Morgunblaðið - 18.12.1983, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 18.12.1983, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. DESEMBER 1983 47 í kringum mat, leiðist svolítið sæl- kerastúss og snobb.“ Að treysta á sjálfan sig Þriðja bókin þín, sem kom út 1982, heitir Brjóstagjöf og barnamatur. Hver voru tildrög hennar? „Ég á tvo stráka, og áður en ég eignaðist þá vissi ég afskaplega lítið um börn. Eg á ekki yngri systkini, og það hafði aldrei hvarflað að mér að næring ungbarna væri sérstakt vandamál. Eg var með báða strák- ana á brjósti í tæpt ár, og það var ekki fyrr en ég fór að kynnast fleiri mæðrum og tala um þessi efni við þær, að ég komst að því að í augum margra væri þetta ekki alveg eins einfalt og það hafði reynst mér.“ Hver er boðskapur bókarinnar? „Að konur eigi að treysta á sjálfa sig. Um uppeldi og umönnun ung- barna eru á lofti ýmsar kenningar, ekki satt! Einn daginn er það predik- að að það sé óhollt og sálarskemm- andi að taka barnið upp og kjassa það, annan daginn þykir þetta svo sjálfsagður þáttur, til allrar ham- ingju, og svo framvegis, og margir foreldrar eru ringlaðir á þessu, og vita ekki í hvorn fótinn þeir eiga að stíga. Mín ráðlegging er að fólk yfir- vegi málin sjálft, og finni sinn takt í sjálfu sér. I því sambandi held ég að gott sé að vita svolítið um það hvern- ig líkaminn starfar; af þeirri þekk- ingu ættum við að geta dregið álykt- anir um hvað börnum er fyrir bestu. Bókinni var ætlað að efla sjálfs- traust kvenna. Ég reyndi að hafa hana hlýlega og eins skýra og ein- falda og frekast var unnt.“ Ég hef heyrt sérfróða menn ljúka miklu lofsyrði á þessa bók. Þú hefur væntanlega þurft að lesa þér mikið til á meðan hún var í smíðum? „Já, auðvitað er ekki hægt að byggja svona bók á brjóstvitinu einu. Ég reyndi að lesa mér til eins og ég gat, og reyndi jafnframt að rifja það upp hvað það var sem ég hafði heyrt konur tala um, og hvaða spurningar um brjóstagjöf og barnamat höfðu einkum leitað á þær. Svo las gott fólk hana yfir í handriti, bæði lærðir og leikir í þessum fræðum." Allir boðnir og búnir að hjálpa Sigrún lauk cand. mag.-prófi í ís- lensku frá Háskólanum fyrir tveim- ur árum, og hefur kennt íslensku í öldungadeild Menntaskólans við Hamrahlíð og fornbókmenntir við heimspekideild Háskólans. Ég lét f ljós undrun á því hvernig hún hefði farið að því að sinna öllum þessum störfum. „Nú er auðvitað freistandi að segja að þetta sé sökum óbilandi elju og af einskærum dugnaði“, segir Sig- rún, „en það er nú ekki svo glæsi- llegt. Ég gæti þetta ekki nema vegna þess að allir í kringum mig eru boðn- ir og búnir að hjálpa mér. Ég reyni svo að nota tímann eftir bestu getu, hef unnið á kvöldin og líka á daginn þegar tími hefur verið til. Annars hefur vinnudagurinn undanfarin ár farið mikið eftir dagstakti strák- anna minna. Þegar þeir sváfu úti síðdegis lengi vel þá fékk ég góðan vinnufrið á meðan, en núna þegar þeir eru orðnir stærri og krefjast meiri athygli er tíminn naumari. Eða eins og mamma segir: lítil börn, litlar áhyggjur; stór börn, stórar áhyggjur. Núna hef ég lagt kennslu og önnur störf á hilluna, og reyni að sinna svo til eingöngu rannsóknum á íslendingasögum. Nú tek ég mér vinnutíma á morgnana, meðan strákarnir eru í leikskóla og barna- skóla, pabbi þeirra sér um þá í há- deginu en ég er svo heima við eftir hádegi. Ég er mjög heimakær, get eiginlega hvergi hugsað mér að vera nema heima, og öll störf sem ég hef tekið að mér hafa miðast við að ég gæti unnið þau heima að mestu. Ég vil ráða mínum tíma sjálf eftir því sem ég mögulega get. Og svo vil ég vera sem mest með strákunum, get ekki hugsað mér að vera burt frá þeim meirihluta þeirra dags upp á hvern dag. Við foreldrar höfum börnin okkar aðeins að láni í stuttan tíma, svo það er eins gott að nota þann tíma vel, koma því á framfæri við þau sem við viljum helst að þau læri. Þetta er, held ég, aðeins hægt að gera meðan þau eru lítil. Við getum ekki tekið til við uppeldið þegar þau komast á unglingsárin. Ef einhver efast um mikilvægi fyrstu áranna, t.d. frá fæðingu fram um 12—13 ára aldur, þá þarf ekki annað en að benda á gamalt fólk og hvað þvi er hugleikn- ast. Það er æska þeirra. Það sem við höfum fyrir börnum okkar, það er það sem fyrr eða seinna slær í gegn hjá þeim. Börnin lifa í allsnægtum eins og við, a.m.k. miðað við þjóðartekjur á mann. Flest þeirra kippa sér lítið upp við hluti og gjafir. Það eina sem við getum gefið þeim, sem skiptir þau einhverju máli, er tími okkar, tími til að vera með þeim, tala við þau, svara þeim, lesa fyrir þau, og síðast en ekki síst bara tími til að vera til staðar og að þau viti af því. Við þurfum nefnilega alls ekki alltaf að vera að vesenast í þeim, auðvitað vilja þau leika sér við félagana ótrufluð. Hvað foreldrana varðar, þá get ég ekki ímyndað mér neitt sem dýpkar skynjun og tilfinningu eins og það að umgangast börn og deila þeirri ánægju með öðrum. Þegar ég segi að „við“ eigum að vera til staðar, þá á ég að sjálfsögðu við báða foreldrana. En ósköp eigum við langt í land með slíkt drauma- fyrirkomulag. Ég hef hreint enga „patentlausn", en ef hver hugsar fyrir sig, er þá öll þessi vinna alveg bráð-, lífsnauðsynleg?" Hvernig hefur Pottarím orðið til? „Yfirleitt hef ég reynt að skipu- leggja fram í tímann hvað ég ætla að taka fyrir. Síðan prófa ég mig áfram í eldhúsinu, og velti þessu svona fyrir mér, meira og minna ómeðvit- að, fram eftir vikunni. Þegar ég svo tek mig til að skrifa þáttinn, þá ganga skriftirnar hratt fyrir sig. Én ég veit að umbrotsmennirnir á Mogganum hafa ekki alltaf verið í sjöunda himni, því ég hef verið svo- lítið sein að skila." Hefur þú bragðað bragðað á öllum réttunum, sem þú skrifar um? „Ég er oft spurð að þessu. Já, mér finnst það nú algjört lágmark að maður hafi reynt uppskriftirnar, varla hægt að ganga frá þeim af viti ef svo er ekki. Én þetta er alveg eðli- legur hlutur fyrir mér. Ég hef mjög gaman af þessu, er sýknt og heilagt að prófa eitthvað nýtt. Það er sem- sagt alls engin pottarímskvöð á mér. Ég segi stundum að það sé kannski ekkert gaman að vera í fæði hjá mér, fyrst kemur sami rétturinn nokkuð ótt og títt meðan ég er að ná tökum á honum, svo mér líki, og svo sést hann kannski ekki vikum og mánuð- um saman. Ég held reyndar að það sé ekkert tómstundagaman jafn þakklátt og matargerð. Það njóta hennar allir sem eru í kringum mann. Hugsið ykkur bara muninn eða t.d. að safna frímerkjum ..." Rannsóknir á fslendingasögum Þú lagðir stund á íslensku í há- skólanum, og hefur síðan verið að hugsa mikið um íslendingasögurnar. Segðu mér svolítið frá þvi. „Ég var fljótt alveg klár á því hvað ég ætlaði að læra, það voru íslenskar fornbókmenntir. í náminu reyndi ég að velja eins mikið af slíku og ég gat. Ég hef síðan birt tvær smágreinar um þessi efni, aðra í Griplu, tímariti Árnastofnunar, og hina í Afmælis- riti Halldórs Halldórssonar. Það er ekki síst þessi áhugi sem veldur því að ég ætla að hætta með Pottarím. Þetta matarstúss var aldrei hugsað nema sem hliðargrein, og átti ekki að verða mitt aðalstarf. Ég hef tvívegis fengið styrk úr Vísindasjóði til að stunda rannsókn- ir á fslendingasögum, en ekki haft tíma og aðstöðu til að gefa mig óskipta að því verki. Styrkirnir eru því miður fremur hvatning en raun- verulegur fjárstuðningur. Það lifir enginn á slíku, deyr kannski ekki heldur. Nú ætla ég að leggja sem flest annað til hliðar, og stíla upp á rannsóknirnar. Það er reyndar dálít- ið harkalegt gagnvart fjölskyldunni að hætta kennslu og skrifum um matargerð því það kemur ekkert launað starf í staðinn. En á hitt er líka að líta að það er ekki hollt að vera of lengi í því sem maður ræður vel við eftir að maður bætir ekki lengur við sig. Mér finnst hluti að lífshamingjunni fólginn í því að gera það sem manni finnst skemmtilegt og hæfilega erfitt, eitthvað sen tekur á mann, það er óhollt að líða áfram fyrirhafnarlaust í einhverju olíubaði gegnum lífið. Ég hef haft ómælda ánægju af matarskrifunum, en þau reyna ekki eins mikið á mig og í upphafi. Ég vil ekki að þau verði mér svo auðveld að ég fari að gera þetta allt of illa.“ Nú er hægt að nálgast íslend- ingasögurnar á ólíka vegu. Hver er þín leið? „Ég hef mestan áhuga á að reyna að átta mig á því hvernig menn fóru að því að semja þessar sögur, hvers vegna þeir gerðu það og hvaða hug- myndir þeir gerðu sér um það tíma- bil sem þeir voru að skrifa um. Mín aðferð hefur einkum verið fólgin í því að athuga hvað menn hafa verið að gera á svipuðum tíma í Evrópu, hvers konar sögur voru samdar þar, og reyndar annars staðar við svip- aðar kringumstæður og hér.“ Hvernig er að hrærast í hug- myndaheimi miðalda? „Það er stundum sagt að svona fornbókmenntastúss sé einhvers konar lífsflótti, þeir sem stundi það reyni að forðast að horfast i augu við staðreyndir samtímans. Ég held að þetta sé firra. Með því að athuga þennan tíma sér maður margt í nú- tímanum skarpar en ella, saman- burðurinn er mjög forvitnilegur. Sumir sjá fornöldina í hillingum, gylla hana fyrir sér sem tima hins einfalda og náttúrulega lífs í ómeng- uðu umhverfi. Að minni hyggju er þetta hrapallegur misskilningur á fortíðinni. Líf fornmanna, eða ís- lenskra miðaldamanna, var alls ekki einfalt, og menn gleyma því stund- um hve siðferðisviðhorf voru með allt öðrum hætti í þá daga. Grimmd- in var margfalt meiri, sbr. viðburði Sturlungaaldar, svo ég tali nú ekki um það sem var að gerast í Evrópu á 14. öld. Þetta er ekki sagt svo við fyllumst makindalegri sjálfumgleði, heldur til að minna á yfir hvað við erum sett, hvers er að gæta.“ Á þessari vargöld urðu til miklar bókmenntir. „Já, það er skrýtið til þess að hugsa að það voru stundum sömu mennirnir sem skipulögðu mannvíg og skrifuðu dýrðlegan prósa. En góð- ar bókmenntir verða gjarnan til á erfiðum tímum að því er virðist..." Lítill áhugi á fornbókmcnntum Áttu þér uppáhaldssögu? „Já, Njála er númer eitt, tvö og þrjú. Það er rétt sama hvar er gripið niður, Njála ber alls staðar af. Uppáhaldspersónan? „Já, Hallgerður er heillandi per- sóna. Hún hefur ekki átt upp á pall- borðið hjá mörgum, þótt ímynd kvenlegrar grimmdar, en mér finnst hún mjög spennandi, enda er bak- grunnur hennar sérkennilegur. Hún er nefnilega alin upp af karl- mönnum, og ég hef verið að láta mér detta i hug að það sé skýringin á því hvernig fyrir henni fer. Hún er beygð niður og hennar hluti í sög- unni gerður allur hinn harkalegasti. Þarna er kona sem hegðar sér eins og karlmaður og fyrir það er henni líka grimmilega refsað. Ekki svo að skilja að ég sjái alls staðar glitta í horn og klaufir karlrembusvína þeg- ar sögurnar eru annarsvegar.“ Heldurðu ekki að fólk sem les Is- lendingasögurnar, ég tala nú ekki um þá sem stunda rannsóknir á þeim, sé að verða raritet í þessu þjóðfélagi? „Jú, ég er ekki frá því. Það er kúnstugt hvað þessar bækur eru að þoka miðað við þau orð sem um þær eru höfð. Þegar ég kenndi í öldunga- deild MH spurði ég nemendur mína yfirleitt hvort þeir læsu fornsögurn- ar. Það heyrði til algjörra undan- tekninga að fólk læsi þær. Það hafði kannski lesið eina sögu og mundi óljóst eftir efnisþræðinum, en slíkur lestur var alls ekki hluti af lestrar- venjum þess. Það er líka áberandi að tilvitnanir í þessar bókmenntir eru sjaldgæfar í fjölmiðlum. Það er ekki að sjá að blaða- og fréttamenn hafi þessar bókmenntir á takteinum frekar en aðrir. Ég veit ekki hvort hægt er að segja að danskir starfs- bræður þeirra séu liprari í þeim, en fyrir nokkrum árum rennndi ég aug- unum yfir íþróttasíðuna í Politiken. Þar var klausa um viðureign Björns Borg og McEnroys. Björn Borg var sagður hafa hegðað sér eins og höfð- inginn Njáll. Ég efast um að það sé algengt að rekast á svona góss á íþróttasíðum íslensku dagblaðanna, hlýt þó að játa að ég er ekki áhuga- samasti lesandi íþróttasíðnanna! Annars er gjarnan sagt við hátíð- leg tækifæri að allir íslendingar geti lesið þessar sögur og þessar bók- menntir. En það verður að segjast eins og er að þetta eru draumórar. Fyrir fullorðnu fólki, sem aldrei hef- ur lesið slíkar bækur, eru þær mjög framandlegar. Þeir sem eru vanir að lesa að konur gráti með ekkasogum og karlmenn bregði sér hvorki við sár né bana, skilja ekkert í fólki sem springur af harmi, að því hrjóti högl af hvarmi eða að fötin springi utan af þvi af sorg. Og enn síður botnar það í konum sem hlæja þegar þær frétta lát manna sinna eða matreiða börn sín og bera á borð fyrir eigin- manninn, til að hefna sín á honum. Með öðrum orðum, þegar fólk er orð- ið fast í nútíma bókmenntahefðum, þar sem einhvers konar yfirborðs- raunsæi, skinraunsæi, er helst uppi, þá eru íslendingasögurnar í besta falli framandlegar, í versta falli hallærislegar og óskiljanlegar. Eina ráðið til að kenna fólki að Ljósmyadir. Ólafur K. Magnússon. Sigrún og synir hennar: Ingvar sem er i fjórða iri og Daríð sem er sex íra. „Við höfum börnin okkar aðeins að lini í stuttan tíma, svo það er eins gott að nota þann tíma vel, koma því í framfæri rið þau sem við riljum belst að þau læri.“ meta þessar bókmenntir er að það byrji nógu ungt að lesa þær, áður en það fær fyrirfram mótaðar hug- myndir um hvernig bókmenntir eigi að vera. En af þvt að börn lesa ekki svona efni í skólanum, fyrr en það er of seint, verðum við að gera þetta með þeim heima. Margir sem hafa pappír upp á uppeldisfræði vara við því að nokkuð sé haft fyrir börnum sem þau skilji ekki, geti tengt við sinn raunveruleika eins og það heitir víst. Við, sem göngum með þær bá- biljur í kollinum að krakkar séu allt- af heldur glúrnari en við höldum og að þau eigi einmitt að fá heldur meira en þau skilji, verðum því að taka það upp hjá okkur sjálfum að lesa þessar og aðrar góðar og óvenjulegar bókmenntir fyrir börnin okkar.“ Eigum við að hafa áhyggjur af þessu? „Ég á bágt með að sjá mig ganga með böggum hildar yfir hirðuleysi og skilningsleysi okkar á þessum bókmenntum. En þetta er óneitan- lega sorglegt, því fornbókmenntirn- ar eru jú tindur íslenskrar menning- ar. Og það er grátbroslegt að heyra vitnað í þessar bókmenntir á tylli- dögum á sama tíma og fáir hafa nokkra innsýn í þær og lítill áhugi virðist vera á því að efla áhuga al- mennings og styrkja rannsóknir fræðimanna. Og svo er annað. Það er, held ég, hollt fyrir allar þjóðir að hafa eitthvað sameiginlegt til að standa á, eitthvað sem er hægt að vitna í svo allir skilji. Einu sinni var það biblían og fornbókmenntirnar, öllu heldur hluti þeirra, sem tengdu ís- lendinga saman. Það er ein af mín- um uppáhaldshugmyndum, að nú sé ekkert sem tengi okkur saman sem þjóð nema í hæsta lagi símaskráin. Eitthvað er það nú harðla rýr grunn- ur að standa á. Jú, mér finnst þetta svolítið kvíð- vænlegt, þetta með sameiginlega gjörð um þjóðina. Hver þjóðmenning þarf eitthvert akkeri, einhverja rót. Er ekki búið að höggva þessa kannski feysknu rót af, sem forn- bókmenntirnar eru? Henda okkur sem litlum steini langt út í myrkur og tóm. Okkar akkeri er svo miklu léttvægara en ýmissa nágranna- landa. Þeir hafa byggingar, lista- verk, tónlist, svona hluti sem eru yf- ir og allt um kring. Við höfum bara nokkrar bækur og þær lítið fyrir augað.“ Matur og fornsögur Svo ég tengi saman í lokin þessi tvö aðaláhugamál þín, matargerð og íslendingasögurnar, þá virðist við hæfi að spyrja: Getum við sótt fyrir- myndir um matargerð í fornritin? „Nei, það er sáralítið fjallað um mat og matargerð í þessum bókum, við höfum greinilega lengi verið fremur áhugalitil um þau efni. Upp- áhalds tilvitnun mín er úr Laxdælu. Þegar Guðrún Ósvífursdóttir ætlar að fara að hvetja syni sina til hefnda eftir víg Bolla þá kallar hún þá í laukagarð sinn, og það væri sannar- lega gaman að vita hvað hún hefur ræktað þar. Fólk spyr mig stundum hvað þetta tvennt, matargerð og fornsögur, eigi sameiginle^t. Það er svo sem ekkert, en á hitt er að líta að nám mitt í háskólanum hefur hjálpað mér mik- ið við matarskrifin. Þegar maður hlýtur einhverja háskólamenntun þá á hún ekki bara að vera í því fagi sem maður leggur stund á heldur er þetta almenn menntun í vinnbrögð- um. Þau vinnubrögð sem ég lærði í náminu hafa komið mér að miklu gagni, ég hef lært að fletta upp í bókum og hvernig eigi að afla upp- lýsinga um tiltekin efni. Þetta hefur verið mér mikils virði. Svo hefur auðvitað komið fyrir að ég hef fiskað upp frásagnir af matargerð og mat- arsöguþætti úr ritum um evrópska miðaldasögu, og það efni hef ég iðu- lega notað í Pottarími. Matur og menning er svo samofið, ekki satt ... Mín hugmynd er sú að þetta tvennt eigi að fara saman í matarskrifum. Ég vil ekki aðeins vita hvað einstakir réttir heita og hvað fer í þá, heldur hvaðan þeir eru sprottnir og sem allra mest um sögu þeirra. Ég vil menningarleg mat- arskrif, má kannski segja metanleg menningarskrif! Þess vegna skrifá ég eins og ég geri. En hvort sem les- endur mínir lásu aðeins fyrirsögn- ina, uppskriftirnar, inngangana eða allt þetta, þá vona ég að þeir hafi haft innblástur af, en þó einkum — góða skemmtun!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.