Morgunblaðið - 06.12.1983, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 06.12.1983, Blaðsíða 12
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 1983 60 Tölvuspil Vorum aö fá öll nýjustu tölvuspilin. Aldrei hagstæöara verö. Sérverslun Ra(sýn hf.( tðivuspii Síðumúla 8, sfml 32148 Því eldd aó gefa okkur sjálfum , mtastulta i blöndunartækió í jólagjöf? = HÉÐINN = SELJAVEGI 2, REYKJAVÍK. ÞVÍ EKKI AÐ FÁ ÞÆR HEIMSENDAR? VERJURNAR FRA AMOR SVÍKJA ENGAN! 16 stk. Long love og 24 stk. Color set. Samtals 40 stk. fyrir aðeins kr. 340,- Sendum í póstkröfu um land allt. Vinsamlegast sendið mér í póstkröfu: ____stk. Amor, samtals kr_______________ Nafn:_____________________________________ Heimili:___________________________________ Sveitarfélag:----------------------------— Sendist til Póstval, Pósthólf 91 33, 1 29 Reykjavík. Borgarstjórn: „Erfitt að spá um hvenær þörfinni verður fullnægt44 — sagði Páll Gíslason við umræður um húsnæðisvanda aldraðra „Þó að enn hafi ekki verid geng- ið frá fjárhagsáætlun horgarinnar fyrir næsta ár má reikna með að um 54 milljónum verði varið til framkvæmda við vistheimili fyrir aldraða í borginni, þar af um 45 milljónum króna til byggingar Seljahlíðar. Áætlað er að þeirri byggingu verði lokið í árslok 1985. Það er rétt að þörfin fyrir húsnæði handa öldruðum er mikil, en erfitt er að spá um hvenær þeirri þörf verður fullnægt," sagði Páll Gísla- son, formaður byggingarnefndar íbúða í þágu aldraðra, við umræð- ur í borgarstjórn á fimmtudag um fyrirspurn frá borgarfulltrúum Al- þýðuhandalagsins um hvaða ráða- gerðir meirihlutinn hefði í huga vegna skorts á leiguhúsnæði fyrir aldraða í borginni. Samkvæmt upplýsingum frá ellimáladeild borgarinnar eru nú 919 einstakl- ingar og 123 hjón á biðlista vegna leiguhúsnæðis fyrir aldraða. Þar af 132 einstaklingar og 16 hjón á aldrinum 86—100 ára. „Borgarfulltrúar hafa verið samdóma um að húsnæði fyrir aldraða væri forgangsverkefni á sviði fjárfestinga og fram- kvæmda hjá borginni. 218 ein- staklingar búa nú á 5 dvalar- stofnunum á vegum Reykja- víkurborgar og 40 íbúðir á veg- um félagsmálastofnunar eru ætlaðar lífeyrisþegum að Aust- urbrún 6. En þörf er fyrir aukið átak í þessum málum. f fyrra kom ég með tillögu um að fleiri aðilar, m.a. félagasamtök, yrðu fengnir til samvinnu við borgina á þessu sviði. Þegar er fordæmi fyrir slíkri samvinnu, þar sem er fyrirhuguð bygging söluibúða fyrir aldraða í Nýja miðbænum skv. samningi við Verslunar- mannafélag Reykjavíkur. Þegar eru samningar komnir á rekspöl við Samtök aldraðra og Ar- mannsfell um byggingu fyrir aldraða við Bólstaðarhiíð. Á veg- um borgarinnar eru um 103 rúm á hjúkrunardeildum fyrir aldr- aða á fjórum stöðum í borginni og í febrúar nk. verða 29 rúm tekin í notkun i B-álmunni, en þar eru 29 rúm fyrir. Minna má á dagdeildir borgarinnar fyrir aidraða á Dalbraut og í Hafnar- búðum, en fleiri aðilar hafa haf- ið samsvarandi rekstur í borg- inni, m.a. Rauði krossinn. Það verður haldið áfram að byggja þjónustuíbúðir fyrir aldraða á vegum Reykjavíkur- borgar en það er mjög mikilvægt að þjónustumiðstöðvar verði vítt og breitt um borgina, og þjóni ekki aðeins þeim sem þar búa, heldur líka öidruðu fólki sem býr þar í nágrenninu," sagði Páll Gíslason. Guðrún Ágústsdóttir, borgar- fulltrúi Alþýðubandalagsins, sagði m.a. að samningar við aðra aðila um byggingu íbúða fyrir aldraða þýddu ekki að borgin gæti haldið að sér höndum í þessu efni. Aðeins tveir einstakl- ingar sem væru nú á biðlista, fengju inni í íbúðum sem byggð- ar verða í samvinnu við VR. Gerður Steinþórsdóttir, borg- arfulltrúi Framsóknarflokksins, sagði að ástæða væri til að hætta þeim flottræfilshætti sem ríkt hefði við byggingar fyrir aldraða á vegum borgarinnar síðastliðin ár, og líkti þeim við fimm stjörnu hótel. Þörfin fyrir húsnæði handa öldruðum væri mikil og bæri að nýta fjármagn- ið betur og byggja ódýrari bygg- ingar í framtíðinni. Nefndi hún tillögu sem fram hefði komið um sérstakan nefskatt á borgarbúa til að hraða þessu verkefni. í máli Guðrúnar Jónsdóttur, borgarfulltrúa kvennaframboðs- ins, kom fram að hún teidi enga ■ Hvað er meðferð? í bókinni Furðuheimar alkóhóiismans, er hulunni svipt af starfsháttum AA. Höfundurinn, Steinar Guömundsson fer á kostum f umfjöllun sinni um meöferó og I hverju hún sé fólgin. Bókin kostar aðeins 500 kr. og er hægt aó fá hana senda gegn póstkröfu (ekkert kröfugjald). Hringió I sima 33370 eöa fyllió út meö- fylgjandi mióa og sendió okkur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.