Morgunblaðið - 18.12.1983, Qupperneq 1
96 SÍÐUR
STOFNAÐ 1913
291. tbL 70. árg. SUNNUDAGUR 18. DESEMBER 1983 Prentsmiðja Morgunblaðsins
Madrid og Amsterdam:
Nærri hundrað
manns létu lífið
Madrid. Am.sterdara, 17. desember. AP.
AÐ MINNSTA kosti 78 fórust er
kviknaði í diskóteki í miðborg
Madrid í morgun og 13 þegar kveikt
var í næturklúbbi í rauðljósahverfi
Amsterdam í nótt. Tugir slösuðust á
báðum stöðum.
Eldur kviknaði í „Alcala
20“-diskótekinu stundarfjórðungi
fyrir lokun klukkan 3:15 að ís-
lenzkum tíma í nótt vegna
skammhlaups í rafkerfi. Um 600
gestir voru innandyra í diskótek-
inu sem er á nokkrum kjallara-
hæðum. Mikil hræðsla greip um
sig og margir slösuðust er mann-
Náði fingra-
förunum - og
fingrinum líka
Fíladelfíu, 16. desember. AP.
Þjófur sem stal veski og dýrum
hring frúar einnar í norðaust-
urhluta Ffladelfíu skildi eftir
ótvírætt sönnunargagn, hægri
vísifingur.
í stympingum sem urðu er
ræninginn réðst á fórnardýr
sitt tókst konunni, sem er 52
ára, að bíta í fingur þjófsins
með fyrrgreindum afleiðing-
um.
Tókst þjófinum að toga dýr-
an hring af hendi konunnar,
að verðmæti 15 þúsund doll-
ara, og í veski hennar voru
1500 dollarar í reiðufé.
Lögreglan tók fjögurra
sentimetra fingurstúfinn á
næsta sjúkrahús í þeirri von
að þjófsi leitaði læknishjálp-
ar, en hann gaf sig hvergi
fram og var þá farið með stúf-
inn niður á lögreglustöð og af
honum tekin fingraför.
fjöldinn reyndi að troðast út um
aðaldyr þar sem allar neyðardyr
voru rammlæstar. Flestir hinna
látnu köfnuðu er þeir drógu að sér
þykkan reykjarmökkinn sem
myndaðist af bruna plastefna og
áklæða.
Þrjú mannskæð slys hafa orðið í
Madrid á jafnmörgum vikum, þar
sem rúmlega 350 hafa týnt lífi.
Auk brunans í diskótekinu fórust
274 í tveimur flugslysum þar.
1 Amsterdam réðst hópur
manna inn í klám- og veðmála-
klúbbinn „Club 26“ undir mið-
nætti. Skutu þeir án afláts á hús-
ráðendur, helltu síðan benzíni um
hólf og gólf og kveiktu í. Þrír
menn, þar af einn fyrrverandi
starfsmaður klúbbsins, hafa verið
handteknir vegna íkveikjumorð-
Áköf leit að
IRA-mönnum
Ballinamore, 17. desember. AP.
ÞÚSUNDIR hermanna og hundruð
lögregluþjóna leituöu ákaft að sex
hryðjuverkamönnum írska lýðveldis-
hersins, IRA, sem flýðu til skógar
eftir að Don Tidey kaupsýslumaður
var frelsaður úr prísund þeirra.
Aldrei fyrr hefur jafn um-
fangsmikil leit verið gerð að
hryðjuverkamönnum IRA í írska
lýðveldinu. Hefur Corraleehan-
skógur, þar sem talið er að þeir
felist, verið umkringdur, en hann
er við þorpið Leitrim, skammt
sunnan norður-írsku landamær-
anna.
Þegar Tidey var bjargað kom til
skotbardaga og féllu hermaður og
lögregluþjónn. Talið er að einn
hryðjuverkamannanna hafi særst
á flóttanum.
Auk leitarinnar í skóginum hef-
ur her og lögregla handan norð-
ur-írsku landamæranna sett upp
margar stöðvar til að freista þess
að hafa hendur i hári sexmenning-
anna, takist þeim að laumast
norður yfir.
Óþekktur
ástaróður
Beethovens
Róm, 16. deæmber. AP.
EINN virtasti flautuleikari ítala,
Roberto Fabbriciani, sagði ( dag, að
áður óþekkt serenaöa (ástaróður)
fyrir píanó og flautu eftir snillinginn
Ludwig van Beethoven, sem fannst
fyrir nokkrum mánuðum og skýrt
var frá í gær, væri „stórkostlegur
fundur".
Það var kunningi hans, píanó-
leikarinn Carlo Alberto, sem fann
tónverkið í nótnasafni, sem hafði
verið í einkaeign í borginni Ar-
ezzo. í sameiningu keyptu þeir
safnið fyrir smáupphæð. Höfðu
þeir þá ekki hugmynd um að þetta
verk leyndist í því.
Serenaðan er undirrituð af
Beethoven og á henni er einnig að
finna heimilisfang útgefanda i
Flórens, Orfeo að nafni. Fyrirtæk-
ið lagði upp laupana fyrir meira
en öld. Gaf það áður út verk
manna á borð við Haydn og ít-
alska tónskáldið Clementi.
Samfélagið frá öðru sjónarhorni.
Morpunblaðiö/ Friöþjófur.
Brottflutningur að
hefjast frá Trípólí
Trípólí, Beirúl, 17. deHember. AP.
STARFSMENN Alþjóða Rauða
krossins fluttu í dag um 100 særöa
Palestínumenn um borð í ítalska
ferju í höfninni í Trípólí, aðeins
þremur stundum eftir að fsraelar
gerðu árás á höfnina af sjó. Brott-
flutningur skæruliða Arafats mun
hefjast eftir helgi, á mánudag og
þriðjudag.
ísraelskir fallbyssubátar létu
skothríðina dynja á höfninni í
Trípólí í rauðabítið í morgun, en
Glaumur og gleði hjá
Kasparov eftir sigurinn
Loodon, 17. deoember. Frá rrétUriUra Mbl.,
ÞAÐ var glaumur og gleði í íbúð
Gary Kasparovs í gærkvöldi, eftir
að hann hafði borið sigurorð af
Korchnoi, og þá leyfði hann sér aö
væta varirnar í vodka ( fyrsta sinn
frá því að einvígi þeirra Beliavskys
lauk í mars sl.
Veisluna hélt Kasparov fyrir
sig og sitt fólk, aðstoðarmennina
og móður sína, sem er með hon-
um, en einnig bauð hann til henn-
Eric Schiller.
ar breska skákmeistaranum Ra-
ymond Keene, sem hefur skrifað
bók um Kasparov, og nokkrum
öðrum. Á borðum var meira en
nóg af vodka og kavíar og rússn-
eskri pylsu og sparaði enginn við
sig í mat eða drykk enda stóð
glaumurinn fram undir morgun.
Kasparov sagði um einvígið við
Korchnoi, að það hefði verið erf-
itt og að hann hlakkaði til viður-
eignarinnar við Smyslov, sem
hefst eftir um tvo mánuði. Sagði
hann Smyslov geta verið ánægð-
an með sjálfan sig þangað til en
ekki lengur.
Sovéski sendiherrann var að
sjálfsögðu í veislunni og var hann
mjög ánægður með, að af einvíg-
inu skyldi hafa orðið. Hafði hann
ekkert nema gott eitt um
Korchnoi að segja og hrósaði
honum mjög fyrir „góða hegðun“.
nokkru eftir að henni linnti tóku
starfsmenn Rauða krossins að
flytja fyrstu særðu Palestínu-
mennina um borð í itölsku ferjuna
Appia. Verða þeir fyrst fluttir til
Kýpur en þaðan til Grikklands,
Júgóslavíu og Egyptalands.
Starfsmenn Rauða krossins í Tríp-
ólí segja, að 700 manns hafi fallið
og 3.000 særst síðan bræðravígin
hófust meðal Palestinumanna 3.
nóvember sl.
Fimm grísk skip eru nú á leið til
Trípólí en brottflutningur 4.000
skæruliða, sem styðja Arafat, á að
hefjast á mánudag. Von er á 200
líbönskum öryggislögreglu-
mönnum þangað um helgina og
eiga þeir að gæta þess, að grið
verði ekki rofin á Arafat og
mönnum hans. Frönsk herskip
munu fylgja grísku skipunum.
Amin Gemayel, forseti Líbanon,
kom í dag úr fjögurra daga ferð til
Bretlands og Marokkó, en á heim-
leiðinni lagði hann öllum að óvör-
um lykkju á leið sína og sótti.heim
Moammar Khadafy, Líbýuleið-
toga. Ekki er enn vitað hvað þeim
fór á milli.