Morgunblaðið - 06.12.1983, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 06.12.1983, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 1983 55 flugu á taumnum hjá mér, Hairy Mary, en hún kemur næst á eftir Blue Charm í mínum huga. Þær eru mjög líkar flugur. Það var svo ekkert annað en það, að þegar ég var kominn mjög neðarlega með köstin, sá ég hryggja fyrir laxi og það var þrifið í úti í miðri á. Lax- inn dreifir sér mikið þarna og liggur gjarnan undir klettabríkum sem eru alveg að vestan, en veitt er af austurbakkanum. Ég hélt áfram og skömmu síðar var aftur þrifið í, að þessu sinni alveg út undir brík. Mér þykir veiðilegt að kasta yfir á bríkina á þessum stað og láta fluguna skjótast fram af henni, það gerði ég að þessu sinni og það var þrifið í, en ekki gekk rófan. — Ég sá að hann vildi þessa flugu, þannig að það var ekkert annað að gera en að halda áfram og tveimur köstum síðar var tekið svo um munaði. Þetta var 17 punda hængur, nokkuð leginn og ég var tæpar 20 mínútur að ná honum. Það var frekar skammur tími með stóran fisk, en það er óhætt að segja að hann hafi haldið meira til ofan vatns en undir. Þvílík loftköst og djöfulgangur, ég man ekki eftir laxi sem hefur sýnt önnur eins tilþrif, enda sprengdi hann sig. Flugan valin. „Ættu að prófa... “ — Mér dettur ekki í hug að vera með fordóma um hvað menn kjósa að nota sem agn, en það vita þeir sem reynt hafa, að fluguveiðin er miklu meira sport heldur en maðkveiðin. Hins vegar getur ver- ið erfitt að skipta um, því flestir byrja á maðkveiðinni og hafa lítið sjálfstraust gagnvart flugunni. En menn ættu að prófa að fara hreinlega maðkalausir í veiðiferð- ina meðan þeir eru að venja sig á þetta og eiga ekki önnur úrræði en fluguna. Það kostar þolinmæði en þeir gera ekki annað er þeir hafa náð tökum á fluguveiðinni. Þetta þarf ekki mikið, eina 9 feta graf- ítstöng, hjól, línu og flugur. Eg á að vísu varastöng sem ég hef allt- af með, en meira þarf ekki. Og ég endurtek, ég er fordómalaus í þessum efnum, en vil aðeins benda mönnum á, að þeir skemmta sér miklu betur ef þeir gefa flugunni möguleika. — Svo er þetta miklu meira spennandi. Þegar búið er að renna maðki upp í lax og hann er búinn að gleypa öngulinn, þá er hann dauðans matur nema eitthvert einstakt slys eða uppákoma komi til. En sá laxinn á meiri möguleika sem tekið hefur litla flugu, svo ekki sé meira sagt. Og helming allra stórlaxa missir maður, það er staðreynd. Kenningar — Menn eru með ýmsar kenn- ingar um laxinn og hegðun hans og ég er ekkert undanskilinn, með alls kyns grillur um þennan merkilega fisk. Einu merkilegu at- viki man ég eftir, en það gerðist við brúna á Hrútafjarðará. Rétt fyrir neðan neðri kant brúarinnar lá hópur af löxum, á sama stað og sterki laxinn tók hjá mér um árið og ég skrallaði fyrir áhorfendur í margar klukkustundir áður en laxinn gafst upp eins og Svart- höfði upplýsti. Þetta var síðdegis í björtu og fallegu veðri. Tómas Arnason var með mér í ánni, en hann hafði brugðið sér eitthvað frá og meðan ég beið hans dundaði ég við þessa laxa og reyndi að freista þeirra. Ég skipti oft um flugur og reyndi allt mögulegt, en ekkert gekk. — Ég var farinn að hugsa með mér að þetta þýddi ekkert, því í hvert skipti sem þungir bílar óku yfir brúna, sáldraðist möi og smá- grjót yfir ána þar sem laxarnir lágu og datt mér ekki annað í hug en að það væri meira en nóg til þess að þeir myndu ekki hafa áhuga á því að bíta á. En þegar ég var hættur og var að sniglast und- ir brúnni, horfði út í ána og var um allt annað að hugsa en laxana, þá byrjuðu þeir allt í einu að kafa upp, eins og tökufiskar gera iðu- lega. Ég kom mér þvi fyrir aftur og setti þarna í fjóra laxa í röð. Þeir tóku grannt og þrír hristu sig af, en það breytti ekki því sem gerst hafði. Þama sá ég, að laxinn getur vanist öllum aðstæðum án þess að það komi niður á töku- skapinu. — Ég hef ekki orðið þess var, að ég hafi veitt minna eftir að ég smækkaði flugur þær sem ég nota fyrir nokkrum árum, þvert á móti. Þess vegna og einnig af fleiri sök- um, er það mín kenning, að laxinn eigi betur með að snúa úr sér fluguvopn eftir því sem þau eru stærri. Litlu krókarnir bíta sig helviti vel í kjaftinn á laxinum og þurfa til þess miklu minna átak. En það er með mig eins og aðra veiðimenn, maður er uppfullur af bábiljum, hver veiðimaður hefur sína trú fyrir sig og má það. Eins er með mig. — Ég er stangaveiðimaður og ég veiði eingöngu á flugu. En ég telst varla aflamaður. Ég hef farið niður í 9 laxa á sumri, en líka sett í 15 laxa í beit í sama hylnum í Hrútunni og náð 14. Þrír þeirra tóku Black Doctor númer 9, en hinir 11 tóku eftirlætið, Blue Charm nr. 10. Það er langt síðan Blue Charm tók að skipa hjá mér þann sess sem hún gerir í dag, og ég er þeirrar skoðunar að það sé alltaf hægt að beita Blue Charm nr. 10. En það næst ekkert á neina flugu í mórauðu vatni, nema á þessar ógeðslegu túbur sem nú eru mikið notaðar. Og ég uni mér hvergi betur en við Hrútafjarðará, það er eins og af vana, því að segja má að ég hafi næstum alist upp á bökkum hennar. Ég fór fyrst í hana til veiða 27 ára gamall, hef stundað hana síðan og er nú á sextugsaldri. — Hrútan er lítil á og viðkvæm. Hún er stutt og ekki laxamörg. Ég er hræddur um að stórveiðimenn, þeir sem meta veiðitúrinn í laxa- fjölda og kílógrömmum, myndu ekki vera að snudda við hana. En mér finnst hvergi betra að vera. Skuldir sveitarfé- laganna hafa aukist um 5—600 — segir Alexander Stefánsson félags- málaráðherra BorgarneNÍ, 28. nóvember. „Eg geri mér Ijóst að almenningur í landinu treystir því að álögur sveit- arfélaga á næsta ári verði ekki til að þyngja skattbyröi umfram þau mörk sem ríkisstjórnin hefur sett í efna- hagsstefnu. Sveitarfélögin geta haft útslitaáhrif á skattbyrði beinna skatta á næsta ári. Þess vegna verð- ur að leggja höfuðáherslu á að sveit- arfélögin fylgi stefnu ríkisstjórnar- innar með beinu aðhaldi í rekstri, samdrætti í framkvæmdum og fjár- festingaráformum á næsta ári,“ sagði Alexander Stefánsson félags- málaráðherra í ávarpi á aðalfundi milljónir Samtaka sveitarfélaga i Vestur- landskjördæmi sem haldinn var í Borgarnesi um helgina. Sagðist félagsmálaráðherra þó vilja komast hjá því að setja hömlur á sveitarfélögin í notkun tekjustofna við þessar aðstæður en vildi treysta sveitarstjórnar- mönnum til að meta aðstæður í efnahagsvanda þjóðarinnar og stilla álögum i hóf á næsta ári. Hins vegar sagði félagsmálaráð- herra að taka yrði mið af því að fjárhagsstaða sveitarfélaganna i lok þessa árs væri mjög veik. Sagði hann að miðað við þær upp- lýsingar sem hann hefði nýjastar, hefðu skuldir sveitarfélaganna aukist um 500—600 milljónir á yf- irstandandi ári. HBj. „Þeir settu svip á öldina“ Þættír um 16 íslenzka stjórnmálaleiðtoga Iðunn hefur gefið út bókina Þeir settu svip á öldina, þætti um sextán íslenska stjórnmálaleiðtoga. Sigurð- ur A. Magnússon rithöfundur hefur annast ritstjórn verksins og samið formála. í bókinni er sagt frá flest- um helstu forustumönnum í íslensk- um stjórnmálum allt frá aldamótum og fram um 1970. Höfundar þátt- anna eru jafnmargir foringjunum. Bókin er prýdd myndum og aftast niðjatal sem Guðjón Friðriksson hef- ur tekið saman. Höfundar og viðfangsefni þeirra eru sem hér segir: Jón Guðnason dósent ritar um Skúla Thorodd- sen, Sigurður Lindal prófessor um Jón Magnússon, Sigurður A. Magnússon rithöfundur um Hann- es Hafstein, Gunnar Thoroddsen fyrrv. forsætisráðherra um Jón Þorláksson, Jón Baldvin Hanni- balsson alþingismaður um Jón Baldvinsson, Þórarinn Þórarins- son ritstjóri um Jónas Jónsson, Pétur Pétursson þulur um ólaf Friðriksson, Andrés Kristjánsson rithöfundur um Tryggva Þórhalls- son, Jónas Haralz bankastjóri um Ólaf Thors, Gils Guðmundsson rithöfundur um Héðin Valdimars- son, Vilhjálmur Hjálmarsson fyrrv. ráðherra um Hermann Jón- asson, Gísli Ásmundsson kennari um Brynjólf Bjarnason, Haukur Helgason hagfræðingur um Einar Olgeirsson, Helgi Már Arthursson blaðamaður um Hannibal Valdi- marsson, Jóhannes Nordal seðla- bankastjóri um Bjarna Bene- diktsson og Svavar Gestsson al- þingismaður um Magnús Kjart- ansson. Eins og af þessari upptalningu má sjá er hér gerð grein fyrir flestum þeim leiðtogum í íslensku stjórnmálalífi aldarinnar sem áhrifaríkastir voru. Hér er í senn lýst æviferli þeirra og persónu- gerð og jafnframt varpað ljósi á þær þjóðfélagsaðstæður sem þeir störfuðu við. Höfundar greinanna eru allir gjörkunnugir íslenskum ÍSLENSKIR STJÓBNMÁLAMENN ,, ÞEIRSETRJSVIPÁ OLDJNA stjórnmálum fyrr og síðar og ýms- ir byggja auk þess á nánum per- sónulegum kynnum. Ritstjóri bók- arinnar, Sigurður A. Magnússon, kemst svo að orði í formála að greinarnar séu „hnýsilegar heim- ildir bæði um viðfangsefnin og eins höfundana sjálfa sem óhjá- kvæmilega skilgreina sjálfa sig í hlutfalli við viðfangsefni sín“. Þeir settu svip á öldina er lið- lega þrjú hundruð síðna bók. Oddi prentaði. Enginn veit sín örlög Saga eftir Evi Bögenæs í útgáfu Idunnar Iðunn hefur gefið út nýja bók eftir hinn vinsæla norska höfund Evi -EVI B0GENÆS- Bögenæs. Nefnist hún Enginn veit sín örlög. Eftir Evi Bögenæs hafa komið út á íslensku allmargar sögur og notið vinsælda en sögur hennar eru einkum við hæfi ungra stúlkna. Efni nýju sögunnar er á þá leið, að Nanna, aðalpersónan, er tvítug stúlka og trúlofuð Eiríki sem er tíu árum eldri en hún. Nanna er lífsglöð en Eiríkur ráðsettur og lætur tilfinningarnar aldrei ráða ferðinni. Honum finnst unga fólk- ið of laust í rásinni, en vonar að Nanna muni stillast áður en þau giftast. Það á að verða að ári liðnu, en þangað til ætlar Nanna að vinna á skrifstofu. Þar eignast hún nýja vinkonu og hittir hjá henni gamlan vin sinn, Níels ... Enginn veit sín örlög er 100 síðna bók. Margrét Jónsdóttir þýddi söguna. Oddi prentaði. Brian Pilkington gerði kápumynd.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.