Morgunblaðið - 01.12.1983, Síða 6

Morgunblaðið - 01.12.1983, Síða 6
46 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 1983 Kristinn Guðnason hf. 50 ára í dag: Áðdragandinn að stofnun fyrir- tækisins var áhugi föður míns á sjálfstæðum atvinnurekstri — segir Ólafur Kristinsson framkvæmdastjóri „Aödragandinn ad stofnun fyrirtækisins er í raun sá, aö faöir minn haföi áhuga á aö koma á fót eigin atvinnurekstri, en hann hafði starfað um árabil sem bifreiðastjóri og var meðal ann- ars einn af stofnendum leigubflastöðvarinnar BSR,“ sagði Ólafur Kristinsson, framkvæmd- astjóri Kristins Guðnasonar hf., í samtali við Morgunblaðið, í tilefni þess, að í dag, 1. des- ember, eru liðin 50 ár frá því að Kristinn Guðnason stofnaði fyrirtækið í Reykjavík, eða 1. desember 1933. Fyrirtækið var til húsa í kjallara hússins númer 27 við Klapparstíg fyrstu árin. Kristinn byggði nýtt hús á lóðinni Klapparstígur 25—27 á árunum 1956—1958. Byrjað í kjallara hússins númer 27 við Klapparstíg „í fyrstu fékk faðir minn til af- nota húsnæði í kjallara hússins númer 27 við Klapparstíg, en hann opnaði þar varahluta- og þjón- ustuverzlun fyrir bíleigendur, sem fór fjölgandi á þessum árum. í þessu sambandi ■'"'er reyndar skemmtilegt að rifja upp, að á ár- inu 1934 voru bílar á íslandi 1.559 taisins. Mörgum þótti það því heldur mikil bjartsýni í gamla manninum, að setja á stofn verzl- un og þjónustu við bíleigendur," sagði Ólafur. Vörubirgðirnar námu tvenn- um árslaunum 1934 Ólafur sagði í samtalinu, að starfsemin hafi að sjálfsögðu gengið upp og ofan í byrjun, en Kristinn hafi hins vegar verið ákveðinn í að láta reyna á það til fullnustu hvort hægt væri að standa við starfsemi af þessu tagi. „Sem dæmi um hversu lítið um- fangið var í raun í upphafi get ég nefnt, að heildarvörubirgðir í lok ársins 1934 voru svipaðar og sem nemur tvennum árslaunum starfs- manna. Við birgðatalningu reynd- ust birgðir vera að verðmæti 7.028,50 krónur, en í þá daga voru timalaun starfsmanna um 1,20 krónur, sem svarar til þess að árs- laun starfsmanna hafi verið á bil- inu 3—4.000 krónur.“ Alhliöa varahlutaþjónusta „Fyrirtækið veitti þegar í upp- hafi alhliða þjónustu við bíleig- endur. Á boðstólum voru allir helztu varahlutir í bíla, auk þess sem alhliða þjónusta var veitt við bíleigendur. Sem dæmi um þær vörur, sem fyrirtækið bauð, get ég nefnt fjaðrir, öxla, platínur, bolta, rær, rafge.vma og margt fleira. Al- menn verzlun var því uppistaðan í rekstrinum allt frá fyrstu tíð,“ sagði Ólafur. Mikil höft Aðspurður sagði Ólafur, að það sem hefði helzt hamlað starfsemi fyrirtækisins á þessum tíma hafi verið miklar hömlur á innflutn- ings- og gjaldeyrisleyfum. „Það voru í raun mikil höft við lýði hér á landi á þessum tíma. Innflutn- ingsverziunin bjó í raun við mikil höft allt fram til ársins 1960, þeg- ar innflutningur var gefinn frjáls. Annars er skemmtilegt að rifja upp sögu í þessu sambandi. Til stóð að svipta fyrirtækið öllum leyfum til innflutnings, en þá stóðu leigubifreiðastjórar upp og söfnuðu undirskriftum, þar sem þess var krafizt að Kristinn Guð- nason fengi að halda áfram inn- flutningi og starfsemi sinni. Hann veitti bíleigendum í raun ómetan- lega þjónustu. Sem betur fer urðu stjórnvöld við þessum kröfum og fyrirtækið hélt áfram starfsemi sinni." Brotið blað „Það má segja, að hægur stíg- andi hafi verið í starfi fyrirtækis- ins fram til ársins 1952, en þá var brotið ákveðið blað í sögu þess. Faðir minn tók þá ákvörðun að kaupa húsin númer 25 og 27 við Klapparstíg, en við það rýmkaðist verulega um alla starfsemi fyrir- tækisins. Hann fór fljótlega að hyggja að nýbyggingu á lóðunum og hófst reyndar handa á árinu 1956. Við fluttum síðan inn í hið nýja húsnæði á 25 ára afmæli fyrirtækisins árið 1958. Það var gríðarlegur munur að vera með alla starfsemina í nýju og rúm- góðu húsnæði," sagði Olafur. Starfsmenn nú 24 Það kom fram í samtalinu við Ólaf Kristinsson að hann hóf störf hjá föður sínum á árinu 1951. „Á þessum árum voru starfsmenn fyrirtækisins á bilinu 2—3, en í dag starfa hjá okkur 24 starfs- menn í föstu starfi, þannig að veruleg aukning hefur orðið á um- fangi starfseminnar síðan, en það er auðvitað í samhengi við þær miklu breytingar, sem orðið hafa í þjóðfélaginu síðan." Mest verzlað við Bandaríkin Ólafur sagði aðspurður, að lang- stærstur hluti viðskipta fyrirtæk- isins hefði verið við Bandaríkin lengi framan af. „Á þessu tímabili komu nánast allir bílar, sem hingað voru fluttir, frá Bandaríkj- unum, sem leiddi til þess að vara- hlutir voru fengnir frá bandarísk- um verksmiðjum. Við komumst fljótlega í samband við fyrirtæki, sem heitir John Prior, en það var í sambandi við nokkrar helztu verk- smiðjur Bandaríkjanna. Af sér- stökum vörutegundum frá fyrri tíð er mér sérstaklega minnis- stætt, þegar við á árunum 1945—1947 fluttum inn mikið magn af vélsturtum fyrir vörubíla. Þá komumst við snemma í sam- band við hið þekkta keðjufyrir- tæki Weed. Við höfum allar götur síðan átt mjög gott samstarf við þá og viðskiptin fara vaxandi ár frá ári. Stökkbreyting „Það má síðan segja, að stökkbreyting hafi orðið á starf- seminni árið 1960, þegar almennur innflutningur var gefinn frjáls. Þá fyrst fór fyrirtækið að þróast og stækka fyrir alvöru. Við komumst í samband við fjölmörg fyrirtæki í Evrópu, sérstaklega í Bretlandi og Vestur-Þýzkalandi. Reyndar hafði sú breyting átt sér stað almennt í bílamálum, að evrúpskir bílar komu í mjög auknum mæli inn á markað hér, sem leiddi af sér aukna þörf á varahlutakaupum frá Evrópu. Af einstökum fyrir- Kristinn Guðnason, stofnandi fyrir- tækisins. Kristinn í verzlun fyrirtækisins að Klapparstíg 25—27. tækjum, sem við komumst í sam- band við á þessum árum og erum í viðskiptum við enn í dag, get ég nefnt Crossland, sem framleiðir olíusíur. Við erum í miklum við- skiptum við þá. Þá má nefna Holds, sem framleiðir mikið af kemískum efnum og loks má nefna Qinton-Hazell, sem fram- leiðir ýmsa varahluti í slitfleti," sagði Ólafur. Bílainnflutningur Kristinn Guðnason hf. er sjálf- sagt þekktastur fyrir bílainnflutn- ing í dag, en fyrirtækið hefur um- boð fyrir hin þekktu fyrirtæki BMW í Vestur-Þýzkalandi og Ren- ault í Frakklandi. Ólafur var því inntur eftir því hvenær þau við- skipti hefðu hafizt. „Við sóttum bílasýningu í Múnchen í árslok 1963. Þar tókum við upp viðræður við BMW-menn, sem leiddu til þess að við tókum við umboði fyr- irtækisins hér á landi og hófum innflutning þegar í ársbyrjun 1964, en hann hefur staðið óslitið síðan. Það er síðan ekki fyrr en á árinu 1970, að við komumst í sam- band við Renault og tókum við því umboði. Bílainnflutningur og bein þjónusta þar að lútandi hefur allt frá þessum tíma farið vaxandi, sem þáttur í heildarstarfsemi fyr- irtækisins, þó alveg sérstaklega hin allra síðustu ár,“ sagði Ólafur. Aðspurður sagði Ólafur að hlut- ur bílainnflutningsins og þjónust- unnar í heildarveltu fyrirtækisins væri sennilega í námunda við 75% í dag. „Frá því að við hófum inn- flutning á árinu 1964 höfum við flutt inn liðlega 1.800 bíla af þess- um gerðum. Langmest fluttum við inn á árunum 1981 og 1982, þegar vestur-þýzka markið varð mjög hagstætt í viðskiptum við ísland og innflutningur á bílum frá BMW jókst gríðarlega." Álagningarmál í ólestri Ólafur sagði að fyrirtækið hefði hafið almenna verkstæðisþjónustu á árinu 1970, í kjölfar þess að Kristinn Guðnason hf. tók við um- boðinu fyrir Renault. „Það er í raun ógerlegt að vera með bíla- umboð án þess að vera með verk- stæði. Hins vegar er þannig búið að bílaverkstæðum hér á landi, að það er nær ógerningur að reka þau á eðlilegan hátt. Álagningarmál eru í algjörum ólestri. Okkur er

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.