Morgunblaðið - 12.10.1983, Qupperneq 20
68
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. OKTÓBER 1983
Hér má sjá reit þann sem Eimskip og Völundur standa nú á, en á myndinni er búið að setja inn byggingu sem þar á að rísa, samkvæmt tillögu Gylfa
Guðjónssonar arkitekts.
Aukin byggð við Skúlagötu
styrkir þá sem fyrir er
Töluverður skriður er nú kominn
á skipulagsmál gamla miðbæjarins,
en á næstu árum munu nokkur
rótgróin fyrirtæki flytja burt starf-
semi sína af svæðinu við Skúlagötu í
Reykjavík. Er þetta varð Ijóst töldu
borgaryfirvöld nauðsynlegt að snúa
við blaðinu hvað Skúlagötuna varð-
ar, enda er það mat manna að Skúla-
götumyndin sé heldur óaðlaðandi
andlit Reykjavíkur til norðurs.
Talið er hagkvæmt, almennt séð,
að þétta byggð á miðbæjarsvæðinu
vegna þess að þar eru flestar lagnir
fyrir hendi, ásamt verslunum og
þjónustu og strætisvagnakerfi. Þar
með sparast fé við uppbyggingu
þjónustu, en við uppbyggingu nýrra
borgarhverfa er slíkur kostnaður
mikill. Einnig myndi aukin byggð
við Skúlagötu styrkja þá byggð sem
fyrir er á svæðinu og þá þjónustu-
starfsemi sem fyrir er á svæðinu.
Einnig er talið að margir vilji búa
nálægt miðbæjarkjarnanum og þá
ekki síst vegna atvinnu sinnar.
Það er mat skipulagsnefndar
Reykjavíkurborgar að með skipu-
lagðri uppbyggingu Skúlagötu-
svæðisins megi leysa að hluta
bílastæðavandamál Hverfisgöt-
unnar og Laugavegarins, en
áformað er að bílastæði fyrir
íbúðarsvæðið verði einkum neð-
anjarðar.
Athugun á framtíð Skúlagötu-
svæðisins hefur lengi farið fram á
vegum borgarinnar; hjá skipulags-
nefnd og Borgarskipulagi. Einkum
hefur mikil vinna verið lögð í mál-
ið undanfarna mánuði og í júní sl.
voru tvær arkitektastofur fengnar
til að gera tillögur um og úttekt á
afmörkuðum reit, Eimskips- og
Völundarreitnum, með tilliti til
nýtingar og byggðar, en sú vinna
er undanfari eiginlegrar skipu-
lagsvinnu.,
Gildandi aðalskipulag Reykja-
víkur 1962—1983 sýnir landnotk-
un á Skúlagötusvæðinu fyrir iðnað
og vörugeymslur með þeirri und-
antekningu þó að tveir reitir sýna
opinbera starfsemi og miðbæj-
arstarfsemi en þar eru Lands-
bókasafnið, Þjóðleikhúsið, Arn-
arhvoll og hús Hæstaréttar og að-
alskrifstofur SÍS. Hámarks nýt-
ingarhlutfail á reitum þessa svæð-
is er nokkuð mismunandi skv. að-
alskipulaginu ’62—’83 en liggur á
milli 0,5—1,5.
Með samþykki borgarstjórnar
1977 á aðalskipulagi '75—’95 voru
gerðar veigamiklar breytingar á
AR ’62—’83 m.a. um svæðið norð-
an Hverfisgötu.
Er þar um verulegar breytingar
að ræða á nýtingu og landnotkun
og er þar að talsverðu leyti horfið
frá því að á svæðinu verði iðnaður
og vörugeymslur ríkjandi, en mið-
að við að þar verði miðbæjarstarf-
semi ýmiskonar og íbúðir ásamt
opinberum stofnunum. Með þeirri
breytingu sem nú hefur verið gerð
er hlutur íbúða enn aukinn.
Jafnframt var hluti svæðisins
skilgreindur sem framkvæmda-
svæði þar sem æskilegt er talið að
veruleg uppbygging ætti sér stað á
skipulagstímabilinu og inn á
svæðið kæmi íbúðarhúsnæði í
auknum mæli.
{ AR ’75—’95 er nýtingarhlut-
fall ákveðið á framkvæmdasvæð-
um 1,5. Ennfremur segir svo í bók-
un skipulagsnefndar um fram-
kvæmdasvæði:
„Skipulagsnefnd álítur að
ákvæði og nýtingarhlutfall verði
einungis notað til viðmiðunar og
séu látin gilda fyrir hverja lóð á
skipulagssvæðinu. Skipulagsyfir-
völdum er heimilt að hækka þetta
nýtingarhlutfall ef um samein-
ingu á lóðum er að ræða eða meiri-
háttar uppbyggingu, sem stuðlar
að bættu umhverfi að mati skipu-
lagsyfirvalda, einnig ef um er að
ræða að byggt sé upp í skörð og ef
rótgróin fyrirtæki óska stækkunar
á svæðinu. Einnig getur nýting
íbúðarbygginga á framkvæmda-
svæðum hækkað um allt að 1,0 ef
um er að ræða þinglýsta kvöð um
þá notkun."
Síðastnefnda setningin í ofan-
greindri bókun þýðir í raun að
nýting á nokkrum reitum hefði
getað farið allt upp í 2,5 en í ný-
iegri samþykkt borgarstjórnar um
nýtingu á sömu svæðum segir „að
nýting geti orðið allt að 2,0“.
Samþykkt borgarstjórnar nú
nýverið um svæðið norðan Hverf-
isgötu fjallar eingöngu um breyt-
ingu á landnotkun og landnýtingu,
þ.e. nýtingarhlutfalli.
Engar ákvarðanir hafa enn ver-
ið teknar um deiliskipulag Skúla-
götusvæðisins.
Skipulagsnefnd samþykkti í
júní sl. að fá tvær arkitektastofur
til að leiða í ljós þá hámarksnýt-
ingu íbúðarhúsnæðis, sem þær
teidu mögulega með tilliti til
ákveðinna umhverfisþátta, s.s.
leiksvæða, birtu, skuggamyndunar
o.fl. Tillagan miðaðist við reitinn
sem afmarkast af Klapparstíg,
Lindargötu, Vatnsstíg og Skúla-
götu. Sýndu báðar tillögurnar nýt-
ingu upp á tæpa tvo.
Tillögur þeirra taka ekki af-
stöðu til félagslegrar þjónustu á
svæðinu í heild. I greinargerð með
tillögu meirihlutans segir að borg-
arsjóður sé eigandi tveggja I
ðbyggðra lóða, þ.e. lóðar Færeyska ■
sjómannaheimilisins og Vitatorgs
og verði þeim lóðum ekki ráðstaf-
að fyrr en séð verður hver upp-
bygging svæðisins verður. Borg-
arsjóður er einnig eigandi að
Lindargötuskólanum og Bjarnar-
borg. Ennfremur er ljóst, að ein-
staka félagslega þætti má leysa í
sjálfri íbúðarbyggðinni, s.s. dag-
vist og heilsugæslu.
Nokkuð hefur verið rætt um
varðveislugildi einstaka húsa á
Skúlagötusvæðinu, en það má
ljóst vera að ef takast á að auka
íbúðabyggð á svæðinu verða ein-
hver eldri hús að víkja. í því efni
verður ekki bæði sleppt og haldið.
Þess má geta að þegar unnið var
að aðalskipulaginu 1975 var gerð á
því könnun hvert varðveislugildi
húsa á svæðinu væri, og voru þá
ekki þau þrjú hús, sem nú er rætt
um að varðveitt verði, Eimskipa-
félagsskemman, Völundarhúsið og
hluti byggingar S.S., nefnd á nafn.
Nokkuð hefur verið gagnrýnt að
með því að samþykkja nýtingu á
ákveðnum svæðum við Skúlagötu
allt að 2,0, því hefur verið svarað
til að algengt sé-að nýting sé því
hærri sem nær dregur borgar-
miðju. í þeim tveimur tillögum
sem arkitektastofur Gylfa
Guðjónssonar annarsvegar og
Ólafs Sigurðssonar og Guðmundar
Kr. Guðmundssonar hinsvegar, er
gert ráð fyrir nýtingunni tæpir
2,0, en samkvæmt þeim tillögum
er gert ráð fyrir að eitthvað af
gömlum húsum stándi áfram. Þá
er einnig á það bent að engin goð-
gá sé að hafa þessa nýtingu á viss-
um svæðum við Skúlagötuna og er
á það bent að nýting er svipuð á
einstaka lóðum sem nú eru að
byggjast í borginni. Auk þess er
auðveldara að ná upp hærri nýt-
ingu, þegar bílageymslur eru hafð-
ar neðanjarðar og um jaðarsvæði
er að ræða, eins og í þessu tilfelli.
Varðandi gagnrýnisraddir um
vöntun á félagslegri þjónustu á
svæðinu, er á það bent að borgin á
fjórar lóðir á þessu svæði og væri
þar hægt að sinna hinum félags- '
legu þáttum og einnig er það nefnt
að leiksvæði skv. annarri tillög-
unni sé um 4.500 fermetrar.
Tillagan um breytta landnýt-
ingu og landnotkun sem samþykkt
var í borgarstjórn Reykjavíkur
nýlega, var áður samþykkt með
ágreiningi í skipulagsnefnd borg-
arinnar. Var þar lögð fram með
tillögunni greinargerð, og er hún
birt hér á eftir:
Á undanförnum misserum hafa
orðið töluverðar umræður um
framtíðarskipulag þess svæðis
sen» tillagan fjallar um, einkum í
ljósi þess að ýmis stórfyrirtæki
sem hafa verið með starfsemi sína
á svæðinu hafa fengið úthlutað
lóðum annars staðar í borginni
undir rekstur sinn. Má í því sam-
bandi nefna Völund hf., Eimskipa-
félag fslands hf., Sláturfélag Suð-
urlands og Landssmiðjuna. Enn-
fremur hefur starfsemi Hafnar-
bíós verið lögð niður og húsnæði
þess rifið.
Tillagan gerir ráð fyrir veru-
legri breytingu á landnotkun frá
Vinstrí flokkarnir:
Andvígir nýtingarhlutfalli
VINSTRI flokkarnir í borgarstjórn
Reykjavíkur hafa með einum eða
öðrum hætti lýst sig andvíga þeim
skipulagshugmyndum sem fram
hafa komið við umræður um Skúla-
götubyggð. Hér á eftir fara sýnis-
horn af bókunum þessara aðila, þar
sem afstaða þeirra kemur fram.
Kvennaframboð og
'Vlþýðubandalag
Það er í sjálfu sér fagnaðarefni
að nú skuli vera uppi hugmyndir
um að auka íbúðabyggð á svaéðinu
neðan Hverfisgötu. En það er ekki
sama hvernig að slíkri uppbygg-
ingu er staðið.
Borgarskipulag Reykjavíkur
hefur kynnt skipulagshugmynd
sem sýnir glöggt hvernig tryggja
megi gæði svæðisins sem íbúða-
byggðar. Sjálfstæðismenn hafa
hins vegar lagt fram lítt rök-
studda tillögu sem gerir ráð fyrir
að nýtingarhlutfall verði allt að
2,0 á stórum hluta svæðisins.
Ljóst er m.a. af tiliögum
„óháðra“ aðila að uppbyggingu á
reit Völundar og Eimskipafélags-
ins, að svo hátt nýtingarhlutfail
mun koma verulega niður á gæð-
um byggðarinnar. Svæðið verður
ofbyggt og lítið sem ekkert svig-
rúm verður til að uppfylla þær
kröfur sem gera verður til íbúða-
byggðar á þessum stað t.d. hvað
varðar
1) skjólmyndun, en háhýsi auka
hættuna á sviptivindum.
2) útsýni, því háhýsi eða sam-
felldur veggur við Skúlagötuna
rænir aðra íbúa hverfisins út-
sýni yfir eyjar og sund.
3) hávaðamengun frá Sætúni sem
verður veruleg í húsum sem
fara yfir 3—4 hæðir.
4) útivistarsvæði, en þau eru af
mjög skornum skammti í þess-
um bæjarhluta.
5) eðlileg tengsl milli eldri og
nýrri byggðar, en þau hljóta að
rofna þegar háhýsi rísa í hverfi
sem einkennist af smágerðri
byggð timburhúsa.
6) varðveislu bygginga sem nýt-
anlegar eru og hafa gildi fyrir
borgina í heild.
Verður því varla séð að borgin
eða íbúar hennar hafi hag af svo
hárri nýtingu enda hefur borgar-
stjóri ekki fært fyrir því nein
marktæk rök þrátt fyrir ítrekaðar
fyrirspurnir. í ljósi alls þessa
hljótum við því að greiða atkvæði
gegn þeirri tillögu sjálfstæð-
ismanna sem hér liggur fyrir.
Að lokum áteljum við að engin
almenn kynning skuli fara fram á
þessum tillögum áður en þær eru
endanlega afgreiddar í borgar-
stjórn. íbúar í Skuggahverfinu
eiga hagsmuna að gæta í þessu
máli ekki síður en þau stórfyrir-
tæki sem borgarstjórn og menn í
umboði hennar hafa átt viðræður
við.
Framsóknarflokkur
Við erum meðmælt því að land-
notkun verði breytt og íbúðabyggð
aukin á reitunum milli Hverfis-
götu og Skúlagötu. Hins vegar er-
um við andvíg svo miklu bygg-
ingarmagni á lóðum stórfyrir-
tækjanna meðfram Skúlagötunni,
sem tillaga meirihluta skipulags-
nefndar gerir ráð fyrir, það er, að
heimilað verði að byggja 2 m* í
- y*JrT