Morgunblaðið - 18.12.1983, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 18.12.1983, Blaðsíða 40
r 40 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. DESEMBER 1983 í > í I i l i ► r * ÞINGBRÉF eftir STEFÁN FRIÐBJARNARSON Kreppulægðin dýpkar: Fimm til sex milljörðum minna til skipta 1984 en 1982 Eyðslan á þjóðarheimilinu ráðist af tekjum þess Fjárlög og fjölmiðlaglugginn Frumvarp aö fjárlögum kom- andi árs, ásamt tengdum tekju- frumvörpum ýmsum og lánsfjár- áætlun, hafa verið meginverkefni Alþingis undanfarnar vikur. Önn- ur mál og smærri hafa að vísu fengið veglegri sess í þeim fjöl- miðlaglugga, er út í þjóðfélagið snýr. En ríkisfjármálin, sem svo víða teygja arma sína um þjóðlíf- ið, vega þyngst þingmála, nú sem áður, e.t.v. að einu máli undan- skildu, mótun fiskveiðistefnu. Sjávarútvegsdæmið er lífsspurs- mál ísiendinga á líðandi stund. Öll frumvinna fjárlagagerðar, gagnasöfnun og áætlanagerð, er unnin að frumkvæði fjármála- ráðherra í viðkomandi ríkisstofn- unum. Eftir að frumvarpið hefur verið lagt fram á Alþingi, og raun- ar löngu áður, hefur fjárveitinga- nefnd störf að fjárlagagerð, en hún er verkmesta og máske áhrifamesta þingnefndin. Mikið starf er einnig unnið í þingflokk- um, er fjárlagagerð varðar, ekki sízt þeim er að ríkisstjórn standa, en þar þarf að samræma sjónar- mið samstarfsflokka og stefnu í ríkisfjármálum. Fjárlög eru ekki eínungis lögbundin áætlun um tekjur og gjöld í ríkisbúskapnum heldur og mikilvirkt hagstjórnar- tæki, ef rétt er á haldið. Fjárlög ráðast ekki í ræðustól þingsins. Þar kunna þingmenn að fara á kostum, þá mál eru rædd í fjölmiðlaeyra þjóðarinnar, en það er oft látbragðsleikur, er vegur létt í fjárlaganiðurstöðum. Alþingi og ríkisstjórn hafa þrjár meginleiðir í fjáröflun til að mæta áætluðum útgjöldum fjár- laga og lánsfjárlaga í ríkisbú- skapnum: 1) Skatttekjur, sem eru tvíþættar (annarsvegar beinir skattar sem reiknast af tekjum og eignum fólks og fyrirtækja, hins- vegar eyðsluskattar, sem teknir eru í verði vöru og þjónustu, s.s. tollar, vörugjald, söluskattur, verðjöfnunargjöld o.s.frv.) 2) Inn- lent lánsfé. 3) Erlent lánsfé. Samkvæmt fjárlagafrumvarpi því, sem lagt var fram í haust, er stefnt að eftirfarandi: • Að skattaálögur sem heiid verði 2.200 m.kr. minni 1984 en verið hefði að óbreyttum skattalög- um 1983, þ.e. ef sama hlutfall af þjóðarframleiðslu yrði tekið í skatta 1984 og 1982. • Þá er stefnt að því að taka 3.700 m.kr. minni ný erlend lán 1984 en gert var 1983. Báðar fyrr- greindar tölur eru á verðlagi fjárlagafrumvarpsins. • Samkvæmt þessum tölum verð- ur fimm til sex milljörðum króna minna fé til skipta á fjár- lögum og lánsfjárlögum 1984 en 1982. Upplýsingar, sem síðar hafa komið fram um frekari samdrátt í sjávarútvegi en vitað var, þá frumvarpið var lagt fram, þrengja dæmið enn frekar. Þessi blákalda efnahagsstaðreynd sníður fjár- veitingavaldinu mjög þröngan stakk. Nauðsynlegt aðhald í ríkis- fjármálum hlýtur að koma niður nær hvarvetna í ríkisbúskapnum. Óábyrg öfl leggja þann gjörn- ing, að sníða þjóðinni fjárlaga- stakk eftir vexti, út sem óvild við „góð máF. Slík útlegging fer hinsvegar illa í munni þeirra stjórnmálamanna, sem bera stjórnarfarslega ábyrgð á ringul- reið í þjóðar- og ríkisbúskap 1978-1983. Kreppulægð yfir þjóðarbúskapnum Þegar Ragnar Arnalds, fyrrv. fjármálaráðherra, mælti fyrir frumvarpi að fjárlögum 1983, tal- aði hann um „kreppulægð", sem grúfði yfir þjóðarbúskapnum. Flokkur hans, Alþýðubandalagið, gerði því skóna að efna til fjög- urra ára neyðaráætlunar í þjóðar- búskapnum, í upphafi þessa árs. Síðan hefur enn harðnað á daln- um, samanber tillögur fiskifræð- inga um 100 þúsund tonna afla- samdrátt þorsks 1984, miðað við aflabrögð 1983, sem ekki vóru upp á marga fiska. „Kreppulægð" Ragnars Arnalds, sem Alþýðu- bandalagið vildi bregðast við með fjögurra ára neyðaráætlun, er verri viðureignar nú en nokkru sinni. Það er og við hæfi að minna á nokkra efnispunkta úr málflutn- ingi Geirs Gunnarssonar, fyrrver- andi formanns fjárveitinganefnd- ar í þá tíð er flokksbróðir hans, Ragnar Arnalds, var fjármála- ráðherra. í fjárlagaumræðu (fjár- lög 1982) sagði Geir Gunnarsson m.a.: „Undirstaða allrar getu til aö standa undir félagslegri þjónustu í landinu, hvort heldur sem er í skóla- málum, heilbrigðismálum eða öðrum efnum, er verðmætasköpunin í þjóð- félaginu, undirstöðuframleiðslan, og því aðeins er unnt að auka í sífellu við þjónustuþættina aö verðmætaöfl- unin aukist að sama skapi...“ Þjóðarframleiðsla hefur dregizt saman um 10% á hvern vinnandi mann á tveggja ára tíma (1982/1983) og spáð er áframhald- andi samdrætti 1984. Það er því ekki í samræmi við kenningar Geirs Gunnarssonar þegar Al- þýðubandalagið gagnrýnir að- haldsstefnu í ríkisfjármálum við ríkjandi staðreyndir í þjóðarbú- skapnum. En Geir Gunnarsson hafði meira að segja í tilvitnaðri fjár- lagaumræðu: „Ef við leggjum fjármagnið fyrst og fremst í þjónustustofnanir, án þess að efla grundvallarframleiðsl- una, veltur þessi sístækkandi yfir- bygging fyrr eða síðar, hversu nauð- synlega og óhjákvæmilega sem menn telja hana. Hún stendur ekki ein sér.“ Þrátt fyrir þessi orð stendur Al- þýðubandalagið fyrir ýmiss konar útgjaldatillögum nú, komið í stjórnarandstöðu, til að flagga í fjölmiðlaglugganum. En hvað sagði Geir Gunnarsson um slíka fjölmiðlapólitík þegar Alþýðu- bandalagið bar ábyrgð á fjárlaga- gerð? Orðrétt sagði sá mæti mað- ur: „Sjálfsagt hafa ýmsir ástæðu til að hafa hátt vegna þess, hvernig með þá er farið við samningu fjár- lagafrumvarps, og því ekki ástæða til að undrast þó að þeir noti sér athvarf ríkisfjölmiðla til að lýsa skoðun sinni á gáfnafari þeirra, sem setja saman fjárlagafrum- varp, og hefni þess þá í útvarpi sem hallast á í frumvarpi. En skyldi samt sem áður ekki vera orðið tímabært að huga að því, hver er stefnan í þjóðfélaginu með rekstrarútgjöldum ríkissjóðs, og lesa á þann mæli sem fjárlögin eru í þeim efnum?" Það er hægt að lýsa afstöðu Al- þýðubandalags til fjárlagagerðar, innan og utan ríkisstjórnar, með einu orði: tvískinnungur. Máske gildir það um fleiri þingflokkanna. En Alþýðubandalagið, sem ríkjum réð í fjármálaráðuneyti til skamms tíma, lætur nú sem það hafi aldrei þar komið. Sú „kreppulægð", sem enn grúf- ir yfir þjóðarbúskap okkar, setur mark á fjárlagagerð 1984. Það ætti að vera sjálfgefið að laga eyðslu að tekjum á þjóðarheimil- inu, rétt eins og á heimilum þjóð- félagsþegnanna. Hitt má ekki ske að ríkið þyngi skattbyrði fólks, hvorki beinna né óbeinna skatta. Þvert á móti verð- ur að vinda ofan af skattþungan- um. Þar dugar enginn talnaleikur. Skattgreiðandinn finnur, hvað að Hafið þið kynnt ykkur verð og gæði yfirhafna? TSSÆÍi 22 KAPUSALAN Næg bílastæði. BORC.ARTUNI 22 Sími 23509 a

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.