riðuveiki herjar á sauðfé bænda Neskaupstaður: Veður truflar fjárflutninga frá Mjóafirði NeskaupstaAur, 5. október. SAUÐFJÁRSLÁTRUN hófst hjá sláturhúsi Kaupfélagsins Fram, mánudaginn 26. september. Slátrað verður mun færra fé en í fyrra. Fall- þungi dilka er óvenju mikill nú. Vegna veðurs hefur enn ekki verið hægt að flytja fé frá Mjóafirði. Það verður flutt sjóleiðis til slátrunar hér. Sauðfé fer fækkandi í Mjóafirði og er það aðallega vegna riðuveiki. Vegna þessa hafa ekki allir fengið slátur, sem vilja. Til stendur að fá slátur frá Egilsstöðum til sölu hér. Kartöfluuppskera var yfirleitt mjög góð í sumar og berjaspretta óvenju góð. Hér er nú allt tilbúið til móttöku síldar til söltunar, en engin síld hefur enn borist. Veður er nú orðið gott og bátar farnir að leita í Norðfirði. Reiknum við með síld að landi innan fárra daga. Jón Finnsson kemur inn í kvöld með um 120 tonn og hefst síldarsöltun kiukkan 7 í fyrramálið, fimmtu- dag. Sigurbjörg. Trollhlerar seldir í þremur heimsálfum á sama degi FYRIRTÆKIÐ J. Hinriksson hf. vélaverkstæði framleiðir gífurlega mikið af hinum vinsælu Poly-ís toghlerum og eykur ávallt útflutn- ing á þeim. Þann 28. sept. sl. flutti fyrirtæk- ið út toghlera til þriggja heims- álfa á sama deginum. Selt var til Alabama í Banda- ríkjunum, Grimsby í Englandi og til ýmissa fiskibæja í Ástralíu. J. Hinriksson toghlerar eru vel þekktir fyrir það að halda skver- unarhæfileikum sínum vel, þótt komið sé mikið af fiski í trollið, eru léttir í togi og upphífingu og olíusparneytnir. Kréttatilkynning. Metsölublad á hverjum degi! Rainbow Professional 325 Professional 350 mmm ÞRIAR.. NVIAR EINKMOUfUR SEdllMARKA TIMAMOT [7CKRISTJÁN Ó ik jSKAGF.IÖRD HF Tölvudeild, Hólmaslóð 4,101 Reykjavík s. 24120

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.