Morgunblaðið - 18.12.1983, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. DESEMBER 1983
19
Hugsa alltaf um
Guð af og til
Kristín Pétursdóttír
„Ég paeldi ekkert í spurninga-
tímunum áður en ég kom hingað,
en mér finnst þeir alveg ágætir,"
segir Kristín Pétursdóttir. Eldri
bróðir hennar hefur þegar verið
fermdur, og Kristín segir að það
hafi aldrei hvarflað að sér að
sleppa fermingunni. „Ég trúi á
Guð,“ segir hún af mikilli ein-
lægni.
Kristín segist alltaf fara með
fjölskyldunni í kirkju um jólin, og
í vetur hafi hún mætt nokkrum
sinnum á sunnudögum.
Ég spurði hana hvort hún hugs-
aði mikið um Guð þessa dagana.
„Jú, ég geri það alltaf af og til,“
svaraði hún, en sagðist ekkert
hafa velt því fyrir sér hvernig Guð
liti út. Kristín sagðist stundum
fara með stuttar bænir fyrir
svefninn, og kvaðst kunna bæði
Faðirvorið og trúarjátninguna.
„En ég hef líka verið í KFUK,“
bætti hún við.
Kannski of ungur
„Ég átti von á því að það væri
meira sem við þyrftum að læra
hérna," sagði Stefán Stefánsson,
en viðurkenndi að kannski væri of
snemmt að dæma um það.
„Það hefur stundum hvarflað að
mér að láta ekki ferma mig í vor.
Kannski er ég of ungur til þess, og
kannski er ég ekki tilbúinn að taka
ákvörðun," sagði Stefán.
Stefán hefur verið í sveit und-
anfarin sumur, og sagði að þar
færu allir til messu á sunnudög-
um. Sjálfur skreppur hann af og
til í kirkju á veturna, og hefur far-
ið nokkrum sinnum í vetur með
vini sínum í Dómkirkjuna. Hann
segist mest hafa gaman af sálm-
unum.
„Já, ég hugsa alltaf eitthvað um
Guð,“ sagði Stefán, „en ekki bara
hann, heldur líka um hina og
þessa karla sem séra Hjalti er að
segja okkur frá, Guðbrand biskup
og Odd Gottskálksson og svoleiðis
menn.“
Nú, ég er trúuð
„Nú, ég er trúuð," segir Ásta
Björk Lundbergsdóttir, og virðist
dálítið undrandi þegar ég spyr
hana af hverju hún ætli að láta
ferma sig í vor. Hún segir að eldri
systir sín hafi þegar verið fermd,
og finnst sjálfsagt að fylgja í
fótspor hennar.
„Eg get ekki sagt að ég fari oft í
kirkju," segir Ásta, „stundum þó á
sunnudögum," bætir hún við, og
viðurkennir að kirkjuferðir séu
ekkert sérlega spennandi.
Ásta fer yfirleitt með bænirnar
sínar áður en hún sofnar á kvöld-
in, og þær geta verið svolítið lang-
ar,“ segir hún.
Hvað er mest spennandi við
ferminguna í vor? spyr ég.
„Það verður engin veisla," segir
hún, „en ég fæ að fara út í lönd og
hlakka ofsalega til.“
Nokkrir gripir á listsýningunni, sem Lögberg hefur fengið að láni úr einkasafni í Reykjavík. Efst fyrir miðju er
arabískt handrit frá 1880, þar fyrir neðan innsigli Friðriks mikla Prússakeisara, til vinstri bréf frá Charies
Dickens og hægra megin páfabréf frá 1523, útgefið af Hadrianusi VI páfa.
Listsýning til heiðurs Finni
Jónssyni og Jóhanni Briem
í TILEFNI útkomu listaverka-
bóka þeirra Finns Jónssonar og
Jóhanns Briem, tveggja kunnustu
myndlistarmanna núlifandi, held-
ur Búnaðarbankinn sýningu á
verkum þeirra í sýningargluggum
og afgreiðslusal bankans í Austur-
stræti. Sýningin er sett upp í sam-
vinnu við útgefendur bókanna,
Almenna bókafélagið og Lögberg,
en Lögberg lánar að auki ýmsa
aðra listmuni til sýningarinnar,
sem forlagið hefur aftur fengið að
láni úr einkasafni svo sem leyf-
isbréf frá Vilhjálmi II Þýska-
landskeisara frá 1889, eiginhand-
arbréf frá Knut Hamsun og
Charles Dickens og fleira.
Myndir Finns Jónssonar á
sýningunni eru þessar: Róið til
fiskjar frá 1944, Ingjaldur í
skinnfeldi 1945—’50, Ragnarök
1940—’50, Verkamenn 1945,
Álfar 1976.
Verk Jóhanns Briem eru
þessi: Fornmenn ríða á Þingvöll
frá 1982, Það er fagurt á fjöll-
unum núna 1981, Börn á rauð-
um og hvítum kjól 1973 og Kýr í
haga frá 1976.
Finnur Jónsson vann lengst af sem
gullsmiður, og hér eru nokkur
verka hans til sýnis í Búnaðar-
bankanum ásamt mynd af lista-
manninum.
Myndin Kýr í haga eftir Jóhann Briem skreytir forsíðu bókarinnar en
verkið er í eigu Búnaðarbankans.
NYTT TOLUBLAD
lceland Review
Fjölbreytt, litskrúöugt og vandað. Tíu ár
frá gosinu í Eyjum, kirkjulist, 200 ára af-
mæli Skaftárelda, Óperan, fiskveiöarnar,
landiö í haustlitum og margt fleira.
Sendið vinum og viðskiptamönnum í út-
löndum gjafaáskrift að Iceland Review
1984. Kostar aðeins kr. 695.- (burðar-
gjöld um allan heim innifalin) og útgáf-
an sendir jóla- og nýárskveðjur til mót-
takenda í nafni gefanda. Hringið í
síma 84966 eða skrifið.
lcelandReview
<HJX>ÍDE> Höfðabakka 9, Reykjavík.