Morgunblaðið - 25.10.1983, Side 36

Morgunblaðið - 25.10.1983, Side 36
36 MORGUNBLÁÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÖBER 1983 Minning: Guðmundur Ágústs- son bakarameistari Fæddur 8. nóvember 1916 Dáinn 17. október 1983 Föðursystur mínar, þær Ingi- gerður og Kristjana Sigurðardæt- ur, létust báðar með tveggja daga millibili, úr spönsku veikinni árið 1918. Ingigerður frá 7 ungum börnum en Kristjana frá 5 börnum. Það má nærri geta, að sorgin var mikil, 12 börn móðurlaus á svipstundu. Nú var um að gera, að börnin héldu hópinn sem mest. Margir vildu rétta hjálparhönd. Því fór svo, að þau hjónin Stein- unn, föðursystir mín, og öðlingur- inn og barnavinurinn hann Sveinn Hjartarson, á Bræðraborgastíg 1 tóku 5 börn Ingigerðar. Þeirra yngstur var Guðmundur Ágústs- son, er hér er kvaddur hinstu kveðju. En af börnum Kristjönu tóku þau Pétur Snæland, sem var yngstur barnahópsins — ársgam- all en Guðmundur líklega tæpra tveggja ára. Þessi börn, sex að tölu, ólu þau upp með hjálp ömmu Margrétar, sem var á heimili þeirra, veittu þeim hlýju og öryggi. Amman spann og prjónaði, kenndi þeim að lesa og fór með bænirnar. Guð- mundur var alla tíð mjög tengdur ömmu sinni, þar sem hann svaf hjá henni fyrstu árin. Við frændsystkinin á Vestur- götu 46 og Bræðraborgarstíg 1 urðum strax í æsku sem einn órjúfanlegur hópur, þar sem hver hefur staðið vörð um annan. Minnisstæðar eru stundirnar er við, þessi stóri hópur, á öllum aldri, komum saman í stóra her- berginu hennar ömmu okkar — til að hlusta, fræðast og skemmta okkur. — Þessa stóra og góða heimilis minntist Guðmundur ætíð með hlýju, sem og öll hin börnin. Guðmundur „Mummi" var gæfumaður í einkalífi sínu. Átti góða konu og góða fjölskyldu. Ég held að allir, sem til þekkja, séu mér sammála, að heimili þeirra hafi verið í sérflokki, hvað hlýju og skemmtilegheit varðar, — það var eins og sólin fylgdi þeim Dóu og Mumma. Að leiðarlokum kveð ég frænda minn og bið honum velfarnaðar á Guðsvegum. Áslaug I dag kveðjum við tengdaföður minn, Guðmund Ágústsson bak- arameistara, aðeins 66 ára að aldri. Okkar fyrstu kynni urðu fyrir liðlega 16 árum á Vesturgötu 46 í litla rauða húsinu eins og það var kallað. Það hús hefur nú verið fjarlægt og er þar kominn barna- leikvöllur, sem á vel við hið líflega og ánægjulega mannlíf, sem þar var áður. Það var gaman að fylgj- ast með miklu skáklífi sem um- kringdi Guðmund, það var bæði fullt af theorískum og líflegum anda, auk ákefðar og húmors. Einnig var gaman að sjá, hvað mikið af ungum skákmönnum sóttist eftir að vera í návist Guð- mundar, til að læra af reynslu hans og þekkingu. Guðmundur rak eitt elsta bak- arí í Reykjavík, Sveinsbakarí. Hann vann alltaf af ótrúlegum krafti og samt gat hann stundað skáklistina með slíkum árangri, sem raun ber vitni enda var hann miklum gáfum gæddur og vel les- inn. Hjá Guðmundi og Dóu kynntist ég miklum kærleika og á ég þeim hjónum mikið að þakka. Guðmundur bjó yfir mikilli kímnigáfu og lét oft margt flakka eins og sagt er, hann var sjálf- stæðismaður, KR-ingur og Vestur- bæingur. Fyrir tæpum þrem árum veikt- ist Guðmundur og hefur sjúkra- lega hans verið bæði löng og ströng. Ég og fjölskyldan viljum senda sérstakar þakkir til starfs- fólks á deild 1-B Landakotsspítala og deild 13-D Landspítala og þakka sérstaka heimahjúkrun, sem hann fékk sína síðustu daga. Sigurði Björnssyni lækni þökkum við sérstaklega, en Guðmundur bar alltaf mikinn hlýhug og traust til hans. Ég er þakklátur fyrir að hafa verið í návist Guðmundar þessi ár um leið og ég bið honum blessun- ar. Dóu og börnum þeirra votta ég mína dýpstu samúð. Guðmundur Vikar Taflið er búið. Mig setti hljóðan þegar Þórarinn sonur vinar míns Guðmundar Ágústssonar til- kynnti mér andlát hans. Bana- mein Guðmundar var krabbamein. Auk þess hafði hann orðið fyrir öðrum áföllum á tímabilinu, svo sem axlarbroti o.fl. Oft undraðist ég hversu fljótt eftir hans mörgu sjúkrahúslegur hann hringdi til mín til þess að athuga hvort ég væri ekki til í eina. Eitt sinn sagði hann við mig: Þótt önnur hendin sé ónothæf þá hindrar mig ekkert frá því að tefla með hinni. Eld- spýtur voru venjulega notaðar til að telja vinninga. Styrkleiki Guðmundar sem ég venjulega kallaði „bakarameistara fslands" stóð alveg fram í það síð- asta. Ég held að okkar síðasta tafl hafi verið ca. 6 vikum áður en hann lést, og var hugsun hans þá ekki óskýrari en fyrr. Auk þeirrar virðingar sem ég bar fyrir Guðmundi var hún ekki minni gagnvart Dóu, sem stóð eins og klettur við hlið manns síns í öllum hans veikindum sem tóku u.þ.b. 4 ár. Auk þess var allt heim- ilislíf á þeim bæ með eindæmum gott. Ég held ég megi segja að ég hafi aldrei kynnst samstilltari hópi en þessari fjölskyldu. Þegar við tefldum tók öll fjölskyldan þátt í taflinu með okkur. Með Guðmundi er horfinn af sjónarsviðinu einn stórfenglegasti maður er ég hefi kynnst. Auk þess að vera maður vænn hafði hann mjög sterkan persónuleika, kímni- gáfu og svo margt fleira sem ég ætla að geyma með sjálfum mér. Það var viss skóli fyrir mig að kynnast allri fjölskyldunni, sem ég met mikils. Þrátt fyrir ólæknandi sjúkdóm Guðmundar heyrði ég hann aldrei kvarta, heldur sló hann á léttari strengi ef því var að skipta og ræddi aldrei sín hrikalegu sjúk- dómsmál. Ég sagði oft við mína nánustu: Ja, nú er það búið. Það var öðru nær, ekki var Guðmund- ur fyrr kominn heim af sjúkrahúsi að hann hringdi og sagðist nú þurfa að fara að tefla. Þessi æfin- týri okkar stóðu í 3 ár, venjulega á mánudögum og fimmtudögum. Þetta var svo lærdómsríkur tími, að ég hefi ekki kynnst öðru eins. Það eitt að fá hringingu frá dauðvona manni sem spurði hvort við ættum ekki að taka eina í kvöld kom mér oft í opna skjöldu. Oft hafði ég orð á því að allir færu nú á undan Guðmundi. Það vill nefnilega þannig til að á þessu ári hefi ég horft á eftir svo mörgum vinum og ættingjum að mér varð þessi setning tíðræð: „Allir fara þeir á undan Guðmundi, ég held bara að hann sé ódauðlegur," sem hann vissulega er í mínum huga. Það var „stíll" yfir vini mínum Guðmundi sem ég mun geyma í gullkosti minninganna, ásamt þvi sambandi sem ég hafði við fjöl- skyldu hans. „Allt skal jafnt hjá einum Drottni á hans náð ei veröi sjatn.“ í Guðs friði. Harvey Georgsson Guðmundur Ágústsson, afi Mummi, eins og hann var oftast kallaður af fjölskyldumeðlimum, lést hinn 17. þessa mánaðar. Mig langar því til að minnast hans í örfáum orðum. Ég ætla hvorki að rekja afrek hans sem skák- eða bakarameistara, né að telja upp ártöl og afkomendur, heldur ein- ungis að minnast hans sem afa, væns og góðs afa. Ég kynntist afa Mumma, væn- um og góðum, pínulítil, því fyrsta æviár mitt bjó ég á Vesturgötunni hjá honum og ömmu Dóu, en síðan hef ég verið hálfgerður heima- lningur þar á bæ. Nýrri hlið á afa Mumma kynntist ég þegar ég vann hjá honum í „Bakaríinu", en sem yfirmaður í eigin fyrirtæki var hann sannkallaður þrælapískur og ekki dugði neitt hangs ef hann var nálægur, enda lærði maður líka að vinna hjá honum. Þeir eru orðnir ansi margir bíl- túrarnir sem við höfum farið sam- an, afi Mummi og ég. í fyrstu var það hann sem sá um að keyra og ég vísaði veginn, en nú síðustu ár- in var þessu öfugt farið, bæði vegna heilsuleysis hans og eins vegna þess að nú var ég kominn með bílpróf. Ég veit að við eigum eftir að hittast í einhverju öðru lífi, lífi sem hann hefur þegar kynnst en er mér framandi, kannski við get- um farið í fleiri bíltúra þá. Þangað til bið ég Guð að geyma afa minn. Úr litlu íbúðinni í Hvassaleitinu berast innilegar kveðjur og Sunna litla Dögg segir nú: „Afi Mummi ekki bítala, ekki ömmu Bóu, afi Mummi með mömmu sinni." Ingibjörg Ýr • í dag fer fram frá Dómkirkj- unni í Reykjavík jarðarför Guð- mundar Ágústssonar, bakara- meistara, Vesturgötu 52. Guðmundur fæddist í Reykjavík 8. nóv. 1916, sonur hjónanna Ingi- gerðar Sigurðardóttur og Ágústs Guðmundssonar, sjómanns. Guð- mundur missti móður sína í spönsku veikinni 1918 og var þá tekinn í fóstur af Steinunni Sig- urðardóttur, móðursystur sinni, og Sveini Hjartarsyni, bakara- meistara. Hjá Sveini lærði hann síðan bakaraiðn og tók við rekstri Sveinsbakarís fyrst ásamt öðrum, en rak það síðan einn til ársins 1980. Árið 1936 kvæntist Guðmundur Þuríði Þórarinsdóttur, Guð- mundssonar, fiðluleikara og tónskálds. Börn þeirra eru: Þórar- inn, menntaskólakennari, Anna Þóra, félagsfræðingur, Edgar, verkfræðingur, Ágústa, matvæla- fræðingur og Steinunn, húsmóðir, öll búsett í Reykjavík, nema Anna Þóra sem býr í New York. Alls hafa Þuríður og Guðmundur eign- ast 23 afkomendur. Guðmundur var um tvítugt er hann gakk í Taflfélag Reykjavíkur og fór að tefla fyrir alvöru en frá þeim tíma var hann nátengdur skáklífinu í Reykjavík. Telja má víst að Guðmundur hafi tekið bakteríuna af Eggert Gilfer, en Eggert var bróðir Þórarins Guð- mundssonar, tengdaföður Guð- mundar. Árið 1938 vann Guð- mundur sig upp í meistaraflokk. Starfsárið 1941—1942 var Guð- mundur formaður Taflfélags Reykjavíkur. Árið 1945 varð Guð- mundur skákmeistari Reykjavík- ur. Árið 1946 urðu þeir Guðmund- ur Ágústsson og Guðmundur S. Guðmundsson jafnir í landsliðs- keppninni. Það kom nú í hlut Guð- mundar Ágústssonar að heyja ein- vígi við Ásmund Ásgeirsson um íslandsmeistaratitilinn. Ásmund- ur varði titilinn með 6 vinningum gegn 4. Þetta sama ár sigraði Guð- mundur í meistaraflokki á skák- þingi Norðurlanda í Kaupmanna- höfn. Á þessum árum tefldi Guð- mundur í öllum alþjóðlegum mót- um sem tefld voru hér á landi og stóð sig jafnan vel. Hann var nú tvímælalaust í fremstu röð ís- lenskra skákmeistara. Árið 1954 tefldi hann á 4. borði í sveit ís- lands á Ólvmpíuskákmótinu í Amsterdam. I kappmótum standa skákir fram á nótt. Næturdrollið hentaði illa árrisulum bakaranum. Því var þátttaka Guðmundar í kappmótum stopulli en efni stóðu til. Samt tók hann þátt í kappmót- um öðru hverju fram á síðustu ár. Guðmundur var mikill hraðsk- ákmeistari og mun hafa verið fyrsti hraðskákmeistari íslands, árið 1946. Guðmundur var heið- ursfélagi í Taflfélagi Reykjavíkur og Skáksambandi Islands. Heimili Dóu og Mumma á Vest- urgötu 46 var í senn ógleymanlegt og óútskýranlegt. Þetta var heim- ili hamingjusamra hjóna og mannvænlegra barna þeirra, miðstöð skáklífs í borginni, griða- staður skákmanna og annarra vina þeirra og kunningja. Hér voru allir velkomnir, gestrisnin takmarkalaus, umhyggjan og um- burðarlyndið ómælanlegt, lífs- nautnin og kímnin í hávegum höfð. Hér leið öllum vel. óvenju- legur skilningur húsbóndans á manntafli og húsmóðurinnar á mannlífi, laðaði okkur unglingana í Taflfélaginu að þessum sælureit, sem gárungarnir kölluðu „Hótel skák“. Nú þegar Guðmundur er allur fyllir hugann þakklæti fyrir liðna tíð. Blessuð veri minning Guð- mundar Ágústssonar. Ingvar Ásmundsson Höfðingsskapur hefur alltaf þótt hinn besti eiginleiki manna á Islandi. í sögum okkar er sérstak- lega getið þeirra manna er „reistu sér hús um þjóðbraut þvera". Við kveðjum í dag slíkan mann, Guðmund Ágústsson, bakara- meistara, er lést hinn 17. október sl. Skammt er nú stórra högga á milli í stétt okkar. Á síðustu 6 mánuðum hafa 5 félagar okkar farið yfir móðuna miklu. Við sem eftir lifum fáum enn um stund að njóta þakklæti jarðvistar og feg- urðar lífsins. Kynni okkar Guðmundar hófust við skákborðið. Þau kynni urðu meiri og nánari, því að á vordög- um 1952 ámálgaði ég við hann hvort möguleiki væri að komast í nám í bakaraiðn hjá honum. Milli okkar samdist og urðu lærdómsár mín í Sveinsbakaríi sérstaklega ánægjuleg og reynslurík. Sveins- bakarí var eitt virtasta og stærsta brauðgerðarhús landsins og því alltaf mikið um að vera þar. Guð- mundur rak Sveinsbakarí með þeim Kolbeini Ivarssyni og Hans Kr. Eyjólfssyni, þar til hann tók einn við rekstrinum og flutti þá fyrirtækið að Vesturgötu 52. Þó að ég hafi kynnst Guðmundi sem bakara og starfað með honum á þeim vettvangi langar mig að minnast hér á hið einstaka heimili Guðmundar og konu hans, Þuríðar Þórarinsdóttur. Ég var einn hinna fjölmörgu er heimili þeirra stóð opið. Mér var ævinlega tekið með hlýju og þeirri gestrisni er undur er að verða aðnjótandi. Síðar varð kona mína aðnjótandi sömu alúð- ar er hún kom unglingur til höfuð- staðarins og dvaldi langtímum fjarri fjölskyldu sinni. Mér er bæði skylt og mjög ljúft að þakka allar hinar góðu stundir sem við hjónin nutum á heimili Guðmund- ar og Þuríðar meðan við enn vor- um unglingar og síðar á ævi okkar. Samband lærlings og meistara rofnaði aldrei, styrktist frekar og hélst gott til loka. Við hjónin sendum fjölskyld- unni að Vesturgötu 52 innilegar samúðarkveðjur okkar með þakk- læti fyrir allt hið góða er við höf- um notið þar. Jón Víglundsson. Vinur minn, Guðmundur Ág- ústsson, bakarameistari, andaðist á heimili sínu þann 17. þ.m., 66 ára að aldri, eftir þungbær veikindi. Útför hans verður gerð í dag. Af þessu tilefni sendi ég eftirlifandi eiginkonu hans, sonum þeirra og dætrum, einlægar samúðarkveðj- ur. Líf Guðmundar Ágústssonar var helgað heimilinu, bakaríinu og skáklistinni. öllum þessum þátt- um gerði hann góð skil. Á sínum bestu árum var Guð- mundur meðal allra fremstu skák- meistara hér á landi, en varð síðar að þoka um set þegar skákin tók að þróast yfir í tölvuvísindi og at- vinnumennsku. Samt sem áður hélt Guðmundur frábærum styrk- leika í léttum skákum fram á síð- ustu ár og vann þar fleiri sigra en nokkur annar. Ég efast um að nokkur Islendingur hafi teflt fleiri skákir um ævina en Guðmundur Ágústsson og notið þess í jafn rík- um mæli. Guðmundur iðkaði skák- ina fremur sem íþrótt en fræði- grein og aldrei minnist ég þess að hafa séð hann líta í skákbók. Hann var sinnar eign gæfu smiður við skákborðið. I taflstíl hans sameinaðist traust stöðumat, snjallar sóknarleikfléttur og mikil reynsla í endatöflum. Skákafrek Guðmundar Ágústssonar eru meiri en ella fyrir þá sök að lífs- starf hans var illa fallið til mikilla skákiðkana. Sem bakari varð hann jafnan að fara á fætur fyrir allar aldir og hafði langan vinnudag en mætti þó ótrauður til kappskáka að kvöldi. Ég kynntist Guðmundi Ágústs- syni fyrst haustið 1944 þegar ég hóf skólanám í Reykjavík. Vegna sameiginlegs áhuga okkar á skák varð ég fljótlega fastagestur á heimili þeirra hjóna, Guðmundar og Þuríðar Þórarinsdóttur, og við það sat öll mín skólaár í Reykja- vík. Svipuðu máli gegndi um fjölda annarra skákmanna. Hjá Mumma og Dóu, eins og þau voru kölluð, var alltaf opið hús, hlýjar viðtökur og rausnarlegar veit- ingar, þar sem menn gerðu kræs- ingunum úr Sveinsbakaríi góð skil. Raunar má segja að um langt árabil hafi á heimili þeirra hjóna verið rekinn nokkurskonar skák- skóli, sem aldrei mun eiga sinn líka. Húsfreyjan var hollráð og opinská í tali við unga menn og hafði mikla frásagnargáfu. Voru oft áhöld um það hvort eftirsókn- arverðara var að tefla við hús- bóndann eða tala við húsfreyjuna. Þetta voru tímar, sem ekki gleym- ast. Guðmundur Ágústsson var fríð- ur maður og myndarlegur á velli, drengur góður og vinsæll. Það var ávallt tilhlökkunarefni að mæta honum hvort heldur var við skák- borðið eða utan þess. Hann átti gott heimili, var mildur og skyldu- rækinn fjölskyldufaðir, en naut umhyggju eiginkonu og barna þegar örðugleikar steðjuðu að. Fjölskyldan, starfið og skáklistin færðu honum þá lífsfyllingu, sem mest er um verð. Blessuð sé minning meistarans. Jón Þorsteinsson Þetta fer allt einhvern veginn var orðtak sem hann vitnaði oft til. Lífsspeki byggð á margra alda reynslu, síung þó. Þetta fór allt einhvern veginn. Guðmundur Ágústsson fæddist í nóvember 1916 og átti því skammt í að fylla 67 árin er hann dó, 17. október síðastliðinn. For- eldrar voru hjónin Ingigerður Sig- urðardóttir og Ágúst Guðmunds- son. Hann naut þó móður sinnar skamma hríð því hún dó úr spönsku veikinni 1918. Guðmund- ur var yngstur sjö alsystkina sem ólust eftir það að mestu upp hjá móðursystur sinni, Steinunni og manni hennar, Sveini Hjartarsyni bakara. Hjá þeim fékk hann mjög góða umhyggju, en nokkuð kann að hafa skort á þá ástúð sem ég held að honum hafi verið nauð- synleg, kannski meira en mörgum öðrum. Aldrei nefndi Guðmundur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.