Morgunblaðið - 15.11.1983, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. NÓVEMBER 1983
29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. NÓVEMBER 1983
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guömundsson,
Björn Jóhannsson.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aóalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö-
alstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift-
argjald 250 kr. á mánuöi innanlands. I lausasölu 20 kr. eintakiö.
Engin
íslandssaga
Islandssaga er ekki
lengur sjálfstæð náms-
grein í grunnskólum. Hún
hefur, ásamt fleiri svoköll-
uðum „lesgreinum", verið
felld inn í námsgrein sem
nefnd er samfélagsfræði..
Á þennan veg hófst grein
hér í blaðinu á sunnudag um
umritun íslandssögunnar.
Þar kemur jafnframt fram
að skólarannsóknadeild
menntamálaráðuneytisins
stendur þannig að undirbún-
ingi námsefnis í íslands-
sögu, að nemendur í grunn-
skólum fá ekki nema tak-
markaða fræðslu um sögu
þjóðarinnar. Námsefnið er
takmarkað við tímabilin
870-930, 1700-1720 og
1840—1880, eða 120 ár. Um
það hvort æskilegt sé að
stytta íslandssöguna með
þessum hætti segir Erla
Kristjánsdóttir, námsstjóri í
samfélagsfræði, meðal ann-
ars: „Nú, í samfélagsfræð-
inni er við það miðað að
nemendur séu í fyrsta sæti,
en í hefðbundinni sögu-
kennslu hefur sagan sjálf
skipað það sæti. Aðaltil-
gangur sögunnar er að
hjálpa fólki að skilja nú-
tímann betur."
Það kemur á óvart að í
kyrrþey skuli hafa verið
ákveðið að hætta að kenna
íslandssögu í grunnskólum
og hefja í hennar stað
kennslu í samfélagsfræði
sem spannar yfir átthaga-
fræði, íslandssögu, mann-
kynssögu, landafræði og fé-
lagsfræði, tengist einnig
mannfræði, sálarfræði, hag-
fræði, stjórnmálafræði,
þjóðháttafræði og vistfræði
og er þar fyrir utan ætlað að
fræða um umferðarmál, fé-
lagsstörf, bindindi, kynferð-
ismál, jafnréttismál, um-
hverfismál og starfsval með
þeim hætti „að nemendur
séu í fyrsta sæti“. Af þessari
upptalningu er ljóst að búin
hefur verið til námsgrein í
grunnskólum sem spannar
yfir allt það sem hæst ber í
„umræðunni" hverju sinni
og vekur undrun að náms-
stjórinn skuli ekki tíunda
friðarmálin sem hluta sam-
félagsfræðinnar.
Skólarannsóknadeild er
hluti af menntamálaráðu-
neytinu og lýtur því póli-
tískri forsjá. Undir verndar-
væng menntamálaráðherra
sitja menn við að semja
skólabækur. Er sú skipan í
sjálfu sér furðuleg, að innan
ráðuneytis skuli slík vinna
innt af hendi, en hitt þó enn
furðulegra að niðurfelling
íslandssögunnar á vegum
menntamálaráðuneytisins
skuli hafa komist til fram-
kvæmda þegjandi og hljóða-
laust án þess að valda deil-
um í okkar íhaldssama þjóð-
félagi. Upphaflegu tillöguna
um samfélagsfræðina má
rekja til ársins 1971, en um
mitt sumar það ár urðu
stjórnarskipti, dr. Gylfi Þ.
Gíslason lét af menntamála-
ráðherrastörfum en Magnús
Torfi Ólafsson tók við emb-
ættinu.
Hingað til hefur það verið
viðtekin skoðun að tilveru
íslendinga sem sjálfstæðrar
þjóðar mætti rekja til tung-
unnar og sögunnar. Nú ligg-
ur sem sé fyrir að deild inn-
an menntamálaráðuneytis-
ins við Hverfisgötu hefur
ákveðið að í grunnskólum á
íslandi skuli hætt að kenna
sögu þjóðarinnar. Hvenær
kemur röðin að tungunni?
„Brennheitar
talnasúpur“
Fátt er mikilvægara þeg-
ar miklir erfiðleikar
steðja að í þjóðarbúskapnum
en að stjórnmálamenn haldi
sig við aðalatriði og drukkni
ekki í aukaatriðum. Með
skýrum og markvissum
hætti þurfa þeir að segja
þjóðinni hvað framundan er
og hvað nauðsynlegt sé að
gera til að sigrast á vandan-
um. Dr. Þráinn Eggertsson,
forseti viðskiptadeildar Há-
skóla íslands, vék að þeirri
áráttu íslenskra stjórnmála-
manna að rugla saman
auka- og aðalatriðum með
þessum hætti í viðtali við
Þóri Kr. Þórðarson prófess-
or í Lesbók Morgunblaðsins
á laugardaginn:
„En ég má til með að geta
um séríslenskt fyrirbæri, en
það eru þessar brennheitu
talnasúpur, sem íslenskir
stjórnmálamenn hella yfir
þjóðina. Ávörp þeirra um
efnahagsmál eru ótrúlegar
langlokur. Ég hef hvergi í
nálægum löndum séð stjórn-
málaforingja hvolfa drasl-
inu af skrifborði þjóðhags-
stjóra og seðlabankastjóra
yfir þjóðina."
Janúar — september:
Ullarútflutningur
dróst saman um 5%
Verðmætasamdrátturinn mestur á Vestur-Evrópu-markaði
Ullarvöruútflutningur íslenzkra
fvrirta'kja dróst saman um 5%, í
raagni talið, fyrstu níu mánuði árs-
ins, þegar út voru flutt samtals 997,2
tonn, borið saman við 1.049,0 tonn á
sama tíma í fyrra. Verðmætaaukn-
ingin mílli ára er ura 93%, eða 499,3
miíljónir króna á móti tæplega 259
milljónum króna á sama tíma í fyrra.
í þessu sambandi má geta þess, að
meðalgengi dollars hækkaði á sama
tímabili um tæplega 113%, eða
nokkru meira, en verðmætaaukning-
unni nemur.
Ef einstakir vöruflokkar eru
skoðaðir kemur í ljós, að um 7%
aukning hefur orðið á útflutningi
á fatnaði úr ull. Hins vegar hefur
orðið tilfærsla milli markaðs-
svæða. Um 14% aukning hefur
orðið á útflutningi til Norður-
Ameríku, en hins vegar um 24%
samdráttur til Vestur-Evrópu. Til
Comecon-landa hefur orðið um
84% aukning. Verðmætaaukning-
in á Norður-Ameríku er um 142%,
um 41% á Vestur-Evrópu og um
182% til Comecon-landa.
Ef dæmið er skoðað með ullar-
lopa og band, sem vegur þyngst,
þá varð samtals um 18% sam-
dráttur á útflutningi. Samdráttur-
inn varð um 8% á Norður-Amer-
íku, en um 22% á Vestur-Evrópu.
Verðmætaaukningin á Norður-
Ameríku er um 91%, en um 45% á
Evrópu.
Um 2% aukning varð á útflutn-
ingi ullarteppa, en þar varð um
2% samdráttur til Norður-Amer-
íku, um 7% samdráttur á Vestur-
Evrópu, en hins vega rúm 5%
aukning til Comecon-landanna, en
þangað fór 3/4 hlutar útflutnings-
ins. Verðmætaaukningin til
Norður-Ameríku várð um 144%,
um 65% á Vestur-Evrópu og um
105% til Comecon-landa.
Af framansögðu er ljóst, að
samdráttur í ullarútflutningi hef-
ur aðallega komið fram á Vestur-
Evrópumarkaði. Hins vegar er
verðmætasamdrátturinn þar enn
meiri en útflutningssamdráttur-
inn, aðallega vegna þróunar Evr-
ópugjaldmiðla.
Frá fundinum sl. laugardag.
Morttunblaðið/ÓI.K.Mat;
Ákvörðun um eggja-
dreifingarstöð frestað
NIÐURSTAÐA um það hvort Sam-
band eggjaframleiðenda skyldi hefja
undirbúning að stofnun eggjadreif-
ingarstöðvar í samræmi við sam-
þykkt félagsfundar í febrúar sl. náð-
ist ekki á fundi þeim, sem haldinn
var á Hótel Sögu sl. laugardag. Á
fundinum bar formaður sambands-
ins, Kinar Eiríksson í Miklaholts-
helli, fram tillögu um að stofn-
unartillögu framkvæmdanefndar um
dreifingarmiðstöðina yrði vísað frá,
og kvað þá sem að frávísunartillög-
unni stóðu, 25 manns, ætla að ganga
úr sambandinu yrði stofnunartillag-
an samþykkt. Á fundi þessum voru í
kringum sjötíu og fimm eggjafram-
leiðendur, en að sögn Gunnars Jó-
hannssonar á Ásmundarstöðum eiga
25-menningarnir sem stóðu að frá-
vísunartillögunni um 170 þúsund
þeirra 270 þúsund hænsnfugla sem
eru í landinu.
Eftir miklar umræður var
ákveðið að fresta ákvörðun um
hvort Samband eggjaframleið-
enda stofnaði eggjadreifingar-
miðstöð til aðalfundar sambands-
ins sem haldinn verður á næst-
unni. { umræðum á fundinum á
Hótel Sögu kom fram að yfirleitt
eru eggjaframleiðendur ekki frá-
hverfir því að komið verði á fót
dreifingarstöð, en hins vegar ríkir
mikill ágreiningur um sölufyrir-
komulag á eggjum, en samstaða er
þó um að verðlagning á eggjum
skuli áfram vera í höndum eggja-
framleiðenda og ekki sexmanna-
nefndar.
Fyrsti háhyrningurinn kominn i laug Sædýrasafnsins í gærkvöldi.
MorgunblaðiÖ/KEE.
Fyrsti háhyrningur-
inn kominn í laugina
Sýningarhæfur um næstu helgi
FYRSTI háhyrningurinn í ár er kominn í laug Sædýrasafnsins í llafnarfirði.
Náðist hann um borð í Guðrúnu GK um helgina og er nú að jafna sig eftir
flutninginn og endurheimta matarlystina, að sögn Helga Jónassonar,
fræðslustjóra Reykjanesumdæmis. Hann er formaður stjórnar félagsins, er
stendur að veiðunum. Verður háhyrningurinn væntanlega „sýningarhæfur"
um næstu helgi.
Það er félagsskapurinn Fauna,
sem er handhafi leyfis sjávarút-
vegsráðuneytisins til að veiða
fimm háhyrninga á vertíðinni.
Það er sjálfseignarfélag áhuga-
manna um náttúruvernd, sem hef-
ur það að einu meginmarkmiði
sínu að kynna ungu fólki náttúru-
og dýralíf. Hagnaður af háhyrn-
ingaveiðunum verður notaður til
að styrkja fyrirtæki og stofnanir á
þessu sviði, þ.á m. Sædýrasafnið.
„Sædýrasafnið á ekki aðild að fé-
laginu en við leigjum af safninu
hvalalaugina, sem nýtist því ekki
þar sem safnið fékk ekki áfram-
haldandi leyfi til háhyrningaveið-
anna,“ sagði Helgi Jónasson í
samtali við blm. Morgunblaðsins í
gær.
Hann kvað fyrirhugað að selja
háhyrningana úr landi en ekki
hefði verið gengið frá samningum
þar að lútandi enn. Söluverð dýr-
anna er einnig óljóst, en síðustu
dýr sem seld voru héðan, kostuðu
kaupendur um 90 þúsund Banda-
ríkjadali, eða sem svarar liðlega
2,5 milljónum ísl. króna.
Formaður stjórnar sjálfseignar-
félagsins Fauna er Helgi Jónas-
son. Aðrir stjórnarmenn eru Rún-
ar Brynjólfsson og Tryggvi
Harðarson. Stofnendur og félagar
eru einstaklingar, að sögn Helga.
Kosningar í sameinuðum Mýrdalshreppi:
Umbótasinnar fengu
flest atkvæði — 120
LISTI umbótasinna fékk flest at-
kvæði í kosningum til hreppsnefnd-
ar í sameinuðum Mýrdalshreppi
sem fóru fram á sunnudaginn, eða
120 atkvæði og þrjá menn kjörna.
B-listi Framsóknarflokksins hlaut
109 atkvæði og tvo menn kjörna og
D-listi Sjálfstæðisflokksins hlaut
108 atkvæði og tvo menn kjörna.
Z-listi umbótasinna hlaut 142 at-
kvæði og einn mann kjörinn í
sýslunefnd, B-listinn fékk 106 at-
kvæði og einn mann kjörinn og
D-listinn 92 atkvæði og engan
mann kjörinn. Um áramót samein-
ast Dyrhólahreppur og Víkurhrepp-
ur í eitt sveitarfélag, Mýrdals-
hrepp.
„Það eru atvinnumálin, sem
voru efst á baugi hjá öllum list-
um fyrir þessar kosningar," sagði
Þórir Kjartansson í Vík, en hann
var kjörinn í sýslunefnd af
Z-listanum, sem nú bauð fram í
annað sinn. „Að okkar lista stóð
fólk úr öllum flokkum, til og með
flokksbundið fólk úr öllum flokk-
um,“ sagði Þórir. „Það eru mörg
mál í litlum sveitarfélögum, sem
ekki fara eftir pólitískum línum."
Hann sagðist telja að mikil-
vægasta mál hins nýja hrepps,
sem verður endanlega sameinað-
ur um næstu áramót, sé áfram-
haldandi jarðhitaleit — þótt
ýmsir starfsmenn Orkustofnun-
ar teldu það vonlítið verk.
„Hitunarkostnaður meðalhúss
hér í hreppunum er nú
4000—5000 krónur á mánuði, svo
fátt kæmi að meiri notum en
árangur af jarðhitaleitinni.
Sannast sagna er nánast óbyggi-
legt hér vegna þessa mikla
hitunarkostnaðar," sagði Þórir.
f hreppsnefndinni, sem tekur
við um áramót, eiga sæti Vigfús
Guðmundsson, Sigríður Magn-
úsdóttir og Einar Hjörleifur
Ólafsson af lista umbótasinna,
Finnur Bjarnason og Sigríður
Tómasdóttir af lista Sjálfstæðis-
flokksins og Eyjólfur Sigurjóns-
son og Símon Gunnarsson af
lista Framsóknarflokksins. Eng-
ar þreifingar um myndun meiri-
hluta í hreppsnefnd hafa enn
farið fram, að sögn Þóris Kjart-
anssonar.
Víðtæk leit að rjúpnaskyttu í Borgarfirði:
Fannst látinn
í Síðufjalli
Borgarnesi, 14. nóvember.
UMFANGSMIKIL leit var gerd síð-
astliðna nótt og í dag á Síðufjalli,
sem er á milli Stafholtstungna og
Hvítársíðu í Borgarfirði, að manni
sem þar hafði verið við rjúpnaveiðar
en ekki komið fram. Maðurinn
fannst í dag fyrir ofan bæinn Þór-
gautsstaði í Hvítácjýðu og var hann
látinn. Hann hét Ragnar Pétursson,
framkvæmdastjóri, Greniteigi 24,
Keflavík.
Ragnar fór ásamt þremur félög-
um sínum til rjúpnaveiða á Síðu-
fjalli. Fóru þeir upp frá eyðibýlinu
Selhaga í Stafholtstungum um há-
degisbilið á sunnudag. Skildu þeir
fyrir ofan Selhaga um kl. 13 en
höfðu þá ákveðið að hittast við bíl
sinn að Selhaga klukkan 17. Fé-
lagar Ragnars komu þangað á til-
settum tíma. Biðu þeir um stund
en þegar hann var ekki kominn
fram um kl. 19 fóru þeir heim á
nálægan bæ, þar sem þeir þekktu
til, þaðan sem grennslast var fyrir
um Ragnar á næstu bæjum. Fljót-
lega var leitað aðstoðar björg-
unarsveitarinnar á svæðinu.
Leit var hafin á fjallinu en erf-
itt var um vik vegna myrkurs auk
þess sem þoka var fram eftir
nóttu. Til leitar komu 115 menn,
sem voru auk félaga í björgun-
arsveitinni Heiðari félagar úr
björgunarsveitunum Oki í Borg-
arfjarðarsýslu og Brák í Borgar-
nesi og ýmsir sjálfboðaliðar úr ná-
grenninu. Einnig komu féiagar úr
hjálparsveit skáta í Hafnarfirði
með leitarhunda. Leitað var með
ljósum fram eftir nóttu en án
árangurs. Leit var aftur hafin í
morgun og bættust þá í hópinn fé-
lagar úr björgunarsveitinni Hjálp
Ragnar Pétursson
á Akranesi, nemendur frá Reyk-
holti og Bifröst og fleiri, auk þess
sem leitað var úr fjórum flugvél-
um. Þokunni létti í morgun og var
gott leitarveður. Klukkan 13.30
fannst Ragnar í Síðöfjalli ofan við
bæinn Þórgautsstaði í Hvítársíðu
og var hann úrskurðaður látinn af
lækni, sem þarna var.
Ragnar heitinn var þaulkunnug-
ur á þessu svæði og allvel búinn.
Sagði læknirinn að svo virtist sem
hann hefði veikst skyndilega og
ekki náð að komast til bæja, en að
hann hafi ekki orðið úti. Ragnar
heitinn var 55 ára gamall og lætur
hann eftir sig eiginkonu og fjögur
börn.
- HBj.
Leitarmenn leggja upp skammt frá Þórgautsstöðum í Hvítársíðu. Ragnar
fannst skömmu síðar. Morgunbiaðíð/ HBj.
Svíakonungur heiðrar
dr. Ármann Snævarr
DR. ÁRMANN SNÆVARR hæstaréttardómari hefur verið sæmdur
æðsta heiðursmerki sem konungur Svíþjóðar veitir útlendingum,
„kommandör með stórum krossi af konunglegu Norðurstjörnuorð-
unni“, að því er Gunnar Axel Dahlström, sendiherra Svíþjóðar á
Islandi, tjáði blm. Morgunblaðsins í gær, en sendiherrann veitti orð-
una fyrir hönd konungs í boði á heimili sínu í Reykjavík á sunnudag-
inn.
„Dr. Ármann er ekki aðeins
heiðursdoktor við háskólann í
Uppsölum. Hann hefur lagt
ríkulega af mörkum til norræns
samstarfs á sviði sérgreinar
sinnar og sérlega til samskipta
milli íslands og Svíþjóðar,"
sagði Dahlström sendiherra.
„Það var okkur hjónum sérstök
gleði og heiður að fá að veita
orðuna á heimili okkar að við-
stöddum dr. Ármanni og eigin-
konu hans auk ýmissa vina
þeirra. Þar á meðal var Alvar
Nelsson prófessor frá Uppsöl-
um, sem átti hvað stærstan
þátt í að dr. Ármann var gerður
að heiðursdoktor við háskólann
þar 1970.“
Orðan, sem dr. Ármann Snæ-
varr var sæmdur á sunnudag,
er æðsta heiðursmerki sem
konungur Svíþjóðar veitir
óbreyttum borgurum. Fáir út-
lendingar hafa verið sæmdir
tignarorðu af þessari gráðu, að
sögn Dahlströms sendiherra.
Sænsku sendiherrahjónin skála við dr. Ármann Snævarr eftir að hann hafði
verið
sæmdur heiðursmerkinu.
MorKunblaðið/KOE.
12.000 lestir af
loðnu komnar á land
stærsta farminn, 1.200 lestir
Gísli Árni RE fór með 300 lestir til
Raufarhafnar, Sigurður RE með
830 lestir til Vestmannaeyja, Eld-
borg HF með 1.200 lestir til Eski-
fjarðar og Grindvíkingur GK með
700 lestir til Krossaness.
Bræla var á miðunum í fyrrinótt
og veiði þvi lítil. Skipin sem til-
kynntu um afla í gær höfðu fengið
megnið af honum áður. Loðnan
hefur enn ekki verið fitumæld, en
hún er talsvert blönduð.
Vestmannaeyjar:
Stanslaus sfldarlöndun
Eldborgin með
12.000 lestir af loðnu eru nú komn-
ar á landi á vertíðinni. Flest skipanna
hafa landað afla sínum á Raufarhöfn,
en auk þess hafa skipin haldið til
Siglufjarðar, Krossaness, Eskifjarðar
og Vestmannaeyja með afla sinn.
Stærsta farminn til þessa hefur Eld-
borgin HF fengið, 1.200 lestir, sem
hún fór með til Eskifjarðar.
Á sunnudag tilkynntu 8 skip
loðnunefnd um afla, samtals 3.850
lestir. Það voru Súlan EA með 430
lestir, Hrafn GK, 620, Albert GK,
600, Þórshamar GK, 400, Húnaröst
ÁR, 500, sem öll lönduðu á Rauf-
arhöfn, Svanur RE landaði 450
lestum í Siglufirði, Gígja RE 500 í
Vestmannaeyjum og Skírnir AK
350 í Krossanesi.
I gær tilkynntu 4 skip loðnu-
nefnd um afla samtals 3.030 lestir.
\ ustmannauyjum, 14. nóvember.
STANSLAUS síldarlöndun hefur
verið hér undanfarna daga og unnið
alla daga og öll kvöld við frystingu
síldar hjá fimm fiskvinnslustöðvum.
Nú um helgina, frá föstudegi til
mánudags, var landað hér alls um
1300 tonnum af síld, svo nærri má
geta að handagangur haft verið í
öskjunni og líflegt um að litast á
hafnarsvæðinu.
Á síðustu síldarvertíð var
hvergi landað meira magni en hér
í Eyjum og stefnir í það sama nú á
þessari vertíð. Meira hefur verið
saltað hér en oftast áður og miklu
ræður að afkastageta frystihús-
anna hér er mjög mikil.
hkj.