Morgunblaðið - 31.12.1983, Síða 15

Morgunblaðið - 31.12.1983, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 1983 19 fstœðisflokksins: Efnahagskerfið þolir ekki jafn stóran flota til jafn lítilla veiða Alþingi hefur nú samþykkt ný lagaákvæði um stjórn- un fiskveiða á næsta ári. Þau fela sjávarútvegsráðherra mikið vald til stjórnunar. Hann hefur nú heimildir til þess að setja einstökum skipum aflamark. Ýmsum þyk- ir sem Alþingi hafi með þessu afsalað sér áhrifum og völdum. Þessar áhyggjur manna eru á misskilningi reistar. Hitt er áhyggjuefni, að nauðir hafa rekið Al- þingi til þess að takmarka sjálfræði útgerðarmanna og sjómanna. Þeir eiga að réttu lagi að fara sjálfir með stjórn sinna mála. Vandi okkar er á hinn bóginn sá, að flotinn er of stór og auðlindin takmörkuð. Tímabundnar ráðstafanir af þessu tagi voru því óumflýjanlegar. Framkvæmd þeirra er mörgum vandkvæðum bundin og getur aldrei fremur en önnur ofstjórn verið sanngjörn í alla staði. Afla- markið er þrátt fyrir umfang sitt aðeins brot þeirra úrlausnarefna í sjávarútvegi, sem glíma þarf við á næstu vikum. Það er sá hluti ísjakans, sem upp úr stendur. Meginhlutinn er í kafi enn. Þar verður þrautin þyngri að ákveða rekstrarforsendur sjávarútvegsins. í sambandi við rekstrarforsendurnar er rétt að menn átti sig á því strax, að útilokað er að tryggja öllum flotanum viðunandi skilyrði til áframhaldandi rekstrar. Einhver hluti flotans hlýtur því að fara úr umferð. Undan þessu verður ekki vikist. Það þolir ekkert efna- hagskerfi að halda úti jafn stórum flota til jafn lítilla veiða. Hvort heldur einhverjir hugsuðu sér gengislækk- un eða miilifærslur í þeim tilgangi myndi það sprengja efnahagskerfið. Hefðbundin leið fiskverðshækkunar og gengisfell- ingar dugar ekki við þessar aðstæður. Gengisfelling fjölgar ekki fiskunum í sjónum, hún lækkar ekki olíu- kostnaðinn og því síður grynnkar hún á skuldabyrði útgerðarinnar. Að einhverjum hluta verður að deila þessum vanda niður á þjóðfélagið. Ríkisvaldið er með öðrum orðum dæmt til þess að taka vandann að ein- hverju leyti á sínar herðar. Fyrr eða síðar verður að mæta því með skattheimtu. Hér er engra góðra kosta völ. En markmið okkar á að vera að koma sjávarútveginum á þann veg til hjálpar, að hann geti á nýjan leik skilað hámarksverðmæti inn í hagkerfið og útgerðarmenn og sjómenn geti búið við eðlilega sjálfstjórn og atvinnufrelsi með þeim réttind- um og skyldum er því fylgja. Umskipti í stjórn ríkisfjármála Þegar til lengri tíma er litið skiptir miklu máli, að umskipti verði í stjórn ríkisfjármála og peningamála. Um nokkur undangengin ár hafa ríkisfjármálin verið í mikilli óreiðu. Fjárlög hafa verið með öllu marklaus og voru svo óraunhæf fyrir þetta ár, sem er að líða, að hallinn verður geigvænlegur. Meginástæðan fyrir þessu er sú, að fjármálaráðherrar hafa hreinlega staðið ráð- þrota frammi fyrir ógnarhraða verðbólgunnar. Það er fyrst nú, þegar möguleikar eru á varanlegri verðbólguhjöðnun, að færi gefst til markvissrar fjár- málastjórnunar. Fjárlög næsta árs bera óræk merki breytinga. Engin tilraun er vísvitandi gerð til þess að setja fram óraunhæfar niðurstöður. Ljóst má þó vera, að á skömmum tíma verður ekki bætt úr öllum ágöllum fjárlaga að þessu leyti. Með markvissum aðhaldsaðgerðum hefur verið að því stefnt að draga úr ríkisútgjöldum. Á öllu veltur að fjármálastjórn næsta árs verði í samræmi við ákvæði fjárlaga að þessu leyti. Þá væri merkum áfanga náð. Framhjá hinu er ekki unnt að líta, að fjárlög eru nú afgreidd með rekstrarhalla. Þrátt fyrir umfangsmestu aðhaldsaðgerðir, er um getur í langan tíma, neyðumst við til þess í fyrsta skipti að taka erlend lán til þess að mæta útgjöldum A-hluta ríkissjóðs. Hallarekstur á ríkissjóði stefnir markmiðum um hjöðnun verðbólgu í hættu. Að því leyti, sem honum er mætt með innlendri lánsfjáröflun, dregur hann fjár- magn frá atvinnulífinu og getur leitt til hærri vaxta en ella. En við ríkjandi aðstæður var óverjandi að hækka skatta. Fyrir því var ákveðin áhætta tekin í þessu efni. Brýnt er, að núverandi stefnu í ríkisfjármálum verði fylgt fast eftir á næsta ári. Sérhver undansláttur í þeim efnum gengi gegn mikilvægum markmiðum um jafn- vægi og atvinnubyggingu. Skipulagsbreytingar á bankakerfi og peningastjórn Skipulag peningamálastjórnunar í landinu er um margt meingallað. Það á bæði við um bankakerfið og fjárfestingasjóðina. Á þessu sviði er mikilla umbóta og skipulagsbreytinga þörf. Helstu gallar kerfisins eru í fyrsta lagi fólgnir í ósjáifstæði og of mikilli pólitískri stýringu. Það hefur meðal annars leitt til þess, að ríkisstjórnir hafa um of skotið sér fyrir horn, þegar vandi hefur steðjað að og beitt peningakerfinu eins og það væri einhvers konar félagsmálastofnun atvinnulífsins. I annan stað hefur atvinnugreinaskipting þessa kerfis haft í för með sér óæskilega dreifingu útlánaáhættu. í þriðja lagi eru bankastofnanir of margar og of litlar. Með hliðsjón af þessu er brýnt að gerðar verði skipu- lagsbreytingar, er dragi úr umsvifum og áhrifum ríkis- ins. Vinna þarf að samruna banka og jafnvel fjárfest- ingasjóða. Ix)ks er brýnt að frelsi verði aukið varðandi vaxtaákvarðanir. Það á að gera í því skyni að auka sparnað og til þess að auka arðsemiskröfur varðandi útlán. Launþegar eiga mikið undir því, að lánsfjármagn at- vinnuveganna skili hámarks arði. Samtök þeirra hafa réttilega bent á, að verðbólgan á að hluta til að minnsta kosti rætur að rekja til óarðbærrar fjárfestingar. Með því að atvinnulífið hefur ekki skilað þeim ávöxtum, sem þjóðin gerði tilkall til voru reikningar þjóðarbúskapar- ins jafnaðir með því að minnka verðgildi krónunnar. Kerfisbreytingar á þessu sviði eru því eðlileg krafa bæði launþega og atvinnuvega. Þær eru ein af forsendunum fyrir því, hvort árangur efnahagsaðgerðanna verður varanlegur. Af öllu þessu má ráða að verkefnin framundan eru miklu meiri og erfiðari úrlausnar en það sem á undan er gengið. Ný og gömul viðhorf í alþjóðamálum Við aðstæður sem þessar vill hugurinn takmarkast við baslið sem næst okkur er. En okkur er eigi að síður hollt að hafa það jafnan hugfast, að við erum ekki einir í heiminum. Við verðum því á hverjum tíma að huga vel að stöðu okkar í samfélagi þjóðanna. f efnahagsþrengingum megum við síst af öllu ein- angrast. Við höfum nú meiri þörf en nokkru sinni fyrr að efla og treysta erlend viðskiptasambönd. Okkur skortir þekkingu og reynslu á þessu sviði. Með opnum huga og markvissum hætti þurfum við að auka erlend viðskiptaumsvif okkar. Þungamiðja utanrikisstefnunnar verður nú sem fyrr þátttaka í varnarsamstarfi vestrænna ríkja. Á þann veg höfum við tekið pólitíska afstöðu með þeim þjóðum, sem standa vörð um frelsi og mannréttindi. Það væri í full- komnu ósamræmi við sögu okkar og menningararfleifð að standa hjá þegar aðrir eru reiðuþúnir til þess að axla ábyrgð í baráttu fyrir háleitustu hugsjónum mannkyns- ins. Því miður er það varnarbarátta. En við höfum bæði vilja og stolt til þess að eiga hlut í þeirri skjaldborg sem reist hefur verið til varnar lýðræði og mannréttindum. Okkar eigið öryggi munum við áfram treysta með gagnkvæmu varnarsamstarfi við Bandaríkin. Það er nauðsyn bæði í pólitísku og hernaðarlegu tilliti við nú- verandi aðstæður. Um þessar mundir tengja menn gjarnan saman hug- tökin frið og framtíð. Okkur stendur öllum ógn af vá kjarnorkuvopnanna. Hitt vita allir menn, hvort sem þeim er ljúft eða leitt að viðurkenna þá þversögn, að valda- og hernaðarjafnvægið milli stórveldanna hefur varðveitt friðinn í okkar heimshluta í meira en þrjá áratugi. í Evrópu eru engin alvarleg teikn um togstreitu af því tagi, sem sagan hefur kennt okkur að helst leiðir til styrjaldarátaka. Á hinn bóginn er ærin ástæða til þess að hafa áhyggjur af því, sem er að gerast í Mið-Austur- löndum. Þar lifir í glæðum, sem hæglega gætu orðið að ófriðarbáli. Það væri verkefni fyrir friðarhreyfinguna að beina afli sínu til lausnar þeim átökum því þaðan er ófriðarhættan mest. Hún mætti einnig láta í ljósi áhyggjur af því hvernig mannréttindi eru fótum troðin í rómönsku Ámeríku og innan Sovétskipulagsins. Þó að þessi verkefni séu á marga lund nærtækust í baráttu fyrir friði megum við ekki loka augunum fyrir ógn kjarnorkuvopnakapphlaupsins. Við hljótum að taka undir allar kröfur um gagnkvæma afvopnun og útrým- ingu kjarnorkuvopna. fslendingar hljóta á alþjóðavett- vangi að standa einarðlega að þeirri kröfu. Brotthlaup Sovétríkjanna frá samningaviðræðunum um fækkun kjarnorkuvopna og úr öðrum afvopnunarviðræðum er einhver mesta ögrun við heilbrigða skynsemi, er um getur á síðari árum í alþjóðlegum samskiptum. Við skulum taka þátt í að knýja þá að samningaborðinu á ný, þó að kröfur þar að lútandi sjáist ekki á spjöldum friðarhreyfingarinnar og gleymist í þeim stólræðum, sem ákafast höfða til þeirrar þrár allra manna að búa við frið. íslendingar óska ekki eftir einhliða afvopnun fyrir þá sök, að hún raskar jafnvæginu og ógnar friði. Við mun- um ekki heldur slíta í sundur hugsjónirnar um frelsi, frið og mannréttindi. Guðbrandsbiblía, tungan og sagan Á næsta ári eru liðin fjögur hundruð ár frá því að Guðbrandsbiblía kom út. Útgáfa Guðbrands Þorláks- sonar á biblíunni 1584 hafði ekki aðeins gildi fyrir kirkjuna og kristinn boðskap. Hér var um að ræða einn merkasta menningarviðburð í sögu landsins. Engum blöðum er um það að fletta, að þýðing Odds Gottskálkssonar á Nýja testamentinu og útgáfu Guð- brands Þorlákssonar á biblíunni hafa á myrkum öldum danskrar stjórnar verið eigi lítill þáttur í varðveislu íslenskrar tungu. Þessi atburður orkaði á rás sögunnar í trúarlegum, menningarlegum og um leið stjórnarfars- legum efnum. Það er því við hæfi, að þessa merka viðburðar verði minnst á næsta ári með viðeigandi hætti. í ljósi þeirra umræðna, sem átt hafa sér stað upp á síðkastið um íslenska tungu og fslandssögukennslu, er enn frekar tilefni og ástæða til þess að gera þessum atburði sóma- samleg skil. Nú leika nýir og ferskir vindar um ráðuneyti mennta- mála þar sem of lengi hefur verið staðviðri. Ærin ástæða er til að hvetja til þess, að því merki verði á loft haldið. Við eigum að sækja fram í því skyni að efla og bæta íslenska tungu og auka þekkingu á sögu þjóðar- innar. Við eigum að tengja átak í þessum efnum upp- rifjun á þessum merka viðburði í menningarsögu lands- ins, þegar biskupinn á Hólum reis upp úr stjórnarfars- legri og efnahagslegri niðurlægingu með útgáfu biblí- unnar á íslensku. Þrátt fyrir efnahagslegar þrengingar eða e.t.v. vegna þeirra ber okkur að hlúa að hinum djúpu rótum ís- lenskrar menningar. Þá mun sólin kveikja vor í blööum blóma Sjálfstæðisflokkurinn hefur um skeið mátt þola illvíg innbyrðis átök. Þau hafa lamað stjórnmálalegt afl hans og þrótt. En umfram allt hafa þau valdið rótleysi í íslensku þjóðlífi. Það verður því ugglaust talinn einhver merkasti viðburður liðins árs, að fólkinu í Sjálfstæðis- flokknum tókst að fella saman á landsfundinum í nóv- ember það sem áður hafði í sundur gengið. Það var fólkið sjálft sem stillti saman strengi sína á grundvelli hugsjóna um frjálslyndi og sjálfstæði ein- staklinga. Þrautseigja Geirs Hallgrímssonar við erfiðar aðstæður gerði þetta mögulegt. Undir hans forystu vann flokkurinn mikla sigra og sigldi síðar út úr innri erfiðleikum. Fyrir allt þetta standa sjálfstæðismenn i þakkarskuld við Geir Hallgrímsson. Sú skylda hvílir á sjálfstæðismönnum að auka nú að afli og þrótti þessa miklu borgaralegu fylkingu. Vissulega hefur syrt í ál- inn. Það er fátt sem vekur með okkur bjartsýni á næsta ári. Við stöndum frammi fyrir miklum þrengingum. Ef Sjálfstæðisflokknum auðnast á hinn veginn að standa í forystu á þessum erfiðu tímum sem sá styrki stofn, er varð til meðal fólksins á landsfundinum, munum við sigla út úr öldurótinu. Það hvílir á Sjálfstæðisflokknum að knýja fram sársaukafullar aðgerðir og róttækar breytingar. Lánist okkur þetta getum við byggt hér upp blómlegt og þróttmikið atvinnulíf. Því aðeins getum við bætt lífskjörin með varanlegum hætti að þetta takist. Sjálfstæðismenn sakna margra góðra liðsmanna, sem fallið hafa frá á þessu ári. Allir hafa þeir þökk og virðingu fyrir mikið starf. Hér skal sérstaklega getið dr. Gunnars Thoroddsen. Hann var f áratugi í fylkingar- brjósti. Hann stóð flestum öðrum framar í málflutningi og vopnaburði stjórnmálanna. Sjálfstæðismenn sjá að baki velmetnum foringja og heiðra minningu hans. Nú kveikir sólin vor í blöðum blóma ..., segir Matthías Johannessen í kvæðinu ísland í draumi þín- um. Þrátt fyrir alla kekkina í þjóðarveislunni skal það verða ásetningur okkar við þessi áramót, að það verði ekki aðeins draumur heldur veruleiki, að sólin kveiki vor í blöðum blóma íslenska hagkerfisins. Ég óska landsmönnum öllum farsældar og friðar á nýju ári.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.