Morgunblaðið - 12.10.1983, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. OKTÓBER 1983
73
fólk í
fréttum
Iíavid Kennedy var djúpt sokkinn, Kobert Kennedy hefur veriö kærð-
en er nú á batavegi. ur fyrir að hafa heróín í fórum sín-
um.
Joseph Kennedy olli alvarlegu
slysi með glannaskap.
Sitt er hvað —
gæfa eða gjörvileiki
-t- Ethel Kennedy, eiginkona Rob-
erts heitins Kennedy, hefur reynt
sitt af hverjum um ævina og það er
eins og endir ætli að verða á erfið-
leikunum. Það eru börnin hennar,
sem gera sitt besta til þess, sum
hver a.m.k., en alls áttu þau Robert
11 börn saman.
Svartasti sauðurinn í fjölskyld-
unni er Robert Kennedy yngri,
sem er 29 ára gamall. Hann hefur
opinberlega viðurkennt, að hann
sé eiturlyfjaneytandi og er nú til
meðferðar á sjúkrahúsi, en á
ýmsu þurfti þó að ganga áður en
hann þorði að horfast í augu við
raunveruleikann. í síðasta mán-
uði var hann um borð í flugvél á
leið frá Minneapolis til Rapid
City í Suður-Dakóta, þegar hann
veiktist skyndilega og engdist
sundur og saman af kvölum.
Flugstjórinn gerði viðvart og bað
um að sjúkrabíll yrði til taks þeg-
ar lent væri, en Robert, sem var
nokkuð farinn að jafna sig, vildi
enga hjálp og fór burt af flugvell-
inum með bíl, sem beið hans þar.
Þegar leitað var í farangri Rob-
erts fannst þar heróín, og á hann
nú yfir höfði sér allt að þriggja
ára fangelsisdóm. Hætt er við, að
slíkur dómur gerði endanlega út
um feril hans sem lögfræðings,
en hann þótti mjög efnilegur og
lauk námi á mjög skömmum
tfma. Robert er nú á sjúkrahúsi
eins og fyrr sagði og þaðan sendi
hann frá sér yfirlýsingu, þar sem
hann viðurkennir eiturlyfjanotk-
unina og segist harma þá ógæfu,
sem hann hafi leitt yfir fjöl-
skyldu sína og það fólk, sem dáði
föður hans.
Robert er ekki sá eini í fjöl-
skyldunni, sem komist hefur í
kynni við eiturlyfin. Fyrir fjórum
árum fannst yngri bróðir hans,
David, í eiturlyfjavímu á hóteli
nokkru í Harlem, alþekktu að-
setri heróínneytenda, og hafði
hann verið rændur og barinn
sundur og saman. Hann var þá
strax settur í meðferð, sem þykir
hafa tekist vel.
Þriðji bróðirinn, Joseph Kenn-
edy, hefur einnig fengið sinn
skammt. Hann hefur löngum þótt
hinn mesti galopi og fyrir nokkr-
um árum varð hann fyrir því að
velta jeppa, sem hann ók, með
þeim afleiðingum, að vinkona
hans, Pamela Kelly, lamaðist
fyrir lífstíð og verður bundin
hjólastólnum það sem hún á eftir
ólifað.
Matthew, fjórði sonurinn og sá
yngsti, hefur unnið sér það helst
til frægðar að hafa verið rekinn
úr þremur rándýrum einkaskól-
um í Nýja Englandi.
Þá er komið að dætrunum og
þar kveður við dálítið annan tón.
Þeim hefur nefnilega gengið flest
í haginn og ekki annað að sjá en
kvenfólkið þoli betur það álag,
sem óhjákvæmilega fylgir því að
hljóta bæði ríkidæmið og frægð-
ina í vöggugjöf.
Hollywood-leikstjórinn Martin
Scorsese, sem m.a. gerði
kvikmyndina „Taxi Driver“, er í
dálítið vondum málum.
Eiginkona hans númer eitt,
leikkonan Julie Cameron, hefur nú
krafist þess, að Scorsese borgi
henni ríflegri framfærslueyri en
hann hefur gert hingað til og auk
þess hefur henni tekist að fá skiln-
aðarmálið tekið fyrir aftur.
Þau Julie og Scorsese skildu árið
1978 og seinna kvæntist hann Isa-
bellu Rossellini, dóttur Ingrid
Bergman. Á meðan hann bjó með
Julie átti hann þó í alls konar ást-
arævintýrum með þekktum leik-
konum, t.d. Lizu Minelli, og nú
heldur Julie því fram, að Scorsese
hafi gefið Minelli skartgripi sem
raunverulega hafi tilheyrt henni.
„Maðurinn minn var orðinn
kókaínneytandi og einu sinni kom
það fyrir, að hann hvarf að heiman
í marga daga. Þegar hann skaut
upp kollinum aftur var hann pen-
ingalaus og næstum klæðalaus líka
og þá kom líka í ljós, að skartgrip-
irnir mínir voru horfnir," segir
Julie.
Liza Minelli viðurkennir fúslega,
að þau Scorsese hafi verið elskend-
ur en hins vegar harðneitar hún að
Martin
Scorsese
á
köldum
klaka
hafa þegið af honum nokkurn
skapaðan hlut, heldur hafi hún
orðið að borga fyrir hann á veit-
ingahúsum, á hótelum og meira að
segja leigubílana líka.
Hjónabandið milli þeirra Scor-
sese og Isabellu entist ekki lengi og
hann er nú ókvæntur. Sjálfur seg-
ist hann bara líta á þessar ásakan-
ir konunnar sinnar fyrrverandi
sem grín.
„Ég á ekki grænan eyri og ef
Julie fer með þetta mál fyrir
dómstólana á hún það á hættu að
verða að borga með mér,“ segir
Scorsese.
íssniglar —
fóðursniglar
— mjölsniglar
Framleiöum snigla í öllum stæröum og geröum
til flutnings á efni til sjávar og sveita.
Vélsmiöjan Stálver hf.,
Funahöfða 17,110 R. Sími 83444.
Lýsing í
skammdeginu
Framleiöum Ijósastaura til
lýsingar á götum, bílastæöum,
heimkeyrslum og göngustígum.
Stærö frá 1,5—16 m
Vélsmiöjan Stálver hf.,
Funahöfða 17, 110 R.
Sími: 83444.
ÁnA
8 af helstu málningarvöru og
innréttingaverslunum á höfuðborgarsvæðinu
Ath. Málningin er á sama verði sem út úr verksmiðjum.
TIL DAGLEGRA NOTA
■—MFA------------------------------------
Félagsmálaskóli alþýðu
1. önn 30. október til 12. nóvember.
1. önn verður haldin í Félagsmálaskóla alþýðu
dagana 30. okt.—12. nóv. nk. í Ölfusborgum.
Viðfangsefni annarinnar er einkum eftirfarandi:
Félags- og fundarstörf, ræöumennska, framsögn,
skipulag og starfshættir ASÍ, saga verkalýðshreyf-
ingarinnar, vinnuréttur, stefnuyfirlýsing ASÍ, kjara-
rannsóknir, og vísitölur, undirstööuatriöi félags-
fræöi, vinnuvernd og hópefli (leiðbeining í hóp-
vinnu).
Námstafið fer fram í fyrirlestrum, hópvinnu og al-
mennum umræöum. Flesta daga er unniö frá
08.30—19.00 meö hléum. Nokkur kvöld á meöan
skólinn starfar veröa menningardagskrár, list-
kynningar, upplestur og skemmtanir.
Félagsmenn aöildarfélaga ASÍ eiga rétt á skólavist
i Félagsmálaskólanum. Hámarksfjöldi á önninni er
25.
Umsóknir um skólavist þurfa að berast skrif-
stofu MFA fyrir 26. október.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu MFA
Grensásvegi 16, sími 84233.
Minningar- og fræöslusamband alþýöu.