Morgunblaðið - 15.11.1983, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 15.11.1983, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. NÓVEMBER 1983 45 Umboðsmenn í áætlunarhöfnum Lissabon Leixoes Bilbao Keller Mantima Lda., Praca D. Luis, 9 - 3, P-B. 2665, Lisbon. Sími: 669 156/9 Telex: 12817 P Burmesler & Co. Lda., Rua da Reboleira, 49, Porlo. Leixoes. Sími: 21789 Telex: 22735 P a Centramares S.L., J. Ajuriaguerra, 9-6, * Bitbao. Slmi: 445 8600 Telex: 32015 E Flutningur er okkar f ag EIMSKIP Sími 27100 Hjónaminning: Baldur Sigurðsson og Anna Helgadóttir Anna: F»dd 31. maí 1917 Dáin 23. okt 1983 Baldur: Fæddur 1. júní 1919 Dáin 2. nóvember 1979. Mér brá mikið þann 26. október, þegar faðir minn hringdi í mig út á sjó, þar sem ég var um borð í skipi á leið heim til íslands ásamt sonum mínum og hann sagði mér að Anna á Hóli, eins og við kölluð- um hana, væri dáin. Óteljandi minningar fylltu hug minn við þessar sorgarfréttir og mér fannst erfitt að trúa að þetta væri satt. Maður hennar, Baldur frændi minn, dó fyrir aðeins fjórum árum og nú Anna. Bæði á besta aldri horfin frá okkur svo skyndilega á svo fáum árum. Fráfall þeirra bar að með svipuðum hætti, hann var á söngæfingu en hún að fara á kvenfélagsfund. Þar var aðeins eitt fótmál milli lífs og dauða. Mig langar að minnast hennar og frænda míns með nokkrum orðum og þakka þeim fyrir margar ánægjustundir. Anna Helgadóttir fæddist á Þórustöðum í Kaupangssveit, dóttir hjónanna Þuríðar Pálsdótt- ur og Helga Stefánssonar. Al- systkini hennar eru Ragnar, Stef- án og Sigurpáll, einnig átti hún 3 hálfsystkini þau Örlyg, Jónínu Þuríði og Birgi. Á Þórustöðum er tvíbýli og þar ólust einnig upp frændsystkini hennar og var mjög kært á milli þessara systrabarna. Baldur Sigurðsson fæddist á Syðra-Hóli í Kaupangssveit, sonur hjónanna Emilíu Baldvinsdóttur og Sigurðar Sigurgeirssonar. Þar var mjög gestrisið heimili og þangað gott að sækja, enda oft margt um manninn. Systkini hans eru Sigurgeir, Anna, Snorri og Ragnar. Þau hjón ólust því upp í sömu fallegu sveitinni, sem var þeim báðum kær, og dvöldu þar til hinstu stundar. Þau bjuggu öll sín búskaparár á Syðra-Hóli og eignuðust þau þrjú vel gefin og myndarleg börn; Þuríði, Helga og Emilíu. Fjöl- skyldan á Syðra-Hóli var í alla tíð í miklu uppáhaldi hjá mér. Sem barn og unglingur dvaldi ég oft hjá þeim og á ég frá þeim tíma margar ógleymanlegar minningar. Þá var oft spilað, farið í nafnaleik, „getinn maður", sagðar sögur og að síðustu sungið mikið, enda fjöl- skyldan öll söngelsk mjög. Oft var þá kátt á hjalla og hlegið dátt. Á hverjum jólum fór ég með foreldr- um og systkinum í jólaboð fram í Hól og þá voru oft saman komin systir Baldurs, Anna og bræður með sínar fjölskyldur. Þá var líka oft tekið lagið og margt spjallað í góðum frændahópi. Þegar fara átti heim eftir ánægjulegt kvöld, var ég oft búin að spyrja Baldur og Önnu um leyfi til að gista, og var aldrei sagt nei við því. Þau hjón voru mjög virk í fé- lagsmálum sveitarinnar. Anna starfaði mikið í kvenfélaginu og var mjög sköruleg, ósérhlífin og hjálpsöm kona. Hún var skraf- hreifin og skemmtileg með smit- andi hlátur, alltaf hrein og bein og ákveðin í sínum skoðunum. Baidur var blíður maður, róleg- ur og prúðmenni mikið og lét ekki mikið yfir sér. Hann bjó yfir góðri kímnigáfu og glettni, og var oft smellinn í svörum. Þau voru sam- rýnd hjón, elskuðu tónlist og leik- list; léku í leikritum leikfélags sveitarinnar og sungu í kirkju- kórnum. Bæði höfðu þau fallega söngrödd. Síðustu átta ár hef ég búið með manni mínum og sonum í Dan- mörku, og hef því ekki komið þau ár í Syðra-Hól svo oft sem áður. En aldrei hef ég þó komið til Ak- ureyrar öðru vísi en koma fram í Hól, annað fannst mér óhugsandi. Alltaf voru móttökurnar jafn innilegar. Það var því mikið áfall, þegar pabbi hringdi í mig og sagði mér lát Baldurs. Mikill var missirinn fyrir Önnu og börnin ekki síst Emilíu, sem bjó heima. Þær mæðgur tvær héldu nú búskapnum áfram en stórt var skarðið sem Baldur skildi eftir sig. Barnabörnin misstu líka góðan og kæran afa, sem var mjög stoltur af þeim. Hann fékk því miður alltof stutt að njóta þeirra. Sólargeislarnir í lífi Önnu eftir lát Baldurs voru barnabörnin, en það var líka alltof stuttur timinn, sem hún fékk að njóta með þeim. Linda Hrönn, Valtýr Freyr, Ingi- björg, Baldur, Anna og litla Auð- rún hafa nú misst góða og elsku- lega ömmu og afa allt of ung. Ég er mjög þakklát fyrir að hafa haft þá stóru gleði að Anna og Baldur voru gestir á heimili mínu og fjölskyldu í tvo daga sumarið 1977. Að geta endurgoldið bara brot af öllum þeim góðu mót- tökum sem ég hafði hlotið yfir 30 ár á þeirra heimili, var mér ólýs- anieg gleði og mun ég ætíð minn- ast þessara daga með ánægju. Elsku Emilía, Þuríður, Alli, Helgi, Helga og bafnabörn, ég og fjölskylda mín vottum ykkur af heilum hug samúð okkar og biðj- um góðan Guð að vernda og styrkja ykkur á þessari erfiðu kveðjustund. Við biðjum Guð að blessa Önnu og vera henni leiðarljós á hinni nýju vegferð sem hún nú hefur hafið inn á æðri tilverusvið þar sem hún nú aftur hefur mikið saknaðan eiginmann sinn Baldur sér við hlið. Minningin um B^ldur og Önnu, þau góðu og glaðlegu hjón, munu lifa og hlýja okkur um hjartarætur. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Blessuð sé minning þeirra. Gullý Hanna Minning: Páll Arnar Ragnarsson Fæddur 17. mars 1954 Dáinn 16. september 1983 Harmþrungið hjarta mitt grætur, heitari tárum en falla af brá, því að vinurinn sá, sem ég albestan á, hann fór — og ég bið þess ei bætur. (Höf. Wennerberg, þýtt af Friðrik Hansen.) Ég kynntist Palla fyrir rúmum 2 árum, stuttu eftir okkar kynni lést bróðir hans, Ragnar. Palli tók það ákaflega nærri sér og varð honum oft hugsað um það, hvað kæmi eftir dauðann. Hann trúði því að til væri einhver tilgangur eftir lífið hér á jörðu. Palli var mjög tilfinningaríkur maður og gaf mikið öllum þeim er hann unni, og dáðist ég ævinlega að því hve mikla alúð hann lagði við bömin sín, Bryndísi Erlu og Gylfa Þór. Þau hafa misst mikið er faðir þeirra lést. Mér er mjög minnis- stæður ljóminn í augum hans og brosið er hann talaði um börnin sín. Ég þakka algóðum guði fyrir þessi stuttu kynni mín af Palla og kveð ég hann með þeim orðum, að mikill tilgangur hlýtur að vera með láti hans. Votta ég öllum að- standendum og vinum hans inni- lega samúð mína. H. Siglingaáætlun frá frá frá Lissabon Leixoes Bilbao M.s. MÚLAFOSS 14/5 16/5 18/5 M.s. MÚLAFOSS 9/6 10/6 06/6 M.s. SKEIÐSFOSS 4/7 5/7 7/7 M.s. SKEIÐSFOSS 18/8 19/8 22/8 Nánari upplýsingar í meginlandsdeildinni. Ný lönd og nýjar hafnir í bejnt samband við ísland Nú hafa tvö ný lönd til viðbótar bæst í hóp reglubundinna viðkomustaða Eimskips. Siglt verður mánaðarlega til Lissabon og Leixoes í Portúgal og til Bilbao á Spáni. Sérstök þjón- ustuhöfn verðureinnig starfrækt í Barcelona og um leiðeröruggog reglubundin flutnings- þjónusta milli íslands, Spánar og Portúgal orðin að veruleika. Þannig opnum við ís- lenskum inn- og útflytjendum stóraukin tæki- færi til nýrraog hagkvæmra viðskiptasambanda. Umboðsmaður í þjónustuhöfn Barcelona Comercial Combalia - Sagrera S.A. . Via Layetana 15 Barcelona - 3 Sími: 319 0712 Telex: 54704 E

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.