Morgunblaðið - 24.12.1983, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. DESEMBER 1983
3
Magnús
Hafliðason
frá Hrauni
látinn
MAGNUS Hafliðason, útvegsbóndi
frá Hrauni í Grindavík, lézt 17. des-
ember síðastliðinn, 92 ára að aldri.
Magnús var fæddur á Hrauni
21. nóvember 1891. Hann var son-
ur hjónanna Sigríðar Jónsdóttur
og Hafliða Magnússonar og ólst
upp í stórum systkinahópi, aðal-
lega við sjósókn.
Fyrri kona hans var Katrín
Gísladóttir frá Urriðafossi í Flóa
og eignuðust þau fjögur börn,
þrjár dætur og einn son. Soninn
misstu þau er hann var um tví-
tugt, en dætur þeirra eru enn á
lífi. Árið 1948 giftist hann öðru
sinni, Önnu Þórdísi Guðmunds-
dóttir frá Kálfárvöllum í Staðar-
sveit á Snæfellsnesi, eftir að hafa
misst fyrri konu sína. Magnúsi og
Önnu varð ekki barna auðið.
Magnús var þekktur, bæði í
heimsveit sinni og víðar, fyrir sjó-
mennsku, björgunarstörf og fleira.
Sjóinn sótti hann allt fram á efri
ár, er heilsa hans brast og hann og
Anna Þórdís fluttust á Elli- og
vistheimilið Grund í Reykjavík.
Anna Þórdís lifir mann sinn og
býr nú á Elli- og vistheimilinu
Grund._____ _
Fólk ekki
borið út um
jól og áramót
„ÉG HEF engu við það, sem fram
er komið í Morgunblaðinu, að
hæta. Hvað gerist svo skýrist vænt-
anlcga einhvern tímann í upphafi
næsta árs. Fólk verður ekki borið
út um jól og áramót, það dettur
engum í hug,“ sagði Orn Smári
Arnaldsson, sonur Grímu Guð-
mundsdóttur, er Morgunblaðið
ræddi við hann á fimmtudag um
dómsniðurstöðu Hæstaréttar í út-
burðarmálinu á Akureyri.
Morgunblaðið reyndi að ná tali
af Grímu Guðmundsdóttur, en
vegna veikinda gat hún ekki rætt
þetta mál við blaðið. Þess vegna
varð sonur hennar, Örn Smári,
fyrir svörum.
„Þetta fólk hefur alltaf átt kost
á því að koma sér í annað hús-
næði og ef það reyndi að hlíta
dómi, gæti það komizt hjá því að
vera borið út. Það mætti jafnvel
koma fram, að þegar menn hlíta
dómi, þarf ekki að reyna á það, að
fylgja honum eftir neitt frekar,"
sagði Örn Smári Arnaldsson.
Lokað til
2. janúar
VEGNA viðgerða á skrifstofu
Sjálfstæðisflokksins í Valhöll við
Háaleitisbraut 1 verða skrifstof-
urnar lokaðar fram til 2. janúar
nk. Ef nauðsynlega þarf að ná í
starfsmenn Sjálfstæðisflokksins
er hægt að ná sambandi við þá í
símum 17979, 35734, 21018 og
33091.
Öryggi — þægingi — þjónusta
Hagstæðir samningar eru hagnaöur þinn.
Þú ert aðiii að toppafslætti í Útsýnarferð
1984.
Lykillinn að vel heppnaðri ferð.
Skoðanakönnun Útsýnar
um ferðaóskir og feröaval sýndi
eftirfarandi niöurstööur:
60%
kjósa ferö á sólarströnd í fögru umhverfi.
Spánn er efstur á vinsældarlista en næst kemur Ítalía,
Grikkland og Portúgal.
20%
kjósa dvöl í sumarhúsi Miö-Evrópu
16%
velja flug + bíl meö frjálsri feröatilhögun.
4%
velja siglingu eöa aðra ferðatilhögun í sumarleyfinu
Útsýn býður alla þessa valkosti
og alla farseöla á hagstæöum kjörum.
Samningar og reynsla okkar er þinn hagur og kjarabót.