Morgunblaðið - 18.12.1983, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 18.12.1983, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. DESEMBER 1983 41 Hornsteinn Alþingishúss við Austurvöll var lagður fyrir rúmum 103 árum, 9. júní 1880. Hilmar Finsen, landshöfðingi, lagði í hólf, sem gert hafði verið í steininn, allar þær peningamyntir er þá vóru í gildi, sem og silfurskjöld sem á var letruð forsaga byggingarinnar og biblíutilvitnun: „Sannleikurinn mun gera yður frjálsa". Byggingin var fullbúin í aprfl árið eftir og kostaði í þeirra tíma krónum 123 þúsund. Þegar hornsteinn hússins hafði verið lagður laust Pétur Pétursson, biskup, hann þreraur höggum með hamri og mælti: „I nafni heilagrar þrenningar“. Síðan var sungið vígsluljóð er Grímur Thomsen hafði ort Myndin sýnir dómkirkju og þinghús sem svo lengi hafa staðið hlið við hlið í hjarta höfuðborgarinnar. Ljósm- MbL Oi.k.m. honum snýr bæði í tekjusköttum og verðþyngjandi sköttum, s.s. vörugjaldi og söluskatti. Þann veg getur rikisstjórnin bezt treyst trúnað milli sín og fólksins i land- inu að staðið verði við stefnumið hennar í skattamálum, en i stjórn- arsáttmála frá í maí í vor stendur: „Ríkisstjórnin hefur ákveðið að bæta hag þeirra, sem verst eru settir, með eftirfarandi kjarabót- um: 1) Skattar og tollar, sem nú leggj- ast með miklum þunga á ýmsar nauðsynjavörur, verði lækkaðir, 2) Barnabætur barna að 7 ára aldri verði hækkaðar, 3) Tekju- skattur verði lækkaður með aukn- um persónuafslætti, 4) Jöfnun húshitunarkostnaðar verði aukin verulega, 5) Tekjutrygging lífeyr- isþega hækkar umfram laun, og mæðra- og feðralaun hækka sér- staklega, 6) Hækkun lífeyrisbóta verður í samræmi við almennar launahækkanir." Þegar hefur sumt af þessu þok- azt verulega áleiðis. En betur má ef duga skal. yStærstu árgangar Islandssögunnar“ í sérhæfðu þjóðfélagi nútímans ná menn naumast vopnum sínum í lífsbaráttunni nema búa að góðri menntun, einkum og sér i lagi sérhæfðri. Menntun gagnast ekki einvörðungu viðkomandi, sem hennar afla, heldur samfélaginu í heild, þegar grannt er gáð. Menntastofnanir framhalds- og sérnáms eru aðallega hér á höfuð- borgarsvæðinu. Nefna má, auk Háskóla íslands, Kennaraháskóla íslands, Tækniskóla íslands, Vélskóla íslands, Stýrimanna- skóla, Fiskvinnsluskóla, Hjúkrun- arskóla íslands, Myndlista- og handíðaskóla, Hússtjórnarkenn- araskóla íslands, Ljósmæðraskóla íslands, Sjúkraliðaskóla íslands, Þroskaþjálfaskóla íslands, Fóst- urskóla íslands, Lyfjatæknaskóla íslands, Hótel- og veitingaskóla íslands og fl. í greinargerð með tillögu til þingsályktunar, sem fjallar um húsnæðismál námsmanna, kemur fram, að „stærstu árgangar Is- landssögunnar" sé það æskufólk, sem nú er á aldrinum 18—25 ára. Þar segir ennfremur að fjöldi landsbyggðarfólks, sem nú stundi nám við framangreinda eða aðra sérskóla á höfuðborgarsvæðinu, sé 1.800—2.00«. Tillaga sú sem hér um ræðir fel- ur ríkisstjórninni, ef samþykkt verður, „að kanna sérstaklega á hvern hátt megi bæta úr þeim mikla húsnæðisvanda, sem náms- menn utan Reykjavíkur og ná- grennis búi við vegna staðsetn- ingar Háskóla íslands og flestra sérskóla". f greinargerð segir orðrétt: „Öllum er nú ljóst að húsnæði er ein af forsendum þess að hægt sé að stunda nám í Reykjavík. Alitið er að um 5.500—6.000 íbúðir séu á leigu í Reykjavík. Ásókn í þær er gífurleg, sbr. umfjöllun leigjenda- samtakanna, svo og skýrslu Fé- lagsstofnunar stúdenta frá 1982 um húsnæðisstöðu háskólastúd- enta. Samkeppnin um of fáar íbúðir gerir það að verkum að mikil fyrirframgreiðsla og tiltölu- lega há húsaleiga er oft forsenda fyrir því að fá íbúð á leigu. Þetta eykur mjög kostnað landsbyggð- arnemenda við öflun menntunar í Reykjavík, og mismunar þess vegna fólki vegna búsetu sinnar. Stór hluti þeirra 5.733 nemenda, sem nú stunda undirbúningsnám utan höfuðborgarsvæðisins, á eftir að leita á þennan þrönga húsnæð- ismarkað." Flutningsmenn tillögunnar eru Stefán Guðmundsson og fleiri þingmenn Framsóknarflokks. Hún er athyglisverð, ekki sizt vegna þeirrar sjálfsögðu mann- réttindaafstöðu, að þjóðfélags- þegnarnir hafi sem jafnasta að- stöðu til náms. Húsnæðiskreppan á höfuðborg- arsvæðinu á fyrst og fremst rætur í tvennu. Hið fyrra er að fráfarin ríkisstjórn og húsnæðismálaráð- herra (Svavar Gestsson) svipti hið almenna húsnæðislánakerfi helzta tekjustofni sínum, launaskattin- um. Þetta varð til þess að húsnæð- islán lækkuðu verulega sem hlut- fa.ll af byggingarkostnaði og færri og færri einstaklingar réðust í íbúðarbyggingar á eigin vegum. I annan stað var haldið þann veg á lóðamálum í Reykjavík á liðnu borgarstjórnarkjörtímabili, að skortur byggingarlóða dró enn úr byggingu íbúða. Fólk þarf að eiga val í húsnæð- ismálum: sjálfseignaríbúðir, leigu- íbúðir o.s.frv. En höfuðatriðið er að tryggja að húsnæðisframboð samsvari eftirspurn. Það verður aldrei gert án þess að virkja það framtak, sem í flestum einstakl- ingum býr, til að koma sér upp eigin þaki yfir höfuð, m.a. með viðráðanlegum almennum hús- næðislánum, bæði í hlutfalli af byggingarkostnaði og lengd láns- tíma. Þetta sjónarmið er viðurkennt í nýjum stjórnarsáttmála, en þar er því heitið að stefna í áföngum að því marki að húsnæðislán til þeirra er byggja í fyrsta sinn „geti numið allt að 80% af byggingar- kostnaði staðalíbúðar". Þegar hef- ur verið stigið nokkurt áfanga- skref, þrátt fyrir erfitt árferði í þjóðarbúskapnum. Vonandi verð- ur stutt í það næsta. AIWA Þrýsta á einn hnapp er allt sem þarf til, fyrir upptöku eða afspilun frá plötuspilara, útvarpi eða öðru. Engar flóknar átillingar á segulbandi eða magnara. Bæði plötuspilarinn og segulbandið hafa automatic „Intro-Play", það er með því að styðja á einn hnapp spilar hvort tækið sem er 10 fyrstu sek. af hverju lagi á plötunni eða kassettunni. Beindrifinn plötuspilarann er hægt að stilla til að hlusta á lögin á plötunni í þeirri röð sem þú óskar (og endurtekur ákveöna röö allt aö 10 sinnum). Sért þú að taka upp frá plötuspilara, sér segulbandið um að alltaf sé jafnt bil á milli laga á kassettunni. Segulbandið er með bæði B og C dolby. Útvarpiö er með LB, MB og FM stereobylgju og sjálfvirkan stöðvaleitara, einnig 12 stööva minni. Magnarinn er 2x45 RMS wött og tilbúinn fyrir Lazer plötuspilarann. Allt þetta ásamt fleiru og sérstaklega fal- legu útliti. Kostar aðeins kr. 48.880,- staðgr. V—700 Midi frá AIWA býður upp á ótrúlegar tækninýjungar. a tölvustýröa hljómtækjasamstæðan Þá býöur AIWA upp á einn þynnsta og fyrirferöarminnsta og jafnframt einn fullkomnasta Lazer plötuspilara á markaönum og á verði sem erfitt er að keppa við eða aðeins 900 Það borgar sig örugglega að kynna sér AIWA. D i. .i Kaaio j_r ARMULA 38 (Selmúlamegin) 105 REYKJAVÍK SÍMAR: 31133 83177 PÓSTHÓLF 1366

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.