Morgunblaðið - 06.12.1983, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 06.12.1983, Blaðsíða 8
56 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 1983 MEMOREX DISKETTUR Þurrkublöð og armar fyrir flesta bíla. Rúöu- sprautudælur. Þurrku- mótorar, 12—24 v, fyrir jeppa og tæki. SIEMENS Hinar fjölhæfu SIEMENS ELDA VÉLAR sameina tvær þekktar bökun- araöferöir: • meö yfir- og undirhita • meö blæstri auk orkusparandi glóöar- steikingar meö umloftun í lok- uöum ofni. Vönduö og stílhrein v-þýsk gæöavara, sem tryggir ára- tuga endingu. Smith & Norland hf., Nóatúni 4, sími 28300. VAKA er nú að senda á markað óvenjulega bók um landsfrsga per- sónu, Ella — hinn eina sanna, og vandamenn hans. Hér er um að rseða fólk, sem flestir eða allir telja sig þekkja, en enginn veit í rauninni fyrir víst hvar er búsett. Grunur leik- ur jafnvei á að Elli sé ekki neinn einn maður, heldur samnefnari fyrir marga, segir í frétt frá útgáfunni. Höfundar bókarinnar eru þær Edda Björgvinsdóttir og Helga Thorberg, sem urðu í fyrsta sæti i nýlegri hlustendakönnun Útvarps- ins með þátt sinn „Á tali“. Bók þeirra er byggð á þessum vinsælu þáttum og efnið lagað að kröfum annars miðils, auk þess sem það er skreytt myndum Ragnheiðar Kristjánsdóttur. Þær Edda og Helga draga í bók- inni upp skemmtilegar mannlífs- myndir, sem flestir kannast við og nota til þess viðtalsformið, sem þær hafa beitt með svo góðum árangri í útvarpsþáttunum. Þykir efnið ekki síður njóta sín á prenti en á öldum ljósvakans. Þrjár „gægjubækur“ börn frá AB íyrir ALMENNA bókafélagið hefur sent frá sér þrjár bækur fyrir unga lesend- ur í flokki svonefndra gægjubóka, en þær eru þannig að á annarri hverri blaðsíðu er spurning viðkomandi því efni, sem bókin fjallar um, en á síð- unni á móti er mynd sem snertir spurninguna og lítið spjald sem fletta má upp og undir spjaldinu er svar við spurningunni. Gægjubækurnar sam- eina því það tvennt að vera skemmti- legar og veita byrjandanum undir- stöðufræðslu í ýmsum hagnýtum efn- um. Þessar bækur eru eftir Bretann Eric Hill, sem er höfundur vinsælla barnabóka. Gægjubækurnar eru þessar: Dýrin. Spurningar i henni fjalla eingöngu um dýr. Dæmi um spurn- ingu: Hvað er stórt, hvítt og loðið og á heima í heimskautalöndum? Myndin á móti er af hafísjaka und- ir fullu tungli. Fletti maður upp spjaldinu kemur í ljós mynd af ís- birni og nafnið ísbjörninn. Hver gerir hvað. Hún fjallar um nöfn á ýmsum starfshópum. Dæmi: Hver aðstoðar farþega í flugvél? Á blaðsíðunni á móti er mynd af far- þegum í flugvél, en undir spjaldinu stendur: Flugfreyja, og þar er líka mynd af flugfreyju. Þriðja gægjubókin nefnist And- heiti, og sést af nafninu um hvað hún fjallar: Dæmi: Hvert er and- heitið við digur? Svarið undir spjaldinu er vitaskuld mjór, og á opnunni eru myndir af nílhesti, en undir spjaldinu mynd af slöngu. Hver gægjubók er 20 bls. að stærð. Leiftur frá liðn- um árum, 3. bindi MorfiiDbUAiA/ólafer K. Magnónon. Höfundar bókarinnar um Ella, þær Edda Björgvinsdóttir og Helga Thorberg, skörtuðu sínu fegursta er þær kynntu útkomu bókarinnar. Bók um Ella og fjölskyldu hans Hörpuútgáfan á Akranesi sendir nú frá sér 3. bókina í vinsæla bókaflokknum Leiftur frá liðnum árum. í frétt frá útgáfunni segir m.a.: Bókaflokkurinn Leiftur frá liðn- um árum hefur hlotið mjög góðar viðtökur. í safni þessu eru fjöl- breyttar frásagnir. Sagt er frá margháttuðum þjóðlegum fróð- leik, reimleikum, dulrænum at- burðum, skyggnu fólki, skips- ströndum, skaðaveðrum, sérstæð- um hjúskaparmálum o.fl. Nöfn eftirtalinna þátta gefa hugmynd um hið fjölbreytta efni: Erfiðleikar á Atlantshafi, Fóta- lausa Gunna, Örlagadraumur, Köld er sjávardrífa, Álfkonuberg, Var það Sólheimamóri?, Svona fór um sjóferð þá, Fyrsta símaskákin mín, Réttvísandi kompás, Hrakn- ingar hjá Skálanesbjargi, Ein- kennileg notkun kaffis, Læknast í svefni, Leiði ókunna sjómannsins í Leiftur ftá liðnum árum Selárdal. Leiftur frá liðnum árum 3 er 215 bls. Prentuð og bundin í Prent- verki Akraness hf. Káputeikningu gerði Prisma, Björn H. Jónsson. Maðurinn, sem féll til jarðar Framtíðarsaga eftir Walter Tevis ,U IÐUNN hefur gefið út skáldsöguna Maðurinn sem féll til jarðar eftir bandaríska höfundinn Walter Tevis. Þorsteinn Antonsson þýddi. Saga þessi segir frá manni — sem raunar var enginn maður — sem kemur til jarðar frá annarri stjörnu, vitjar jarðarbúa utan úr geimnum og vill beina lífi þeirra í hollari farvegi. „Hæfileikar hans gerðu honum ótal vegi færa,“ segir í forlags- kynningu á kápubaki. „Hann var veiklulegur og sérvitur, sem fólk setti yfirleitt ekki fyrir sig. En einn eiginleiki varð honum alvarlega að fótakefli: Hann hafði svo jákvæðar eða mannlegar tilfinningar að flestir hefðu bælt þær umsvifa- laust niður.“ Maðurinn sem féll til jarðar skipt- ist í þrjá hluta sem eru afmarkaðir í tíma. Fyrsti hluti, Ikarus á niður- leið, hefst árið 1985, annar hluti, Hrokkinskinni, árið 1988, hinn þriðji, Ikarus drukknar, árið 1990. — Sagan er víðkunn og hefur verið kvikmynduð. í þeirri mynd fór David Bowie með aðalhlutverkið. Maðurinn sem féll til jarðar er 200 blaðsíðna bók. Oddi prentaði. Fé sem notað er til að fyrirbyggja neyzlu vímuefna er vel varið ------ í‘ EWC Htu \ 1 VWo N E«C HK.L í MAÍ sl. sendi starfshópur um vímuefnamál, sem starfar á vegum Samstarfsnefndar um unglingamál, frá sér greinagerð um vímuefna- neyslu unglinga á höfuðborgarsvæð- inu. í framhaldi af þeim upplýsing- ifm sem þar koma fram og öðru því sem fram hefur komið, bæði í ræðu og riti um þessi mál að undanförnu, telur starfshópurinn brýnt að til skjótra og róttækra aðgerða verði gripið til að bregðast við vandanum og hindra frekari þróun hans í land- inu. „ f þeim tilgangi sendi starfshóp- urinn í nóv. sl. frá sér tillögu um aðgerðir til fræðsluráðs, æsku- lýðsráðs, félagsmálaráðs og borg- arráðs Reykjavíkur, þar sem með- al annars er lagt til eftirfarandi: — Að nú þegar verði ráðinn starfsmaður til að kanna efni og umfang vímuefnaneyslu meðal unglinga í Reykjavík. - Að útideild Reykjavíkur verði efld. - Að ráðinn verði starfsmaður er vinni að stuðningsúrræðum fyrir þá unglinga sem nú þegar hafa ánetjast vímugjöfum. - Að fjármagni verði varið til út- gáfu og vinnu að fræðslu- og upplýsingaefni um skaðsemi vímuefna. - Að mennta og fræða einn eða fl. starfsmenn félagsmiðstöðva Æskulýðsráðs Reykjavíkur, sérstaklega varðandi þennan málaflokk, þannig að þeir geti leiðbeint öðru starfsfólki fé- lagsmiðstöðvanna og skipulagt*- stuðningsúrræði. - Að ráðinn verði starfsmaður sem undirbúi og skipuleggi fræðsluefni og námskeið fyrir grunnskólakennara Reykjavík- ur. Til að stöðva megi þá óheilla- vænlegu þróun sem neysla vímu- efna hefur í för með sér, telur starfshópurinn að til mjög víð- tækra aðgerða þurfi að grípa. Landsmenn allir verði að taka höndum saman í baráttunni við vágest þennan. — I þeirri baráttu þurfum við m.a. að læra af reynslu grannþjóða okkar sem sýnir svart á hvítu að ef menn hakla of lengi að sér höndum í þessum málum þá getur það reynst dýrkeypt. — óhjákvæmilegt er að tillögur þær sem að framan greinir hljóta að hafa nokkurn kostnað í för með sér. Þau sem að þessum málum vinna eru þess þó fullviss að fjár- munum þeim sem fara til þess að fyrirbyggja vímuefnaneyslu ungl- inga verði ekki betur varið. KANARÍEYJAR - JÓLA- 0G NÝÁRSFERÐIR Brottfarard. 14. des., 21. des. og 30. des. 10,17, 24 eöa 31 dagur //-tirtour ................. Qn (Flugferöir) Vesturgata 17. Símar: 10661, 22100 og 15331. Sólskinsparadís ískammdeginu. Glæsilegir gististaðir, íslensk jólahátíð og nýársfagnaður.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.