Morgunblaðið - 31.12.1983, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 1983
Spádómur þýzks stjörnuspekings:
• • ^
Orlagaár fyrir Island
Stjörnuspekingurinn Hartmut Radel við útskýringar á stjörnuspá. Radel er
43 ára gamall Þjóðverji og hefur sálfræðilega stjörnuspeki og stjörnuspár að
aðalstarfi. Hann heldur fyrirlestra í Vestur-Þýzkalandi, Austurríki og Sviss í
grein sinni og gerir ráö fyrir að kenna hana við háskóla í framtíðinni.
Eftir því sem nær líður að lokum þessarar aldar, hefur áhuginn á stjörnuspeki vaxið á meðal manna.
Þetta er ekki nýtt, heldur hefur oft gerzt áður á undanförnum öldum. Þá hefur ör framþróun tækninnar
ýtt mjög undir hvers konar hugmyndir um, að mannkynið kunni nú að standa á þröskuldi nýrrar aldar,
hvort sem það verður til góðs eða ills. Hefur þetta orðið til þess að vekja enn meiri áhuga en ella á
stjörnuspeki og stjörnuspám, en að baki liggur vaxandi forvitni og áhugi á framtíðinni.
Hartmut Radel er þýzkur stjörnuspekingur, sem dvelst um þessar mundir á íslandi. Hann hefur gert
sérstaka stjörnuspá fyrir ísland vegna ársins 1984. Hún erlsvo sannarlega athyglisverð, enda þótt hún
verði vart til þess að auka á bjartsýni íslendinga. Hann spáir m.a. aukinni eldvirkni hér á landi og að
minnsta kosti eitt eldfjall muni gjósa hér af miklurn krafti. Fólk verði þó sjálft ekki í beinni hættu. Gera
megi ennfremur ráð fyrir miklum flóðbylgjum, sem stafi af veðurhamfórum, er rót eigi að rekja til þess,
að jarðsegulsviðið verður fyrir truflunum. Illviðratímabil verða lengri og samfelldari en á undanförnum
árum og eiga sálrænir sjúkdómar eftir að aukast í kjölfar þessa.
Þá spáir Radel því, að meira raunsæi verði ráðandi á næsta ári á meðal fólks og að það muni halda
fastar utan um peningana sína. „Þettá verður ár án tálsýna," segir Radel. Þá heldur hann því fram, að
ísland verði að þora að halda sína leið eitt síns liðs og að á komandi ári muni reyna mjög á getu
stjórnarflokkanna við stjórn landsins. En gefum Radel orðið.
verðum við að búa okkur undir
stórfelldar jarðhræringar. Strax
sl. vor spáði ég jarðskjálftunum,
sem urðu í Tyrklandi og Japan,
sem á þessu ári voru í röð háska-
legustu náttúruhamfara. Á ís-
landi verða á ný jarðhræringar.
Samkvæmt stjörnuspekilegri hefð
á Plútó heima í Sporðdrekanum.
Plútó hefur áhrif á jarðkjarnann
og þar af leiðandi á jarðskjálfta og
eldvirkni. Tíðni eldgosa eykst og
að minnsta kosti eitt eldfjall mun
gjósa af miklum krafti. Enda þótt
fólk á íslandi verði ekki í beinni
hættu, þá munu jarðskjálftar hafa
mikla hættu í för með sér að nýju
fyrir íbúa Kaliforníu og Japans.
Við getum aðeins vonað, að engin
kjarnorkuver eyðileggist í þessum
hamförum. Afleiðingarnar yrðu
Fyrst verður að gefa skýringu á
því, hvernig unnt er í stjörnuspek-
inni að gera spádóma fyrir eitt
land. Almennt er það jú vitað, að
til þess að semja spár er nauðsyn-
legt að hafa nákvæman fæðingar-
dag og helst klukkustund og fæð-
ingarstað. Hver veit hins vegar
fæðingardag íslands? Hvað snert-
ir störnuspekilega útreikninga, þá
er notaður sá dagur, er ríkið er
stofnað eða upphafsdagur núver-
andi stjórnskipunar. I iýðræðis-
ríkjunum er það ofast sá dagur, er
stjórnarskráin var samþykkt.
Okkur er vel kunnugt um tíma-
setningu þessa atburðar á íslandi,
því að íslenzka lýðveldið var stofn-
að 17. júní 1944, er lýst var yfir
algeru fullveldi landsins og gild-
istöku nýrrar stjórnarskrár. Með
þennan dag í huga er unnt að gera
stjörnuspá með svipuðum hætti og
ef þá hefði fæðst maður. Hvort
sem um mann, dýr plöntu eða rfki
er að ræða, þá byggist þetta allt á
sömu grundvallarreglunni. Þannig
er unnt að beita stjörnuspekilegri
túlkun jafnt við fólk sem við
óhlutbundin hugtök eða fasta-
hluti. Stærðfræðilega er ekki unnt
að skilja hana, en í þess stað bygg-
ir hún á aldalöngum athugunum.
Af reynsluþekkingu kemur
þannig fram stjörnuspekileg
skilgreining, þar sem talað er um
rísandi stjörnumerki. Fyrir Island
er það sporðdrekinn. Frá því að
Ptolemeus, sem um 150 árum eftir
Krist samdi stjörnuskrá (Tetra-
biblos), sem enn er eitt af viður-
kenndustu grundvallarritum
stjörnuspekinnar, hafa stjörnu-
spekingar um allan heim kannað
náttúruviðburði, styrjaldir, far-
sóttir og efnahagsþróun í ýmsum
löndum. Safnað var saman at-
burðastjörnuspám og með þeim
hætti varð smám saman til sér-
kennasafn fyrir hin ýmsu lönd.
Þvi var raðað niður eftir dýra-
stjörnumerkjum.
Orðið rísandi er notað vegna
þess, að það sýnir stöðu landa og
þjóða í umhverfi sínu. Hver er þá
staða íslands sem sporðdreka-
lands á komandi ári á sviði stjórn-
mála, efnahagsmála og félags-
mála? Og hvað gerist úti í náttúr-
unni?
Öldum saman hafa stjörnuspek-
ingar um allan heim kannað af
sérstökum áhuga það augnablik,
er Plútó fer inn í merki Sporð-
drekans samtíms því sem höfuð-
reikistjörnurnar Marz, Júpíter,
Satúrnus, Úranus, Neptúnus og
Plútó standa nokkurn veginn í röð
í samliggjandi merkjum Sporð-
drekans, Bogmannsins og Stein-
geitarinnar. Er þetta gerist, skap-
ast gífurlegt aðdráttarafl. Þetta
afl hefur stórfelld áhrif á gang
náttúruaflanna á jörðunni. Árið
1984 lendir þar að auki á tímabili
mikilla sólbletta.
Á næstu mánuðum eiga eftir að
verða óvenju miklar truflanir á
fjarskiptum. Þetta á eftir að bitna
mjög á siglingum á Norður-
Atlantshafi. Það verður ekki bara
erfitt að skilja sendingar, heldur
verður miklu fremur um algerar
fjarskiptaeyður (blakc outs) að
ræða. Fjarskipti týnast, án þess að
nokkur skýring finnist. 1 verstu
tilfellum getur þetta leitt til stór-
slysa. Jarðsegulsviðið verður fyrir
truflunum, sem haft geta í för með
sér veðurhamfarir. Gera má ráð
fyrir miklum flóðbylgjum á ís-
landi. Illviðratímabil verða lengri
og samfelldari en á undanförnum
árum. Afleiðing þessa verður, að
geðheilsu fólks verður ofboðið.
Sálrænir sjúkdómar eiga eftir að
aukast í kjölfar þessa því miður og
tíðni sjálfsmorða eykst.
Það er mál margra stjörnuspek-
inga, að á árunum 1984—1986 geti
átt sér stað „pólvelta". Með þessu
er átt við það, að vegna aðdráttar-
afls áðurnefndra reikistjarna geti
jörðin okkar farið á hliðina. Þá
myndi miðjarðarbaugur liggja þar
sem línan milli norðurpóls og suð-
urpóls liggur nú og pólarnir á
miðjarðarlínunni. Þetta er of
ótrúlegt til þess að vera satt. Þá
myndu pálmalundir þekja ísland
og banaskip leggjast að bryggju í
Reykjavíkurhöfn. Nei, ég get ekki
tekið undir slíka spá. Eigi að síður
Júpíter
Sotúrnus
Merkúríui
Venus
Jörðin
Morz
Úronus
Plúfó
Reikistjörnurnar. Myndin sýnir stærðarhlutföll þeirra innbyrðis. Merkúr er næstur sólu
en Plútó fjarlægastur.
Sólkerfið, frá vinstri til hægri: Merkúr, Venus, Jörðin (með tunglinu), Marz, Júpíter, Satúrnus, Uranus, Neptúnus og
Plútó.