Morgunblaðið - 18.12.1983, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. DESEMBER 1983
39
María Wilhelmina
Heilmann Eyvindar-
dóttir — Minning
Fædd 25. febrúar 1901
Dáin 12. desember 1983
María Wi'helmína Heilmann
var fædd á Laufásvegi 4 í Reykja-
vík. Hún var elsta barn hjónanna
Sophie He'lmann og Eyvindar
Árnasonar, útfararstjóra.
Auk Maríu áttu þau hjón 2 börn,
Dagmar og Ósvald, sem bæði eru
látin. María átti góða og glaða
æsku og minntist oft sinna góðu
foreldra og bernskuheimilis.
Ung að árum giftist María Árna
Böðvarssyni, útgerðarmanni, og
lifðu þau saman í farsælu hjóna-
bandi í 55 ár. Árni andaðist 14.
apríl 1975. Þau eignuðust 6 börn
og eru 5 þeirra á lífi. Elsta barnið,
Fríðu Sophiu, misstu þau 11 ára
gamla úr skarlatssótt. Hún var
yndi og eftirlæti allra, sem þekktu
hana og öllum harmdauði.
María bar mikla umhyggju fyrir
fjölskyldu sinni allri og hélt henni
saman. Hún fylgdist með hverjum
einstaklingi af lifandi áhuga og
góðvild.
Hún átti 20 barnabörn og 26
langömmubörn. Fimm ungar
stúlkur í fjölskyldunni bera nafn
ömmu Maríu og mega þær vera
stoltar af.
María var gæfumanneskja. Hún
var skemmtileg, hafði lifandi frá-
sagnarhæfileika og var með fá-
dæmum minnug og fróð. Á efri
árum sat hún og málaði myndir
handa fjölskyldu og vinum, eink-
um blómamyndir. Hún undi sér
við handavinnu, lék ljómandi fal-
lega á píanó og hafði unun af góðri
tónlist.
María var falleg kona með létta
lund. Hún átti stóra og góða fjöl-
skyldu og hjá henni eyddi hún síð-
ustu vikum ævi sinnar á heimilum
barna sinna og tengdabarna. Þar
var hún jafnan aufúsugestur.
María var hress og hélt andleg-
um styrk fram á síðasta dag. Hún
kveið ekki ferðinni. Hennar styrk-
ur var trúin og vinirnir, sem biðu
hennar. Hún var góð ættmóðir.
„Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðar-hnoss þú hljóta skalt.“
Tengdadætur
Opnaðu bæinn, inn með sól!
Öllu gefur hún líf og skjól,
vekur blómin og gyllir grein,
gerir hvern dropa eðalstein.
Opnaðu bæinn!
Þessar ljóðlínur þjóðskáldsins
M. Joch. komu mér í huga við and-
lát Maríu Eyvindardóttur vinkonu
minnar, því svo mjög lýsa þær
sterkum eðlisþáttum hennar.
Máría fæddist í Reykjavík 25.
febrúar 1901 og andaðist hér í
fæðingarborg sinni 12. desember
sl. á 83. aldursári. Þar lauk löng-
um og óvenju farsælum lífsferli.
Foreldrar hennar voru sæmd-
arhjónin Soffía Jóhannsdóttir
Heilmann og Eyvindur Árnason
útfararstjóri. Voru þau hjón
einkar glæsileg og voru sannar-
lega í hópi þeirra manna, sem
settu svip á bæinn á fyrri helm-
ingi þessarar aldar. Hjá þeim ólst
María upp ásamt tveim yngri
systkinum sínum, Ósvaldi, síðar
útfararstjóra, og Dagmar, hús-
móður hér í borg, og eru þau bæði
látin.
Ung var María ágætum manni
gefin, Árna Böðvarssyni rakara-
meistara og síðar útgerðarmanni
um langt árabil. Þau gengu i
hjónaband 21. febrúar 1920 og stóð
sambúð þeirra í hálfan sjötta ára-
tug, eða þar til Árni féll frá, hinn
14. apríl 1975. Þau hófu búskap
hér í borg, en árið 1925 fluttu þau
búferlum til Vestmannaeyja þar
sem Árni stundaði iðn sína og
gerðist síðar útgerðarmaður. Þar
dvöldu þau í 15 ár, en sneru þá
aftur til Reykjavíkur, þar sem
heimili þeira stóð til æviloka.
Hjónaband þeirra var ham-
ingjuríkt og vissulega færði lífið
þeim margar dýrmætar gjafir.
Þeim varð sex barna auðið. Dæt-
urnar voru tvær en synirnir fjórir.
Elzta barnið, Fríðu Soffíu, misstu
þau er hún var 11 ára, harmdauði
öllum ættingjum og vinum.
Hin börnin eru þessi:
Erna, sem gift var Bjarna
Kristinssyni stofnanda og for-
stjóra Gierborgar hf. í Hafnar-
firði, en hann er látinn fyrir
nokkrum árum; Eyvindur verk-
smiðjustjóri kvæntur MarjJréti
Gestsdóttur og eru þau búsett í
Garðabæ; Böðvar frystihússtjóri í
Kópavogi, kvæntur Guðmundu
Gunnarsdóttur; Gunnar fram-
kvæmdastjóri í Kópavogi, kvænt-
ur Stefaníu Stefánsdóttur og
Gottfreð viðskiptafræðingur,
kvæntur Ásdísi Magnúsdóttur
húsmæðrakennara og eru þau bú-
sett í Garðabæ.
Allt er þetta mesta manndóms-
fólk og er mikiil ættbogi frá þeim
kominn. Niðjar Maríu og Árna eru
55 talsins.
María var sannkölluð ættmóðir.
Hún fylgdist af áhuga með öllum
þessum stóra hópi, tók þátt í lífs-
baráttu barnanna, eldri og yngri,
síglöð og uppörvandi. Börnin og
tengdabörnin elskuðu hana og
virtu. Þegar þau dvöldu erlendis
við nám og störf streymdu bréfin
frá þeim til hennar og enduðu
jafnan: „elsku amma skrifaðu mér
fljótt". Hún var ekki pennalöt og
skrifaðist á við frændfólk sitt í
Danmörku alla tíð, en þangað
hafði mðurbróðir hennar, Davíð
prentari, flutzt ungur.
María hafði fagra rithönd og
hún var listræn. Þegar börnin
voru öll flutt að heiman tók hún
að færa í letur ýmsa fróðleiksmola
um ætt sína og lífið í Reykjavík.
Og hún hélt til haga og safnaði
merkum blaðagreinum um menn
og málefni, og sagðist gera þetta
til fróðleiks fyrir börnin sín er
tímar liðu. Seinna tók hún til að
mála vatnslitamyndir og stundaði
þá iðju af kappi og náði furðu góð-
um árangri í þeim efnum. Eg á
litla mynd eftir hana, sem ég hefi
dálæti á.
María var ákaflega skapgóð og
hláturmild. Hún var skemmtileg
heim að sækja, því gestrisin var
hún með afbrigðum. Það var alltaf
kæti og gleði í kringum hana. Hún
var hlýieg í viðmóti og hjálpsöm
og um hana má með sanni segja,
að hún opnaði bæinn sinn.
Atvikin höguðu því svo til, að
þegar foreldrar mínir giftust árið
1901 var heimili þeirra í húsi
Soffíu og Eyvindar á Laufásvegi 2.
Þá var María á fyrsta ári. Æ síðan
hafa verið sterk vináttubönd milli
þessara tveggja fjölskyldna. Þar
hefur aldrei borið skugga á og
þess minnist ég þakklátum huga.
Fyrir hönd okkar systkinanna
kveð ég Maríu vinkonu mína og
bið henni Guðs blessunar. Börnun-
um hennar vottum við innilega
samúð okkar.
Katrín Helgadóttir
Mig langar til að minnast ömmu
minnar með nokkrum orðum, í
þakklætisskyni fyrir allar góðu
stundirnar, sem ég átti með henni.
Hún lést á afmælisdaginn minn,
12. desember.
Margar af bestu minningum
mínum eru tengdar ömmu og
Grenimel 35, þar sem þau afi
bjuggu. Þær voru ófáar næturnar,
sem ég fékk að gista hjá ömmu og
afa, og hámark heimsóknanna
var, þegar amma lék við mig í
mömmuleik.
Þegar ég varð eldri breyttust
leikirnir, en alltaf hafði amma
einhverju að miðla, því hún var
mjög fróð um gamla tímann og
sérstaklega var henni hugleikið að
segja frá liðnum dögum í „henni
gömlu góðu Reykjavík".
Fyrir rúmum tveim árum flutt-
um við hjónin í næstu götu við
ömmu. Hún kom oft í heimsókn til
okkar og við sátum og spjölluðum
um allt milli himins og jarðar.
Eftir að Þórir, sonur okkar, fædd-
ist í fyrrasumar, fórum við amma
stundum saman í gönguferðir með
barnavagninn. Þórir hændist
fljótt að „löngu“ eins og hann kall-
aði hana, enda þréyttist hún aldr-
ei á að spila fyrir hann á píanóið
eða kveða: „Fagur fiskur í sjó“.
Elsku amma mín ætlaði að
dvelja hjá okkur á aðfangadags-
kvöld og elda með mér jólamatinn.
Við hlökkuðum öll til. Hennar
munum við vissulega sakna.
Legg ég nú bæði líf og önd,
ljúfi Jesú, í þína hönd,
síðast þegar ég sofna fer
sitji Guðs englar yfir mér.
(Hallgrímur Pétursson)
Helga Gottfreðsdóttir
Grindavík:
Aðventuhátíð
Skólahljóm-
sveitarinnar
AÐVENTUHÁTÍÐ skólahljómsveit-
ar Grindavíkur verður haldin í dag,
sunnudag, í Grindarvíkurkirkju og
hefst hún kl. 17 með söng stúlkna úr
æskulýðskór kirkjunnar.
I fréttatilkynningu sem Mbl.
hefur borist, segir að efnisskrá há-
tíðarinnar verði fjölbreytt. Söng-
ur, hljóðfæraleikur og upplestur
verði meðal dagskráratriða.
í tilkynningunni kemur einnig
fram að kirkjunni hefur nýlega
borist flygill að gjöf frá fiskverk-
endum í Grindavík og Guðríður
Sigurðardóttir muni leika á hann
verk eftir Debussy.
Höfóar til
.fólksíöllum
starfsgreinum!
it>
Bladburðarfólk
óskast!
Vesturbær
Faxaskjól
Einarsnes
Garöastræti
Nýlendugata
Úthverfi
Ártúnsholt
pteröítiínítífíitiiiti
Austurbær
Ingólfsstræti
Neöstaleiti
Miöbær I
Freyjugata 28—49
PÓ5TURINN
MLL
1 vjðiuiimi ran uy imjuuiiiiii
Njáll eru vinir barnanna úr
sjónvarpinu. Nú er komin
hljómplata og kassetta meö
lögum úr þáttunum og auövit-
aö titillaginu: Palli póstur.
Gleöjiö börnin meö þessari
skemmtilegu tónlist. Fæst í
hljómplötuverzlunum um land
allt.
Heildsölu simi 29575/29544