Morgunblaðið - 15.11.1983, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 15.11.1983, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. NÓVEMBER 1983 Norrœnar fegurðardísir Sfmamynd AP Stúlkurnar, sem keppa fyrir hönd Norðurlanda um titilinn „Ungfrú Alheimur“, settust saman litla stund sl. sunnudag á Grosvernor-hótelinu í London og þá var þessi mynd tekin af þeim. Yst til vinstri er íslenska fegurðardrottningin, Unnur Steinsson, þá sú norska, Karen Dobloug, sú danska, Tina Jörgensen, Ungfrú Finnland, Marita Sanna Pekkala, og loks sænska stúlkan, Lisa Eva Tornquist. Keppnin fer fram í Albert Hall á fimmtudag, 17. nóvember. Meira en 325.000 mótmæltu kjarnorkuvopnum í Rúmeníu Sovétmenn sagðir beita þarlend yfirvöld þrýstingi Erkibiskupinn í San Salvador: Kirkjan ofsótt frá hægri og vinstri Mexíkóborg, 14. nóvember. AP. TVÖ HUNDRUÐ og tuttugu manns létust í óöldinni í E1 Salvador í síðustu viku að því er talsmenn kaþólsku kirkj- unnar í landinu segja. Utan- ríkisráðherrar ýmissa ríkja í Rómönsku Ameríku, sem beitt hafa sér fyrir friði í Mið-Ameríku, eru nú á fundi í Washington. Erkibiskupinn í San Salvador, Arturo Rivera y Damas, sagði við messu sl. sunnudag, að 178 manns hefðu fallið í átökum milli skæru- liða og stjórnarhersins í síðustu viku og dauðasveitir hægrimanna hefðu myrt 34. Átta menn aðrir hefðu fallið en ekki nefndi hann með hvaða hætti. Sagði Damas, að „tilviljanakennt ofbeldi" ógnaði kirkjunnar mönnum í Guatemala og E1 Salvador og að í Nicaragua stæðu stjórnvöld fyrir ofsóknum á hendur þeim. „Kirkjan er og verður ofsótt svo lengi sem hún sættir sig ekki við duttlunga alræðisstjórna, hvort sem þær eru til hægri eða vinstri," sagði Damas. Utanríkisráðherra Mexíkó, Bernardo Sepulveda, sagði í dag, að tilraunum Mið-Ameríkuríkja til að koma á friði miðaði vel og kvaðst hann búast við að fá skrif- legar tillögur frá hverju ríkjanna um sig á fundinum í Washington. Samtök Ameríkuríkja og Conta- dora-ríkin svokölluðu, Mexíkó, Panama, Venezuela og Kólombía, munu halda fund í vikunni og verður fundarefnið hjá hvorum- tveggja friður í Mið-Ameríku. Kúkarest, 14. nóvember. AP. MEIKA en 30.000 ungmenni efndu á laugardag til mótmælagöngu gegn kjarnorkuvopnum í höfuðborg Rúm- eníu á sama tíma og fregnir berast af því að Sovétmenn beiti Kúmena mikl- um þrýstingi til þess að fá þá til að samþykkja staðsetningu SS 20-flauga í landinu. Mótmælaaðgerðirnar á laugar- dag voru víða um landið, en þær fjölmennustu í Búkarest. Vitað er um sambærilegar aðgerðir í 28 borgum landsins og er álitið að um 325.000 manns hafi tekið þátt í þeim. í ræðu, sem flutt var í göngu- lok í Búkarest, voru stórveldin hvött til þess að hætta við þá ákvörðun sína að koma meðaldræg- um flaugum fyrir í Evrópu. Samkvæmt upplýsingum AP- -fréttastofunnar mun Viktor G. Kulikov, yfirmaður herafla Var- sjárbandaiagsríkjanna, fyrst hafa reynt að beita áhrifum sínum á rúmensk stjórnvöld fyrir tveimur mánuðum er hann var þar í heim- sókn. Yfirvöld í Rúmeníu vilja hvorki staðfesta frásögn fréttastof- unnar né bera hana til baka. Til þessa hafa aðeins A-Þjóðverjar og Tékkar viljað taka við flaugunum. Heimsókn Kulikov til Rúmeníu fór mjög leynt og ekki var greint frá henni í þarlendum fjölmiðlum. Ekki er með vissu vitað um við- brögð rúmenskra stjórnvalda við beiðni Kulikov, en Ceaucescu, Rúm- eníuforseti, hefur löngum þótt ákveðinn og virst friðarsinni. Kogalin, eða Edda, eins og það hét þegar það var í förum hér í sumar. Svíþjóð: Tuttugu flýðu af „Eddunni“ pólsku Stokkbólmi, 14. nóvember. AP. TUTTUGU Pólverjar, farþegar um borð í pólska farþegaskipinu „Kog- alin“, létu sig vanta þegar skipið fór frá Svíþjóð um helgina og hafa nú flestir þeirra beðið um hæli þar í landi. Þegar Rogalin (Eddan, sem var í förum hér í sumar) lét úr höfn í Nynáshamn fyrir austan Stokk- hólm um helgina vantaði 20 far- þega af nærri 220 um borð og höfðu þeir látið sig hverfa í skoð- unarferð um nágrennið nokkru áður. Þrettán þeirra hafa nú gef- ið sig fram við sænsku lögregluna og beðið um pólitískt hæli i Sví- þjóð en ekkert hefur enn spurst til hinna sjö. I viðtali við sænska blaðið Dag- ens Nyheter sagði einn embættis- maður innflytjendaskrifstofunn- ar, að það væri „ekki næg ástæða til að fá vist í Svíþjóð að vera óánægður með ástandið í Pól- landi". Innflytjendaráðið mun brátt ákveða hvort Pólverjarnir fá hæli eða verða sendir aftur til Póllands. Oryggisráðstafanir í Greenham Common I.undúnum og (ireenham ('ommon, 14. nóvember. AP. FLUTNINGAVÉL frá Bandaríkjahcr lenti í morgun á flugvelli herstöðvar Bandaríkjamanna í Greenham Comm- on. Þegar farmurinn var tekinn út úr vélinni bar Ijósmyndurum og frétta- mönnum saman um, að þar virtust vera komnar fyrstu meðaldrægu flaugarnar, sem koma á fyrir í Bretlandi áður en nýja árið gengur í garð. Miklar öryggisráðstafanir voru við komu vélarinnar. Sveimuðu þyrl- ur yfir báðum endum flugbrautar- innar eftir að vélin var lent og í stað þess að staðnæmast á flugbrautinni eins og aðrar vélar, sem komið hafa á undanförnum vikum, var henni rakleiðis beint að samstæðu flug- skýla, þar sem hún var affermd. Michael Heseltine, varnarmála- ráðherra, hætti í morgun við fyrir- hugaða stutta heimsókn til herstöðv- ar í suðurhluta landsins, en hélt þess í stað rakleiðis á fund Margaret Thatcher, forsætisráðherra. Hugðist Heseltine ávarpa þingið síðar í datr Bruce Kent, forvígismaður þeirra Breta sem berjast fyrir kjarnorku- afvopnun, sagði komu vélarinnar marka tímamót og vera „meiriháttar harmleik fyrir mannkynið". Hann sagði ennfremur, að friðarsinnar myndu gera allt, sem í þeirra valdi stæði, til þess að koma í veg fyrir að flytja mætti flaugarnar á ákvörðun- arstað. Lögreglan handtók um helgina 137 mótmælendur gegn kjarnorkuvopn- um í Bretlandi og Astralíu. Megin- þorri þessa fólks, 111, þar af 109 kon- ur, var handtekinn við fjarskipta- stöð Bandaríkjamanna og Ástrala í Alice Springs. Kröfðust þeir þess að stöðinni yrði lokað. í Lundúnum settu mótmælendur á svið „dauðsföll" í miðri minningar- guðsþjónustu um fallna breska her- menn. Á meðal gesta við athöfnina voru Karl Bretaprins og Margaret Thatcher. Tuttugu manns efndu til mótmæl- astöðu við ráðhúsið í Leipzig í Austur-Þýskalandi á laugardags- Nýju I)elhí, 14. nóvember. AP. Af) MINNSTA kosti 21 lét lífid og 17 slösuðust þegar hraðlest ók á fullri ferð í gegnum hóp pílagríma í Uttar Pradesh-héraði á sunnudagsmorgun. Slysið vildi þannig til, að lest, sem flutti pílagrimana, nam staðar á rauðu ljósi við gatnamót skammt frá ákvörðunarstað pílagrímanna. Margir þeirra stigu út úr lestinni og ætluðu að ganga síðasta spölinn, en f kvöld. Kveikti fólkið á kertum og vildi með þvf leggja áherslu á að það léti frið í heiminum sig einhverju skipta. Erkibiskupinn af Kantaraborg lýsti því hins vegar yfir í dag, að a-þýskir fjölmiðlar hefðu þagað þunnu hljóði um ræðu, sem hann flutti í dómkirkjunni í Dresden í gær. Fjallaði ræða hans m.a. um heimsfriðinn. Hann sagði, að hann hefði trú á, að inntak ræðu hans bærist til almennings í A-Þýska- landi i gegnum kirkjuna þótt þar- lendir fjölmiðlar hefðu þagað ræðu hans í hel. uggðu ekki að sér er þeir gengu yfir brautarteina, sem lágu þvert á leið þeirra. Skipti engum togum að hraðlestin kom brunandi á miðjan hópinn með fyrrgreindum afleiðingum. Ekki var fyllilega bjart af degi er slysið varð og var lestin ekki með nein ökuljós. Lestarstjórinn hefur verið handtek- inn, sakaður um gáleysi f starfi. 21 pflagrímur fórst á Indlandi: Uggðu ekki að sér og urðu fyrir lest

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.