Morgunblaðið - 18.12.1983, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. DESEMBER 1983
7
Það er runninn upp fjórði
sunnudagur í aðventu. Við er-
um að hefja lokaundirbúning
jólahátíðarinnar, hátíðar
Hans sem er að koma. Þannig
hefur kristin kirkja um aldir
búið sig undir komu Drottins,
sem fæddist í Betlehem og var
lagður í jötu. En þrátt fyrir
aðventusálmana, kertaljósin
og jólaguðspjallið, hluti sem
við þekkjum úr barnæsku og
við ósjálfrátt rifjum upp um
þetta leyti, megum við ekki
gleyma því, er síðar gerðist.
Sagan um Jesúm frá Nazaret
er engri annarri lík, það er
sagan um reifabarnið í Betle-
hem, trésmiðinn, er síðar varð
farandprédikari og hlaut að
lokum dauða á krossi. Það er
sagan um son Guðs, Drottin og
frelsara heimsins. Á þessum at-
burðum byggir kirkjan líf sitt
og starf.
En rödd kirkjunnar er að-
eins ein af mörgum. Kristnir
menn eru bara hluti mann-
kyns. Hvernig á hún að ná til
þeirra sem ekki hlusta, geta
ekki heyrt, þekkja ekki þessa
sögu. Hvernig á hún að ná til
þeirra, sem uppteknir eru af
allt öðru en fagnaðarerindum
Jesú Krists. Hvernig hljóðar
fagnaðarerindið í eyrum
þeirra þúsunda ungmenna sem
á hverju ári verða eiturlyfjum
að bráð vegna þess, að þau
þora ekki að horfast í augu við
grámósku hversdagsins?
Hvernig mætir það hinu ör-
vasa gamalmenni, sem bíður
dauða síns? Hvernig lætur það
í eyrum hinna mörgu milljóna
atvinnulausra manna víða um
heim, manna sem ekki eiga
nokkra von í þessu lífi? Hvern-
ig á það að bræða hjörtu
þeirra valdsmanna, sem ein-
ungis líta mátt sinn í vaxandi
vopnabúri, þessara manna,
sem sitja á þjóðum heimsins
og fremja illvirki sitt á hvað
með hörmulegum afleiðingum
fyrir milljónir manna, kvenna
og barna?
Á hvaða hátt mætir fagnað-
arerindið öllum þeim, sem búa
við stöðugan ótta og kvíða allt
sitt líf? Á það eitthvert erindi
til þeirra manna og kvenna
sem beðið hafa skipbrot í
hjónabandi sínu, eða þeirra
Sjá,
Guð yðar
kemur
foreldra, er fatast hefur í upp-
eldi barna sinna?
Þau stórkostlegu tíðindi eru
okkur öllum tjáð, að Hann er
að koma. Hann er í nánd. Við
finnum nálægð Hans, þó aug-
un greini hann ei. Hann gjör-
þekkir kjör manna og Hann
deilir þeim með okkur. Hann
þekkir einsemdina, leiðina,
þjáninguna og dauðann. Hann
gekk í gegnum allt þetta okkar
vegna. Og nú á jólaföstu erum
við enn minnt á atburð pásk-
anna, er Guð reisti son sinn
frá dauðum. Hann er með
okkur í tíma og eilífð.
Drottinn dó á krossi
dæmdur og grafinn var
sonur Guðs, er saklus
syndir heimsins bar
móti hans elsku
magnlaus dauðinn er
Kristur, með þeim kærleik
kom þú og hjá oss ver.
Einn af mörgum textum
þessa sunnudags er úr spá-
dómsbók Jesaja, 12. kafla. Þar
erum við hvött til þess að lof-
syngja Drottni, „því að dá-
semdarverk hefur Hann
gjört". Fagnið og gleðjist því
Hann einn er Drottinn, segir á
öðrum stað. Og þetta er okkur
boðað, sem nú lifum og byggj-
um, að því er virðist, hina
vonlausu veröld hörmunganna.
Þetta er okkur boðað, sem höf-
um gleymt því að gefa Guði
alla dýrðina, gleymt því, að
Hann er Drottinn og skapari,
líf okkar er í Hans höndum. í
miðri jólaösinni erum við
rækilega minnt á það, að við
erum ekki ein í veröldinni,
okkur líðst ekki að snúa baki
við eymd náungans. Við erum
hvött til þess að þjóna náung-
anum í kærleika, leggja lóð á
vogarskálar réttlætisins,
gleyma okkur í velferð náung-
ans. Því að sá, sem að týnir lífi
sínu mín vegna, mun finna
það, segir Jesús. Og það er líf
fyrir augliti Drottins, sem er
okkur nálægur í Jesú Kristi. í
því uppfyllist mennska okkar,
við verðum sannir menn. Og
við megum treysta því, að
Hann, sem er að koma, hefur
aldrei brugðist, mun aldrei
víkja frá okkur. Og það er mín
ósk og bæn til allra á jólaföstu,
að þeir sjái og upplifi þau spá
dómsorð, er komu til Jesaja
mörg hundruð árum fyrir
Krists burð: Sjá, Guð yðar
kemur.
Guð gefi öllum frið á jóla-
föstu.
KAUPÞING HF
Einbýli — Raöhús
Eyktarás, stórglæsilegt einbýll
á 2 hæöum. Fokhelt. Verö 2,5
millj.
Frostaskjól, raöhús. Ál á þaki,
glerjaö, útihurö og bílskúrs-
hurö. Fokhelt aö innan. 145 fm.
Verð 2.200 þús.
Kambasel, 2 raöhús 193 m2,
6—7 'herbergi. Tilbúiö til af-
hendingar strax, rúmlega fok-
helt. Verö frá kr. 2.280.000,-
Mosfellssveit, einbýlishús viö
Ásland, 140 m2, 5 svefnherb.,
bílskúr. Til afh. strax rúml. fok-
helt. Verö 2.060 þús.
4ra—5 herb.
Dvergabakki, 105 fm 4ra herb.
á 2. hæö. Aukaherb. í kjallara.
Verð 1700 þús.
Kríuhólar, 136 fm 5 herb. á 4.
hæö. Verð 1800 þús.
Kleppsvegur, 100 fm á 4. hæö.
Verð 1600 þús.
Hrafnhólar, ca. 120 fm á 5.
hæð. Verö 1650 þús.
Símatími í dag
frá 13—15
3ja herb.
Ofanleiti, ca. 106 fm. Afh. tilb.
undir tréverk í des. '84. Verö
1700 þús.
Meóalholt, 75 fm ásamt auka-
herb. í kjallara. Verð 1300 þús.
Hraunstígur Hf., 70 fm hæö i
þríbýli í mjög góöu ástandi.
Verð 1400 þús.
Krummahólar, 86 fm 3ja herb.
á 4. hæð. Bílskýli. Verö 1450
þús.
Garðabær — Brekkubyggð, 90
fm 3ja herb. í nýju fjórbýlishúsi.
Sérinng. Glæsileg eign. Verð
1850 þús.
2ja herb.
Hraunbær, 70 fm 2ja herb. á 2.
hæö. Verð 1250 þús.
Kópavogsbraut, 55 fm 2ja
herb. jaröhæð. Verð 1050 þús.
* 'fa
Árbæ. '&Averfi
2ja herb. ibúöir, afh. rúmlega
fokheldar eöa tilb. undir tréverk
1. júlí.
Asparhús
Mjög vönduð einingahús úr
timbri. Allar stæröir og geröir.
Verð allt frá kr. 378.967,-
Garöabær
3ja og 4ra herb. íbúöir afhend-
ast tilb. undir tréverk í maí
1985.
Mosfellssveit
Sérbýli fyrir 2ja og 3ja manna
fjölskylduna. Höfum 2 parhús
viö Ásland. 125 m2 meö bílskúr.
Afhent tilbúið undir tréverk í
mars 1984. Verö 1,7 millj.
Ártúnshöföi
560 fm iönaöarhúsnæöi á 2
hæöum. Afhent eftir ca. 6 mán.
90 fm verslunar- og lagerhús-
næöi í austurborginni.
KAUPÞING HF\
____Husi Verzlunarinnar, 3. hæd simi 86988
Sölumenn: Sigurður Dagbjartsson hs. 83135 Margrét Garðars hs. 29542 Guðrún Eggerts viðskfr.
ÐSTOÐ
VERÐBRÉFA-
IÐSKIPTANNtk
Hvernig ávaxtar þú
sparifé þitt
1,2,3....eða 11 %?
Verðtryggður sparnaður — samanburður á ávöxtun
Verfttrygging m.vlánskjaravisitölu Raun- ávöxtun F|öldl ára tll að tvöf. raungildi höfuöatóla Raunaukning höfuðat. eftir 7 ár
Veðskuldabréf 10% 7 ár 95%
Sparisk.ríkissj. 5% 14 ár 40.7%
Sparisjóðsreikn. 1% 70 ár 7.2%
il Dæmi um
raunauknmgu
höfuðstóls eftir# ár
ENN BATNA KJOR
SPARIFJÁREIGENDA
Getum nú boðið sparifjáreigendum áhættulausa skamm-
tímafjárfestingu frá 60 dögum til allt að fjögurra ára með
4.75% til 5.87% ávöxtun umfram verðtryggingu — án
óvissu um endurheimtu fjárins.
Kynnið ykkur nýjustu ávöxtunarkjörin á Verðbréfamarkaði
Fjárfestingarfélagsins.
SÖLUGENGIVERÐBRÉFA
19. desember 1983
Vefötryggð spartsklrtwni og happdrættlslén rikissföðs
Ar-flokkur Sölugengl pr kr. 100.- Raunvextlr m/v gftdtstima GHdistimi raunvaxta tH tnnl dags i Seöiabanka
1970-2 16.744,56 4,75% 46 d.
1971-1 14.259,70 5,12% 1 ár 266 d.
1972-1 13.111,30 5,25% 2 ár 36 d
1972-2 10.589,80 5,25% 2 ár 266 d.
1973-1A 8.022,08 5,37% 3 ár 266 d.
1973-2 7.741,47 5,50% 4 ár 36 d.
1974-1 5.004.86 5,50% 4 ár 266 d.
1975-1 3.931,57 4,75% 21 d.
1975-2 2.929,86 4,75% 36 d.
1976-1 2.685,20 4,75% 81 d.
1976-2 2.204.92 4,75% 36 d.
1977-1 1.954,70 4,75% 96 d.
1977-2 1.616,29 5,00% 261 d.
1978-1 1.325,34 4,75% 96 d.
1978-2 1.032,57 5,00% 261 d.
1979-1 899,22 4,75% 66 d.
1979-2 669,57 5,00% 266 d.
1980-1 586,53 5,12% 1 ár 116 d
1980-2 452,50 5,12% 1 ár 306 d.
1981-1 386.44 5,25% 2 ár 36 d.
1981-2 287,15 5,25% 2 ár 296 d.
1982-1 272,10 5,12% 1 ár 72 d.
1982-2 201,81 5,12% 1 ár 282 d.
1983-1 155.27 5,25% 2 ár 72 d.
1974-D 5.012,15 5,25% 91. d.
1974-E 3.440,20 5,50% 342 d.
1974-F 3.440,20 5,50% 342 d.
1975-G 2.252,44 5,63% 1 ár 342 d.
1976-H 2.068,01 5,75% 2 ár 101 d.
1976-1 1.619,90 5,75% 2 ár 341 d.
1977-J 1.446,51 5,87% 3 ár 102 d.
1981-1.fl. 308,27 5,75% 2 ár 132 d.
Veöskuidabréf — verötryggð
Sötugengi m.v. 2 afb á árl Natnvaxttr (HLV) Ávöxtun umtram sárðtr
1 ár 95,34 2% 8,75%
2 ár 92,30 2% 8,88%
3 ár 90,12 2%% 9,00%
4 ár 87,43 2V>% 9,12%
5 ár 84,94 3% 9,25%
6 ár 83,56 3% 9,37%
7 ár 81,22 3% 9,50%
8 ár 78,96 3% 9,62%
9 ár 76,75 3% 9,75%
10 ár 74,62 ' 9,87%
11 ár 72,54 3% 10,00%
12 ár 70,55 3% 10,12%
13 ár 68,60 3% 10,25%
14 ár 66,75 3% 10,37%
15 ár 64,97 3% 10,49%
16 ár 63,22 3% 10,62%
17 ár 61,57 3% 10,74%
18 ár 59.94 3% 10,87%
19 ár 58,42 3% 10,99%
20 ár 56.92 3% 11,12%
Veöskuldbróf óverötryggð
Sölugengi m/v 1 afb. á ári 18% 20% 25% (HLV) 33%
1 ár 80 81 84 87
2 ár 66 68 71 77
3 ár 57 59 63 69
4 ár 50 52 57 64
5 ár 45 47 52 60
Daglegur gengisútreikningur
Veröbréfamarkaður
Fjárfestingarfélagsins
Lækjargötu12 101 Reykjavik
lönaöarbankahúsinu Sími 28566