Morgunblaðið - 31.12.1983, Page 17

Morgunblaðið - 31.12.1983, Page 17
16 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 1983 Sjónvarp kl. 22.40 á gamlárskvöld: 6. Hvað eru mennirnir að gera? Svar: ________________________ 2. 1‘essi kona er stödd: a) f hannyröaverslun Lóu □ b) um borð í farþegaskipi □ c) í Þjóðminjasafninu □ 1. Þessi kona sem kemur fram í Skaupinu er: a) Astralíumeistari í cha cha cha á fundi með íslenskum fótsnyrti- fræðingum á Hótel Sögu □ b) fræg amerísk sjónvarpsstjarna sem kom hingað til lands í því skyni að koma tveggja ára syni sínum fyrir á góðu, íslensku sveitaheimili □ c) fyrrverandi fegurðardrottning Englands á fundi hjá félagi hár- kollugerðarmeistara með þátt- takendum í alþjóðlegu fegurðar- samkeppninni sem haldin verður á íslandi á næsta ári á vegum jafnréttisráðs □ 5. Þessi broshýra kona leikur við hvern sinn fingur í Skaupinu og segir: a) Við byrjum á einfoldum æfing- um ... □ b) Nú tökum við þráðlaus spor ... □ c) Gleðilegt ár! □ Áramótaskaup góðlátlegt og græskulaust gaman Áramótaskaup sjón- varpsins verður á dagskrá klukkan 22.40 í kvöld. Höf- undar skaupsins aö þessu sinni eru Andrés Indriöason og Þráinn Bertelsson og að þeirra sögn er hér um að ræða þjóðlífsspéspegia. „Við höfum víða leitað fanga enda af nógu að taka. Þetta er þó allt góðlátlegt og græskulaust gaman, eins og vðra ber,“ sagði Andrés er blm. forvitnaðist um efni skaupsins. „Stjörnur og stjórnmál ársins verða í brenni- depli eins og fyrri daginn og ef- laust koma sumir auga á sjálfa sig 4. Söngglaði skaupkúrekinn á hesti sínum. Syngur hesturinn með? •) Ján b) Nei □ 3. Þessi heiðursmaöur tekur svo til orða í Skaupinu: a) Þetta var nú meira árið! □ b) Nú sláum við öllu upp í grín! □ c) Við tökum öllu sem að höndum ber með brosi á vör! □ í þeim sextíu smámyndum, sem koma fyrir augu á þeim stuttu sextíu minútum, sem skaupið hef- ur til umráða. Það er álitlegur hópur gaman-' leikara sem birtist í áramóta- skaupinu að þessu sinni. Átta leik- arar fara með samtals hundrað og ellefu hlutverk. Þarna eru ný- græðingar í sjónvarpi, Guðmund- ur Ólafsson, Pálmi Gestsson og Örn Árnason, ungir leikarar sem hafa þegar getið sér gott orð á leiksviði. Við hlið þeirra standa leikarar með ögn meiri reynslu, Hanna María Karlsdóttir, Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, Edda Andrés Indriðason, annar höfunda Skaupsins, rýnir í myndavélina hjá myndatökumanninum, Agli Aðal- steinssyni. Björgvinsdóttir og Sigurður Sig- urjónsson. Kunnir gamanleikarar allt saman, en ég má nú alls ekki gleyma að nefna einn mann, sem einnig kemur fram í skaupinu. Það er hann Árni Tryggvason, sem hefur kitlað marga hlátur- taugina um dagana. Þórhallur Sigurðsson leikstýrði þessu ágæta liði. Leikmyndirnar eru eftir Gunnar Baldursson og Magnús Kjartansson sér um tón- listina." Andrés Indriðason stjórnaði upptöku á skaupinu, en vindum okkur nú út í aðra sálma ... Meðfylgjandi myndir eru af nokkrum þeirra sem koma við sögu í skaupinu í kvöld. Geta les- endur sér til gamans reynt að ráða í hvaða fólk þetta er, hvað það er að segja, hugsa eða aðhafast. Að skaupinu loknu má svo sjá hvort krossarnir hafa lent á réttum stöðum. Góða skemmtun og gleði- legt nýár! L4UG4RD4GUR 31. desember Gamlársdagur 13.45 Fréttaágrip á táknmáli 14.00 Fréttir, veður og dagskrár- kynning 14.15 Þytur í laufi (Wind in the Willows) Bresk brúðumynd gerð eftir sígildri barnabók eftir Kenneth Grahame. Myndin lýs- ir ævintýrum fjögurra dýra, moldvörpu, greifingja, körtu og rottu, sem birtast í gervi breskra góðborgara um alda- mótin. Þýðandi Dóra Hafsteins- dóttir. 15.35 íþróttir og enska knatt- spyrnan Efni þáttarins: Sýning heims- meistara í skautaíþróttum, heimsbikarkeppni í skíðaíþrótt- um, úrvalsdeildin í körfuknatt- leik og enska knattspyrnan. 20.00 Ávarp forsætisráöherra, Steingríms Hermannssonar. 20.15 Innlendar og erlendar svipmyndir frá liðnu ári. Um- sjón: Fréttamenn Sjónvarpsins. 21.35 í fjölleikahúsi Þýskur sjónvarpsþáttur. Fjöl- listamenn, trúðar og dýr leika listir sínar á hringsviði fjölleika- hússins. 22.40 Áramótaskaup Stjörnur og stórmál ársins í spéspegli. Höfundar: Andrés Indriðason og Þráinn Bertels- son. Leikstjóri: Þórhallur Sig- urðsson. Hljómsveitastjóri: Magnús Kjartansson. Leikend- ur: Árni Tryggvason, Edda Björgvinsdóttir, Guðmundur Ólafsson, Hanna María Karls- dóttir, Lilja Guðrún Þorvalds- dóttir, Pálmi Gestsson, Sigurð- ur Sigurjónsson og Orn Árna- son. Stjóm upptöku: Andrés Indriðason. 23.40 Ávarp útvarpsstjóra, Andrés- ar Björnssonar. 00.05 Dagskrárlok. SUNNUD4GUR 1. janúar Nýársdagur 13.00 Ávarp forseta íslands Forseti íslands, Vigdís Finn- bogadóttir, flytur nýársávarp sem síðan verður endursagt á táknmáli. 13.25 Innlendar og • erlendar svipmyndir frá liðnu ári. Endur- teknir þættir frá gamlárskvöldi. 14.35 Turandot Ópera eftir Giacomo Puccini. Sýning Ríkisóperunnar í Vín- arborg. Illjómsveitarstjóri Lor- in Mazel. Aðalhlutverk: Eva Marton, José Carreras, Katia Ricciarelli og John-Paul Bogart. Óperan gerist í Peking fyrr á öldum, að mestu við hirð keisar- ans, og segir frá Turandot prinsessu og prinsi úr fjarlægu ríki sem leggur höfuð sitt að veði til að vinna ástir hennar. Þýðandi Óskar Ingimarsson. 17.00 Hlé 18.00 Hugvekja Séra Myako Þórðarson, prestur heyrnleysingja, flytur. 18.05 Stundin okkar Umsjónarmenn: Ása H. Ragn- arsdóttir og Þorsteinn Marels- son. Stjórn upptöku: Elín Þóra Friðfinnsdóttir. 19.00 Hlé 19.45 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir, veður og dagskrár- kynning 20.25 Erling Blöndal Bengtson Erling Blöndal Bengtson leikur á selló svítu nr. 5 í c-moll eftir J.S. Bach. Stjórn upptöku: Tage Ammendrup. 20.50 Lágu dyr og löngu göng Að Skarðsá í Sæmundarhlíð í Skagafirði er eftir því sem best er vitað síðasti torfbærinn á ís- landi, sem búið er í og líkist þeim húsakynnum sem íslensk alþýða bjó í um aldir. Þar býr Pálína Konráðsdóttir, 83 ára bóndi og einbúi, og unir vel hag sínum. Myndataka: Helgi Sveinbjörnsson. Hljóð: Oddur Gústafsson. Umsjónarmaður: Ómar Ragnarsson. 21.30 Jenný Annar þáttur. Norsk sjón- varpsmynd í þremur þáttum, gerð eftir samnefndri sögu eftir Sigrid Undset, með Liv Ull- mann í aðalhlutverki. Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir. (Nord- vision — Norska sjónvarpið.) 22.50 Dagskrárlok. AHMUD4GUR 2. janúar 19.35 Tommi og Jenni bandarísk teiknimynd. 19.45 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veður 20.30 Auglýsingar og dagskrá 20.35 Sjónvarp næstu viku Umsjónarmaður Guðmundur Ingi Kristjánsson. 20.50 íþróttir Umsjónarmaður Ingólfur Hann- esson. 21.25 Allt á heljarþröm Lokaþáttur. Breskur grínmyndaflokkur. Þýðandi Þrándur Thoroddsen. 21.50 Bláþyrillinn (The Kingfisher) Bresk sjónvarpsmynd gerð eftir samnefndu leikriti eftir William Douglas Home. Leikstjóri James Cellan Jones. Aðalhlutverk: Rex Harrison, Wendy Hiller og Cyril Cusack. Roskinn piparsveinn og ekkja taka upp þráðinn að nýju þar sem frá var horfið i blóma æsk- unnar. Þýðandi Jóhanna Þráinsdóttir. 23.15 Dagskrárlok

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.