Morgunblaðið - 31.12.1983, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 1983
27
skelfilegar. I Japan einu saman
eru 22 slík raforkuver í notkun.
Þegar Plútó er í sínu eigin húsi,
Sporðdrekanum, felur hann í sér
geysilega öfluga myndbreytandi
orku, sem umbreytir gersamlega
öllu því, sem var. Þessi orka eyðir
og ýtir til hliðar því gamla í því
skyni að skapa rúm fyrir nýtt upp-
haf.
Plútó er einnig tákn frjóseminn-
ar. Þegar allt kemur til alls, þá hóf
lífið hér á jörðunni göngu sína
fyrir atbeina eldvirkninnar og
skapaði sér á storknuðu hrauninu
sín fyrstu lífsskilyrði.
Nýtt tímabil
Plútó kemur aðeins á 248 ára
fresti inn í merki Sporðdrekans. í
þessari hringför markar hann
upphaf nýs tímabils hverju sinni
fyrir ísland. Plútó einn er mjög
áhrifamikill, en þegar hann er þar
að auki studdur af að minnsta
kosti fjórum öðrum höfuðstjörn-
um, þá á hann eftir að ráða at-
burðarásinni á íslandi á árinu
1984. Til þess að gera sér grein
fyrir mikilvægi þessarar afstöðu
stjarnanna, verða menn að hafa
það í huga, að Plútó var síðast á
þjóða. Verzlun mun blómgast.
Fiskvinnslan mun þar að auki
hafa fram að færa möguleika, sem
reynzt hafa vel áður. Á þessum
vettvangi skapast góð tækifæri til
þess að opna nýja sölumarkaði og
efla viðskiptasamböndin. Með Sat-
úrnus í Sporðdrekamerkinu hefur
Merkúr-árið 1984 þá nauðsyn í för
með sér fyrir ísland að bjóða
viðskiptalöndum sínum meiri
vörugæði. Aðeins þannig verður
unnt að vinna bug á óstöðugleika
þeim, sem árið flytur með sér. Því
miður mun fyrri helmingur ársins
hafa í för með sér enn meira
atvinnuleysi. Rýrnun peninganna
heldur áfram. Fyrst á síðari hluta
ársins koma fram hugmyndir, sem
gefa fyrirheit um festu og varan-
leika að lokum.
Meira raunsæi
Ekki bara þeir sem stjórna,
heldur almenningur líka mun
temja sér meira raunsæi. Þetta
verður ár án tálsýna. Fyrirheit
eiga eftir að leysast upp í
reykskýi. Fólk mun halda fastar
utan um peningana sína.
Vinnuveitendur verða ekki eins
fúsir og áður til þess að taka
Sýnishorn af stjörnuspá.
þessum stað á meðal stjarnanna
fyrir ca. 6000—8000 árum.
Öfgastefnum mun vaxa ásmegin
á fslandi og þá einkum á vettvangi
þjóðfélagsmála og stjórnmála.
Ytri aðstæður eiga eftir að
harðna. Til viðbótar hinni andlegu
breytihneigð, sem unga kynslóðin
elur með sér, koma vaxandi erfið-
leikar á vinnumarkaðinum. í sam-
ræmi við regluna „að farast og
fæðast" þróast lífsskilyrðin í átt
til ástands, sem er enn meira
ófullnægjandi en áður. Ástandið á
vinnumarkaðinum verður enn erf-
iðara.
Atvinnuleysi verður að aðkall-
andi vandamáli á árinu 1984. Eng-
inn getur verið viss um atvinnu
lengur. Á árinu mun reyna mjög á
getu stjórnarflokkanna. Annars
vegar verða þeir með því að skapa
fleiri atvinnutækifæri að draga úr
erfiðleikunum á vinnumarkaðin-
um. Hins vegar verða þeir að
finna aðferðir og leiðir til þess að
halda verðbólguhraðanum í skefj-
um. Við lausn þessara vandamála
er lítið unnt að reiða sig á aðstoð
annarra þjóða, sem íslendingar
eru í bandalagi við.
Island verður að þora að halda
sína leið eitt síns liðs. Á árinu
1984 verður ekki að finna nein
„tækifæri aldarinnar" fyrir ís-
land. Allar áætlanir og hugmyndir
um að flytja nýja tækni inn í land-
ið verður ekki unnt að framkvæma
á komandi ári. fsland verður að
halda sig við þær iðngreinar, sem
þegar hafa verið byggðar upp. ís-
lendingar verða að læra að semja
sig að reglu hófseminnar (Satúrn-
us) á næsta ári. Leggja verður
áhrzlu á að viðhalda stöðu lands-
ins í efnahagssamvinnu Evrópu-
áhættu. Launþegar munu gera allt
til þess að tryggja atvinnu sína.
Það mun ganga svo langt, að fólk
þorir ekki lengur að tilkynna
sjúkraforföll af ótta við að missa
vinnu sína. Sá, sem virkilega legg-
ur sig fram, mun í árslok hafa
tryggt öryggi sitt. Árið 1984 gefur
þeim einum tækifæri á íslandi,
sem af einlægum vilja og fullri
einbeitni uppfylla skyldur sínar.
Það eitt gildir, sem skiptir máli.
Raunsæi verður látið ráða á öllum
sviðum lífsins.
í þjóðfélagsmálum tekur fólk að
hugsa öðru vísi. Leitin að meiri
lífsfyllingu á eftir að skipa æðri
sess. Sótzt verður eftir nýjum
markmiðum. Samtök verða mynd-
uð til þess að leita nýrra verð-
mæta, er gefa lífinu meiri tilgang.
Æskan verður að vandamáli.
Fíkniefnabrot eiga eftir að magn-
ast mjög á íslandi 1984. Félagsleg
bönd jafnt sem fjölskyldubönd
eiga eftir að rofna. Framar öðru'm
mun unga kynslóðin leita nýs lífs-
verðugs þjóðfélagsforms, sem gef-
ur lífinu fullnægjandi gildi. Að
baki þessu felst leitin að nýju
manngildi.
Hver og einn af þessari þjóð
verður að taka afstöðu til nálægð-
ar ársins 1984 og taka tillit til
hennar, er hann horfir til framtíð-
arinnar. Mikilvægt er, að þessir
uppbyggingarkraftar verði nýttir.
Flett verður harkalega ofan af
hvers konar misferli. í þessum
nýju samtökum komandi árs,
hvort sem það eru einstaklingar,
samtök eða stjórnmálasamtök,
verður það, sem gengið hefur sér
til húðar, eyðilagt til hagsbóta
fyrir nýsköpun í efnahagslífi og
þjóðmálum.
Sigríður Angantýs-
dóttir - Kveðjuorð
Kynni okkar Sigríðar hófust
fyrir tæpu ári. Við áttum þá sam-
leið í kvennabaráttunni, hittumst
fyrst í hópstarfi Kvennalistans
fyrir síðustu kosningar. Sigríður
gaf sig af heilum hug í þá baráttu.
Framlag hennar var ómetanlegt.
Hún miðlaði okkur af langri
starfsreynslu sinni og þekkingu,
m.a. á málefnum kvenna í fisk-
vinnslu.
Aftur lágu leiðir okkar Sigríðar
saman, þegar við nokkrar konur
hófum undirbúning að ráðstefnu
um kjör kvenna á vinnumarkaðin-
um. { þann hóp var Sigríður
sjálfkjörin. Eftir ráðstefnuna
fylgdi undirbúningur að stofnun
Samtaka kvenna á vinnumarkaðn-
um í kjölfarið.
I öllu þessu starfi var Sigríður
einstaklega góður vinnufélagi.
Hún tók aldrei að sér verkefni, án
þess að skila því til fullnustu, en
það er ómetanlegur kostur í bar-
áttu, sem unnin er í tómstundum.
Það var þó ekki aðeins áreiðan-
leiki Sigríðar, sem gerir hana
ógleymanlega okkur samstarfs-
konum hennar. Það var að sjálf-
sögðu fyrst og fremst manneskjan
Sigríður, glaðvær, tillögugóð,
jákvæð og hjálpsöm, sem við
minnumst með trega.
Kynnin voru stutt, en þau voru
góð. Eftir stöndum við einum góð-
um félaganum færri.
Við kveðjum Sigríði með sökn-
uði, konu, sem gekk ótrauð og sig-
urviss til fylgis við réttlætismál-
stað eigin kyns.
Guörún Jónsdóttir
Bridgo
Arnór Ragnarsson
Bridgefélag
Akureyrar
Nú er aðeins tveimur umferóum
ólokið í Akureyrarmótinu í sveita-
keppni og er sýnt að sveit Stefáns
Ragnarssonar muni hreppa titilinn
að þessu sinni, en sveitin hefir
fengið 301 stig í 17 umferðum.
Röð næstu sveita:
Harðar Steinbergssonar 258
Páls Pálssonar 242
Jóns Stefánssonar 237
Júlíusar Thorarensens 234
Arnar Einarssonar 230
Antons Haraldssonar 214
Karls Steingrímssonar 209
Tuttugu sveitir taka þátt í
mótinu og eru spilaðir 16 spila
leikir. Síðustu tvær umferðirnar
verða spilaðar 3. janúar 1984.
Akureyrarmótið i tvímenningi
sem spilað er með barometer-
fyrirkomulagi hefst 10. janúar
nk. Þátttökutilkynningar þurfa
að berast til stjórnar BA fyrir 5.
janúar nk., en barometerinn
krefst nokkurrar undirbúnings-
vinnu sem kunnugt er. Öllum er
heimil þátttaka i mótinu og eru
spilarar í nágrenni Akureyrar
hvattir til að taka þátt í mótinu.
Bridgefélag kvenna
Félagið hefur starfsemi sína
með aðalsveitakeppni í Domus
kl. 19.30 mánudaginn 9. jan. nk.
Sveitaforingjar tilkynni sig til
Sigrúnar, sími 11088, eða Gerð-
ar, sími 81889.
Nú hefur
Sparisjóður Keykjavikur og nágrennis
enn aukið þjónustu við viðskiptavini sína.
Sparisjóðurinn fiejur opnað
umboðfyrir
HAPPDRÆTTI
HASKÖLA ÍSLANDS
og
í útibúi sínu á Seítjamamesi
Viðskipiamönnum sparisjóðsins stendur tif
6oða að það sé tekið út aj reikningum fmira
við endumýjun happdrcettismiðanna.
... Já, f>að er tán að skipla við sparisjóðinii.
SPARISJÓÐUR
REYKJAVÍKUR
OG NÁGRENNIS
Skólavöröustíg 11 • Reykjavík • Sími 27766
Austurströnd 3 • Seltjarnarnesi • Sími 25966