Morgunblaðið - 25.10.1983, Síða 47

Morgunblaðið - 25.10.1983, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÓBER 1983 47 Erlend langtíma- lán hækkuðu mest 1981 og 1982 „Kaupmáttur einkaneyzlu nær þrefaldur frá 1953,“ sagði forsætisráðherra • Fundir vóru í báðum þingdeildum í g«r. Allur fundatími neðri deildar fór í framhaldsumræðu um frumvarp til staöfestingar á bráðabirgöalög- um frá því í vor um launamál. Karvel Pálmason (A) og Hjörleifur Guttormsson (Abl.) fluttu langar ræður, sem fólu í sér tvo meginpunkta, annarsvegar gagnrýni á ríkisstjórnina fyrir „skerðingu samningsréttar", hinsvegar gagnrýni á „skertan kaupmátt launa'*. • Karvel Pálmason (A) sagði kaupmátt launa hafa skerzt um 25-30%. Þar af hefði 11% skerðing verið komin til í tíð fyrri ríkisstjórnar. Á sama tíma hefði „matarreikningur vísitölu- fjölskyldunnar" hækkað um 40% og gjaldskrár opinberrar þjón- ustu, sem skrifa yrði á reikning ríkisstjórnarinnar, um rúmlega 40%. Karvel Pálmason sagði rétt vera að vandi þjóðarinnar væri mikill og aðgerða þörf. Þær að- gerðir ættu hinsvegar að vera samátak gert í samráði við launafólk. En launþegar geta ekki gengið til samráðs við ríkis- stjórnina „bundnir á höndum og fótum". Fyrst verður að fella niður skerðingu samningsréttar. • Hjörleifur Guttormsson spurði m.a. um afstöðu Gunnars G. Schram (S), formanns BHM, og Péturs Sigurðssonar (S), for- svarsmanns sjómanna, sem og formannskandídata Sjálfstæðis- flokksins til umræddra bráða- birgðalaga. ••Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra, svaraði fyrir- sprunum frá Svavari Gestssyni. Verðbætur á laun hefðu verið skertar í Noregi 1978—1979, Hollandi 1976 og einnig í Frakk- landi með svipuðum hætti og hér. Forsætisráðherra sagði rangt hjá Svavari að kaupmáttur væri kominn niður á sama stig hér- lendis og 1953. Kaupmáttur, mældur á mælikvarða einka- neyzlu, hefði verið 87,9 1953 (miðað við 100 1960) en yrði 233,0 1983, þrátt fyrir skerðingu frá 1982. Kaupmáttur ráðstöfunar- tekna hefði verið 98,2 1953 en yrði 201 1983, en hefði hinsvegar verið 233 1982. Kaupmáttur einkaneyzlu væri því langleiðina í þrefalt meiri í ár en 1953. Forsætisráðherra sagði það einnig rangt hjá Svavari Gests- syni að aldrei fyrr hefðu verð- bætur launa verið skertar til 2ja ára. Vísitölubætur á laun hafi ekki verið hér á árabilinu 1960-1964. Ráðherra sagði bráðabirgða- lögin ekki banna vinnustöðvanir, en deilur geti staðið um fleira en krónutölu launa á vinnumarkaði. Ráðherra sagði ennfremur að yrðu laun hækkuð, umfram greiðslubyrði framleiðslunnar, t.d. í sjávarútvegi, væri það krafa um gengislækkun og nýtt verðbólguskrið. Þá sagði ráðherra að aukning langra erlendra lána hefði mest orðið 1982, 22%, og næstmest 1981,18%. Happdrœtti og verðlaunasamkeppni SÁA SÁÁ HEFUR efnt til skyndihapp- drættis til ágóða fyrir hina nýju sjúkrastöð samtakanna, en bygg- ing hennar er á lokastigi. Vinn- ingar eru 10 Saab GLS 900-bif- reiðir, að verðmæti samtals lið- lega 4,5 milljónir króna. Samhliða er efnt til samkeppni um nafn á sjúkrastöðina. Sérstök dómnefnd fjallar um þær tillögur sem ber- ast, en Ferðaskrifstofan Útsýn býður höfundum þeirra fimm til- lagna, sem hljóta viðurkenningu, í tveggja vikna ferð til Costa del Sol. Dregið verður í happdrættinu 19. nóvember 1983. Happdrættismiðar með 2 núm- erum hafa verið sendir öllum kon- um í landinu, 16 ára og eldri. í hinu fyrra byggingahappdrætti SÁÁ var einnig leitað til kven- þjóðarinnar með þeim ágæta ár- angri, að bygging sjúkrastöðvar- innar hefur gengið vonum framar. Með happdrættismiðunum fylgir eyðublað fyrir samkeppnina, en það skal tekið fram, að körlum er einnig heimil þátttaka. Þá er einn- ig fyrirtækjum og fleiri aðilum gefinn kostur á að kaupa miða með 10 númerum. (FrétUtilkynning.) VETRARSKOÐUN Gildistími 3.10-1.12. 1983 1. Mótorþvottur 2. Viftureim athuguð 3. Mæla hleðslu og rafgeymir 4. Hreinsa rafgeymasambönd 5. Skipt um kerti 6. Skipt um platínur 7. Loftsía athuguð 8. Skipt um bensínsíu 9. Mótorstilling 10. Kælikerfi athugað 11. Mælt frostþol 12. Yfirfara Ijós og stilla þau 13. Rúðuþurrkur ath. - settur á frostvari VERÐ: (m/söluskatti) 4 cyl. 1.340.00 kr. 6 cyl. 1.707.00 kr. 8 cyl. 1.971.00 kr. INNIFALIÐ í VERÐI: Vinna - kerti - platínur - bensínsía - frostvari. gg BIFREIDADEILD SAMBANDSINS VERKSTÆÐI HÖFÐABAKKA 9-SÍMI 85539 GÆÐAEFTIRLIT MEÐ GÆÐA VÖRUM Nýia^^^^^ hitastillta baðblöndunartækið slær í gegn fyrir tæknilega hönnun, fallegt útlit og ótrúlegt verð! «9* Stöðugur baðvatnshiti, handstýring á kaldasta og heitasta vatnshitanum. Bamaöryggi. Auðvelt í notkun, auðvelt að halda hreinu. Keramik þétting, drýpur því ekki. Allt þetta fyrir ótrúlegt verð. Endurnýjið með Danfoss það borgar sig - svo er það svo þægilegt. = HÉÐINN = SELJAVEGI 2, SÍMI 24260

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.