Morgunblaðið - 31.12.1983, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 31.12.1983, Blaðsíða 19
18 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 1983 Forseti tslands Vigdís Finnbogadóttir flytur nýársávarp sitt kl. 13 á nýársdag. Ljósm;nd Karl Öskarsson. Steingrímur Hermannsson, for- sætisráðherra, flytur ávarp kl. 20.00 á gamlársdag og verður því útvarpað og sjónvarpað samtímis. Eins verður með ávarp Andrésar Björnssonar útvarpsstjóra kl. 23.40. NÝÁRSDAGUR Forseti íslands Vigdís Finn- bogadóttir ávarpar þjóðina í út- varpi og sjónvarpi kl. 13.00 og verður nýársávarp hennar síðan endursagt á táknmáli í sjónvarp- Steingrímur Hermannsson forsct- isráðherra flytur ávarp kl. 20.00 á gamiársdag. Andrés Björnsson útvarpsstjóri flytur hugleiðingu kl. 23.40 á gamlársdag. Sjónvarp kl. 18 á nýársdag: Stundin okkar í Stundinni okkar á nýársdag lít- ur Ása inn í fiskasafnið í Vest- mannaeyjum og ræðir við forstöðu- mann þess, Friðrik Jesson, sem sýn- ir safnið og fræðir okkur um fisk- ana og sögu safnsins. Brúðubíllinn sýnir brúðuleikinn „Amma kennir Lilla að þekkja litina“, hljómsveitin Hrím leikur og Götunafnagátan verður á dagskrá. Smjattpattar og kínversku fjöl- listamennirnir skemmta og rúsínan í pylsuendanum verður þegar hinn kunni skemmtikraftur Eiríkur Fjal- ar ræðir við jólasveininn um ýmis vandamál sem fylgja starfi hans, en þessa heiðursmenn leika þeir Laddi og Gísli Rúnar Jónsson. Auk þess tekur Eiríkur Fjalar að sér kynn- ingar í Stundinni, ásamt Ásu. Laddi hefur í gegnum árin brugðið sér hin ýmsu gervi. Hér er hann sem Þórður húsvörður, en í Stundinni okkar á nýársdag kemur Eiríkur Fjalar í heimsókn, en það er Laddi sjálfur sem verður í gervi hans. Útvarp kl. 23.00 á nýárskvöld: Kvöldgestir — Jón Laxdal og Guðrún Stephensen Kvöldgestir Jónasar Jónassonar að kvöldi nýársdags verða þau Guð- rún Stephensen leikari og Jón Lax- dal leikari og rithöfundur. Bæði eru þau kunnir listamenn á sínu sviði. Leikrit Jóns, „Návígi", var til að mynda nýlega sýnt í Þióðleikhúsinu. Árið 1972 kom Jón til Islands og lék sem gestaleikari í Óþelló í Þjóð- leikhúsinu og í leikriti Jökuls Jak- obssonar, „Dómínó“, sem sýnt var r Iðnó sama ár. Guðrún hefur starfað sem leik- ari um árabil, og einnig var hún Útvarp kl. 14.35 á nýársdag: Lífs- nautnin frjóva“ — rætt um vænlegar leiðir til hamingju Þáttur um hamingjuna, verður á dagskrá útvarpsins á nýársdag klukkan 14.35. „Við fjöllum fyrst og fremst um nautnahyggju og vellíðunar- hyggju," sagði Arthúr Björgvin Bollason, annar umsjónarmanna þáttarins. „Gerð verður grein fyrir kenningum yngri og eldri heimspekinga um jarðneska sælu og vænlegar leiðir til að öðlast hamingju. Þeir leggja annars veg- ar áherslu á líkamlega vellíðan og hins vegar á að menn svali fyrst og fremst þorsta hugans. Ennfremur komum við inn á þær hindranir sem verða á vegi manna er þeir leita hamingjunn- ar. Við tökum kafla úr allri menn- ingarsögunni og fléttum inní bókmenntalega texta eins og frá Sigurði Nordal og sömuleiðis verða flutt ljóð um hamingjuna. Allt er þetta kryddað með músík- ölsku ívafi. Bertolt Brecht syngur til að mynda eigin texta úr Tú- skildingsóperunni, en ekki er vit- að til að hann hafi sungið nema tvö lög inn á hljómplötu. Að lokum verða í þættinum nokkrar skilgreiningar á hugtak- inu HAMINGJA, auk þess sem við veltum vöngum yfir, og hugleiðum þetta hugtak öðrum til uppörvun- ar. Útvarp kl. 19.25 á nýárskvöld: „Látum barnið borga" — smásaga eftir Herdísi Egilsdóttur fyrir foreldra í nútíð og framtíð „Látum barnið borga", smásaga eftir Herdísi Egilsdóttur, verður flutt í útvarpi 1. janúar kl. 19.25. Herdís les söguna sjálf og um efni hennar hafði hún þetta að segja: „Þetta er saga um litla fjölskyldu og er aðallega ætluð eyrum foreldra í nútíð og framtíð. Hún segir frá því hvernig persónugervingur nútímans kemst upp á milli ungs barns og foreldra þess, með ísmeygi- legum fortölum sínum og tækni. Ungu hjónin láta til leiðast fyrir hans orð, að taka þátt í miskunnarlausu lífsgæðakapphlaupi og leggja allt í sölurnar til þess að höndla hamingjuna á þann hátt, en komast að því, raunalega seint, að þau leituðu hennar langt yfir skammt. Guðrún barnakennari í nokkur ár. Hún lék meðal annars Soffíu frænku í barnaleikritinu „Kardimommu- bærinn" og kerlingu Jóns.í „Gullna hliðinu". Um þessar mundir leikur Guðrún í „Línu langsokk," sem sýnd er í Þjóð- leikhúsinu. Þess má geta í lokin, að þau voru skólafélagar í Leiklistar- skóla Þjóðleikhússins á árunum 1952-1953. Sigurbjörn Einarsson fyrrver- andi biskup flytur ræðu í þættin- um „Á Skálholtsstað". Útvarp kl. 21 á nýárskvöld: „A Skál- holtsstað“ „Á Hkálholtsstað" nefnist þátt- ur sem verður á dagskrá útvarps kl. 21.00 á nýársdag og var efni hans að hluta til hljóðritað á Skálholtshátíð sl. sumar. Dr. Sigurbjörn Einarsson fyrrv. biskup flytur ræðu, Matthías Johannessen les ljóð sitt „I Skálholtskirkju" og Hjörtur Pálsson les þýddan ferðabókarkafla eftir Martin A. Hansen. Kór Nicolai-kirkjunnar í Hamborg, ásamt söngkonun- um Angeliku Henschen og Metu Richter, syngur undir stjórn Ekkehard Richters kantötuna „Der Herr denket an uns“ eftir Bach og „Þýska messu“ eftir Jo- ann Nepomuk David. Sólrún Bergþór Lára Útvarp kl. 22.35 á nýárskvöld: Ljóðasöngur í útvarpssal Hjónin Bergþór Pálsson, baritón, og Sólrún Bragadóttir, sópran, verða með Ijóðasöng í útvarpssal að kvöldi nýársdags klukkan 22.35. Lára Rafnsdóttir leikur með á píanó. Bergþór og Sólrún stunda bæði söngnám við tónlistarskólann í Bloomington í Indiana-ríki í Bandaríkjunum og eru nú á öðru ári þar. Þetta er í fyrsta sinn sem þau syngja í útvarpi, en þau hafa bæði komið fram i óperum sem tónlist- arskólinn í Bloomington hefur sett upp. Pálína fyrir utan torfbæ sinn sem að öllum Ifkindum er sá síðasti sem bú- ið er í. Sjónvarp kl. 20.50 á nýárskvöld: Ómar heimsækir Pálínu bónda að Skarðshlíð „Lágu dyr og lágu göng“ nefnist sjónvarpsþáttur Ómars Ragnarsson- ar sem sýndur verður kl. 20.50. á nýársdag. Hann skreppur að þessu sinni í heimsókn til Pálínu Kon- ráðsdóttur, 83 ára einbúa og bónda á Skarðsá í Sæmundarhlíð í Skaga- firði. Skarðsá er eftir því sem best er vitað síðasti torfbærinn sem búið er í og líkist þeim húsakynnum sem íslensk alþýða bjó í um aldir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.