Morgunblaðið - 18.12.1983, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. DESEMBER 1983
45
Askorun til áhugamanna
um listir og menningu
Eftir Hans Kristján
Árnason
Um þessar mundir er verið
að kynna tillögur stjórnkerfis-
nefndar í fjölmiðlum. í tillög-
um nefndarinnar felast umtals-
verðar breytingar á skipan
Stjórnarráðs íslands, m.a. með
fækkun ráðuneytanna úr 13 í 8.
Samkvæmt frétt í Morgun-
blaðinu 10. desember sl. er haft
eftir Steingrími Hermannssyni,
forsætisráðherra, að tillögurn-
ar ásamt hugsanlegum breyt-
ingum, gætu orðið að lögum á
yfirstandi þingi.
Hér er á ferðinni mjög at-
hyglisvert mál — athyglisvert
fyrir þá sök að nú gefst áhuga-
fólki um listir og menningu ein-
stakt tækifæri til að láta í ljós
skoðun sína á yfirstjórn og
skipulagi menningarmála þjóð-
arinnar. Á ég hér við gamlan
draum um að menningarmál
verði sett undir sérstakt ráðu-
neyti og sérstakan ráðherra.
Slík skipan mála yrði ómet-
anleg lyftistöng fyrir allt lista-
og menningarlíf þjóðarinnar!
Til þessa hefur yfirstjórn
lista- og menningarmála til-
heyrt menntamálaráðuneytinu
(les: skólamálaráðuneytið),
nánar tiltekið lítilli deild innan
þess ráðuneytis, A-deild
(Safna- og listadeild). Undir
þessa fámennu deild heyra
málaflokkar eins og: Ríkisút-
varpið (sjónvarp og hljóðvarp),
tónlistarskólar, stuðningur við
bókmenntir og útgáfustarf-
semi, listamannalaun, náttúru-
verndarmál, mengunarmál sem
undir ráðuneytið falla, söfn,
þ.m.t. Landsbókasafn Islands,
almenningsbókasöfn, Þjóð-
minjasafn, náttúrugripasafn,
Listasafn íslands, og önnur
listasöfn. Þjóðleikhúsið, leikfé-
lög og önnur leiklistarstarf-
semi, listsýningar og önnur
listkynning innan lands og
utan, félagsstarfsemi á sviði
menningarmála, þ.m.t. Kvenfé-
lagasamband íslands, launa-,
kjara- og réttindamál, höfund-
aréttur, Barnaverndarráð ís-
lands og barnaverndarnefndir,
Menntamálaráð íslands og
menningarsjóðir, leiklistar-,
sönglistar- og listdansskólar,
Sinfóníuhljómsveit íslands o.fl.
o.fl.
Á ofangreindri upptalningu
má sjá hversu umfangsmikil
starfsemi þessarar undirdeild-
ar „skólamálaráðuneytisins" er.
Það gefur auga leið að fyrir
bragðið fellur öll yfirstjórn
lista- og menningarmála í
skuggann af „stóra bróður",
þ.e.a.s. menntamálum og þar
með fyrirferðarmestu mála-
flokkum ráðuneytisins.
Ég tel að fyrir löngu sé kom-
inn tími til að við Islendingar
mörkum stefnu í lista- og
menningarmálum þjóðarinnar
og styðjum myndarlegar við
bakið á þessum einum allra
mikilvægasta málaflokki
hverrar sjálfstæðrar þjóðar.
Ilans Kristján Árnason
Hér hefur skort alla reisn og
stefnufestu í menningarmálum,
sem hafa hingað til verið með-
höndluð eins og olnbogabarn
þjóðfélagsins. Hver einasta
menningarþjóð sem vill standa
undir nafni og halda höfðinu
hátt sér sóma sinn í því að hlúa
að listum og menningu með sér-
stöku ráðuneyti og sem alfarið
fer með mál af þessu tagi. Við
verðum að fara að skilja að til
þess að svo megi verða þarf að
viðurkenna málaflokka þessa í
verki mun betur en hingað til.
Hagstæðara að eiga spari-
fé eftir vaxtabreytinguna
— segir í fréttatilkynningu Seðlabanka íslands
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi fréttatilkynning frá
Seðlabanka íslands vegna vaxta-
breytinga 21. desember nk.:
Bankastjórn Seðlabankans hef-
ur ákveðið, að hinn 21. desember
nk. lækki vextir óverðtryggðra
innlána og útlána um 3,5—7 pró-
sent, og að vextir verðtryggðra út-
lána og sparifjár, sem fest er í
langan tíma, hækki um 0,5—1 pró-
sent. Að meðaltali lækkar ávöxtun
inn- og útlána með þessum
ákvörðunum um nálægt 5,5%. Með
breytingunum er stefnt að því að
samræma kjör verðtryggðra liða
og annarra, auk þess sem vextir
afurðalána vegna birgða til sölu
innanlands eru færðir til sam-
ræmis við almenna vexti, eins og
fram kemur í yfirlitinu hér á eftir.
Vaxtabreyting þessi er hin
fjórða í röð mánaðarlegra breyt-
inga, síðan í september, er verð-
bólga hafði lækkað niður fyrir
vexti. Enda þótt algengir vextir
verði nú aðeins um helmingur
þess, sem þeir voru fyrir 21. sept-
ember sl., er ástæða til þess að
vekja athygli á því, að þeir eru nú
mun hærri að tiltölu við verðlags-
og tekjubreytingar en þeir voru
fyrir fáum mánuðum, og reyndar
hærri en verið hafa um margra
ára skeið. Raunvextir hafa m.ö.o.
hækkað, sem þýðir að nú er hag-
kvæmara en áður var að eiga
sparifé, og á hinn bóginn óráðlegt
að taka lán nema til arðbærra
verkefna. Hækkun raunvaxta
hvetur því til ráðdeildar, sem brýn
þörf er fyrir í þjóðfélaginu, ef
draga á úr viðskiptahalla og
skuldasöfnun við útlönd.
Á þremur mánuðum, frá 1. sept-
ember til 1. desember, hækkaði
lánskjaravísitalan um 6,4%, sem
jafngildir 28% verðbólgu á ári.
Líklega hækkar vísitalan um 1,1%
nú í desember, en miðað við þá
hækkun í hverjum mánuði er
verðbólga aðeins um 14% á heilu
ári. Enda þótt örðugt sé að meta
verðbólgustig við núverandi að-
stæður, bendir allt til þess að það
sé nú talsvert undir 25% og enn á
niðurleið. Framangreind ákvörðun
um vexti var tekin með hliðsjón af
ýmsum verðbólgumælikvörðum,
en var þó einkum miðuð við, að
verðbólgan sé á bilinu 20—25% og
fari lækkandi.
Yfirlitið hér á eftir sýnir nafn-
vextina, sem taka gildi 21. desem-
ber. Til glöggvunar eru einnig
sýnd dæmi um ávöxtun, en með
henni er átt við það, hvað tiltekin
vaxtakjör jafngilda miklum árs-
vöxtum, ef greitt væri einu sinni á
ári, eftirá. Fram kemur, að ávöxt-
un útlána verður yfirleitt á bilinu
26—29% og ávöxtun sparifjár
21,5—26,6%. Ávöxtun verð-
tryggðra liða er hér áætluð að
þeirri forsendu gefinni, að verð-
bólga sé 24%. Vanskilavextir
verða lækkaðir úr 4% á mánuði í
3,25%, eða úr 48% á ári í 39%, en
í samanburði við verðhækkanir
verða þeir engu að síður afar háir.
Vaxtabreyting 21. desember 1983
Nafnvextir Metin ávöxtun
Fyrir Eftir Breyt- Fyrir Eftir Breyt-
21/12 20/12 ing 21/12 20/12 ing
Innlán.svcxtir: % % % % % %
Ávísanareikningar 15,00 10,00 — 5,00 10,00 6,67 - 3,33
Alm. sparittjóðsbækur 27,00 21,50 — 5,50 27,00 21,50 — 5,50
3ja mán. sparireikningar 30,00 23,00 — 7,00 32,25 24,32 — 7,93
12 mán. sparireikningar 32,00 25,00 — 7,00 34,56 26,56 — 8,00
6 mán. verðtr.reikn. 1,00 1,50 0,50 31,30 25,86 — 5,44
3ja mán. verðtr. reikn. 0,00 0,00 0,00 30,00 24,00 — 6,00
(JUánavextír:
lllaupareikningslán 28,00 23,50 — 4,50 34,27 28,46 — 5,81
Kndurseljanleg afurðalán 27,00 23,50 - 3,50 30,04 25,80 - 4,23
Víxillán 28,00 24,00 — 4,00 33,21 27,75 — 5,45
Skuldabréfalán 33,00 27,00 - 6,00 35,72 28,82 - 6,90
Verðtr. lán, f» mán. 2,00 2,00 0,00 32,60 26,48 — 6,12
Verðtr. lán, 2,5 árs. 2,50 3,50 1,00 33,25 28,34 — 4,91
Verðtr. lán, 5 ára 3,00 4,00 1,00 33,90 28,% - 4,94
Vanskilavextir:
Á mánuði 4,00 3,25 - 0,75 4,00 3,25 — 0,75
Á ári 48,00 39,00 — 9,00 48,00 39,00 - 9,00
Aths.: Taflan sýnir da mi um ávöxtun að gefnum vissum forsendum. Avöxtun veró-
tryggðra liAa miðast við þá forsendu, að verðbólga hafi verið 30% fyrir vaxtabreytinguna
og verði 24% eftir. Varðandi hlaupareikningslán er miðað við, að þ au séu að jafnaði
75% yfirdráttarheimildar. Dæmið um vfxla miðast við, að forvextir séu teknir til tveggja
mánaða, og um skuldabréf er tekið dæmi miðað við, að greitt sé af þeim tvisvar á ári
eða oftar.
E.t.v. má segja að nú séu verk-
efni .erlendra menningarráðu-
neyta fyrirferðarmeiri hérlend-
is en okkar eigið framtak á
sviði lista- og menningarmála!
Það er engum blöðum um það
að fletta að með stofnun sér-
staks menningarmálaráðuneyt-
is myndu þessi mál horfa allt
öðruvísi við en nú er raunin á.
Skora ég hér með á allt áhuga-
fólk um listir og menningu að
láta til sín taka með blaðaskrif-
um, fundum og undirskrifta-
söfnun — þannig að hugmynd
þessi fái alvöru umfjöllun á
næstu vikum og mánuðum. Sér-
staklega skora ég á öll samtök
og félög listamanna að beita sér
fyrir því að umræða hefjist um
þennan mikilvæga málaflokk
— sem er vitaskuld hagsmuna-
mál þeirra sjálfra, — en ekki
síður hagsmunamál þjóðarinn-
ar allrar. Sókn er best í vörn!
...HALDA PÉR VIÐ EFNIÐ!
Fréttirfrúfvrstu hcn uii!
MctsiHnNadá hverjnm degi!
AVftXTUNSf^
VERÐBRÉFAMARKAÐUR
Farið varlega
Islendingar
Rétt ávöxtun
sparifjár er besta
kjarabótin í dag.
Verðtryggð spariskírteini ríkissjóðs
Gengi 19.12/83
Ár Fl. Sg./100 kr
1971 1
1972 1
1972 2
1973 1
1973 2
1974 1
1975 1
1975 2
1976 1
1976 2
1977 1
14.896
13.483
11.007
8.315
7.925
5.186
4.066
3.021
2.759
2.273
2.006
Ar
1977
1978 1
1978 2
1979 1
1979 2
1980 1
1980 2
1981 1
1981 2
1982 1
1982 2
1983 1
Fl. Sg./100 kr.
2 1.673
2 1069 Över(ttryggð
veðskuldabréf
694 .
Ar
1
2
600
453
387
285
272
200
154
3
4
5
6
20%
75.8
67,3
60,5
55.1
50.8
47.2
33%
86,5
81,2
76.8
72.9
69.7
66.8
Verðtryggð
veðskuldabréf
Söhií.
Ar 2 afb/ári.
1 95,2 6 81,6
2 91,9 7 78,8
3 89,4 8 76,1
4 86,4 9 73,4
5 84,5 10 70,8
Öll kaup og sala verðbréfa miðast við daglegan
gengisútreikning.
*
Avöxtun ávaxtar fé þitt betur
# r f
AVOXTUNSf^
LAUGAVECUR 97 - 101 REYKJAVÍK
OPIÐ FRÁ10 — 17 -SÍMI 28815