Morgunblaðið - 31.12.1983, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 1983
Pólland:
Fresta verð-
hækkununum
Varsjá, 30. desember. AP.
PÓLSK stjórnvöld hafa frestað verðhækkunum, sem boðad hafði verið,
að yrðu um áramótin, og munu þær ekki verða fyrr en í febrúar. Eru
yfirvöldin talin hafa áhyggjur af andstöðu almennings.
Haft er eftir heimildum, að
verðhækkununum verði jafnvel
frestað lengur en fram í febrúar
en embættismenn vilja ekkert
um það segja. Verðhækkanirnar
munu auka framfærslukostnað-
inn um 10—15% og hafa verið
kynntar og „bornar undir laun-
þega“ í marga mánuði. Er það
gert til að þær komi engum á
óvart og að minni hætta verði
þá á ókyrrð í landinu vegna
þeirra. Leiðtogar Samstöðu hafa
hvatt almenning til að mótmæla
verðhækkununum en það voru
einmitt miklar og skyndilegar
verðhækkanir, sem urðu til að
Samstaða var stofnuð.
Sprengjur sprungu
í tveimur moskum
Tel Aviv, 30. deseraber. AP.
SPRENGJUR SPRUNGU við tvær moskur múhameðstrúarmanna í
Hebron, á vesturbakka Jórdanárinnar í gær. Einn maður særðist, en
enginn dó. Öfgasamtök gyðingu voru fljót að stæra sig af tilræðinu og
hótuðu framhaldi á hryðjuverkum í sama dúr, bæði gegn múhameðstrú-
armönnum og kristnum.
í kjölfarið á hótunum hryðju-
verkamannanna, var gerð um-
fangsmikil leit að sprengjum,
einkum var fólk beðið að vera á
verði við moskur og í strætis-
vögnum. Það hreif, farþegi fann
sprengju í strætisvagni í Jerús-
alem og tókst að gera hana
óvirka áður en skelfing hlaust
af.
Múhameðstrúarmenn úr fylk-
ingum shita og sunna efndu til
setumótmæla í moskum sínum í
Líbanon og var mótmælunum
beint gegn ísraelska herliðinu
sem hefur aðsetur í suðurhluta
landsins. ísraelsmenn svöruðu
með því að loka aðalsamgöngu-
æðinni að yfirráðasvæði þeirra
við Awali-fljót. Leyniskyttur
skutu all oft að ísraelskum her-
mönnum í gær, en mannfall
varð ekki.
Hungursneyð hefur ríkt víða í Afríku á þessu ári. Þessi mynd er frá
Chad, þar sem þurrkar hafa leikið innfædda grátt. Hirðinginn á mynd-
inni heldur á hálfsoltnu barni sínu. Það á dauðann vísan fái það ekki
nauðsynlega næringu innan fárra daga.
211% verð-
bólga í
Brazilíu
Rí« de Janeiro, 30. desember. AP.
NÝTT verðbólgumet var sett í Brazilíu
á árinu. Nú í árslok liggur fyrir að
verðbólga ársins er 211% og hefur hún
því tvöfaldazt frá fyrra ári er hún var
99,7%, samkvæmt upplýsingum stofn-
unar, sem stjórnvöld hafa hingað til
tekið mark á.
Dregið hefur þó úr verðbólguhrað-
anum síðustu mánuði vegna íhlutun-
ar stjórnvalda í kaupgjalds- og verð-
lagsmál. Þannig hækkaði fram-
færslukostnaður um 7,6 prósentustig
i desember og koma þar fyrst og
fremst til verðhækkanir á almenn-
um neyzluvörum.
Brazilíumenn eiga við gífurlega
efnahagsörðugleika að etja og sjá
þeir vart út úr augum í þeim efnum.
Frakkur
þjófur
Stockport, Englandi. 30. deaember. AP.
MAÐUR nokkur, í æfingagalla, gekk
inn í búningsklefa tveggja „rögbf“-liða
sem áttu innan skarams að hefja leik á
íþróttaleikvangi í Stockport, og sagði:
„Jæja strákar, í þessum poka geymum
við allt fémætt til þess að því verði
ekki stolið." Þvf næst fylltu leikmenn-
irnir pokann, en ekkert af því hefur
sést síðan og maðurinn í sloppnum þar
með talinn.
Leikmenn beggja liða töldu mann-
inn vera á vegum hins liðsins, en vita
nú að svo var ekki. Lögreglan leitar
mannsins og fékkst sæmileg lýsing á
honum. Hann hafði hins vegar ekki
fundist síðast er fréttist.
Afganistan:
Vissu Bandaríkjamenn
um innrásaráformin?
VESTR/ENIR sendistarfsmenn í
Kabúl voru þegar sumarið 1979
sannfærðir um, að Sovétríkin ættu
eftir að gera innrás í Afganistan.
Segist Kjell Gjerseth, fréttamaður
norska blaðsins Dagbladet, hafa
þetta eftir heimildum í Kabúl, höf-
uðborg Afganistans, og Islamabad,
höfuðborg Pakistans. Þar hafi hann
smám saman á undanförnum árum
fengið að vita einstaka þætti þeirrar
sögu, sem hafi gengið fullum fetum
þess efnis, að innrásin í Afganistan
hafi hvorki komið Bandaríkjunum
né öðrum vestrænum ríkjum á óvart.
Frétt þessi birtist ( Dagbladet fyrir
skömmu.
ERLENT,
Norski fréttamaðurinn heldur
því ennfremur fram, að margir
vestrænir sendistarfsmenn hafi
haft vitneskju um ítarlega
skýrslu, sem sendiherra Banda-
Gromyko á
afvopnunar-
ráðstefnu?
Bonn, 30. desember. AP.
VESTUR-ÞÝSKA stjórnin hefur fengið
vísbendingar um að Andrei Gromyko,
utanríkisráðherra Sovétríkjanna, muni
sækja afvopnunarráðstefnuna í
Stokkhólmi í næsta mánuði, að sögn
talsmanns hennar. Hann býst Ifka við
að utanríkisráðherrar annarra Austur-
Evrópuríkja sæki ráðstefnuna.
Utanríkisráðherrar NATO sækja
ráðstefnuna og talsmaðurinn ítrek-
aði þá von stjórnar sinnar að Grom-
yko ræddi við George Shultz, utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna.
ríkjanna í Kabúl hafi sent til
Washington í júlí 1979. í þessari
skýrslu kemst sendiherrann að
þeirri niðurstöðu, að Rússar muni
senda her inn í landið og er gizkað
á að fjöldi sovézku hermannanna
verði um 100.000.
Til viðbótar þessu á pólski
sendiherrann í Kabúl að hafa
heimsótt bandaríska sendiherr-
ann þar tvisvar sinnum á þessum
tíma og bent á, að stjórnin í Kab-
úl, sem var svo hliðholl Sovétríkj-
unum, hefði ekki nægilegt vald yf-
ir landinu og að Sovétríkin myndu
sjá sig tilneydd til enn frekari af-
skipta af stríðinu i landinu, sem
þá var orðið að hreinni borgara-
styrjöld. Pólski sendiherrann var
tekinn alvarlega, því að sumarið
og haustið 1979 héldu flestir
bandarísku sendistarfsmannanna
í Kabúl burt þaðan í kyrrþey með
venjulegu farþegaflugi. Er sov-
ézka herliðið hélt inn í landið 27.
des. 1979 voru aðeins fáeinir vest-
rænir sendistarfsmenn eftir í
Kabúl.
Fyrstu fflasabarna-
þríburarnir í ] Kiei. v-pýskaiandi, 3«. deæmber. ap. irnir, sem þegar hafa verið V-ÞÝSK kona eignaðist í morgun skírðir og nefndir Arne, Jörg og fyrstu glasabarnaþríburana, sem Dennis, þremur vikum fyrir tím- um getur í Evrópu. Bömin, allt ann. Vógu þeir 12—1800 grömm drengir, voru tekin með keisara- við fæðingu eða 5—7 merkur. skurði á fæðingardeild sjúkrahúss Móðirin, hin 26 ára gamla háskóla borgarinnar. Marlies Clausen, er frá eynni Að sögn lækna fæddust dreng- Föhr skammt undan yestur- Evrópu - strönd V-Þýskalands. Henni og drengjunum þremur heilsast vel að sögn lækna. Sem fyrr segir er þetta í fyrsta sinn, sem glasa- barnaþríburar koma í heiminn í Evrópu, en áður hafði áströlsk móðir eignast þrjú börn eftir getnað með þessum hætti.
Ófriður
Líbanskur stjórnarhermaður mundar vopn sitt f Beirút í fyrradag, en þá
börðust stjórnarherinn og shitar vfða um borgina. Nú er að Ijúka
blóðugu ári í Líbanon og skiptar skoðanir hvort að fyrirheit komandi
árs séu góð eða slæm. Símamynd AP.
t
Unnusti minn og faöir okkar,
LEIFUR UNNAR INGIMARSSON,
veröur jarösunginn frá Dómkirkjunni 3. janúar kl. 15.00.
Díaa Dóra Hallgrímsdóttir,
Halldóra Leifsdóttir, Kristján Hallur Leifsson,
og Arnhildur Leifsdóttir.