Morgunblaðið - 15.11.1983, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 15.11.1983, Blaðsíða 26
34 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. NÓVEMBER 1983 „Salka“ við Skúlagötu þar sem sparisjóöurinn var til húsa fyrstu árin. „(iamli sparisjóóurinn", hús Magnúsar Jónssonar á Borgarbraut 14, þar sem sparisjóðurinn er nú starfræktur. Eldri hluta horni Egilsgötu og Skúlagötu. Þar var sparisjóðurinn frá hússins byggði sparisjóðurinn um 1960 og tók í notkun árið 1962. Við- 1920 til 1962. bygging var síðan tekin í notkun á árunum 1982 og 1983. Starfsemi nú Viðskiptasvæði Sparisjóðs Mýrasýslu er nú, auk Mýrasýslu, Borgarfjarðarsýsla innan Skarðsheiðar og sunnanvert Snæfellsnes, ennfremur í litlum en vaxandi mæli sveitirnar utan Skarðsheiðar, síðan samgöngur þaðan urðu greiðari yfir fjörð. Hinn 1. október síðastliðinn voru heildarinnlán við sparisjóðinn kr. 155 milljónir á 8053 reikning- um. Útlán voru á sama tíma kr. 125 milljónir, en bundið fé sam- kvæmt bindiskyldu í Seðlabanka íslands kr. 42 milljónir. Vara- sjóður um síðustu áramót var rúmar 10 milljónir króna. Með útlánum sínum hefur sparisjóð- urinn jafnan leitast við að styðja framfarir og uppbyggingu at- vinnulífs og styrkja afkomu heimila á viðskiptasvæðinu. Stærstu útlánaflokkar við spari- sjóðinn eru nú landbúnaður, íbúðabyggingar og iðnaður ým- iss konar. 1. október 1983 voru starfsmenn 20, þar af fimm í hálfu starfi. Sjóðurinn býr nú við rúmgott húsnæði sem sniðið er að þeim kröfum sem gerðar eru um slíkar byggingar hvað ör- yggisgeymslur og búnað varðar. Sparisjóður Mýrasýsiu hefur á liðnum áratugum notið þess að eiga fjölda traustra viðskipta- manna. Á 70 ára starfstíma sín- um hefur sparisjóðurinn aldrei tapað neinu af því fé sem hann hefur lánað. Segir það sína sögu um viðskiptavinina, starfsfólkið, stöðugleika atvinnulífsins, og ekki síst héraðið, sem Jóhann á Hamri sagði í einu bréfa sinna til sýslunefndar þegar hann var að undirbúa stofnun sparisjóðs- ins að „óhætt megi telja með helstu peningahéruðum lands- ins“. HBj. Sparisjóður Mýrasýslu 70 ára: Jóhann Magnússon bóndi á Hamri, aðalhvatamaður að stofnun Sparisjóðs Mýrasýslu og stjórnar- formaður fyrstu 37 árin. Finnbogi Guðlaugsson, fram- kvæmdastjóri í Borgarnesi, tók við. Magnús Sigurðsson, bóndi á Gilsbakka, núverandi stjórnar- formaður, tók síðan við árið 1982. Með Magnúsi í stjórn nú eru Gísli Kjartansson sýslu- fulltrúi í Borgarnesi, Þórarinn Jónsson, bóndi á Hamri í Þver- árhlíð, Rúnar Guðjónsson, sýslu- maður í Borgarnesi, og Gísli V. Halldórsson, verksmiðjustjóri í Borgarnesi. Á 70 ára starfstíma sparisjóðsins hafa fjórir menn verið við hann sparisjóðsstjórn- ar. Eðvarð Runólfsson (1913—1916) og Magnús Jónsson (1916—1957) sem áður eru nefndir og síðan Halldór Sig- urðsson (1957—1961) og Friðjón Sveinbjörnsson (frá 1961). - Sparifé nú 155 milljónir króna á 8 þúsund reikningum Borgarncsi, 9. nóvember. Á ÞESSU hausti eru liðin 70 ár frá því Sparisjóður Mýrasýslu tók til starfa. Sparisjóðurinn var stofnaður árið 1913 og tók til starfa 1. október það ár. I»á var hengd upp auglýsing þar sem tilkynnt var að gjaldkeri sparisjóðsins tæki á móti „inn- lögum“ á ákveðnum dögum og að „stjórn sparisjóðsins yrði til viðtals í Borgarnesi „venjulega alla laugardaga, þegar fé er í sjóðnum til útíána". Það mun hafa verið í ársbyrj- un 1912 að Jóhann Magnússon, bóndi á Hamri í Borgarhreppi, hóf undirbúning að stofnun sparisjóðs fyrir Mýrasýslu og skrifaði hann þá Sigurði Þórð- arsyni, sýslumanni í Arnarholti, bréf þar sem hann óskaði eftir því að sýslumaður legði tillögu um stofnun sparisjóðs sýslunnar fyrir sýslufund. Er Jóhann tal- inn aðalhvatamaður stofnunar Sparisjóðs Mýrasýslu en sýslu- nefndin ákvað í mars 1913 að stofna sparisjóð í eigu sýslunnar og á hennar ábyrgð. Tilgangur með stofnun sparisjóðsins var: „að gefa mönnum færi á að ávaxta fé sitt með hægu móti og á tryggan hátt, og á hinn bóginn að greiða fyrir viðskiptalífinu með því að veita peningalán, þeim er þess þurfa“, eins og segir í einu af mörgum bréfum Jó- hanns til sýslumanns og sýslu- nefndar Mýrasýslu á þessum tíma. Jóhann varð síðan fyrsti stjórnarformaður sparisjóðsins og Eðvarð Runólfsson fyrsti fé- hirðir. Fyrstu árin Um fyrstu ár Sparisjóðs Mýrasýslu segir í bókinni „Hundrað ár í Borgarnesi" eftir Jón Helgason ritstjóra sem út kom árið 1967: „Fyrst í stað var sparisjóðurinn vistaður í húsa- kynnum Kaupfélags Borgfirð- inga á Miðnesi („Salka"), enda var féhirðirinn starfsmaður þess. Tók hann til starfa 1. dag októbermánaðar 1913, og voru þann dag látnar af hendi fjórar sparisjóðsbækur. Fyrst var kom- ið þangað með aura lítils drengs, Sigurðar að nafni, er var einn margra barna Guðjóns Bach- manns vegaverkstjóra og Guð- rúnar, konu hans. Voru það fimm krónur, sem lagðar voru inn í nafni þessa fyrsta við- skiptavinar sparisjóðsins, lík- lega skírnargjöf. Sigurður Bachmann gerðist síðar á ævinni sjómaður og var lengi í þjónustu Eimskipaféiags íslands, en vinn- ur nú hjá Reykjavíkurhöfn. Sparisjóðsbókina sína á hann enn, og hefur hún verið notuð fram á þennan dag. Ekki áraði sem best hið fyrsta starfsár sparisjóðsins. Sumarið 1913 hafði verið votviðrasamt sunnan lands, svo að hey hrökt- ust stórlega, og vorið 1914 — harða vorið, sem enn er kallað — varð fellir víða um hérað. Voru ekki síst brögð að því í Mýra- sýslu. Hitt tók þó út yfir, hve fá lömb komust á legg. Sparisjóðn- um safnaðist ekki skjótt fé í slíku árferði, og var hann eigna- laus með öllu hin fyrstu ár og fjárráð afar naum. Á hálfgerð- um hrakhólum var hann líka, því að brátt varð hann að víkja úr þröngum húsakynnum kaupfé- lagsins. Var hann þá um hríð í Skuld, húsi Bjarna Guðjónsson- ar, en fór aftur í kaupfélagshús- ið að skömmum tíma liðnum. Sama haustið og þetta gerðist fluttist féhirðirinn, Eðvarð Run- ólfsson, til Englands, þar sem hann dó nokkrum árum síðar, og varð þá Magnús Jónsson féhirð- ir. Var hann síðan gjaldkeri sjóðsins og vörslumaður í meira en fjörutíu ár — allt fram á árið 1957. Haustið 1920, þegar hann hafði reist hús sitt á horni Eg- ilsgötu og Skúlagötu, var sjóður- inn fluttur þangað, og þar var sjóðurinn síðan undir sama þaki og forsjármaður hans fram á síðustu ár.“ Þrátt fyrir erfitt árferði á fyrstu árum sparisjóðsins dafn- aði hann jafnt og þétt. Árið 1917 nam spariféð, sem honum hafði verið trúað fyrir, nær hundrað og fimmtíu þúsund krónum, og fór eftir það sívaxandi. Eins og áður sagði var sparisjóðurinn til húsa í húsakynnum Kaupfélags Borgfirðinga og Skuld fyrstu ár- in en frá árinu 1920 var hann til húsa í húsi Magnúsar Jónssonar allt þar til hann flyst í eigið hús- næði að Borgarbraut 14 árið 1962. Þar hefur aðsetur hans verið síðan en viðbygging við húsið var tekin í notkun á árun- um 1982 og 1983. Þorvaldur T. Jónsson, bóndi í Hjarðarholti, tók við stjórnar- formennsku eftir fráfall Jó- hanns á Hamri árið 1950 og gegndi því embætti til dauða- dags 1968. Þá tók Sigurður Guð- brandsson, mjólkurbússtjóri í Borgarnesi, við formennskunni og gegndi henni til ársins 1981 er Hluti starfsfólks í afgreiðslusal sparisjóðsins. Fyrsta innleggið aurar lítils drengs

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.