Morgunblaðið - 31.12.1983, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 1983
STJÖRNl)
LJÖSA
TILBOÐ
r
t
V
3 stærðir áf 'v
stjömuljósum,
5 pakkar saman
í búnti.
Hrafnkell Stefánsson
lyfsali — Minning
Fæddur 30. aprfl 1930
Dáinn 23. desember 1983
Sjaldan hefur okkur brugðið
eins og þegar við fréttum það á
aðfangadag, að vinur okkar og
skólabróðir Hrafnkell Stefánsson
hefði látizt daginn áður. Þó að við
höfum ekki umgengizt mikið síð-
an hann tók við apótekinu á ísa-
firði fyrir 10 árum, var það víst
að þegar það fréttist síðastliðið
vor, að hann hefði fengið úthlut-
að lyfsöluleyfi í Breiðholti og
mundi því flytjast suður aftur, þá
hugsuðum við gott til að geta
endurnýjað vináttuböndin. Við
skólabræðurnir Hrafnkell, Þor-
kell Jóhannesson, Brynjólfur
Sandholt og Ragnar Halldórsson
umgengumst daglega og oft á dag
í þau 6 ár sem við vorum sam-
ferða í Menntaskólanum í
Reykjavík. Auk þess voru
Hrafnkell og Ragnar samtímis
við nám í Kaupmannahöfn í 2 ár.
Foreldrar Hrafnkels voru Stef-
án Jakobsson frá Galtafelli,
múrarameistari í Reykjavík, og
Guðrún Guðjónsdóttir. Hrafnkell
ólst upp í Norðurmýrinni og síðar
á Háteigsveginum. Hann lauk
stúdentsprófi úr stærðfræðideild
Menntaskólans í Reykjavík árið
1950 og hóf nám við Lyfjafræð-
ingaskóla íslands í október 1951.
Hann var við verknám í Ingólfs-
apóteki frá október 1951 til ágúst
1954, og varð Exam. pharm. í
október 1954. Hann stundaði nám
við danska lyfjafræðiháskólann
frá nóvember 1954 og lauk þaðan
Cand. pharm.-prófi í október
1956.
Hann starfaði á vegum Lyfja-
verzlunar rikisins við apótek Rík-
isspítalans í Kaupmannahöfn frá
nóvember 1956 til 1957 og var
lyfjafræðingur í Lyfjaverzlun
ríkisins í maí 1957 til desember
1969. Hrafnkell stundaði lyfja-
fræðingsstörf á Landspítalanum
frá desember 1958 til desember
1969 og var lyfjafræðingur við
ríkisspítalana frá janúar 1970 til
1973. Hann var í lyfjanefnd
Landspítalans 1971—1973 og
stundaði rannsóknir í ávana- og
fíknilyfjum og -efnum við rann-
sóknastofu í lyfjafræði við Há-
skóla íslands i samstarfi við
Þorkel Jóhannesson, prófessor,
1970—1973. Hann varð lyfsali á
ísafirði 1. ágúst 1973, og fékk
ATHYGLI skal vakin á því, að
afmælis- og minningargreinar
verða að berast blaðinu með góð-
um fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði, að berast í síðasta lagi
fyrir hádegi á mánudag og hlið-
stætt með greinar aðra daga. í
minningargreinum skal hinn
látni ekki ávarpaður. Þess skal
einnig getið, af marggefnu til-
efni, að frumort Ijóð um hinn
látna eru ekki birt á minningar-
orðasíðum Morgunblaðsins.
Handrit þurfa að vera vélrituð og
með góðu línubili.
leyfisveitingu fyrir Breiðholts-
apóteki síðastliðið vor. Apótekið
er í byggingu. Hrafnkell var í
stjórn Lyfjafræðingafélags fs-
lands 1958—1959 og 1963—1965
og í samninganefnd félagsins
1958—1973. Einnig var hann í
stjórn Heilsuverndarstöðvar ísa-
fjarðar. Hann ritaði margar
greinar um starfssvið sitt í Tíma-
rit um lyfjafræði.
Hrafnkell kvæntist 14. október
1951 Guðbjörgu Jónsdóttur, Jóns
Magnússonar kaupmanns og
Guðrúnar Stefánsdóttur rit-
stjóra. Þeim varð sex barna auð-
ið. Þau eru Jón læknir, Ragnheið-
ur textílhönnuður, Sigríður
sjúkraþjálfari, Stefán verkfræð-
ingur, Hannes læknisfræðinemi
og Guðrún sem er í skóla.
Hrafnkell var maður mjög dag-
farsprúður og traustvekjandi í
framkomu. Hann var myndarleg-
ur á velli, sviphreinn, svipmikill
og bauð af sér góðan þokka. Hann
var mjög vel liðinn af skólasystk-
inum, jafnt sem samstarfsfólki
og er harmdauði öllum þeim er
hann þekktu.
Við sendum skólasystur okkar,
Guðbjörgu eiginkonu Hrafnkels
heitins, aldraðri móður hans,
börnum hans og barnabörnum og
bræðrunum Hreggviði og Stefáni
Má innilegar samúðarkveðjur.
Kveðjuathöfn fór fram í ísa-
fjarðarkirkju miðvikudaginn 28.
þ.m., en útför Hrafnkels verður
gerð frá Fríkirkjunni í Reykjavík
mánudaginn 2. janúar, kl. 15.00.
Bekkjarbræður
t
SÖLVI ÁSGEIRSSON
frá Flateyri
lést í Sjúkraskýli Bolungarvíkur aö morgnl jóladags. Jarösungiö
veröur frá Flateyrarklrkju þriöjudaginn 3. janúar kl. 14.00.
Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
t
Ástkær eiginkona mín og móðir okkar,
ÓLÍNA (GÓGÓ) STEINDÓRSDÓTTIR,
Beykihliö 31, Reykjavík,
veröur jarösungin frá Dómkirkjunni ( Reykjavík miövikudaginn 4.
janúar kl. 15.00.
Einar Pálsson,
Geröur Einarsdóttir,
Kristrún Einarsdóttir,
Einar K. Sigurgeirsson,
Erla K. Sigurgeirsdóttir,
Guömundur K. Sigurgeirsson.
t
Hjartkær sonur okkar og bróðir,
ÞÓRÐUR JÓNSSON,
veröur jarösunglnn frá Fossvogsklrkju þriöjudaginn 3. janúar kl.
10.30.
Jón Níelsson,
Jódís Þorsteinsdóttir
og systkini hins látna.
t
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vlnarhug viö andlát og
útför, eiglnmanns míns, fööur okkar og tengdafööur,
ÁRNAJÓNASSONAR.
Sigurlaug Jónsdóttir,
Páll Árnason,
Ásdís Árnadóttir,
Jón Þór Árnason,
Ragnar Árnason,
Jón Bergsveinsson.
ÚRVALIÐ ALDREI FJÖLBREYTTARA
aaaatLoa (DJíajiiiaasaa ca?
E S ÁNANAUSTUM. SÍMAR 28855.