Morgunblaðið - 06.12.1983, Side 20
68
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 1983
Innkaupanefnd sjúkrastofnana stofnuð: ,
Gera má ráð
fyrir veruleg-
um sparnaði
FÖSTUDAGINN 6. október sl. var
haldinn stofnfundur Innkaupa-
nefndar sjúkrastofnana í húsa-
kynnum ríkisspítalanna. Fundinn
sóttu innkaupastjórar eða
forstóðumenn flestra sjúkrastofn-
ana á Stór-Reykjavíkursvæðinu
svo og fulltrúar Innkaupastofn-
unar ríkisins, Innkaupastofnunar
Reykjavíkurborgar og Lyfjaversl-
unar ríkisins. Upphaflegur tilgang-
ur fundarins var að kanna vilja
þessara aðila til að standa sameig-
inlega að útboðum á ýmsum
rekstrarvörum.
Innkaupanefnd sjúkrastofn-
ana hefur þróast í að vera frjáls
samtök sjúkrastofnana um hag-
kvæmni í innkaupum á rekstr-
arvörum. Gert er ráð fyrir því
að a.m.k. allar sjúkrastofnanir í
landinu geti notið þeirra við-
skiptakjara og viðskiptasam-
banda sem Innkaupanefnd
sjúkrastofnana aflar. Talið er að
þær sjúkrastofnanir sem -starfa
í nefndinni í dag séu með u.þ.b.
75% af rekstrarkostnaði heil-
brigðiskerfisins á sinum vegum.
Fyrstu útboð nefndarinnar
hafa þegar verið auglýst. Er þar
um að ræða útboð á pappírsvör-
um þ.e. handþurrkum, salern-
ispappír, eldhúsrúllum, sem
Innkaupastofnun ríkisins ann-
ast og voru þau tilboð opnuð 29.
nóvember. Einnig hefur Inn-
kaupastofnun Reykjavíkur augl-
ýst útboð á bleium á vegum
nefndarinnar.
Rekstur heilbrigðiskerfisins
er talinn vera um 2.800 milljónir
á ári miðað við verðlag í dag.
Gera má ráð fyrir að um 10% af
þvi sé varið til kaupa á rekstr-
arvörum eða lauslega áætlað 250
til 300 milljónum kr. (Jtboð á
fleiri rekstarvörum munu verða
auglýst innan skamms. Ef vel
tekst til með störf Innkaupa-
nefndar sjúkrastofnana má gera
ráð fyrir verulegum sparnaði í
heilbrigðiskerfinu á ári.
Grundvallarforsenda fyrir því
er sú að stofnunum verði gert
kleift fjárhagslega að standa við
þá samninga sem gerðir kunna
að verða.
Svo umfangsmikil samvinna
um innkaup, sem Innkaup-
anefnd sjúkrastofnana er vísir
að, hefur ekki áður tekist með
jafnmörgum heilbriðisstofnun-
um og hér er um að ræða, segir í
frétt frá Innkaupanefnd sjúkra-
stofnana.
Þessi drengur reri einn á báti er
hann efndi til hlutaveltu til ágóða
fyrir Reykjavíkurdeild Rauða kross-
ins á Öldugötu 29 hér í Rvík. Hann
heitir Gunnar örn Hjartarson og
safnaði rúmlega 100 kr.
Þessar telpur, sem eiga heima í Garðabæ, efndu til hiutaveltu til ágóða fyrir
Heilsugæslusjóð Hrafnistu DAS í Hafnarfirði og söfnuöu 600 kr. — Þær
heita Asdís Magnúsdóttir og Sigrún Hanna Hinriksdóttir.
Á Tómasarhaga 27 var fyrir nokkru haldin hlutavelta til ágóða fyrir Styrkt-
arfél. lamaðra og fatlaðra. Stóðu þessir drengir að henni og söfnuðu þeir
1240 kr. — Þeir heita Sigurður Hafliðason, Ólafur Rúnar ísaksson, Tryggvi
Björn Davíðsson og Arnar Hafliðason.
iv
ss
Að gefnu tilefni
SS búðimar selja eingöngu nýjar
kjötvömr
Það mundi aldrei hvarfla að okkur að
bjóða gamlar kjötvörur eins og nú er
gert á allskonar tilboðsverði í
jólamatinn
*
Urvalið í jólamatinn hefúr aldrei verið meira
iV Verið velkomin
§ BÚÐIRNAR
um alla borg
Þau heita Anna, Arney, Egill, Kristborg og Þórarinn þessir krakkar og eiga
heima við Lundarbrekku. Þau efndu til hluUveltu til ágóða fyrir Hjálpar-
stofnun kirkjunnar og söfnuðu hátt í 500 krónur.
Fyrir nokkru efndu þessar vinkonur að Leirubakka í Breiðholtshverfi til
hluUveltu til ágóða fyrir Blindrafélagið. Söfnuðu þær rúmlega 400 kr. —
Þær heiu Katrín Óskarsdóttir, Aldís Björgvinsdóttir og Þóra Guðbjörg
Kolbeinsdóttir.