Morgunblaðið - 31.12.1983, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 31.12.1983, Blaðsíða 16
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 1983 15 Dagskráin um áramótin Útvarp kl. 23.30 á gamlársdag: Karlakórinn Fóstbræóur flytur verkið ásamt Sinfóníuhljómsveit fslands. „Brennið þið vitar“ „Brennið þið vitar", lag Páls ísólfssonar, verður flutt í útvarpi af karla- kórnum Fóstbræður og Sinfóníuhljómsveit Is- lands kl. 23.30 á gaml- ársdag. Páll ísólfsson tónskáld Útvarp kl. 16.20 á gamlársdag: Fréttaann- áll ársins sem er að líða FRETTAANNÁLL útvarpsins verð- ur á dagskrá kl. 16.20 á gamlársdag. „Þetta verður nú ekki tómur lestur, en með hefðbundnu sniði að öllum líkindum," sagði Þor- grímur Gestsson í viðtali við Mbl., en Þorgrímur er einn af fjórum umsjónarmönnum þáttarins. „Stiklað verður á helstu atburðum ársins sem er að líða, innlendum sem erlendum ásamt íþróttaat- burðum. Og við ætlum að reyna að gera þetta svolítið fjörlega, skjóta inn í brotum af viðtölum og jafn- vel skreppa út á götu og spyrja fólk hvað því finnist eftirminni- legast af atburðum ársins. Það mætti því benda fólki á að fara að rifja upp strax." Sjónvarp kl. 21.35 á gamlárskvöld: Enginn Billy Smart en sirkus engu að síður Þýskur hópur fjöllistamanna sýnir listir sínar í sjónvarpinu í kvöld. Fjölleikahús Billy Smart hefur nú hætt starfsemi sinni og hverf- ur því af sjónarsviðinu eftir að hafa verið fastur gestur á skjá okkar íslendinga síðastliðin 10 gamlárskvöld, eða frá 31. desem- ber 1972. Þýski hópurinn sýnir sígild fjöl- leikahúsatriði. Trúðar og ljón verða meðal þeirra sem skemmta í sjónvarpinu frá klukkan 21.35 til 22.40. Sjónvarp kl. 14.15 á gamlársdag: „Þytur í laufi“ — þeir Moldi, Froski, Greifingi og Rotti lenda í ævintýrum Bresk brúðumynd, „Þytur í Laufi“, verður á dagskrá sjónvarps kl.14.15 á gamlársdag. Myndin er gerð eftir samnefndri barnabók Kenneth Grahame og lýsir ævin- týrum fjögurra dýra, moldvörpu, greifingja, frosks og rottu, sem birt ast í gervi breskra góðborgara um aldamótin. fþróttir og enska knattspyrnan eru að vanda á dagskrá sjónvarps á gamlársdag. Meðal efnis að þessu sinni er sýning heimsmeistara í skautaíþróttum, heimsbikarkeppnin í skíðaíþróttum og úrvalsdeildin í körfuknattleik. Útvarp kl. 00.10 á gamlárskvöld: Er árið liðið? Er árið liðið? er nafn á útvarpsþætti sem hefst þegar tíu mínút- ur eru liðnar af nýja árinu, það er að segja í kvöld kl. 00.10. Ekki reyndist unnt að fá upplýsingar um efni þáttarins hjá útvarpinu, aðrar en þær að sungið yrði, talað og dansað. Þó hefur öruggur heimildarmaður blaðsins tilkynnt að djass- hljómsveitin Bigband muni leika léttan djass í hálfa klukkustund eftir klukkan 1 eftir miðnætti.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.